Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 14
14
Noiaðir bílar hjá
Suzukí bílum hf.
Suzukl Baleno Wagon,
bsk.Skr. 12/97, ek. 74 þús.
Verð kr. 860 þús
Suzuki Grand Vitara V-6,
ssk.Topplúga-krókur-álfelgur-
upph.Skr. 7/99, ek. 36 þús.
Verð kr. 2360 þús
Suzuki Baleno Wagon,
ssk.Skr. 7/99, ek. 22 þús.
Verð kr. 1275 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., ssk.
- upph. 30” kantar Skr. 3/97,
ek. 68 þús.
Verð kr. 1230 þús.
Suzuki Baleno GL, ssk.
Skr. 6/99, ek. 15 þús.
Verð kr. 995 þús
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
Skr. 7/98, ek. 50 þús.
Verð kr. 1070 þús.
Suzuki Wagon R+ 4wd, 5 d.
Skr. 8/00, ek. 12 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 5/99, ek. 47 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Subaru Impreza Wag. 4x4
Skr. 11/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1580 þús.
Toyota Avensis, bsk.
Skr. 6/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1220 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, síml 568-5100
Helgarblað
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
DV
íslensk kona horfði á flugvél fljúga á turninn þar sem eiginmaður hennar vann:
Djúp og ólýsanleg sorg
- segir Kristján Ragnarsson, yfirlæknir og tengdafaðir Howards Boulton
„Hér ríkir djúp og ólýsanleg
sorg,“ sagði Kristján Tó.mas Ragn-
arsson, íslenskur læknir sem bú-
settur er í,New York ásamt eigin-
konu sinni, þegar hann ræddi við
DV í gær um hörmungar undanfar-
inna daga. Hann gegnir starfi yfir-
læknis á Mount Sinai sjúkrahúsinu
í New York. Eiginmanns Vigdísar,
dóttur Kristjáns, Howards Boulton,
er saknað eftir að hin hryllilegu
hryðjuverk voru unnin á World
Trade Center sl. þriðjudag. Hann
vann á 84. hæð í syðra turni bygg-
ingarinnar. Howard og Vigdís eiga 7
mánaða gamlan dreng. Heimili
þeirra er mjög nærri Woríd Trade
Center, eða á 4. stræti á Manhattan.
Kristján sagði atburði síðustu
daga af þvílíkum toga að þeir snertu
alla, hvar sem væri í heiminum.
Þeir snertu ekki síst íslendinga og
ef þeir fyndu á einhvem hátt að þeir
hefðu einnig átt fulltrúa í New
York, sem hefðu orðið fyrir hörm-
ungunum, þá væri það þess virði að
ræða það á opinberum vettvangi. Á
þeim grundvelli kvaðst Kristján
reiðubúinn að segja sögu fjölskyldu
sinnar allt frá þvi að ógnir hryðju-
verkanna skullu á.
Fyrstu fréttir
„Ég var að ljúka stofugangi á.spit-
alanum um níuleytið um morgun-
inn. Síðan var fundur í spítala-
stjórninni. Ég var að koma á þann
fund og þá fóru fyrstu fréttir að ber-
ast, að það hefði flugvél farið í ann-
an tuminn. Þá var ekki vitað hvort
um væri að ræða hryðjuverk eða
slys. Örskömmu síðar bárust fréttir
um að önnur flugvél hefði farið á
hinn turninn.
Ég hringdi til Hrafnhildar
Ágústsdóttir, eiginkonu minnar, og
einnig í Vigdísi, dóttur mína. Þá
fékk ég þær lýsingar að Hrafnhildur
hefði verið að tala við dóttur okkar
í síma um leið og fyrstu fréttir voru
Hrafnhildur Agústsdóttir og Kristján Tómas Ragnarsson
Tengdasonar Hrafnhildar og Kristjáns, Howards Boutton, er saknað eftir
hina mannskaéðu árás hryðjuverkamanna á World Trade Center sl.
þriðjudag.
Rústirnar af World Trade Center í New York
Hrafnhildur og Kristján fóru ekki alveg að World Trade Center-byggingunni
því þar var slík aska, ryk og reykur að það var bókstaflega hættulegt.
Kristján sagöi aö sér hefði dottið í hug hvort hugsanlega gætu leynst í
flugvélunum annars konar voþn, svo sem eiturefni eöa sýklavopn.
að berast. Vigdis, sem hafði gott út-
sýni yfir World Trade Center og sá
bygginguna vel og greinilega út um
gluggann, sagði móður sinni í sim-
ann að flugvél hefði rekist á annan
turninn. Hann væri nú í logum.
Sem betur fer væri það ekki turn-
inn sem Howard ynni í. Þar sem
hún er að tala við konuna mína þá
segir hún skyndilega:„Hér kemur
önnur flugvél. Hún fer í turninn
sem Howard er í.“
Eina von Vigdísar var að hann
hefði komist niður i tæka tíð. Það er
ekkert nú sem bendir til þess að
hann hafi gert það. En hún horfði á
þetta gerast með eigin augum og ég
veit ekki hvort nokkur önnur eigin-
kona gerði það.“
Skelfilegur dagur
Hrafnhildur, eiginkona Kristjáns,
komst i síðustu lest sem hleypt var
inn í Manhattan. Lestin stoppaði í
Harlem, efst á Manhattan. Þaðan
hljóp hún niður á spítala til Krist-
jáns, sem er um 2ja kílómetra vega-
lengd. Hjónin náðu þegar í bíl og
voru komin á vettvang klukkan tiu,
í þann mund sem byggingamar
hrundu.
„Þetta var skelfílegur dagur ...“
sagði Kristján og bætti við: .. og
allir dagar síðan."
Hrafnhildur og Kristján fóru ekki
alveg að World Trade Center-bygg-
ingunni því þar var slík aska, ryk
og reykur að það var bókstaflega
hættulegt. Kristján sagði að sér
hefði dottið í hug hvort hugsanlega
gætu leynst í flugvélunum annars
konar vopn, svo sem eiturefni eða
sýklavopn. Honum hefði því alls
ekki verið rótt að hafa fjölskyldu
sína á svæðinu.
Þegar þau Hrafnhildur gengu í átt
að heimili Vigdisar og Howards
virtust þau vera eina fólkið sem
stefndi í suður, allir aðrir voru á
hraðferð í norðurátt, undan hryðju-
verkunum.
„Þetta var eins og sést í öðrum
stríðum, þar sem flóttamenn eru
misjafnlega á sig komnir að hrekj-
ast undan stríðsógnunum," sagði
Kristján. Vigdís flutti ásamt litla
syninum, Friðriki Tómasi, heim tii
foreldra sinna í úthverfi New York
þegar ólíft var orðið í hverfinu þar
sem hún býr vegna ryks og reyks.
íslandsvinur
„Howard var úrvalsmaður. Hann
er frá Venezúela, en var menntaður
hér og útskrifaðist með viðskipta-
menntun frá Wharton-háskólanum í
Pensylvaniu. Hann hefur unnið hér
síðan eftir að hann kynntist Vigdísi
og þau gengu í hjónaband fyrir
þremur árum, þá bæði 26 ára.
Howard var mikill íslandsvinur og
á marga vini og kunningja i hópi ís-
lendinga, bæði heima og hér. Hann
var bæði karlmenni og ljúfmenni
Fólkið sem vann í World Trade
Center var frábært fólk,“ hélt Krist-
ján ái'rarrf: „Þetta er fólk hvaðanæva
úr heimifíum. Flestir þeir sem dótt-
ir mín þekkir, sem ekki hafa komið
fram, eru fæddir annars staðar
heldur en í Ameríku. Þetta fólk hef-
ur allt aflað sér góðrar menntunar
og komist áfram í Sínu lándi og hér.
Þótt okkar sorg sé mikil og ráði
mestu í okkar huga þá getum við
ekki annað en hugsað til allra
þeirra góðu kvenna og karla sem
þarna hafa farist þegar þau voru að
berjast harðri Lfsbaráttu fyrir sinni
fjölskyldu. Við getum ekki annað en
hugsað til aðstandenda þeirra og
spurningin um hvað komi næst leit-
ar á hugann. í úthverflnu sem við
búum í eru að minnsta kosti fimm
aðrar fjölskyldur sem hafa misst
fyrirvinnuna, allt fólk með mörg
böm. Þessir feður voru vinnusamir
og góöir menn. Hver einasti maður
sem lætur þarna lífið á sér sögu um
hvernig þgir hafa barist fyrir sér og
sínum oglkomist .áfram á þann hátt.
Þetta varTfólk af öllum þjóðernum,
öllum kýhþáttum og öllum trúar-
brögöum. Þaö hefur þann samnefn-
ara að vera gott og gilt fólk.
Ég hef áhyggjur af framtíðinni,
ekki bara persónulega heldur
einnig af okkar siömenningu og
frelsi. Ég held að við komum öll til
með að finna fyrir því. Það er ekki
hægt annað en að leiða hugann að
því að hér hefur verið vegið að sið-
menningu okkar. Heimsmyndin er
breytt. Það sem við höfum alist upp
við og vanist, því er ógnað á hræöi-
legan hátt.
Við viljum þakka öllum sem við
þekkjum á íslandi fyrir þeirra góðu
orð, hugsanir og bænir.“
DV vottar Vigdísi og syni hennar,
Friðriki Tómasi, foreldrum hennar,
öllum aðstandendum og vinum sína
dýpstu samúð.
-JSS
Kristján Tómas Ragnarsson
Hann átti hræðilegan dag á
Manhattan ellefta september sl.