Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Side 2
2
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
DV
Fréttir
Margir fá nú stórhækkun á fasteignamati:
Gríðarleg útgjalda-
aukning fjölda heimila
- ástæðan m.a. allt að 400% hækkun lóðarleiguverðs
-Skdfflem Fýrlr Eftir
Elgnaskattsstofn 12.000.000 20.000.000
Fasteignaskattur -45.000 -75.000
Elgnaskattur -96.810 -192.810
Sórstakur eignaskattur -16.807 -36.807
Mismunur á gjöldum ‘SOfeíOT
Mísmunur á peningum mílli handanna 146.000 kr.
Fasteignamat 20.300.000 24.200.000
Eignaskattsstofn 5.500.000 9.400.000
Fastelgnaskattur -61.500 -76.125
Eignaskattur 0 -18.784
Vaxtabmtur 250.932 9
Mlsmunur á gjöldum 2$&fS89£
Mlsmunur á peningum milli handanna 264.341 kr.
Skattaálögur á
landsmenn hafa
verið að stóraukast
að mati Péturs H.
Blöndals alþingis-
manns. Eignir og
tekjur hafi hækkað
langt umfram verð-
lag og bæði eignar-
skattur og tekju-
skattur hafi síðan
hækkað enn meira.
Hann segist margsinnis vera búinn
bera málið upp á þingi, m.a. hvað
eignaskatt varðar, en mest fyrir
daufum eyrum. í dag sé ekki nema
1/3 af eignum landsmanna eignar-
skattskyldur. í raun borgi því engir
eignarskatt nema íbúðareigendur.
Opinber fyrirtæki, stofnanir, lífeyr-
issjóðir og fleiri borgi enga eignar-
skatta. Fyrirtæki sjaldnast heldur,
þar sem eignir eru gjaman toppveð-
settar.
Nú fer hver að verða síðastur að
gera athugasemdir við endurmat
brunabóta- og/eða fasteignamats.
Fasteignamatið hefur m.a. hækkað
mikið undanfarin ár. Til að mynda
var 18% hækkun á því 1. des. ‘99 og
12% hækkun ári siðar. Og með end-
urmatinu nú hækkaði það enn frek-
ar hjá mörgum húseigendum þó
sumir hafi líka lækkað. Mikil hækk-
un getur haft umtalsverð áhrif á út-
gjöld fjölskyldu vegna breyttrar
eignastöðu.
Fer illa meö marga
Gunnlaugur Kristinsson, endur-
skoðandi hjá PriceWaterhouse
Coopers, segir að
hækkun fasteigna-
matsins geti haft
veruleg áhrif á
vaxtabætur og
eignaskatt auk
hinna hefðbundnu
fasteignaskatta.
„Sérstaklega fer
hækkunin illa með
margt eldra fólk
sem á sína fasteign
skuldlausa. Einnig
ungt fólk sem er að
koma þaki yfir höf-
uðið.“ Hann bendir
á að stór hluti
hækkunar fast-
eignamatsins sé til
kominn vegna stór-
hækkaðs mats leigulóða, en i sum-
um tilfellum er um að ræða meira
en 400% hækkun.
Hvetja til aukinnar
skuldsetningar
Dæmi eru um að eignarskattstofn
einstaklings með 100 þúsund króna
mánaðartekjur hafi hækkað um 7 til 8
milljónir króna frá áramótum. Það
þýðir að viökomandi einstaklingur
þarf að borga nær hundrað þúsund
krónur í aukna skatta á ári. Auk þess
missir hann vaxtabætur, nema hann
steypi sér í samsvarandi skuldir, t.d.
með jeppakaupum eða því um líku.
„Ég hef bent á að lækkun á eignar-
skatti sé liklega eina skattalækkunin
sem hægt er að grípa til án þess að
setja verðbólguna á skrið. Þetta er
skattur sem vinnur gegn spamaði.
Þegar menn eru búnir að borga upp
skuldir missa þeir vaxtabætur og fara
að borga eignarskatt til ríkisins," segir
Pétur H. Blöndal.
Þetta sé spurning um réttlæti þess
að leggja eignarskatta á fólk. Þar er
mönnum refsað fyrir spamað og ráð-
deild. Pétur segir eignarskatta víðast á
undanhaldi og fæst lönd ef nokkur hafi
viðlíka eignarskatta og íslendingar.
EES lönd séu t.d. mörg hver án eignar-
skatta. Afleiðingar breytinga á bruna-
bótamati og fasteignamati vom teknar
upp í efnahags- og viðskiptanefnd sl.
miðvikudag. Það er nú í skoðun og
ekki er útséð hvert framhaldið verður.
Ekki náðist í Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra vegna málsins í gær.
-HKr./ÓSB
Pétur H.
Blöndal.
Hækkun fasteignamats
Fjöldi fólks horfir nú fram á erfiða greiðslustöðu vegna
stórhækkunar á fasteignasköttum og gjöldi ■m.
Stöðugar
sprengjuhótanir
„Hér hafa verið stöðugar sprengju-
hótanir. Að minnsta kosti 90 slíkar hót-
anir komu fram i gær og menn höfðu
varia við að rýma byggingar," sagði
Ólafúr Árnason, flugstjóri hjá Flugleið-
um, sem nú bíður átekta ásamt öðram
úr áhöfh vélarinnar á hótel Millenium á
Manhattan, eftir að geta flogið vélinni
heim.
Ólafur sagði að fólk hefði verið beðið
um að rýma byggingar eins og Mazez-
stórverslunina, sem tæki yfir heila
blokk og væri á nokkrum hæðum. Fleiri
stórhýsi hefðu verið rýmd vegna hót-
ana, íslenska áhöfhin hefði verið stödd í
móttöku hótelsins þegar hryðjuverkin
vora í algleymingi. Þar var fjöldi hótel-
gesta að fylgjast með þeim í beinni út-
sendingu í sjónvarpi.
„Fólk í kringum okkur grét og var al-
gjörlega í sjokki,“ sagöi Ólafur. Hann
kvaðst ekki hafa farið nærri hryðju-
verkasvæðinu af öryggisástæðum.
Áhöfnin íslenska hefði haldið hópinn og
verið mikið til inni á hótelinu. -JSS
Sóló hjá vinstri grænum á Akureyri:
Steingrímur gerir lítið
úr þætti systur sinnar
- segir talsmaöur Samfylkingarinnar á Akureyri
„Það era mér fyrst og fremst
vonbrigði að vinstri grænir
skyldu aldrei hafa athugað það í
fullri alvöra hvort máiefna-
grandvöllur væri fyrir sameig-
inlegu framboði. Það virðist
sem þeir hafi nánast tekið hug-
læga afstöðu fyrirfram," segir
Jón Ingi Cecarsson, formaður
Akureyrarfélags Samfylkingar-
innar.
Eins og DV hefur greint frá
hyggjast vinstri grænir bjóða fram ein-
ir á Akureyri fyrir næstu bæjarstjóm-
arkosningar. Það var staðfest á félags-
fundi í gærkvöld og i ályktun félags-
manna segir að nefnd á vegum flokks-
ins hafi komist að þeirri niðurstöðu að
„mjög takmarkaður hljómgrunnur" sé
fyrir sameiginlegu framboði. Einnig
segir að talsverðrar óánægju gæti með
samstarf Sjálfstæðisflokks og Akureyr-
arlista i bæjarstjóm og aðstæður séu í
grandvallaratriðum aðrar á Akureyri
en víða þar sem félagshyggju-
fólk hefur sameinast um fram-
boð. Þetta er ekki rökstutt frek-
ar en í ályktuninni segir að
vinstri grænir vonist „eftir
góðu samstarfi við önnur fram-
boð sem kenna sig við félags-
hyggju eða samvinnnu og era
reiðubúin til að vinna að bæjar-
málum á þeim grundvelli."
Jón Ingi Cesarsson segir að
vinstri grænir treysti sér
greinilega ekki i samstarf. Samfylking-
in hafi haft framkvæði að því að ræða
við þá um sameiginlegt framboð en VG
hafi aldrei skoðað það í alvöra. Form-
lega séð hafi erindi þeirra aldrei verið
svarað nema með yfirlýsingunni nú.
Samfylkingin telur ankannalegt að
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
vinstri grænna, hafi sagt i DV fyrir
skömmu að lítil ánægja sé með sam-
starf sjálfstæðismanna og Akureyrar-
listans i bæjarstjóm. Þetta viðhorf sé
áréttað 1 ályktun félagsins nú en sæti
furðu þar sem formaður vinstri
grænna á Akureyri sé mikill áhrifa-
maður í Akureyrarlistanum. „Kristin
Sigfúsdóttir situr í skólanefnd fýrir Ak-
ureyrarlistann og er varamaður í nátt-
úravemdamefnd. Mér finnst Stein-
grímur hafa gert lítið úr þætti systur
sinnar innan starfsemi Akureyrarlist-
ans. Þeim mun illa takast að afneita að-
ild sinni að Akureyrarlistanum þótt
greinilegar tilraunir séu gerðar til þess
og m.a. i þessari ályktun," segir Jón
Ingi Cesarsson.
Að fenginni þessari niðurstöðu VG-
manna era allar líkur á að fjórflokka-
kerfið sé aftur komið í fastar skorður á
Akureyri. Framsókn, sjáifstæðismenn,
Samfylking og vinstri grænir munu
bjóða fram en óvissa er með sérfram-
boð Odds Helga Halldórssonar sem
klauf sig út úr Framsókn.
Ekki náðist í Kristínu Sigfúsdóttur.
-BÞ
Jón Ingi
Cecarsson.
Ný tegund
hryðjuverka
[Erlent fréttaljós
Að baki
víglínunnar
DVí
Bandaríkjunum
Bíaðrð r dag
Flóttinn mikli
Erfiðleikar Stöövar 2
Er ekki ástin
drifkrafturinn?
Hilmar Jónsson
Draugar,
framhjáhald
og morð
Elliðaárdalur
Bílasýningin í
Frankfurt
DV-bílar
Ingvi einn
Ingvi Hrafn Ósk-
arsson, aðstoðar-
maður dómsmála-
ráðherra, er einn í
framboði til for-
manns Sambands
ungra sjálfstæðis-
manna, en 36. þing
sambands var sett
á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Þá
heiðraði forsætisráöherra þing-
gesti með ræðu, en á sunnudag
kjósa ungliðar til kosninga.
Gjörhygli i staö haturs
Samtök herstöðvarandstæðinga
sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar
sem þeir taka undir orð forseta ís-
lands í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum „að yfirvegun og
gjörhygli mættu ráða for á næstu
dögum og mánuðum og að reiðin
og hatrið fengi ekki yfirhöndina.“
Dregið í dilka
Fé verður dregið í dilka í
nokkrum af frægustu fjárréttum á
Suðurlandi í dag, laugardag. Má
nefna Reykjaréttir á Skeiðum og
Tungnaréttir í Biskupstungum.
Réttimar hafa ævinlega aðdráttar-
afl fyrir unga jafnt sem aldna, og í
seinni tíð er fólkið gjaman fleira
en féð.
Ásland í sátt
Grunnskólinn í
Áslandi í Hafnar-
firði verður al-
menningi til sýnis
á morgun, sunnu-
dag 16. september
milli kl. 15 og 17.
Áslaug Brynjólfs-
dóttir hefur verið
ráðinn skólastjóri. Framkvæmda-
stjóri fjölskyldusviðs Hafnarfjarðar
vonast til að sátt skapist nú um
skólastarf í Áslandi.
Passar mikilvægir
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
sendi í gær frá sér tilkynningu þar
sem brýnt var fyrir fólki að hafa
með sér vegabréf í ferðum erlendis,
þar sem hert hafi á persónueftirliti.
Segir í tilkynningu að borist hafa
fréttir af íslendingum erlendis sem
lent hafi í vandræðum vegna ófull-
nægjandi skilríkja.
Sameining í Borgarflröl
Bæjarstjórn Borgarbyggðar hef-
ur ákveðið að óska eftir viðræðum
við hreppsnefnd Hvítársíðuhrepps
um sameiningu sveitarfélaganna
frá og með upphafi næsta kjörtíma-
bils. Frá þessu er greint á Vísi.is
Samið við óperuna
Björn Bjamason menntamála-
ráðherra, Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra og stjórn íslensku óper-
unnar undirrituðu samning á milli
ríkisins og íslensku óperunnar í
gær um starfsemi óperunnar.
Gervi-rafvirki
Haft hefur verið samband við
Rafiðnaðarsambandið vegna
manns sem kveðst vera rafvirki, en
er ómenntaður í faginu. Guðmund-
ur Gunnarsson, formaður RSÍ, seg-
ir manninn svo fá lögmann til að
innheimta fyrir sig af hörku vegna
illra unninna verka. Segir Guð-
mundur að fátt sé hægt að gera við
þennan gervi-rafvirkja.
-sbs