Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Qupperneq 40
52
■»
Tilvera
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
DV
Myrte Beach
Víöa um heim eru frábærír golfvellir og það hlýtur aö vera draumur allra sem á annaö borö stunda golf að taka nokkrar holur á erlendri grund.
Golfferðir:
Púttað á erlendri grund
Eins og allir vita nýtur golf mik-
illa vinsælda hér á landi sem ann-
ars staðar. Víða um heim eru frá-
bærir golfvellir og það hlýtur að
vera draumur allra sem á annað
borð leggja stund á íþróttina að taka
nokkrar holur á erlendri grund.
í haust verður landanum boðið
upp á sérstakar golfferðir til ýmissa
áfangastaða, innan Evrópu og utan.
Golf á Spáni og Portúgal
Á Spáni eru margir góðir vellir
sem bæði henta byrjendum og
lengra komnum. Fyrir byrjendur
hentar prýöilega að skella sér í golf-
kennslu til Matalascanas. Þar er
boðið upp á kennslu í öllu sem við-
kemur golfíþróttinni á fyrsta flokks
völlum og því kjörið fyrir þá sem
vilja ná góðri sveiflu.
Matalascanas er „sumarbær"
Spánverja og í um 85 kílómetra fjar-
lægð frá Sevilla. Bærinn stendur við
í miönætursól á Arctic Open
Þaö gæti því veriö sniöug hugmynd
aö skipuleggia sumarfríiö meö þaö í
huga aö fara hringinn í kringum
landiö og spila golf í leiöinni.
Islantilla á Spáni
Fjöldi Islendinga þekkir golfvöllinn í Islantilla. Ýmsar endurbætur hafa verið geröar á vellinum aö undanförnu og því
full ástæöa til aö drífa sig þangaö og rifja upp gamlar minningar.
á Zaudin-golfvellinum sem er ekki í
nema flmm mínútna fjarlægð frá
miðbænum.
Fjöldi íslendinga þekkir golfvöll-
inn í Islantilla. Ýmsar endurbætur
hafa verið gerðar á honum að und-
anförnu og því full ástæða til að
drifa sig þangað og rifja upp gamlar
minningar.
Rétt utan við Albufeira í Portúgal
er að finna að minnsta kosti fjóra
skemmtilega velli sem eru fimmtán
mínútna akstur frá borginni. Vell-
irnir heita The Old Course, Pinhal,
Languna og Millenium.
Golf í Malasíu
í haust verður boðið upp á að
minnsta kosti tvær golfferðir til
Malasíu, Farið verður til Kuala
Lumpur og Borneo.
Við Glenmarie-hótelið í Kuala
Lumpur eru tveir átján holu golf-
vellir sem að sögn kunnugra eru al-
veg frábærir.
Borneo er eyja, tveggja og hálfs
tíma flugferð frá Kuala Lumpur.
Niðri við ströndina er að finna
skemmtilegan 27 holu völl, með golf-
skála og tveggja hæða golfæfingar-
svæði.
Malasía er áhugaverð nýjung fyr-
ir ferðaþyrsta íslendinga, landið er
snyrtilegt og fólkið gestrisið.
Langt yfir skammt
Þeir sem vilja ferðast innanlands
geta valið á milli ótalmargra golf-
valla um allt land. Það gæti því
verið sniðugt að skipuleggja sumar-
fríið með það í huga að fara hring-
inn um landið og spila golf í leið-
inni. Þeir sem hafa mestan áhuga
gætu til dæmis haft það að mark-
miði að spila á öllum golfvöllum
landsins á nokkrum sumrum.
Góða skemmtun. -Kip
ströndina og i nágrenni hans er
Donana-þjóðgarðurinn og sögubær-
inn E1 Rocio. í október árið 2000 var
opnaður nýr golfvöllur í
Matalascanas sem heitir Dunas de
Donana. Völlurinn er 18 holur og
þykir bæði krefjandi og skemmtileg-
ur. Grasið á flötum og brautum er
eins og best verður á kosið. Fimm af
átján holunum eru með vatnstor-
færum sem gera völlinn enn meira
spennandi.
Þeir sem vilja geta ekið frá
Matalascanas til Sevilla og reynt sig
Skemmtileg heilsubót
Þaö getur veriö ótrúlega skemmtilegt aö rölta um í góðu veöri og taka
nokkrar holur í leiöinni.
Golf í Kuala Lumpur
/ haust veröur boöiö upp á aö minnsta kosti tvær golfferöir til Malasíu, í
annarri feröinni er fariö til Kuala Lumpur en í hinni til Borneo.
The Laugavegur Hiking Trail
Ferðafélag ís-
lands hefur gefið
út leiðarlýsingu
yfir gönguleiðina
frá Landmanna-
laugum til Þórs-
merkur á ensku.
Ritið, sem er 48
blaðsiður, er
með fjölmörgum
ljósmyndum og
kortum. í heftinu
er einnig að finna upplýsingar um
undirbúning fyrir ferðina.
Bjarmaland til Rússlands
Ný íslensk ferðaskrifstofa,
Bjarmaland, sem sérhæfir sig í ferð-
um til Austur-Evrópu, efnir til borg-
arferðar til tveggja stærstu borga
Rússlands, Moskvu og Pétursborg-
ar, 12.-26. september. Nánari upp-
lýsingar á www.austur.com
Ferðahandbók á Netinu
Ef þú ert einn af þeim sem nenna
ekki að þvælast með ferðahandbók
sem er full af upplýsingum sem
koma þér ekki að gagni þá er þetta
einhvað fyrir þig.
Á slóðinni www.booktailor.com
getur þú raðað saman ferðaupplýs-
ingum úr mismunandi ferðabókum
og búið til þína eigin handbók.
Hundahótel
Hundaeigendur í Þýskalandi geta
nú hætt að hafa áhyggjur af því
hvar hundurinn á að vera á meðan
þeir fara í frí. Hóteleigandi í Berlín
breytti fyrir skömmu hóteli sínu í
fyrsta flokks hundahótel þar sem
Snati og félagar lifa í vellystingum á
meðan eigendurnir ferðast áhyggju-
lausir um heiminn.
Sérkort um Fjaliabak
Mál og menning hefur gefið út nýtt
sérkort i mælikvarðanum 1:100 000 af
göngu- og jeppasvæðinu að Fjalla-
baki. Kortið nær yfir Landmanna-
leið, Fjallabak syðra og leiðina í
Lakagíga. Auk ökuleiða sýnir kortið
vinsælar gönguleiðir eins og „Lauga-
veginn" frá Landmannalaugum í
Þórsmörk, Strútsstíg og leiðina í
Skælinga. Á bakhliö kortsins er fjar-
víddarkort af „Laugaveginum" og lit-
myndir af náttúruperlum svæðisins.
Mengun
Bandaríkjamenn hafa miklar
áhyggjur af baðströndunum í land-
inu um þessar mundir. 83% fleiri
ströndum var lokað í ár en í fyrra
vegna mengunar. Sérfræðingar eru
ekki á einu máii um af hverju
mengunin stafar en flestir telja að
hana megi rekja til skólplagna frá
stórborgum. -Kip