Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Side 22
22 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 Helgarblað DV Dauði unga píanóleikarans Harmi slegnir foreldrar Þau leituðu dóttur sinnar alla nóttina en allt kom fyrir ekki. Alison hafði lent í klóm morðingja og nakið lík hennar fannst ekki fyrr en síðdegis daginn eftir. Fíkill og morðingi Jay Short hafði sprautað sig með blöndu af heróíni og verkjalyfjum þegar hann var gripinn morðæði. Hann kom heim til sín alblóðugur aö leita að skóflu. með hælaháum skó. Þannig komst hún undan og með leigubíl á lög- reglustöðina þar sem hún hringdi í foreldra hinna vinkvenna sinna til þess að athuga hvort þær heföu komist heim heilar á húfi. Faðir Alison uppgötvaði sér til skelfing- ar að rúm dóttur hans var autt: „Ég gleymi aldrei þessari skelfi- legu nótt,“ sagði hann í viðtali. „Við fjölskyldan fórum öll út á götu að leita hennar en vonuðum jafnframt að hún hefði ákveðið að gista hjá vini. Við héldum áfram mmmmi að leita meðan við stóðum í fæt- uma.“ En fjölskyldan fann ekki Alison. Hvorki þessa nótt né morguninn eftir. Síðdegis fann lögregla með hunda nakið lík hennar, grafið til hálfs á frjáisíþróttavelli rúmlega hálfan kílómetra frá sundlauginni. Hún hafði verið kyrkt og stungin. Um sexleytið um morguninn hafði hinn kolsjúki eiturlyfjaneyt- andi ráfað heim til sín alblóðugur Fláöí kanínur og afhöföaöi hross Shona Boyd hringdi í lögregluna daginn eftir og Jay William Short var meira en fús til þess að mæta til yfirheyrslu. Hann sagðist hafa mætt Alison þar sem hún gekk eft- ir jámbrautarteinum með háhæl- aða skó í höndunum og ráðist á hana. Hann hafi síðan dregið hana með sér að hekk undir tré á frjáls- íþróttavelli þar sem hann hefði drepið hana. Hann hefði skorið á úlnliði hennar með glerbroti og síðan kyrkt hana. Kinnroðalaust játaði Jay William síðan að hafa klætt líkið úr fötunum og grafið það við langstökks- brautina. Þeir sem þekktu morðingj- ann létu sér ekki bregða viö þeim ásökunum sem á hann vora bomar. Gamall skólafé- lagi sagði t.d. frá því að uppá- haldsiðja Jay Williams i æsku hefði verið að veiða kanínur og flá af þeim skinniö. „Hann henti flegnum kanínum á lóðina hjá fólki sem honum var illa við. Einu sinni gekk hann lengra og hjó höfuðið af hrossi," sagði skólafélaginn fullur viðbjóðs. Alison fórnað Eins og búast mátti við dró Jay William játningar sínar til baka þegar á leið. Hann reyndi að segjast hafa fundið líkið og verið að hylma yfir með morðingjunum - hann vildi frekar sitja saklaus sem morðingi í fangelsi held- Diskótekið Þar voru Alison og frænkur hennar að skemmta sér morðnóttina. ur en sem rotta sem kæmi upp um félaga sína. Þessu var alfarið hafn- að af rannsóknaraðilum enda fannst hár Jays Williams á kjól Alison og ýmislegt fleira benti ein- dregið til sektar hans. Þegar dómarinn las yfir honum lífstíðardóminn sagði hann: „Glæp- ur þinn var hryllilegur. Þú myrtir stúlkuna með köldu blóði af engri ástæðu annarri en að fullnægja sjúkri löngun þinni. Það var þér ekki nóg að hafa ráðist á vinkonur hennar - þú þurftir meira. Að svo hæfileikarík og elskuleg ung stúika eins og Alison skuli hafa orðið fórnarlamb sjúkra óra þinna er þyngra en tárum taki.“ Foreldrar Alison trúa því að dóttir þeirra hafi ekki dáið til einskis. Lífi hennar hafi verið fómað til þess að koma Jay Willi- am Short af götunum og I lifstíðar- fangelsi. Það breyti því ekki að Ali- son er þeim að eilífu horfin og tón- list hennar að eilífu hljóðnuð. Síóasta lagiö Nótnabókin er opin þar sem Alison skildi við hana. Á píanóinu má sjá hluta þeirra fjölmörgu verðlaunagripa sem Alison hafði unnið til - fyrir píanó - og flautuleik og dans. Alison Lewis var draumur allra foreldra. Frá því að pabbi hennar keypti handa henni píanó þegar hún var sex ára gömul hafði hún verið hugfangin af hljóðfærinu og æft sig af kappi. Árið 1996, aðeins nítján ára, var hún upprennandi einleikari og hafði einnig unnið til fjölda verðlauna fyrir flautuleik og dans. Hún var stolt foreldra sinna og var aftur komin heim til Lith- gow, litla kolanámubæjarins í New South Wales, eftir að hafa stundað nám í tónlistarháskóla í Penrith í Sydney. Foreldrar hennar sögðu að hún hefði haft gaman af þvi að fara út að dansa en þorði ekki að gera það í Sydney vegna þess að þar fannst henni hún ekki vera örugg. Hún naut sín hins vegar vel þegar hún var komin aftur í litla heima- bæinn og heimsótti iðulega frænk- ur sínar á laugardagskvöldum, en þær drakku kokkteila og fóru sam- an á Nitespot, eina diskótekið í plássinu. Þetta örlagaríka laugardags- kvöld langaði Alison til þess að fagna því að hún hafði fengið inn- göngu í annan skóla og þurfti ekki að fara aftur til stórborgarinnar Sydney. Það sem hún gat engan veginn vitað var að í sama mund og hún gekk prúð og frjálsleg í fasi með frænkum sínum á diskótekið var ógæfumaður nokkur að stela sér sprautunálum á bæjarsjúkra- húsinu. Og þegar Alison skemmti sér í dansinum sat hann skammt frá og sprautaði sig með blöndu af heróíni og höfuðverkjatöflum. Skelfileg nótt Frænkurnar ungu höfðu ekki fengið nóg af því að skemmta sér þegar Nitespot var lokað - þær gengu um götumar og ákváðu að bregða sér í sund. Ein frænkan gekk á undan með kærastanum sínum, en frænkurnar Alison, Kerry og Melanie gengu á eftir. Alison hugðist fara til þeirra sem höfðu gengið á undan og hraðaði sér af stað en vinkonur hennar sáu hana aldrei framar. Þær voru komnar að sundlauginni þegar á þær var ráðist. Kerry komst undan en ódæðismaðurinn náði að berja Melanie í hnakkann og var að draga hana með sér á hárinu þegar hún gat sparkaö í hnéskel hans og spurt unnustu sína hvar hann gæti keypt skóflu. Þegar hún spurði á móti hvað hann ætlaðist fyrir var fátt um svör. Til þess að grafa þig Bæjarbúar voru slegnir harmi. Morð hafði ekki verið framið í bænum í 30 ár og í ofanálag þekktu allir Alison sem þótti með efnilegri íbúum bæjarins af yngri kynslóð- inni. Pianókennari hennar sagði í viðtali að hún hefði haldið að Ali- son léki einn daginn í óperuhúsinu í Sydney. „Ég var vön að segja við hana: Geymdu handa mér sæti í fremstu röð!“ segir píanókennar- inn sem sagði einnig að hún hefði ekki aðeins verið hæfileikarík heldur líka mjög indæl stúlka. Alison var að fagna því að hún hafði fengið inngöngu í tónlistar- háskóla daginn áður. Jay William Short, ódæðismaðurinn, hafði enga ástæðu til þess að fagna þetta kvöld fremur en önnur kvöld. Hann haföi átt ömurlega ævi, faðir hans var drykkjusjúklingur, heim- ilið hafði verið leyst upp og Jay William var eins og orðabókar- skýring á vandræðaunglingi. Þeg- ar hann kom heim þennan morgun tók unnusta hans, Shona Boyd, á móti honum. „Það var blóð i fotun- um hans og hann hegðaði sér mjög undarlega," sagði Shona síðar. „Mér datt í hug að það væri önnur kona í spilinu og spurði hvar hann hefði verið en hann sagði mér að halda kjafti. Ég tók líka eftir risp- um á líkama hans - eins og hann hefði verið klóraður. Þá spurði hann mig um afgreiðslutima versl- ana í kring vegna þess að hann þyrfti að kaupa skóflu. Ég spurði: „Til hvers?“ og hann svaraði: „Til þess að grafa þig!“ Þá vissi ég að ekkert þýddi að eiga við hann.“ — Falleg og hæfileikarík Alison Lewis hafði leikið á píanó frá því að hún var sex ára. Glæst fram- tíð beið hennar og íbúar litla kolanámubæjarins voru stoltir af henni. Endi var bundinn á ævi Alison þegar snarruglaður eiturlyfjaneytandi myrti hana þar sem hún var að koma af diskóteki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.