Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 52
Opel Zafira
Bflhelmiir
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST2001
Eldhúsiö
Núverandi eigendur eru hættir.
Efling gengur
að Eldhúsi
Forsvarsmenn Eldhússins í Kringl-
unni sinntu ekki í gær þeirri kröfu
verkalýðsfélagsins Eflingar að gera
upp þau vörslugjöld starfsmanna sem
eru í vanskilum aOt síðan í september
á síðasta ári. DV greindi frá því i gær
að Eldhúsinu var lokað um miðjan
júlí. I ljós kom að skattar og lífeyrisið-
gjöld, sem dregin höfðu verið af starfs-
fólkinu, höfðu ekki skilað sér i réttar
hendur. Starfsmenn fengu því bak-
reikninga frá skattinum um mánaða-
mótin auk þess sem engin laun voru
greidd út. Eíling gaf Úrvalsvörum,
sem reka Eldhúsið, lokafrest þar til í
gær til að ganga frá greiðslum. Ekkert
gerðist í þeim efnum og því mun
verkalýðsfélagið ganga að Eldhúsinu
og innheimta kröfurnar.
Einn eigenda Eldhússins sagði við
DV að leitað væri allra leiða til að
greiða umrædd gjöld. -rt
Tónlistartöffarar
Ólafur Þórarinsson, Heimir Davíös-
son og Hjörleifur Brynjólfsson á æf-
ingunni í Þorlákshöfn í gærkvöld.
Hafnardagar í Þorlákshöfn:
Oddvitinn
er poppari
DV. ÞORLÁKSHQFN:
„Við erum að rifja upp gamla tíma
frá því við vorum með bönd hér á
yngri árum, frá 1973 tO ‘79,“ sagði
Hjörleifur Brynjólfsson, oddviti
bæjarstjórnar Ölfuss, sem var ásamt
Heimi Davíðssyni og Ólafi Þórarins-
syni, Labba í Glóru, að æfa pró-
gramm kvöldsins í gærkvöld fyrir
endurkomu hljómsveitarinnar
Clírótes og Trió Ró. Hafnardagar eru
í Þorlákshöfn og í tUefni þeirra fer
oddvitinn aftur í gervi popparans.
Labbi er gestaspUari með þeim félög-
um í kvöld því félagi Hjörleifs og
Heimis, Ómar Ásbergsson, lést af
slysforum árið 1979. -NH
DV-MYND HARI
Rigningartíð
Nú, þegar sumri hallar, er runnin upp sú tíö aö rigningar aukast. Haustiö læöist aö og áöur en varir tekur Vetur konungur vöidin. Enn lifa þó nokkrar vikur af
sumrinu og þegar himnarnir opnast þarf aö skella sér í regngallann eins og þetta fólk á götum höfuöborgarinnar geröi í gær.
Styttist í 1. september og kvóta á smábáta:
Ráðherra útilokar
ekki miðlunarleið
- mjög sterkur þrýstingur á að endurvekja miðlunartillögu
„Ég útUoka ekki að það
verði ofan á og vissulega nálg-
ast \. september óðUuga," seg-
ir Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra aðspurður hvort
hann muni breyta reglugerð
þannig að hin svokallaða
málamiðlunarleið i málefnum
smábáta á þorskaUamarki geti
tekið gildi. Málamiðlunin felst
í því að til að draga úr óæski-
legum áhrifum kvótasetning-
ar á smábáta, sem mun að
óbreyttu bresta á um mánaðamótin,
með því að úthluta aukalega 1800
tonna ýsukvóta til þessa útgerðar-
Uokks og 1500 tonnum til viðbótar af
steinbít. Steinbítur yrði þá aftur sett-
ur undir kvóta. Árni Mathiesen segir
að málið sé enn í skoðun enda sé það
bæði Uókið og viðkvæmt og mun erf-
iðara viðfangs nú en á Alþingi í vor
þegar ekki náðist samstaða um að
fara þessa leið. Ráðherra segir að
Arni Mathiesen
sjávarútvegsráö-
herra
hans vilji sé klár, hann hafi
alltaf viljað fara þessa leið,
en hins vegar sé ekki einfalt
að sjá hvernig sú leið yrði
farin undir þeim kringum-
stæðum sem nú eru uppi.
„Mér sýnist vera alveg klár
klofningur innan raða smá-
bátamanna i þessu máli. Ég
hef verið að fá mjög sterk
viðbrögð frá útgerðarmönn-
um smábáta, sérstaklega á
Vestfjörðum en lika víðar að.
Ég gæti trúað að á bak við þessa
menn sé um helmingur smábátaaU-
ans. Þessir menn eru að þrýsta á um
að málamiðlunartiUagan verði tekin
upp að nýju, þ.e. þessi tUlaga sem var
minn fyrsti valkostur í þessu máli,“
segir Árni. Hann segist líka verða var
við óánægju með þá ákvörðun að gefa
veiðar á steinbít frjálsar þar sem
menn telji aö sú aðgerð hjálpi ekki
eins hún átti að gera. „Því má
kannski segja að það sé tUgangslaust
fyrir mig að hanga mikið á þeirri
ákvörðun ef hún skilar ekki því sem
hún átti að gera,“ segir ráðherrann.
Aðspurður hvort hann sjái að 1 nið-
urstöðu nefndar um endurskoðun
laga um stjórn fiskveiða, sem á að
skUa af sér um mánaðamótin, muni
koma eitthvert útspil sem muni
höggva á þennan hnút segist ráðherra
ekki vita til að þar sé neitt sem sé frá-
brugðið eða mundi stangast á við
málamiðlunartiUögu sína. Kvótasetn-
ingin á smábátana brestur á þann 1.
september og segir Árni alveg ljóst að
kvótasetningu verði ekki frestað -
stjórnarskráin einfaldlega heimili það
ekki. Því sé krafa þeirra sem enn
haldi sig við það að fresta verði kvóta-
setningu út í hött. „Sumir vUja engu
skeyta um stjórnarskrána og keyra
málið alveg fram af brúninni fremur
en að leita að einhverri niðurstöðu,"
segir sjávarútvegsráðherra. -BG
Lögreglan á ekki að ritstýra blöðunum:
Ríkislögregla óskar skýringa
„Við höfum óskað eftir að fá upp-
lýsingar og öU gögn varðandi sam-
skipti lögreglunnar og fjölmiðla. Við
erum að skoða hvernig þessum sam-
skiptum er háttað og viljum fá heild-
armynd," sagði Guðmundur Guðjóns-
son hjá Ríkislögreglustjóra í gær. ít-
rekað hefur lögreglan haft óeðlileg af-
skipti af starfi blaðamanna á undan-
fornum misserum, nú síðast þegar
lögregla reyndi að hindra fréttamenn
í starfi við Reykjavíkurhöfn. Lög-
reglustjórinn í Reykjavík fékk bréf
embættisins í gær, undirritað af Jóni
Snorrasyni sem leysir Harald Johann-
essen af í fríi hans.
Stjórn Blaðamannafélags íslands
samþykkti í gær harðorða ályktun
vegna framgöngu lögregluþjóna við
eftirlit með mótmælum á hafnarbakk-
anum í vikunni. „Lögreglan hindraði
þar enn og aftur blaðamenn við störf
og braut stjórnarskrárvernduð rétt-
indi þeirra, m.a. með því að taka fyr-
ir linsu á ljósmyndavél, sem er hvort
tveggja, ofbeldisverknaður og lög-
brot,“ segir í ályktun blaðamanna. Er
þess krafist að lögreglan í Reykjavík
biðji hlutaðeigendur afsökunar og
tryggi að slík framkoma verði ekki
endurtekin.
Stjórn Blaðamannafélagsins segist
hafa þungar áhyggjur af framkomu
lögreglu í garð blaðamanna sem hefur
ekki batnað þrátt fyrir fogur fyrirheit
um bætt samskipti.
„Maður hefði talið að umræðan í
kringum Li Pen-heimsóknina hefði
skilað einhverjum árangri. Lögreglan
baðst afsökunar - en greinilega er
hún enn við sama heygarðshornið,"
sagði Þór Jónsson, varaformaður
Blaðamannafélags íslands, í gær.
Hann sagði það hreint ekki í verka-
hring lögreglu í lýðsræðisríki að
ákveða hvað er frétta- eða myndaefni
og hvað ekki. -JBP
National
Geographic
myndar Kára-
hnjúka
Hið heimsfræga og aldraða tíma-
rit National Geograpic hefur sent
hóp manna til íslands sem hafa það
verkefni að mynda Kárahnjúka,
Dimmugljúfur og öræfi Austur-
lands. Þetta er lið ljósmyndara, rit-
stjóra og sérhæfðra blaðamanna
sem hefur verið faliö að kynna
milljónum lesenda blaðsins um
heim allan þá náttúruperlu sem þar
er finna.
Að sögn heimildarmanna DV
brugðu menn skjótt við þegar frétt-
ist af því að til stæði að virkja við
Kárahnjúka og sendu hópinn hing-
að í snatri. Heimildarmaður DV
hafði eftir myndritstjóra leiðangurs-
ins að hér væri í uppsiglingu um-
hverfisslys og einhver mesta
heimska sem hann hefði séð á sín-
um ferli.
í gær hreppti leiðangurinn fagurt
veður á svæðinu en þoka og rigning
mun hamla störfum í augnablikinu.
-PÁÁ
Heilsudýnur t sérjlokki'!
Svefn&heilsa
★ ★★★★
<'t-r HEILSUNNAR
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150