Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
25
Orðið
tryggð ekki
í orðabók
Júlíu
Benjamín Bratt er ekkert sér-
lega hamingjusamur þessa dag-
ana. Ekki eru nema þrír mánuðir
frá því að Júlía Roberts og Benja-
mín slitu samvistum en hún hefur
verið afkastamikil í karlamálum.
Sögur hafa einnig borist af því að
Júlía hafi fundið fýsnum sínum
farveg utan hjónaherbergis henn-
ar og Benjamíns áður en samhandi
þeirra lauk.
Um þessar mundir á Júlía í ást-
arsambandi við kvikmyndatöku-
manninn Daníel Moder en hann
ætti að hafa gætur á ástkonunni
miðað við það sem segir i amerísk-
um fjölmiðlum. National Enquirer
segir frá því að Júlía sé í nánu
sambandi við annan tökumann
sem vinnur að nýjustu mynd
hennar. New York Post heldur því
svo fram að hún hafi haldið fram
hjá Benjamín Bratt á meðan á tök-
um á Ocean’s Eleve stóð. „Ben
hringdi stöðugt á tökustað og fólk-
ið þurfti að svara fyrir Júliu á
meðan hún hljóp af sér hornin,“
segir innanbúðarmaður við blaðið,
„það var mjög vandræðalegt og
niðurlægjandi."
Og líflð með nýju ástinni gengur
kannski ekki jafn vel og hún hafði
ætlast til. Elskhuginn, Daniel, er
vanari lífinu hinum megin mynda-
vélarinnar og þekkir ekki sviðs-
Ijósið. Nýlega gerðist það að ljós-
myndari sem sat um hús parsins
náði myndum af Daníel þar sem
hann fleygði grjóti í bílinn sinn
sem var lagt fyrir utan húsið.
Hann kastar kannski steinum I
bílinn sinn úr glerhúsi.
Komdu á Hótel Sögu í dag eða á Sólarskrifstofuna við Grensásveg á morgun,
sunnudag, og kynntu þér Kýpur, nýjasta og glæsilegasta áfangastað íslendinga
í vetrarsól. Þar skín sólin í allan vetur og vandaðir gististaðir Sólar bíða þín.
SPENNANDI FERÐAKYNNING
Húsið opnar kl. 14
Glæsilegt ferðahappdrætti
Tónlistarmenn frá Kýpur laða fram Ijúfa tóna
Sigurður A. Magnússon kynnir áhugaverðar skoðunarferðir um eyjuna
Danssýning
- Svanborg Daníelsdóttir fararstjóri á Kýpur kynnir gististaði og staðhætti
- Kýpverskir matreiðslumenn kynna Kýpurdaga á Café Óperu
- Kynning á stuttum skemmtisiglingum til Egyptalands
> - Silfuklúbbur Sólar. AUir 60 ára og etdri í sólina á sérkjðrum með Sól
o - Nýjar kynningarmyndir og bæklingar
q - KafÚveitingar á vægu verði
Kynnir er Sigríður Arnardóttir
Restaurant & pianobar
Kýpurdagar á Café Óperu
14.-21. september
Matreiðstumenn frá Miramare hótelinu í
Limassol og tóntistarmenn frá Kýpur munu
laða fram sannkallaða kýpverska
stemningu með Ijúffengum réttum og
seiðandi tónlist. Gestir á Kýpurdögum Café
Óperu taka þátt í veglegu ferðahappdrætti
Ferðaskrifstofunnar Sótar.
Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sol.is
-heitar ferðirí