Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 Útlönd DV George W. Bush Bush hefur fullan stuðning þings og þjóðar til að þeita vaidi gegn þeim sem bera ábyrgð á hryðjuverkunum. Bush fékkleyfi þingsins til að beita valdi George W. Bush Bandaríkjaforseta hefur verið gefið grænt ljós til að beita „nauðsynlegu valdi“ gegn þeirri þjóð, samtökum eða einstak- lingum sem uppvísir verða að þvi að hafa staðið að baki og skipulagt hryðjuverkaárásirnar á World Trade Center og Pentagon á þriðjudaginn. Ekki er um striðsyfírlýsingu að ræða heldur aðeins leyfi til handa forset- anum til að beita nauðsynlegu valdi en þó samkvæmt lögum. Hryðjuverkin hafa áhrif á bók- menntaáhugann Rithöfundurinn Angus Kress Gil- lespie, sem skrifaði bókina „Twin Towers", er orðinn söluhæsti rithöf- undur heims samkvæmt lista vefsíð- unnar Amazon.com. „Þetta er mjög vandræðalegt," sagði Gillespie, en skáldverkið er fræðileg saga World Trade Center sem nú er rústir einar eftir árás hryðjuverkamanna á þriðju- daginn. „Það er leiðinlegt til þess að hugsa að fólk fái nú áhuga fyrir bók- inni eftir þessa hræðilegu upplifun," bætti Gillespie við. Annar höfundur sem færst hefur upp listann er Barbara Olson en hún var meðal farþega í þotunni sem lenti á Pentagon. Barbara skrifaði bókina „Hell to Pay“ sem fjallar um Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú. Hryðjuverkin virðast hafa haft mik- il áhrif á bókmenntaáhuga fólks og hafa ýmsar bækur tengdar hryðju- verkum flogið upp listann. Þá er áber- andi að bækur um spádóma Nostra- damusar eru orðnar mjög vinsælar í kjölfar árásanna og einnig hefur bók Benjamins Netanyahus, „Fighting Terrorism", selst grimmt. Nöfn flugvélaræningjanna átján voru birt í gær: Hringurinn að lok- ast um bin Laden Bandarískir íjölmiðlar birtu i gær nöfn þeirra átján hryðjuverkamanna sem grunaðir eru um að hafa rænt flugvélunum fjórum sem á þriðjudag- inn var flogið á tvær helstu veraldleg- ar ímyndir Bandarikjanna, World Trade Center í New York og höfuð- stöðvar varnarmálaráðuneytisins í Pentagon. Þeir sem nefndir eru til sögunnar eru eftirtaldir: Flugvél American Airlines sem flaug inn í norðurtum WTC: Walid A1 Shehri, Wail Alsheri aka Waleed Als- heri, Mohammad Atta, Aabdul Alom- ari og Satam Sugami. Flugvél United Airlines, sem flaug inn í suðurturn WTC: Marawn Als- hehhi, Fayez Ahmed, Mohald Als- hehri, Hamza A1 Ghamdi og Ahmed A1 Ghamdi. Flugvélin frá American Airlines sem flaug á vamarmálaráðuneytið í Pentagon: Khalid Almihdhar, Majed Moqued, Nawaf A1 Hazmi og Salem A1 Hazmi. Osama bin Laden Arabíski hryðjuverkaforinginn Osama bin Laden, sem nú dvelur í Afganist- an í skjóli talibana, er sterklega grunaður um að hafa staðið á bak við hryðjuverkin í Bandaríkjunum. Flugvél United Airlines sem brot- lenti i Pennsylvaníu: Ahmed A1 Haznawi, Ahmed Alnami, Ziad Jarrah og Saeed Alghamdi. Að sögn yfirvalda var unnið að því í gær að bera nöfnin saman við lista yfir nöfn sem tengjast starfsemi þekktra hryðjuverkasamtaka en sam- kvæmt óstaðfestum heimildum eru egypsku hryðjuverkasamtökin Jihad þegar grunuð um að hafa staðið að baki árásunum. Forsprakki Jihad-samtakanna, sem aðallega hafa beitt sér gegn ráðandi öflum í Egyptalandi, er talinn náinn samstarfsmaður Osama bin Ladens og einn af innstu koppum í búri regn- hlífasamtaka hans, A1 Qaeda, sem starfa með smærri hryðjuverkasam- tökum og aðstoða þau við skipulagn- ingu grimmilegustu hryðjuverka. Það er því ljóst að hringurinn þrengist óðum um Osama bin Laden, sem nú dvelst í skjóli talibana í Afganistan, og bíða menn nú spenntr eftir því hvað gerist á næstu stigum. Hvað ungur nemur gamall temur Ung stúlka í Islamabad í Pakistan fyigist hér með þeim fullorðnu við bænahaid í gær. Pakistanar, sem hafa verið helstu stuðningsmenn talibanastjórnarinnar í Afganistan, eru áhyggjufullir þessa dagana eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum og hafa nú heitið fullri samvinnu við Bandaríkjamenn í baráttunni gegn hryðjuverkum. Stjórnarmyndunarviðræðurnar í Noregi: Kjell Magne Bondevik krefst kúvendingar af hægri flokknum Á sameiginlegum fundi þingflokks og flokkstjórnar Kristilega þjóðar- flokksins í Noregi var endanlega sam- þykkt að flokkurinn gengi til við- ræðna við Hægriflokkinn um ríkis- stjórnarmyndun í Noregi. Eftir fund- inn voru flokksmenn hæfilega bjart- sýnir, því þeir ætla að selja sig dýrt eins og það var orðað af þingflokksfor- manninum, Einari Steinsnes. Flokk- urinn leggur höfuðáherslu á tvo mála- flokka, annars vegar umhverfismál og hins vegar aðstoð við fátækustu þjóð- ir heimsins. í samningaviðræðunum gætu þessi mál þvælst fyrir því flokkarnir hafa þar gjörólíkar skoðanir. Margir minn- ast þess þegar miðflokkastjórnin, und- ir forsæti Kjells Magne Bondevik, hrökklaðist frá völdum fyrir átján mánuðum vegna ágreinings við Hægri og Verkamannaflokkinn í um- hverfismálum. Jan Petersen, leiðtogi Hægri, og Jens Stoltenberg, núver- andi forsætisráðherra, fengu þá þing- Kjell Magne Bondevik Kjell Magne Bondevik getur ekki hugsað sér aö sitja í ríkistjórn með Framfaraftokknum. meirihluta fyrir byggingu gasorku- vers, þvert gegn vilja Bondevikstjórn- arinnar. Þar með varð ríkisstjórnin undir á Stórþinginu og sagði af sér í kjölfarið. í kosningabaráttunni lagði Hægri flokkurinn þunga áherslu á að Norð- menn ættu að draga úr stuðningi sín- um Við þjóðir í Afríku og Asíu og nota peningana frekar heima fyrir. Kristi- legir lögðu aftur á móti mikla áherslu á að Norðmenn ykju stuðninginn upp í eitt prósent af þjóðartekjunum eins og krafa SÞ er. Það er því ljóst að viðhorf flokk- anna í tveimur af mikilvægustu mála- flokkunum eru andhverfur og þvi fróðlegt að fylgjast með hvernig þeir ætla að nálgast. Reyndar eru sjónar- mið flokkanna ólík í flestum mála- flokkum og því er það ugglaust rétt sem leiðtogar Krf. segja að ríkistjórn þessara flokka verði ekki hrist fram úr erminni. Það eina sem leiðtogar flokkanna eru sammála um er að koma Verkamannaílokknum frá og gera hann að farþega á Stórþinginu. Samkomulag milli Hægri og Kristilega þjóðarflokksins dugar ekki til að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Flokkarnir þurfa á víðtækari stuðn- ingi að halda. Kjell Magne Bondevik leggur mikla áherslu á að fá fyrrum félaga sína í Vinstri flokknum til liðs við sig en sá flokkur fékk bara tvo uppbótarþingmenn og er því lítið lið í honum. Meira þarf til og þá er það aðeins Framfaraflokkurinn og Karl Ivar Hagen sem geta hugsað sér að styðja hægri stjórn til valda en eins og aðrir gerir Hagen ekkert án þess að fá eitthvað í staðinn. Kjell Magne Bondevik getur hins vegar ekki hugs- aö sér að sitja í ríkisstjórn með Framfaraflokknum og því er likleg- ast að Krf og Hægri verði að gera Karl Ivar Hagen að forseta Stórþings- ins. Það finnst mörgum Krf-félagan- um ríflega greitt fyrir liðveislu Framfaraflokksins. Allir saklausir Bandarísk lögregluyfirvöld sögðu í gær að enginn þeirra tíu manna sem handteknir voru í áhlaupi lögreglunn- ar á Kennedy-flugvöll og LaGuardia- flugvöll í fimmtudagskvöld tengdust hryðjuverkaárásunum á nokkurn hátt og hafa þeir því verið látnir lausir. Á einum mannanna hafði fundist grun- samlegt flugskirteini sem reyndist í eigu bróðir hans og fréttir um að mennirnir hefðu verið vopnaðir hníf- um reyndust rangar. Bera sjálfir ábirgðina Dagblað stjórn- arinnar í írak, Al- Thawra, sagði í gær að árásirnar í New York og Was- hington á þriðju- daginn væru eðli- legar afleiðingar afskipta þeirra af innanrikismálum annarra þjóða og tók þar með undir ummæli Saddams Husseins, forseta landsins, um að þær væri ávöxtur „grimmilegrar utanríkisstefnu". „Bandarískur almenningur verður að gera sér ljóst að bandarísk stjórnvöld bera sjálf ábyrgðina á árásunum og þeirri ógnum sem steðjar að þjóð- inni,“ sagði blaðið. Tala látinna hækkar Fjöldi þeirra sem látnir eru vegna landadrykkjunnar i bænum Parnu i Eistlandi um síðustu helgi var í gær kominn í 53 en fólkið mun hafa inn- birt landa sem unninn var úr tréspír- itus. Að sögn lögreglunnar liggja enn- þá um 80 manns á sjúkrahúsi með ein- kenni eitrunar og gæti tala látinna því enn hækkað. Tíu manns hafa ver- ið handteknir i sambandi við málið og að sögn ríkissaksóknara landsins verða þeir að öllum líkindum ákærðir fyrir manndráp sem þýðir að þeir geta átt allt að þriggja ára fangelsisdóm yf- ir höfði sér. Bush fær 40 billjónir Öldungadeild Bandaríkjaþings sam- þykkti í gær samhjóða að veita fjörutíu billjónum dollara til hernaðaraðgerða, hjálparstarfs og uppbyggingar, vegna hryðjuverkanna í New York og Penta- gon. Tiu billjónum dollara verður þeg- ar varið til hreinsunar og uppbygging- ar í New York og Virginíu, öðru eins eftir hálfan mánuð þegar Bush hefur gert grein fyrir áætlunum sínum og restinni, 20 billjónum, í einstök verk- efhi sem Bush gerir sérstaka grein fyr- ir. Á myndinni hér að ofan er Carl Levin, formaður hernaðarnefndar þingsins, á leið til þingsins en eins og sjá má hefur veður versnað og hindrar það allt hjálparstarf. Talibanar hóta hefndum Muhammad Om- ar, leiðtogi tali- banastjórnarinnar í Afganistan, flutti ávarp til þjóðar sinnar í afganska ríkisútvarpinu í gær þar sem hann hvatti þjóðina til að mæta yfirvofandi innrás Bandaríkjanna í landið með hugrekki og sjálfsvirðingu og minnti á baráttu hennar gegn Rússum. „Við munum greiða það gjald sem til þarf til að verja okkur og leita allra ráða til að koma fram hefndum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.