Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Síða 49
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 57 Tilvera Afmælisbörn Oliver Stone 55 ára Einn þekktasti og umdeildasti kvikmyndaleik- stjóri Bandaríkjanna, Oliver Stone, er afmælisbarn dagsins. Hann fæddist i New York. Þegar hann komst á fullorðinsár hóf hann nám í Yale en hætti árið 1965. Sama ár fluttist hann til Cholon í Ví- etnam og kenndi heimamönnum ensku. Ári síðar hafði hann skamma viðdvöl í Mexíkó en gekk síðan í herinn árið 1967. Hélt hann þá aftur til Víetnam en nú sem hermaður. Átti hann eftir að gera reynslu sinni þar verðug skil í þríleiknum Platoon, Born on the Fourth of July og Heaven & Earth, sem fjalla um tengsl Bandarikjanna og Víetnam. Mickey Rourke 48 ára Vandræðagemlingurinn Mickey Rourke á afmæli á morgun. Rourke, sem lærði leiklist í Lee Strasberg Institute, þótti strax mjög efnilegur og var fljótt tekið eftir honum í kvikmyndaheiminum. Hann fékk stóra tækifærið í Diner og sló síðan í gegn í 9 1/2 Weeks. Lék hann í fáeinum góðum myndum i kjölfarið áður en allt fór að fara í handaskolum hjá honum sem rekja má til drykkju og dópneyslu. Lenti hann upp á kant við lögin, barði fólk út og suður og var dæmdur í fang- elsi, styrkti IRA með peningagjöfum og hugsaði meira um feril sinn sem boxari og mótorhjólakappi heldur en það sem hann kunni best. Gildir fyrir sunnudaginn 16. september og mánudaginn 17. september Stjörnuspá Vatnsberinn (20. ian.-18. fehr.l: Spá sunnudagsins: Reyndu að vinna verk- in á eigin spýtur í dag. Ef þú treystir alger- lega á aðra fer allt úr skorðum ef þeir bregðast. pá mánudagsms: Þú vinnur að sérstöku gæluverk- efni um þessar mundir og á það hug þinn aUan. Gættu þess að það bitni ekki á fjölskyldunni. Hrúturinn (21. mars-19. apríll: Rskarnir (19. fehr.-?0. marsl: Spá sunnudagsins: •Andrúmsloftið í kring- um þig verður þrungið spennu fyrri hluta dagsins. Hætta er á deUum yfir smáatriðum. pa mánudagsins: AUt sem þú tekur þér fyrir hendur í dag gengur vel. Þú ert ftúlur bjartsýni og tilbúinn að reyna eitthvað nýtt. Kvöldið verður skemmtilegt. Nautið (20. april-20. mai.t Spá sunnudagsíns: 1 Spá sunnudagsins: ’ Þú ættir ekki að treysta algerlega á eðlisávísun- ina þar sem hún gæti brugðist þér. Þú hittir persónu sem heiUar þig við fyrstu sín. Spa manudagsms: Kunningjar þínir gætu komið þér 1 vandræði þó að það sé hreint ekki ætlun þeirra. Þú þarft að sýna sjálfstæði, þá fer aUt vel. Tvíburarnir m. maí-21. iúníi: Þú ert fullur sjálfs- -mjf trausts um þessar . mundir og ekki minnk- ar það við viðurkenningu sem þú færð á opinberum vettvangi. Þú lærir mikið af öðrum í dag og fólk verður þér hjálplegt, stundum jafn- vel án þess að vita af þvi. Vinátta og fjármál fara ekki vel saman. Spá manudagsins: Greiðvikni borgar sig ávaUt betur en stirfni og leiðindi. Þetta áttu eftir að reyna á eftiminnUegan hátt í dag. Vinur biður þig um peningalán. Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi: Spá mánudagsins: Ef þú ferð ekki eftir innsæi þínu eru meiri líkur á að þú lendir í ógöngum en ef þú hlýðir á þinn innri mann. Happatölur þínar eru 5, 8 og 21. Liónið (23. iúlí- 22. ágústl: Spá sunnudagsins: ' Þú verður mikið á ferð- inni í dag og gætir þurft að fara landa leið í ein- hverjum tilgangi. Þú þarft að skyggnast undir yfirborð hlutanna. Spá mánudagsins: Þú ert í góðu ástandi tU að taka ákvarðanir í sambandi við minni háttar breytingar. Þú átt auðvelt með að gera upp hug þinn. Vogin (23. sept.-23. okt.l: Spa sunnudagsins: Sambönd ganga í gegn- um erfitt tímabil. Sér- staklega er hætta á spennu vegna sterkra tilfinninga á rómantíska sviðinu. Spá manudagsins: Þér hættir tU að velta þér óþarf- lega mikið upp úr lítilfjörlegum vandamáliun og hafa af þeim meiri áhyggjur en vert er. Bogamaður m. nnv.-71. rfes.t: Spá sunnudagsins: | Þú ert dáhtið utan við þig í dag og ættir að hefja daginn á þvi að skipuleggja aUt sem þú ætlar að gera. Ekki treysta á að aðrir geri hlutina. Spá manudagsins: Þér finnst þú hafa mikið að gera en verið getiu- að þíxúr nánustu hafi það líka. Reyndu að sýna sanngimi í samskipum við aðra. Mevian (23. áeúst-22. sept.l: Spa sunnudagsins: Þú ættir að skipuleggja »þig vel og vera viðbúinn þvi að eitthvað óvænt komi upp á. Ekki láta óvænta atburði koma þér í upp nám. Spá mánudagsins: Galgopaskapur einkennir daginn í dag og svo virðist sem ekki beri að taka eitt orð alvarlega. ÖUu gamni fylgir þó nokkur alvara. Sporðdreki 124. okt.-21. nóv.l: Spá sunnudagsins: Þú hefur í mörg hom að »lita og átt á hættu að vanrækja einhvem sem þér þykir þó afar vænt um. Vertu heima hjá þér í kvöld og slappaðu af. Spá mánudagsins: Þú færð fréttir sem koma róti á huga þinn. Ekki er þó ástæða til að hafa áhyggjur. Ástin blómstrar hjá þér. Steingeitin (22. des.-19. ian.l: Spá sunnudagsins: i Spá sunnudagsins: 'Þú færð að heyra ; gagnrýni vegna hug- mynda þinna í dag. Þú átt auðvelt með að meta aðstæður og ert öraggur í starfi þínu. Spá manudagsins: Þú lest eitthvað sem vekrn- áhuga þinn svo um munar. Þegar til lengri tíma er Utið á þetta eftir að hafa mikil áhrif. Gerðu eins og þér finnst réttast í máU sem þú þarft að taka ákvörðim í. Þú ættir ekki einu sinni að leita ráða, máhð er þess eðUs. Spá mánudagsins: Þú skalt nýta þér þau tækifæri sem gefast eins vel og þú getur. Dagur- inn gæti orðið nokkuð erfiður en þú færð styrk frá góðum vini. Hannes og Guðfríöur Lilja íslandsmeistarar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varð íslandsmeistari kvenna í 10. sinn! Harpa Ingólfsdóttir, íslands- meistarinn frá í fyrra, varð önnur en þær stöllur tefldu úrslitaskák í síðustu umferð sem Guðfríður Lilja vann. Ég ætlaði að birta þá skák en á heimasíðu SÍ er skákin því miður birt gölluð - það eina sem hægt er að setja út á hnökralausa fram- kvæmd mótsins. Vel yfir 3000 heim- sóknir á heimasíðu mótsins, fyrir utan þá svona 5-10 sinnum fleiri sem fylgdust með mótinu á alþjóða- skákfélaginu. Hvenær hefur íslands- mót í einhverri grein haft yfir 30 þúsund áhorfendur? Hafnarfjarðar- bær má vel við una. Hannes Hlífar Stefánsson varð skákmeistari íslands í aðeins þriðja sinn um síðustu helgi. Hann hefur sannarlega tímann fyrir sér! Hann- es var ákaflega vel að titlinum kom- inn, hlaut 7 v. af 9 mögulegum og bar ægishjálm yfír aðra keppendur. Þröstur Þórhallsson varð annar með 6 v og þeir Bragi Þorfinnsson og Jón Garðar Viðarsson deildu 3.-4. sæti með 5. v. I 5.-6. sæti urðu svo Stefán Kristjánsson og Bjöm Þorfinnsson með 4,5 v. Þeir bræður Bragi og Björn áttu möguleika á áfanga í síðustu umferð með sigri, en þeir töpuðu báðir. Björn tapaði fyrir Hannesi og Bragi fyrir Stefáni Kristjánssyni i mjög góðri skák. Lít- um á hana. Hvítt: Bragi Þorfinnsson (2371) Svart: Stefán Kristjánsson (2380) Drottningar-indversk vörn. Landsliðsflokkur Hafnarfirði (9), 8.9. 2001 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Rf3 Be7 5. Bg2 0-0 6. 0-0 dxc4 7. Dc2 a6 8. a4 Bd7 9. Dxc4 Bc6 10. Bg5 a5 11. Rc3 Ra6. Bragi bregður hér út af alfaraleiðum, margar skákir hafa teflst með 12. Hadl eða Hfdl. En staðan skýst flótlega inn á al- faraleiðir aftur. 12. Bxf6 Bxf6 13. e4 Rb4 14. Hadl b6. Þessi staða er þekkt úr fræðunum og er 15. Hfel talinn besti leikurinn hér. Eftir 14. Bb7 15. Hd2 Ba6 16. Db3 c6 17. Ra2 stendur hvítur betur. En það er eins og mig minni að þeir félagar séu að fylgja eftir þekktri skák þar sem Hannes Hlífar tefldi með svörtu en næsti leikur skapar hvítum einungis smá vandræði með d5 peðið og það vantar allar sóknar- aðgerðir fyrir hvítan sem síðan Qara út. 15. d5 exd5 16. exd5 Bb7 17. Rd4 Bxd4 18. Hxd4 Dd7 19. Hfdl Hae8 20. h4 He5 21. Rb5 Ra6! Riddarinn er á leiðinni á óskareitinn c5 þar sem útsýni er harla gott. Svartur stendur aðeins betur. 22. Kh2 Rc5 23. Dc2 Ba6 24. Rc3 Dd6 25. Hf4 Hfe8 26. Hd2 g6 27. Rdl f5 Hvítur getur lítið annað en beðið hér, óþægileg staða fyrir Braga sem helst vildi geta blásið til sóknar. En Stefán heldur stöðunni í jámgreipum. 28. Rc3 H8e7 29. Bf3 Rd7 30. b4 axb4 31. Ra2 b3 32. Dxb3 Rc5 33. Dc2 Re4 34. Hdl. Hrókurinn á f4 stendur illa og svartur hefur aðgerðir til að ná hon- um. 34. - h6! 35. Kg2 g5 36. hxg5 hxg5 37. Hxf5! Hxf5 38. Bxe4 Hf6 39. Rc3 Dc5 Hvítur leikur nú fram eina möguleikanum eftir skipta- munstapið. En Stefán á duldan möguleika í stöðunni! 40. d6 Hxd6 41. Bd5+ Kg7 42. Db2 Kf8! Hér héldum við flestir að Bragi væri að ná sér í þokkalega möguleika, 42. - Hf6 virtist eini leikurinn og eftir 43. Re4 Hxe4 Bxe4 virtist staðan óljós. En eftir hinn gerða leik virðist hvít- ur aðeins eiga jafntefli. En Bragi þurfti svo nauðsynlega á vinningi að halda. 43. Re4 Hxe4. 44. Dh8+? Auðvelt að gagnrýna þennan leik, en Bragi reynir að tefla til vinnings. Nauðsynlegt, var 44. Bxe4! Því eftir 44. Hxdl hefur hvítur gangandi þráskák eftir 45. Df6+ Og á annað var varla hættandi fyrir Stefán í stöðunni? 44. - Ke7 45.Dh7+ Kd8 46.Dxe4 Bb7! „Úpps!“ Þessi leikur vinnur skiptamun og skákina. 47. Bxb7 Hxdl 48. Bc6 De7 49. Dc4 Dh7! 50. Kf3 Dd3+ 51. Dxd3+ Hxd3+ 52. Kg4 Hc3 53. Bd5 Ke7! Ekki má drepa með 54. g5 vegna Hc5. Svarta staðan er ósigrandi. 54. Kf5 Hc5 55. Ke4 c6 56. Bg8 Kf6 0-1 Fyrst ekki var hægt að birta skák í kvennaflokki höldum við á vit ævin- týranna i Kínaveldi. Þar áttust við Rússar og Kínverjar i landskeppni í skák. Rússar sigruðu nokkuð örugg- lega þó þeir væru án heimsmeistara sinna, núverandi (?) og fyrrverandi í karlaflokki. Teflt var í kvenna-, karla- og unglingaflokki og sigruðu Rússar samanlagt. Karlaflokkur: Rússar 21,5 - Kínverjar 14,5, Kvennaflokkur: Rússar 9, Kínverjar 9 og að lokum, Unglingaflokkur: Rússar 11 - Kínverj- ar 7. Risarnir í austri eru erfiðir viðureignar! Hvítt: Alexander Khalifman (2700) Svart: Xiaomin Peng (2629) Kóngs-indversk vörn. Lands- keppni Rússa og Kínverja í Shang- hæ(6), 12.9. 2001 1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. d4 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7 9. b4 Rh5 10. Hel f5 11. Rg5 Rf6 12. f3 Re8 13. c5 a5. Þetta er ein af þessum stöðum sem lengra komnir í skákinni verða að kunna einhver skil á?! 14. cxd6 Dxd6 15. Rb5 Db6+ 16. Khl Rd6 17. bxa5 Hxa5 18. Rxd6 cxd6 19. Bd2 Ha8 20. Hbl Da7 Hvitur hefur náð yfirburðatafli á drottningar- væng. Athyglisvert hvernig hann prjónar sig í gegn. 21. Bc4 Bd7 22. Be3 Db8 23. Re6 Hc8 24. Dd3 f4 25. Bgl Ha4 26. Bb5 Bxb5 27. Dxb5 Hxa2. Innrásin frá Rússlandi á Kín- verska drekann (maður verður að vera „diplómatískur" á þessum síð- ustu og verstu tímum. Annars hefði ég talað um keisarann). 28. Dd7 Bf6 29. Hxb7 Da8. Þessi staða fær inngöngu í DV eingöngu vegna fágaðrar snyrti- mennsku „á la Anatolí Karpov.“ 30. Rxf4 Bh4 31. Rd3 Da3 32. De6+ 1- 0. September 111,14 blöndunartæki frá 1QKCI SANITEDTECHNIK Sk.u&c FMMattsson SANITEDTECHNIK^fa s**JFlim t/ kto W fyrir eldhús í Mora, Svíþjóð Einnarhandar blöndunartæki fyrir eldhús. frá kr. 4.690,-stgr, 1 /^rir handlaug m. lyftitappa. frá kr. 4.890,- st8r. Hitastýrð fró kr. 8.900,- stgr. Viö Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18 _____taugard. kl. 10-14 tjrval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.