Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
23
x>v
Helgarblað
Hinn nakti sannleikur
íslenska kvennalandsliðið vakti mikla athygli fyrir umdeilda auglýsingu sína. Það er ekki
í fyrsta skipti sem íþróttakonur fækka fötum til að fá athygli.
Sfc**lu pér i vflftnn * morsun og ajftðu tpOTmuxll
■Mputtog (wgar Wntg wfcytjunw uka t mob aebku
(túttunum i undankappni HM Ivonr*.
Hlttlð •t.lpurnar I Útllltl I dag mllll 16-17
L(ug»rð*i(vöfi Jf kl. 11:00
t mofgun, 6. uptombcr
Ókeypis Inn. Allir a völlinn. Áíram Island!
® t>rr léf „----- CiC*
Islensku valkyrjumar
Hin umdeilda auglýsing íslenska kvennalandsliðsins
í knattspyrnu.
Islenska kvennalandsliðið í knatt-
spymu vakti mikla athygli fyrir
auglýsingu sína i Morgunblaðinu
fyrir rúmri viku. Þar sýndu þær
óvenju mikið af líkama sínum, í
þeim tilgangi að fá fleiri áhorfendur
á landsleik sem var haldinn daginn
eftir. Þar mættu þær ítölum og
unnu glæsilega. Áhorfendur voru
fleiri en nokkru sinni fyrr á leik ís-
lenska kvennalandsliðsins. I kjölfar
auglýsingarinnar hafa margir orðið
til að tjá sig um framgöngu lands-
liðskvennanna. Meðal þeirra sem
stigið hafa fram til að gagnrýna aug-
lýsinguna er framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu og undir orð hennar
tók leiðarahöfundur Morgunblaðs-
ins á þriðjudaginn sem sagði meðal
annars: „Kvennaknattspyrna snýst
hvorki um kynlíf né ofbeldi".
Allt fyrir íþróttagreinina
Landsliðskonurnar hefðu
kannski mátt búast við hörðum við-
brögðum. Umræðan um íþróttakon-
ur og kynlíf hefur verið ofarlega á
baugi síðustu árin. Fyrir Ólympíu-
leikana í Sydney árið 2000 tók
kvennalandslið Ástralíu (sem geng-
ur undir nafninu The Mathildas) í
knattspymu sig til og gaf út dagatal
sem sýndi landsliðskonurnar á Evu-
klæðum. Ástæðan fyrir útgáfunni
var tvíþætt, annars vegar að vekja
athygli á greininni og hins vegar að
afla fjár fyrir liðið. Fleiri fylgdu í
kjölfarið, til dæmis kvennalandslið
Kanada í skíðagöngu. Dagatal
þeirra nefndist „Nordic Nudes“ og
var gefið út af sömu ástæðum og
dagatal áströlsku kvennanna.
Kanadíska skíðakonan Sara Renner
sagði í viðtali við The Calgary Her-
ald að hún hefði keppt í tiu ár og
ímynd íþróttarinnar hefði á þeim
ekkert batnað. Hún sagði enn frem-
ur að það væri þess virði að klæða
sig úr ef það þýddi að íþróttin yrði
vinsælli.
Ef Janet Reno væri „beibu
Almennt er litið á að „nektar-
bylgjan" í heimi íþróttakvenna hafi
hafist þegar knattspyrnukonan
Brandi Chastain fór úr treyjunni
sinni eftir sigurmark sitt í heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu
árið 1999. Undir treyjunni var svart-
ur íþróttabrjóstahaldari sem í sjón-
varpsumfjöllun fékk mun meiri at-
hygli en markið sjálft og sigur
bandarísku kvennanna. í kjölfarið
var mynd af Chastain á forsíðu
Gear-tímaritsins
þar sem hún sat
fyrir nakin með
fótknetti. Fleiri
hafa fylgt í kjölfar-
ið, meðal annarra
skautadrottningin
Katarina Witt og
hástökkvarinn
Amy Acuff.
Óánægja margra
hefur ekki síst ver-
ið vegna þess
hversu mismun-
andi umfjöllun
fjölmiðla er um
íþróttamenn og
íþróttakonur.
Reyndar er mis-
munurinn ekki
bara bundinn við
íþróttafólk, rit-
stjóri Maxim
karlablaðsins
sagði að ef Janet
Reno væri „beib“
þá kæmist hún
umsvifalaust á for-
síðu tímaritsins.
„Allt sem ég bið
um er sama með-
ferð og karlar,"
segir Mary Jo Kane
í samtali við
Newhouse en hún
hefur sérhæft sig í
rannsóknum á konum og íþróttum.
„Þegar Tiger Woods verður nakinn
á forsíðu Sports Illustrated og held-
ur golfkúlu fyrir kynfærunum, þá
skal ég þagna." -sm
Hinar áströlsku Matthildur
Ástralska kvennalandsliðið í knattspyrnu vakti heimsathygli með útgáfu
nektardagatals fyrir Ólympíuleikana í Sydney.
S amgönguráðuney tið
OMNIR
Opinn kynningar- og umræðufundur í tilefni af sölu
hlutabréfa ríkisins í Símanum.
Hótel Loftleiðir, Þingsalur 1, sunnudaginn 16. september kl. 16.
• Hefur breytt eignarhald Símans áhrif á fjarskiptaþjónustu við landsmenn?
• Hverju mun tækniþróun í fjarskiptum breyta?
• Hver er framtíðarsýn Símans?
• Hvemig verður fyrirkomulag sölunnar?
SIMINN
Framkvœmdanefnd
um einkavœðingu
Fulltrúar frá Símanum, samgönguráðuneyti og framkvæmdanefnd
um einkavæðingu ræða málin og sitja fyrir svörum.
Staður og tími: Hótel Loftleiðir, Þingsalur 1, sunnudaginn 16. september kl. 16.
Framsöguerindi, fyrirspurnir og umræður. Kaffiveitingar.