Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Tilvera
DV
Simon og
Garfunkel
Tónleikar með tónlist eftir
Simon og Garfunkel verða í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20
og svo aðrir seinna, kl. 22.30.
Tónleikamir eru hugarfóstur
Stefáns Hilmarssonar og Eyjólfs
Kristjánssonar en þeir eru kjöl-
festan í 12 manna hljómsveit.
Klubbar
■ DRAGDROTTNING tSLANPS
2001 Keppnin um dragdrottningu
Islands 2001 á Spotlight. Þema
keppninnar í ár er „Moulin Rouge".
Leikhús
■ HEDWIG Siðástá sýning á Hed-
wig veröur í Loftkastalanum í kvöld
kl. 20.30. Þetta er síðasta tækifær-
iö til aö sjá þennan ágæta söngleik
á sviöi.
■ HMM METRAR FRUMSÝNT í
kvöld kl. 20.30 veröur nýtt íslenskt
dansverk, Fimm fermetrar, frumsýnt
í Tjarnarbíói viö Tjarnargötu.
Kabareti
■ GRAFARVOGSPÁGURINN i dag
er Grafarvogsdagurinn haldinn há-
tíölegur víös vegar um Grafarvog.
Viö frístundamiðstöðina Gufunesbæ
veröur fjölbreytt dagskrá þar sem í
boöi verður m.a. leiktæki, þrauta-
braut, klettaklifur, spámaöur, stutt-
myndasýning, trúöar, handverks-
markaöur og reiötúr fyrir börn.
Opnanir
■ PRUFUR DOKTORS B í GALL-
ERI@HLEIVIMUR.IS I dag kl. 16
opnar Olga Bergmann syningu í
galleri@hlemmur.is, Þverholti 5,
> Reykjavík. Sýningin ber heitið Prufur
Doktors B.
■ HJÖRLEIFUR SIGURÐSSON í
GERPARSAFNI Hjörleifur
Sigurösson listmálari opnar sýningu
í Geröarsafni í dag. Hann sýnir þar
vatnslitamyndir sem byggjast að
mestu leyti á sérkennum japönsku
pappírsarkanna.
■ MARKMIÐ V í HEIÐMÖRK í dag,
klukkan 15 verður opnuö fimmta
sýning Markmlös viö Heiöarveg í
Heiömörk. Ekiö verður frá
bílastæöinu viö Gallerí Hlemm
klukkan 14.30 upp í Heiðmörk og
eru bíleigendur hvattir til að mæta.
Einnig veröur gangandi boöið bllfar.
Hressandi veitingar I Heiömörk.
■ GÍSLI í LESBÓK Í LISTASAFNI
KOPAVOGS I dag veröur opnuð I
Listasafni Kópavogs sýning á
myndverkum eftir Gísla Sigurösson
sem lesendur Morgunblaösins
kannast viö sem umsjónarmann
Lesbókar í meira en 30 ár.
Klassík
■ KAMMERTONLIST A morgun *
sunnudag, kl. 16.30, veröur Kamm-
erhópur Salarins meö tónleika i
Salnum. Atli Heimir veröur á svæö- i
inu og flutt veröa verk, meöal ann- I
ars úr Töfraflautunni. Matur veröur
frá Austur-lndíafélaginu.
M Sveitin
- ■ HANDVERKSMARKAÐURA
EYRARBAKKA Blásiö veröur til helj-
ar handverksmarkaöar í félagsheim-
ilinu Staö. Á svæðinu veröur fólk
meö sumaruppskeru sína af blóm-
um og grænmeti, sultur veröa seld-
ar og auðvitað mætir fólk meö hand- !
verksframleiöslu sína.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Halli P.
Haraldur Pétursson ætlar sér að halda heimsbikartitlinum og mun því hvorki hlífa sér né Mussonum í dag.
DV-Sport heimsbikarmótið:
Hörkuslagur
Þaö veröur hart barist um hvert
stig í sjöundu umferð DV Sport
Heimsbikarkeppninni sem ekin verð-
ur við Bolöldur í mynni Jósefsdals í
dag en keppnin hefst kl. 13. Torfæru-
ökumennirnir 15 sem þátt taka í
keppninni eru búnir að hafa nóg að
gera alla vikuna við að endurbyggja
bílana eftir skemmdimar sem þeir
urðu fyrir í síðustu keppni.
Nýr Trúður
í gær sögðum við frá baráttu þeirra
Haraldar Péturssonar og Gísla G.
Jónssonar í opna flokknum en barátt-
an er ekki minni í götubílaflokki. Þar
berjast Ragnar Róbertsson á Pizza 67
WiÚysnum og Gunnar Gunnarsson á
Trúðnum um heimsbikartitilinn.
Ragnar þurfti að endursmíða fram-
hásinguna fyrir keppnina í dag en
Gunnar þurfti að endurbyggja nánast
allan bUinn. Báðar hásingarnar voru
bognar, yfirbyggingin ónýt og grindin
skökk. Ýmsar festingar höfðu gefið sig
og loftpúði sprungið. „Ég er ekki viss
um að við náum að klára Trúðinn fyr-
ir helgina. Tíminn er svo stuttur, að-
eins ein vika og bíUinn aUur í klessu,“
sagði Gunnar á þriðjudaginn. „Að-
stoðarmennirnir mínir eru á fullu við
að gera við undirvagninn og kramið
og strákarnir í BK blikki eru á fullu
við að smíða nýtt boddí sem verður
sprautað í Bílasprautun Suöurnesja,"
bætir Gunnar við en hannn leggur
mikinn metnað í að Trúðurinn líti vel
út. Það fer líka ekki fram hjá neinum
að Trúðurinn er jafnan snyrtilegasti
og faUegasti bíUinn í torfærunni.
Brotna eins og tannstönglar
Rafn Amar Guöjónsson braut þrjá
öxla í síðustu keppni og er hann orð-
inn dálítið þreyttur á að vera alltaf að
rífa Dana 44 hásinguna í sundur.
DV-MYNDIR JAK
Siguröur Þór
Sigurður Þór Jónsson fellur hér fram af klettabeltinu í síðustu brautinni í
Grindavík á Toshiba-tröllinu. Sigurður Þór náði að stökkva upp á brúnina en
braut framdrifsskaftið í leiðinni. „Ef skaftið hefði haldið hefði éggetað stýrt
bílnum og ábyggilega komist alla leið upp, “ sagði Sigurður Þór Jónsson.
Hann er reyndar að láta smíða Dana
44/60 hásingar fyrir sig undir Rauða
prinsinn en þær munu ekki fara í
jeppann fyrr en í vetur. Það verður
fróðlegt að sjá hversu margir öxlar
liggja í valnum hjá Rafni Arnari eftir
sunnudaginn.
Heppinn
Sigurður Þór Jónsson á Toshiba-
tröUinu slapp ótrúlega vel frá sinni
veltu í 8. brautinni í Grindavík en
hann var einn af þeim sem steyptist
niður klettana þar. Hann sleit einung-
is einn dempara og braut drifskaft,
auk þess sem húddið klesstist aðeins.
Sigurður á möguleika á að hreppa
heimsbikartitilinn en til þess að svo
megi veröa verður hann að vera tölu-
vert heppinn. Eitt er víst að Sigurður
Þór mun leggja sig aUan fram í keppn-
inni og hvergi hlífa Toshiba-tröUinu.
-JAK
Skógarganga:
Spennandi fræðsluganga
Skógarganga
Kunnáttumenn með lifandi fræðslu.
Þriðja haustganga Skógræktarfé-
lags íslands, Garðyrkjufélags ís-
lands og Ferðafélags íslands verður
laugardaginn 16. september kl. 10 og
er mæting á bílastæði Árbæjar-
safns.
Umsjónarmenn göngunnar eru
Sigurður Þórðarson og Samson
Harðarson frá Garðyrkjufélagi ís-
lands. Fjölbreyttur gróður verður
skoðaður og upphafi trjáræktar gef-
inn gaumur, jaðarplöntur i görðum
kannaðar, haustlitir skoðaðir og
hæsta grenitré íslands sótt heim. Að
sögn aðstandenda er um að ræða
spennandi fræðslugöngu sem tekur
rúma tvo tíma. Nánari upplýsingar
fást hjá Garðyrkjufélagi íslands, s.
891 7436.
Mirnmmm. i
Panic ★★★
í fótspor
feðranna
William H.
Macy hefur leikið
ólík hlutverk í
mörgum gæða-
myndum og hér
bætir hann enn
einni persónunni
við. Leikur hann
erfitt hlutverk at-
vinnumorðingja
með útlit venjulegs manns. Og er
leikur hans gallalaus. í upphafi sjá-
um við hinn venjulega stressaða
millistéttarmann fara til sálfræð-
ings. Þegar sálfræðingurinn spyr
hann hvað hann geri segir Alex
honum að hann sé atvinnumorð-
ingi. Um leið veit áhorfandinn að
hann er ekki að fara að sjá neina
venjulega kvikmynd. Raunin er líka
sú að Panic er um leið og hún fylg-
ir eftir Film/noir stilnum einnig
svört kómedía um fjölskyldu sem á
yflrborðinu er ósköp venjuleg en
lumar á leyndarmálum. Staðreynd-
in er að Alex var í æsku kennt af
foður sínum að vera atvinnumorð-
ingi. Gallinn við við Alex er að þó
hann hafi fetað í fótspor fóður síns
þá er hann mjúkur maður og þarf á
sálfræðiaðstoð að halda, sem hann
fær ekki eingöngu hjá sálfræðingn-
um heldur einnig hjá ungri stúlku
sem hann hittir á biðstofunni.
Panic er að mörgu leyti sterk og
athyglisverð kvikmynd, en stundum
dálítið tilgerðarleg. Það eyðileggur
þó ekki skemmtunina enda leikarar
hver öðrum betri. Macy bregst ekki
eins og áður segir, Donald Suther-
land er frábær í hlutverki fóðurins
og Neve Campbell, sem við þekkjum
úr Scream-myndunum, sýnir hér að
það er mikið í hana spunnið.
-HK
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri:
Henry Brommel. Leikarar: William H.
Macy, Donald Sutherland, Neve Campbell
og Tracey Ullman. Bandaríkin, 2000.
Lengd: 94 mín. Bönnuö börnum innan
12 ára.
Derlivering Milo ★★★
Himnaríki og jörð
Þaö er komið upp stórt i
og mikið vandamál í
himnaríki. Milo neitar að
fæðast. Þetta getur gert það að verk-
um að enginn fæðist í framtíðinni og
mannkynið mun þurkast út. Til að
koma vitinu fyrir Milo er fenginn
gammaO graUari, Elmore, tO að fara
með Milo í stutt ferðalag til jarðarinn-
ar. Á hann að koma
vitinu fyrir hann.
Elmore sér þama
guUið tækifæri til
að koma sér aftur
inn í iðandi mann-
líflð sem hann
saknar og er í
fyrstu ekkert að
hugsa um skuld-
bindingar. MUo er því lítt hrifmn af
jarðlifi. Það er helst að rjómaísinn
heiUi hann. Þegar þeir félagar hitta
svo hina verðandi móður Milos verð-
ur breyting á.
Delivering MUo er hálfvandræðaleg
gamanmynd. Það eru til í mörgum
misgóðum útgáfum samskipti engla
og manna. Það er vandasamt að fara
með þetta efni svo vel fari og aðalgaU-
inn við Delivering Milo er slakt hand-
rit. Það hefur enga vigt, er ófyndið og
gerir það að verkum að ágætir leikar-
ar ná ekki sambandi við persónurnar
sem þeir túlka. Albert Finney kemst
best frá sínu hlutverki enda kannski
með þá persónu sem mest varið er í.
Finney tekst einum leikara að fmna
persónunni réttan farveg. Það er
meira en hægt er að segja um Bridget
Fonda og CampbeU Scott í hlutverk-
um tilvonandi foreldra. Anton
Yelchin er greindarlegur strákur og
passar í hlutverkið en þarf eins og
aðrir að flytja slæman texta. -HK
Útgefandl: Háskólabíó. Leikstjóri: Nick
Castle. Leikarar: Albert Finney, Bridget
Fonda og Cambell Scott. Bretland, 2000.
Lengd: 90 mín. Leyfö öllum aldurshóp-
um.