Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 Helgarblað DV Er ekki ástin dr if kraf turinn ? í gærkvöld var í Hafnarfjarðarleikhúsinu frumsýnt leikritið Englabörn, í leikstjórn Hilmars Jónssonar. Hann segir verkið einstakt og djarft. Fyrir um það bil einu og háifu ári skildi Hávar Sigurjónsson eftir tuttugu siðna handrit á eldhúsborði Hihnars Jónssonar leik- stjóra og leikhússtjóra Hafnarijarðar- leikhússins Hermóðs og Háðvarar. „Hann vildi að ég læsi það,“ segir Hilmar, „og ég tók það upp og las það allt í sömu sporunum við elclhúsborð- ið.“ Þegar Hilmar hafði lokið við lest- urinn hringdi hann í félaga sína í Hafnarftarðarleikhúsinu og sagði þeim að þetta væri fúllkomið verkefni fyrir leikhúsið. „Ég hef lesið mörg íslensk verk en þetta er einstakt verk og af- skaplega sérstakt. Textinn er brjálæð- islega flottur og díalógurinn rafmagn- aður. Umfjöllunarefnið er meðhöndlað frá eftirsóknarverðu sjónarhorni." Hilmar sá að þetta var allt sem þurfti fyrir skemmtilegt samstarf. „Og við tók mikil glíma við verkið," segir Hilmar. „Efni þess er ákaflega við- kvæmt og margt að varast." Daglegt Itf milli atburða Verk Hávars heitir Englaböm og fjallar um þrjár kynslóðir fjölskyldu sem búið hefur við hræðilega atburði. Veröld fjölskyldunnar er myrk en sýn höfundarins á viðfangsefhið er um margt óvenjuleg. „Það fyrsta sem ég las af verkinu þótti mér brjálæðislega fyndið; ég grenjaði af hlátri yflr atburð- um sem í sjáifu sér voru fjarri því að vera fyndnir. Verkið var svo dýnamískt, maður vissi ekki hvort persónumar vom að segja satt eða ljúga. Þó finnst mér Englaböm ekki fjaUa um atburði. Sniild verksins er að það fjallar um manneskjurnar inn- an frá. Sýn okkar á íjölskylduna er ekki utan frá heldur inn- an frá þar sem við sjáum hvemig raunveruleikinn horfir við þessu fólki. Verkið fiallar um hvemig fólk vinnur úr sínum ömurlegu kringumstæð- um.Einhvers staðar á miili skelfilegra atburða er jú daglegt líf.“ Eltí innblástur og tilfinningu Þar sem ég sat á áhorfendabekk í gömlu bæjarútgerðinni og horfði á fiöl- skylduna berjast við örlög sín varð til- finningin um samsekt ríkjandi. Þrátt fyrir það er verkið laust við predikun af nokkra tagi. Verk sem fialla að ein- hveiju leyti um fiölskyldumál eiga það oft tO að vera borin ofurliði af þung- lyndislegum félagsvísindadeildarreal- isma. „Slíkum verkum hættir til að verða hjáróma,“ segir Hilmar. „Við undirbúning þessarar sýningar hef ég ekki haft við neitt að styðjast nema leikritið sjálft, innblásturinn og tilfinn- inguna. Ég er núna fyrst að skríða út til að sjá hvað kemur út úr þessari vinnu. Og þetta tekur á. Ég finn það þegar ég kem heim á kvöldin að ég hef dvalið á stað sem er mér framandi. Það er erfitt að skyggnast inn í svona heim þótt framsetningarmátinn sé á margan hátt gamansamur.“ íslenskur leikveruleiki Englaböm er þrettánda íslenska leikverkið sem Hafnarfiarðarleikhúsið sýnir. í kringum allar uppfærslumar hefur verið harður kjami leikhúsfólks. „Það er ævintýri líkast," segir Hilmar, „að við séum enn starfandi; enn líf og þurrt í púðrinu." Hermóður og Háðvör DV-MYND HILMAR ÞÓR Textinn er brjálæöislega flottur Ég hef lesiö mörg íslensk verk en þetta er einstakt verk og afskaplega sérstakt," segir Hilmar Jónsson, leikstjóri og leikhússtjóri Hafnarfjarð- arleikhússins um verk Hávars Sigurjónssonar, Engtabörn. „Textinn er brjálæóislega flottur og díalógurinn rafmagnaöur. Umfjöilunarefniö er meðhöndlað frá eftirsóknarveröu sjónarhorni. “ eiga ákveðinn áhorf- endahóp; það era margir sem koma og sjá ailar sýningar. Með tímanum hefur bæst í hópinn. „Það er mjög stór hópur sem hefúr áhuga á ís- lenskum verkum um íslenskan veruleika. Við eram íslend- ingar og viljum fiaila um það.“ Eina út- lenda verkið sem sett hefur verið upp í Hafnarfiarðarleikhúsinu er Platanof eft- ir Tsjekhov sem sýnt var í samstarfi við Nemendaleikhúsið. „Það var mjög skemmtileg viðbót fyrir okkur að gæla við heimsleikbókmenntimar." Gæfa Hermóðs og Háðvarar Kjaminn í leikhópnum hefur haldið vel saman og þau hafa aldrei orðið leið hvert á öðra. „Við vinnum vel saman og lyndir vel saman. Við höfum svip- aðan smekk og afstöðu til leikhússins. Meðan líf er í samstarfinu munum við „Vid undirbúning þessarar sýningar hef ég ekki haft við neitt að styðjast nema leik- ritið sjálft, innblásturinn og tilfinninguna. Ég er núna fyrst að skríða út til að sjá hvað kemur út úr þessari vinnu. Og þetta tékur á. Ég finn það þegar ég kem heim á kvöldin að ég hef dvalið á stað sem er mérframandi. Það er erfitt að skyggnast inn ísvona heim þóttfram- setningarmátinn sé á marg- an hátt gamansamur. “ halda því áfrarn." Leikhópurinn tekur sameiginlegar listrænar ákvarðanir um framvindu leikhússins. Allir lesa verkin með höfundunum. „Verkin era marga mánuði i undirbúningi áður en byijað er að æfa þau. Við höfum borið gæfu til að vinna með höfundum sem kunna að vinna í leikhúsi; höfundum sem njóta þess og sækja eftir inn- blæstri í leikhópnum." Sfórhjórtuð talent Hafharfiarðarleikhúsið hélt tveimur leikurum eftir þegar sýningum Nem- endaleikhússins lauk. Bjöm Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdótt- ir fara með aðalhlutverk í Englaböm- um. „Það er rosalegur fengur að fá svo ung og stórhjörtuð talent beint inn í leikhúsið. Þau era framtiðarleikarar.“ En það er ekki bara unga fólkið sem er að stíga sín fyrstu skref í gömlu bæjar- útgerðinni. I hlutverki ömmunnar er kona sem ekki er vanalegt að sjá á sviði utan Borgarleikhússins. „Mar- grét Ólafsdóttir stórleikkona heiðrar okkur með nærvera sinni,“ segir Hilmar stoltur. „Hún á sinn glæsta fimmtíu ára leikferil hjá Leikfélagi Reykjavíkur og kemur hingað til Hafn- arfiarðar til að halda upp á afmælið. Hún er ein af okkar tryggu áhorfend- um og hefur í gegnum tíðina sýnt okk- ur áhuga, stuðning og jákvæðni. Okk- ur fannst mátulegt á hana að bjóða henni hlutverk. Það eykur gildi sýn- ingarinnar að hafa svona divu á svið- inu. Ég er fullur auðmýktar og stolts yfir því að kona af hennar kalíberi vinni í Hafnarfiarðarleikhúsinu." Jóladesertinn veröur að heppnast Hiimar situr ekki kyrr í Firðinum í vetur en hann mun fara í víking norð- ur fyrir Fjarðarkaup, alla leið til Reykjavíkur, til að leikstýra verkum í báðum stóra reykvísku leikhúsunum. DVMYND HARI Stórhjörtuö talent Björn Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdóttir fara meö aöalhlut- verk í Englabörnum. „Það er rosalegur fengur að fá svo ung og stórhjört- uö talent beint inn í leikhúsiö. Þau eru framtíðarleikarar, “ segir Hilmar Jónsson. Á myndinni má sjá Nínu Dögg. Við Hverfisgötuna leikstýrir hann Cyrano, jólaleikriti Þjóðleikhússins og í Borgarleikhúsinu eru það Kryddlegin hjörtu sem bíða hans. „Þetta er voða- lega skemmtilegt," segir Hilmar. „Þjóð- leikhúsið er minn gamli vinnustaður. Þar byijaði ég að leika strax eftir út- skrift og vann þar í sex ár. Það verður gaman að koma þangað aftur. Það er ákveðinn hátíðleiki í kringum jóla- framsýninguna. Það er gott að hafa þá pressu á sér að jóladesertinn heppnist; hann er ekki síður mikilvægur en sós- an með rjúpunni." Hjá Leikfélagi Reykjavíkur er frumsýning á Krydd- legnum hjörtum eftir áramót. „Þetta er ástarveturinn hjá mér, þrjú leikrit um ást. Og er ekki ástin drifkrafturinn?“ -sm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.