Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Fréttir
I>V
Hö^nun á tvöföldun Reykjanesbrautar þegar komin í gang:
Akvörðun um
3,5 milljarða verk
- ekki breytt, segir vegamálastjóri, þrátt fyrir skýrslu um aöra ódýrari lausn
UÓSMYND: LÍNUHÓNNUN/VÁGVERKET, LEIF JÁDERBERG
Þrjár akreinar hafa reynst vel í Svíþjóð
Svokölluö 2+1 lelö þykir gefast vel ertendis á umferöaræöum. Reynslan í Sví-
þjóö sýnir fram á verulega fækkun slysa auk mikils sparnaöar viö vegagerö.
Siíkir vegir afkasta umferö sem nemur meira en tvöföldu umferöarmagni
Reykjanesþrautar. Vegageröin segir hins vegar ekki næga reynslu komna á
slíkt til aö þaö réttlæti breytingar áforma um tvöföldun Reykjanesbrautar.
Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri segir að ráðist verði í tvö-
földun Reykjanesbrautar sam-
kvæmt hugmyndum Vegagerðar-
innar. Hönnun vegarins hefst inn-
an tíðar. Reiknað er með að bjóða
fyrsta kaflann í þessu 3,5 milljarða
króna verki út snemma á næsta
ári.
Með hliðsjón af hugmyndum
um tvöföldun Reykjanesbrautar
fól Vegagerðin Línuhönnun að
gera úttekt á mismunandi kostum
samkvæmt reynslu annarra þjóða.
Var þar sérstaklega litið til til-
rauna Svia og Norðmanna með
svokallaða 2+1 vegi í stað 2+2, eða
tvöfaldra tveggja akreina vega.
Niðurstaðan í viðamikilli skýrslu
Línuhönnunar sýndi að 2+1 vegur
á Reykjanesbraut yrði bæði örugg-
ari og mun ódýrari en tvöföldun
brautarinnar.
Þrátt fyrir að 2+1 vegur kosti
aðeins um þriðjung af því sem tvö-
földun akvega kostar þá hefur
Vegagerðin þegar boöið út hönn-
un vegna tvöföldunar Reykjanes-
brautar. Átti verkfræðistofan Hnit
þar lægsta tilboðið, upp á 92,8
milljónir króna, en ekki lá þó fyr-
ir hver hlyti verkið. Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri segir
reynsluna að baki lausinni 2+1
ekki næga til að það ýti áætlunum
um tvíbreiða Reykjanesbraut út af
borðinu.
„Reynslutíminn er allt of
skammur til að hægt sé að draga
af þessu víðtækar ályktanir," seg-
ir Helgi. „Við munum því ekki
breyta tillögum okkar um Reykja-
nesbrautina." Hann segir hug-
myndir um 2+1 vegi þó athyglis-
verðar og vel sé hugsanlegt að
slikt verði prófað í framtíðinni
þar sem það á við.
Stefnt er að því að bjóða út
fyrsta kafla tvöföldunar Reykja-
nesbrautar snemma á næsta ári.
Vegamálastjóri segir að fram-
kvæmdir á leiðinni frá Hafnar-
firði til Reykjanesbæjar komi til
með að kosta um þrjá og hálfan
milljarð króna.
Milljarða sparnaður?
Veghönnuðir sem DV ræddi við
telja að fyrir mismuninn á því að
tvöfalda Reykjanesbraut í saman-
burði við 2+1 lausn megi fram-
kvæma 2+1 úrbætur á stórum
hluta vegarins frá Reykjavik til
Selfoss. Þvi til viðbótar mætti tvö-
falda Vesturlandsveg upp i Mos-
fellsbæ og gera 2+1 veg alla leið að
Hvalfjarðargöngum.
í skýrslu Línuhönnunar er bent
á rannsóknir um vegahönnun
víða um heim. Þar er einnig vísað
til nýlegrar handbókar um hönn-
un vega og umferðaröryggi eftir
Lamm Psarianos & Mailander þar
sem nokkuð er fjallað um 2+1
vegi.
í handbók LP&M er mælt með
notkun 2+1 vega þar sem umferð-
arþungi er á bilinu 8 til 22 þúsund
bílar á dag. Er litið á lausnina
2+lsem arðbæra og örugga leið
þegar umferðarmagn kallar ekki á
tvöföldun. Samkvæmt handbók-
inni er ekki talið ráðlegt að tvö-
falda vegi I fjórar akreinar (2+2)
nema umferðarmagnið sé á bilinu
14 til 32 þúsund bílar á dag. Á
Reykjanesbraut er umferðarþung-
inn hins vegar ekki nema um 6 til
7 þúsund bílar á dag.
Árangur Svía
Markmið Svía er samkvæmt
skýrslu Línuhönnunar að fækka
banaslysum um helming á
ákveðnu tímabili. Þeir hafa verið
að skoða aðferðir til að fækka
slysum með hagkvæmum og arð-
bærum hætti. Svíar telja sig ekki
hafa efni á því að byggja upp vegi
með fjórum akreinum alls staðar,
enda telja þeir ekki þörf á slíku
þar sem umferð er á bilinu 10-15
þúsund bílar á dag eða minni. Af
þessum ástæðum hafa Svíar unnið
að breytingum á sínum tveggja
akreina vegum i 2+1 vegi með
víraleiðara á undanförnum árum.
Þar eru viraleiðarar notaðir til að
skilja að akreinar í gagnstæðri
akstursstefnu sem auka öryggi
vegfarenda til mikilla muna. í jan-
úar 2001 var samtals búið að
leggja 200 km af 2+1 vegum með
víraleiðurum í Svíþjóð. Hefur
þetta þegar leitt til verulegrar
fækkunar umferðarslysa.
Þá hefur verið reiknað út að
kostnaður við að breyta 1+1 vegi í
2+1 veg nemi aðeins um þriðjungi
þess sem tvöföldun vega kosti. Þá
verði öll gatnamót einnig mun
flóknari og dýrari á tvöföldum
vegi. -HKr.
Brunabótamat:
Endurmat kost-
ar 6000 krónur
- eftir helgi
Þeir sem ekki gera
athugasemdir við
brunabóta- og/eða
fasteignamat á hús-
um sínum áður en
frestur til þess renn-
ur út geta alltaf beð-
ið um endurmat á
eignum sínum.
„Eigandi getur
beðið um endurmat
á fasteignamati
og/eða brunabótamati hvenær sem
er,“ segir Haukur Ingibergsson, for-
stjóri Fasteignamats ríkisins. „Stofn-
unin er sífellt að bregðast við beiðn-
um fólks um endurmat af ýmsum
ástæðum og það ferli heldur áfram
sem fyrr þó fresturinn til að skila inn
athugasemdum vegna endurmatsins
renni út um helgina."
Stöðugur straumur hefur verið af
athugasemdum til Fasteignamats rík-
isins og hefur álagið á stofnunina ver-
ið nokkurt í vikunni. Þó virðist sem
aðeins brot af húsnæðiseigendum ætli
sér að gera athugasemdir; hinir eru
væntanlega flestir sáttir eða þá hafa
hreinlega ekki skoðað málið til enda.
Ef beðið er um endurmat eftir að
fyrsta mat eignarinnar er að baki
kostar það 6000 kr. fyrir hverja eign
upp að 25 milljónum kr. Verðið hækk-
ar svo smám saman í takt við verð-
gildi eignar. Þeir sem sjá fram á að
þurfa á endurmati að halda í náinni
framtíð ættu að nýta sér að hægt sé að
gera athugasemdir, án greiðslu, fram
á mánudag en þá verður hætt að taka
við þeim. -ÓSB
Skinnaiðnaður
ekki dauður
Ekki er útilokað að starfsemi
muni halda áfram í Skinnaiðnaði á
Akureyri þótt fyrirtækið hafði verið
úrskurðað gjaldþrota. Boltinn er nú
í höndum Landsbankans og skipta-
stjóra. Líklegt er talið að einhver
starfsemi verði eftir helgina þótt
óvíst sé hve margir muni taka þátt í
henni.
Heimildir DV herma að hug-
myndir um endurreisn hafi þegar
skotið upp kollinum enda hafi mikl-
um árangri verið náð í að minnka
framleiðslukostnað undanfarið og
hagræða í rekstrinum. 120 manns
missa vinnuna að óbreyttu hjá
Skinnaiðnaði. -BÞ
Haukur Ingi-
bergsson.
Vö&rííÁ li Jkvoiil
Sniayganiítiv og slávavfoil
Rigning Á morgun er gert ráð fyrir
suðaustanátt, 10-15 m/s og rigningu um vestanvert landið. Hægari
suðlæg eða breytileg átt og skýjaö verður með köflum austan til. Hiti
verður á bilinu 8-15 stig, hlýjast norðaustan til síðdegis.
fHmm
Vindur:
5-10 m/i
Hiti 8°til 17'
Suðvestlæg átt, 5-10 m/s,
og skúrir á sunnan- og
vestanverðu landinu en
léttskýjað norðan til.
Vindur:
5-10 m/» r
Hiti 8°til 12°
Sunnan og suövestan
5-10 m/s og dálitlar
skúrlr vestanlands. Hætt
vlb rlgnlngu austanlands.
Kólnandl veóur.
Wíiftviktií
Vindur:
X5—O nvs
Híti 8°til 12°
Sunnan og suövestan 5-10
m/s og dálitlar skúrir
vestanlands. Hætt vlö
rignlngu austanlands.
Kólnandi veöur.
HtYKJAVIK AKUKtYKI
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síödegisflóö
Árdegisflóö á morgun
Skýringará veóurtáknum
‘ *—4'INDÁTT 10°—«TI
-10!
'iNDSTYRKUR
í nnrtriHh & sakiimiu
IÉTTSKÝJA& HÁLF- SKÝJAÐ
w
RIGNING SKÚRIR
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR
Nfrost hhoskírt
SKÝjAÐ AISKÝJAO
SLYDDA SNJÓK0MA
SKAF-
RENNÍNGUR
ÞOKA
Úrkoma fyrir norðan
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt, 5 til
10 m/s í kvöld, en það lægir til vestan til á
morgun. Rigning eða súld verður norðanlands
og á Austfjörðum. Hlýjast verður
suðaustanlands.
Haustið komið
Sumarið hefur kvatt landsmenn
og haustblíðan verið allsráðandi
síðustu daga.
Veðurspá næstu daga gerir ráð
fyrir sunnanátt og úrkomu víða
um landið.
is .
vrd°
AKUREYRI rigning 8
BERGSSTAÐIR rigning 8
BOLUNGARVÍK rigning 8
EGILSSTAÐIR alskýjað 11
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 11
KEFLAVÍK súld 9
RAUFARHÖFN rigning 8
REYKJAVÍK hálfskýjað 10
STÓRHÖFÐI skýjað 9
BERGEN skýjaö 15
HELSINKI skúr 14
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 15
ÓSLÓ skýjað 13
STOKKHÓLMUR 10
ÞÓRSHÖFN rigning 10
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 12
ALGARVE léttskýjað 24
AMSTERDAM skýjað 19
BARCELONA mistur 23
BERLÍN rigning 13
CHICAGO skýjað 13
DUBLIN rigning 13
HALIFAX léttskýjað 14
FRANKFURT skýjaö 13
HAMBORG léttskýjaö 17
JAN MAYEN rigning 5
LONDON léttskýjaö 23
LÚXEMBORG skýjaö 13
MALLORCA léttskýjaö 32
MONTREAL heiöskírt 9.5
NARSSARSSUAQ alskýjaö 5
NEWYORK rigning 14
ORLANDO rigning 22
PARÍS skýjaö 16
VÍN alskýjað 16
WASHINGTON skýjað 17
WINNIPEG heiöskírt 7