Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
sÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001
r»v
REUTER-MYND
Palestínumönnum mótmælt
Þúsundir hægrisinnaöra gyöinga
kröföust þess í gær aö palestínska
heimastjórnin yröi leyst upp.
Bandaríkin vilja
ísraelana á brott
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, lýsti í gær yfir fullum stuðn-
ingi sínum við aðgerðir ísraelska
hersins á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna, þrátt fyrir harða
gagnrýni frá Washington og þrýst-
ing frá eigin ráðherrum um að kalla
hersveitirnar heim.
Israelar hafa sent hersveitir sínar
inn á flest helstu svæði Palestínu-
manna í kjölfarið á morðinu á
Rehavam Zeevi ferðamálaráðherra i
síðustu viku.
Sharon ítrekaði kröfu sína um að
Palestínumenn framseldu moröingj-
ana og heimildarmenn Reuters
sögðu að hermenn yrðu áfram á sín-
um stað til að koma í veg fyrir frek-
ari árásir Palestínumanna.
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, sagði i gær að hann ætlaði
að sjá til þess að lögum um bann við
starfsemi vopnaðra sveita harðlínu-
samtaka yrði framfylgt.
Kristilegir í sár-
um eftir ósigur
Kristilegi demókrataflokkurinn í
Þýskalandi er í sárum eftir hrika-
lega útreið í borgarstjórnarkosning-
unum í Berlín. Þrýstingur hefur
aukist á Angelu Merkel flokksleið-
toga um að tilnefna þann sem kem-
ur til að keppa við Gerhard
Schröder kanslara í kosningunum á
næsta ári.
í kosningunum í Berlín á sunnu-
dag glötuðu Kristilegir stöðu sinni
sem stærsti flokkur borgarinnar.
Það hafði ekki gerst frá árinu 1974.
Merkel reyndi þó að gera eins gott
úr þessum úrslitum og hún gat.
„Á landsvísu vill flokkurinn
hvorki ofmeta né vanmeta þessi úr-
slit,“ sagði Angela Merkel á fundi
með fréttamönnum í gær.
Kjarnorkuendurvinnslan í Sellafield
Svört skýrsla segir aö slys í stööinni
geti vaidiö aivarlegum afleiöingum.
Svört skýrsla um
Sellafield lak út
í skýrslu, sem unnin var fyrir Evr-
ópusambandið um hugsanlegar afleið-
ingar slyss í kjarnoruendurvinnslu-
stöðinni í Sellafield í Englandi og
óvart lak í fjölmiðla, kemur fram að
slys í stöðinni gæti haft enn verri af-
leiðingar en slysið í kjamorkuverinu
í Tsjernobyl í Úkraínu hafði árið 1986.
Ljóst er að skýrslan á eftir að draga
dilk á eftir sér, því Shellafieldstöðin,
sem lengi hefur valdið deilum, er að-
eins í um 100 kílómetra fjarlægð frá
írlandi og líklegt að írska stjórnin fari
fram á lokun hennar.
Norðurbandalagið tilbúið að umkringja Kabúl:
Þriggja sólarhringa stans-
lausar árásir á talibana
Hersveitir Norðurbandalagsins,
andstæðinga talibanastjórnarinnar í
Afganistan, segjast nú tilbúnir að um-
kringja Kabúl, höfuðborg landsins, og
höfuðvígi talibana, eftir þriggja sólar-
hringa stöðugar loftárásir Bandaríkja-
manna og Breta á hersveitir talibana
og búðir þeirra í nágrenni höfuðborg-
arinnar. Haron Amin, talsmaður
Norðurbandalagsins í Bandarikjun-
um, sagði í gær aö hersveitir þeirra
væru nú að undirbúa aðgerðir í kring-
um borgina, en ætlunin væri samt
ekki að ráðast inn í hana að svo
stöddu. „Við vinnum nú að þvi með
Sameinuðu þjóðunum og alþjóðasam-
félaginu að yfirtaka stjóm landsins og
kortleggja politískt landslag áður en
látið verður til skarar skríða,“ sagði
Amin og bætti við að það væri mikil-
vægt fyrir sóknina að loftárásunum
yrði haldið áfram.
Vitað er að Bandaríkjamenn leggja
nú mikla áherslu á að borgin Mazar-e-
Sharif verði hertekin, svo hægt verði
Fórnarlamb loftárásanna
Þessi litli snáði er eitt fórnarlamba loftárása
Bandaríkjamanna og Breta á Kabúl, höfuð-
borg Afganistans, í baráttunni gegn
hryðuverkum.
að nota flugvöO hennar til aðgerða.
Kröfturgar loftárásir voru á Kabúl í
nótt og að sögn talsmanna talibana-
stjórnarinnar fórust flörutíu manns,
aðaUega óbreyttir borgarar, í árásun-
um í nágrenni höfuðborgarinnar og á
svæðinu vestur af borginni Herat.
„Þar var átján sprengjum varpað í
nótt og féUu þar fimmtán óbreyttir
borgarar, auk þess sem 25 særðust á
heimilum sínum og í bænahúsi í ná-
grenni borgarinnar," sagði talsmaður
talibanastjórnarinnar í Herat.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði talibana ýkja tölur fallinna
óbreyttra borgara og bætti við að
árásunum síðustu daga hefði ein-
göngu verið beitt gegn hernaðar-
mannvirkjum og hersveitum þeirra.
Frá Kandahar bárust þær fréttir að
ráðist hefði verið gegn lest olíuflutn-
ingabifreiða, þar sem fimm hefðu faU-
ið og tíu særst, en lestin hefði verið á
leið með olíubirgðir frá írönsku
landamærunum til Herat.
REUTERTVIYND
Hlustað á kuðunginn
George Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, leggur eyraö aö stórum kuöungi sem málaöur er í bandarísku fánalitunum.
Þaö var Peter Henry, forstjóri feröamannastaöar á Flórída, sem afhenti forsetanum fyrrverandi kuöinginn. Tilefniö er
sjóstangaveiöimót þar sem Bush gamli keppir viö 55 aöra veiöimenn. Ágóöinn rennur til rannsókna á krabbameini.
Búa sig undir komu fjölda
flóttamanna frá Afganistan
Hjálparstofnanir búa sig nú undir
mikinn fjölda flóttamanna frá
Afganistan yfir landamærin tU ná-
grannaríkisins Pakistans á næst-
unni. Sem stendur eru það aðaUega
konur, börn og gamalmenni sem
komast yfir landamærin.
„Við erum að reyna að búa okkur
undir hugsanlegt flóð af flóttamönn-
um, eina milljón til Pakistans, hálfa
milljón til Irans og tvö hundruð
þúsund tU viðbótar tU landanna í
norðri, það er að segja Túrkmenist-
an, Úsbekistan og Tadsjikistan,"
sagði Olivier Brasseur, fulltrúi
mannfjöldastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, á símafundi með frétta-
mönnum frá Peshawar í Pakistan.
Brasseur sagði að þeir eitt þús-
und til fimmtán hundruð afgönsku
flóttamenn sem komast í flótta-
mannabúðir í Pakistan á degi hverj-
um væru viö svo slæma heilsu að
REUTER-MYND
Blæs kúlutyggjó á hveitipoka
Afgönsk flóttastúlka blæs kúlutyggjó-
iö sitt þar sem hún situr á hveiti-
poka í bænum Khoja Bahuddin í
Afganistan norðanverðu.
það boðaði ekki gott um ástandið
innan landamæra Afganistans.
„Konurnar, sem tekst að komast
yfir landamærin, eru algjörlega úr-
vinda. Þær þjást af hungri, blóðleysi
og sýkingum af því að þær hafa
ekki fengið neina umönnun í langan
tíma. Það sem við sjáum við landa-
mærin er vísbending um heUsufars-
ástandið innan Afganistans,“ sagði
Brasseur.
Framkvæmdastjórinn sagði að
það væri orðið nær útilokað fyrir
hjálparstofnanir, þar á meðal hans
eigin, að starfa innan Afganistans.
„Aðstoð okkar er ekki meira en
dropi í þetta haf hörmunganna,"
sagði Olivier Brasseur.
Starfsmaður SÞ sagði í gær að ef
árásir á borgina Herat í vesturhluta
Afganistans færðust í aukana væri
hætta á auknum straumi flótta-
manna þaðan til Irans.
Háður manndrápum
Bill Clinton Banda-
rikjaforseti sagði í
gær að sádi-arabíski
hry ðj uverkamaður inn
Osama bin Laden væri
orðinn háður mann-
drápum og að hemað-
araðgerðirnar gegn
hryðjuverkaneti hans
myndu bjarga mannslífum þegar
allt kæmi til aUs. Clinton harmaði
þó mannfaU óbreyttra borgara í loft-
árásunum á Afganistan.
Vilja sjálfstæði 20. maí
Nýkjörið þing Austur-Tímors fór
fram á það við Sameinuðu þjóðirnar
í gær að þeir veittu landinu sjálf-
stæði sitt þann 20. maí á næsta ári.
Barist um hassmarkaðinn
Hörð barátta er nú háð um hinn
ábatasama hassmarkað í Kaup-
mannahöfn. MikiUar spennu hefur
orðið vart í fríríkinu Kristjaníu,
sem stærsti hassmarkaður borgar-
innar er.
Swissair verður bjargað
Svissnesk stjómvöld gripu í gær
til ráðstafana til að koma flugfélag-
inu Swissair til bjargar og sam-
þykktu að greiða stærstan hluta
þess sem það kostar að endurreisa
flugfélagið.
Bjartsýnn á Kyoto
Embættismaður SÞ spáði því i
gær að á fundi í Marokkó i næstu
viku yrði komist að samkomulagi
um reglur til að gera Kyoto-samn-
inginn um loftslag virkan að fuUu.
Jospin í Moskvu
Lionel Jospin,
forsætisráðherra
Frakklands, ræddi
við rússneskan
starfsbróður sinn í
Moskvu í gær um
margvísleg málefni,
Til þess var tekið
að gagnrýni Frakka
á hernað Rússa í Tsjetsjeníu var
ekki jafnhörð og áður.
CIA má ráða skúrka
Bandariska leyniþjónustan CIA
hefur slakað á reglum sínum um
ráðningu skúrka af ýmsu tagi í
þjónustu sína, ef þeir ráða yflr upp-
lýsingum um hryðjuverkamenn.
Svari til saka í Perú
Stjórnvöld í
Perú sögðu í gær
að Alberto Fu-
jimori, fyrrum for-
seti landsins, ýrði
að svara tU saka
fyrir ákærur um
mannréttindabrot
í heimalandi sínu
en ekki í Japan þar
sem hann er í sjálfskipaðri útlegð.
Japanir hafa lýust vilja sínum tU að
rétta yflr forsetanum fyrrverandi.
Prodi svekktur
Romano Prodi, framkvæmda-
stjóri ESB, lýsti i gær svekkelsi sínu
yfir þvi að Belgar, sem gegna for-
sæti í ESB nú, hafi i raun múlbund-
ið hann.
Concorde yfir hafið
Bresk Concorde þota flaug til
New York í gær, í fyrsta sinn frá því
frönsk þota sömu gerðar fórst við
París í fyrra.