Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2001, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001
Standard & Poor's gagnrýna forsendur fjárlaga:
Byggt á bjartsýni
um hagvöxtinn
- styöur okkar gagnrýni, segir Össur Skarphéðinsson
„Það er ekki hægt að líta á
þessa frétt sem neinn Hæstarétt
yfir fjárlagafrumvarpinu,“ segir
Ólafur ísleifsson forstöðumaður
alþjóðasviðs Seðlabankans um
þann dóm Standard & Poors fjár-
málafyrirtækisins sem gaf úr
lánshæfismat fyrir íslenska ríkið
„að Fjárlagafrumvarpið fyrir 2002
'm' sem lagt var fram í byrjun októ-
ber gerir ráð fyrir smávegis af-
gangi en er byggt á bjartsýnum
forsendum um hagvöxt og tekjur."
Fyrirtækið telur að halli ríkis-
sjóðs árið 2002 geti orðið um 1,8%
af vergri landsframleiðslu og að
verulegar skattalækkanir gætu
orðið enn meiri Þrándur í Götu
fyrir því að jafnvægi náist aftur í
fjármálum ríkissjóðs.
Ólafur ísleifsson segir að Stand-
ard & Poors hafi að þessu sinni
FÍB:
Bensín lækki
um 6 krónur
Gera má ráð fyrir að bensínlítr-
inn lækki um allt að sex krónur um
'• næstu mánaðamót, miðað við þær
forsendur sem nú eru uppi. Þetta
segir Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, i morgun.
Runólfur sagði, að tonnið af 95
oktana bensíni væri komið niður
fyrir 180 dobara á Rotterdammark-
aði. Hæst hefði það farið upp í um
300 dollara, en síðan verið í „frjálsu
falli“ frá því snemma í þessum mán-
uði.
Hins vegar hefði staða krónunnar
gagnvart dollar versnað og í gær
hefði dollarinn verið rúmlega 103
krónur. Lokagengi þegar verðbreyt-
ingin á eldsneyti var gerð í ágúst
september sl. hefði verið 99 krónur.
•fyt Að öllu samanlögðu mætti þó gera
ráð fyrir bensínlækkun um 6 krón-
ur á lítrann. -JSS
Össur - Ójafur
Skarphéðinsson. Isleifsson.
unnið mat sinnt úr talsverðri fjar-
lægð og hafa beri það í huga þeg-
ar þessi þáttur sé skoðaður.
„En auðvitað hljótum við að
skoða þetta af fullri viðrðingu og
alvöru og þetta eru ákveðin við-
vörunarljós," segir Ólafur.
Sem kunnugt er spannst mikil
deila í kringum fjárlagafrumvarp-
ið þegar það var langt fram vegna
þess að fjármálaráðuneytið byggði
þaðekki á þjóðhagsáætlun Þjóð-
hagsstofnunar og og gerði ráð fyr-
ir meiri hagvexti en Þjóðhags-
stofnun vildi gera. „Mér sýnist að
þeir séu með afgerandi hætti að
taka undir þær raddir okkur að
frumvarpið sé byggt á bjartsýn-
ustu forsendum," sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar þegar DV bar mál-
ið undir Össur i morgun.
í frétt Standard & Poor’s er
lánshæfismat íslenska ríkisins
staðfest en horfunum gefnar nei-
kvæð einkun. Endurskoðað láns-
hæfismat gæti skipt miklu máli
fyrir ísland því bæði aðgangur að
lánsfé og lánakjör kynnu að breyt-
ast.
Sjá einnig viðskiptasíðu.
-BG
Frestur í Landssímaútboði runninn út:
Norðurljós hóta
að fara í mál
Jón Olafsson.
Frestur kjöl-
festufjárfesta til
að staðfesta tilboð
í ráðandi hlut í
Landssímanum
rann út í gær.
Samkvæmt óstað-
festum, heimild-
um DV er til
skoðunar að
framlengja þenn-
an frest til 26.
október eða um sex daga. Það mun
hafa verið ákveðið í gær að ósk ein-
hverra fjárfesta. Samkvæmt heim-
ildum DV munu einhverjir þeirra
sem nefndir voru í upphafi sem
kjölfestufjárfestar hafa hætt við að
gera formlegt tilboð.
Ekki náðist i Hrein Loftsson, for-
mann einkavæðingamefndar, sem
er ásamt nefnd sinni í London. Með
í för eru fulltrúar PricewaterHou-
seCoopers sem hafa veg og vanda af
útboðinu.
Mikil leynd hvílir yfir því hverjir
hafi í raun áhuga á að ráða Lands-
símanum og samkvæmt heimildum
DV verður ekki gert opinbert hverj-
ir muni kljást um yflrráð í þessu
stærsta fjarskiptafyrirtæki lands-
ins.
Opin kerfi eru meðal þeirra sem
lýstu í upphafi áhuga á fyrirtækinu
og er líklegt talið að þau séu enn
inni. Þá höfðu stjórnendur Norður-
ljósa einnig áhuga og því var lýst að
fyrirtækið myndi selja hlut sinn í
Tali til að fullnægja skilyrðum út-
boðsins. Jón Ólafsson, stjórnarfor-
maður Norðurljósa, segir að verið
sé að ýta sínu fyrirtæki út. Hann
segir það óeðlilegt að setja þau skil-
yrði að fyrirtæki megi ekki eiga i
fjarskiptafyrirtækjum. Opin kerfi
og Norðurljós séu bæði eigendur í
slíkum fyrirtækjum þar sem Opin
kerfi eigi í SKÝRR og LínuNet.
„Leikreglur verða að gilda í þessum
viðskiptum. Við munum ekki una
þessu,“ segir Jón Ólafsson. Hann
segir að Ragnar Aðalsteinsson lög-
maður muni fylgja málinu éftir fyr-
ir hönd Norðurljósa. „Það verður
ekkert gefið eftir,“ segir Jón Ólafs-
son.
Friðrik Pálsson, stjórnarformað-
ur Landssímans, sagðist í morgun
ekki vita hvernig mál stæðu varð-
andi útboðið. -rt
DV-MYND GVA
Bleikjutorfur í Kleifarvatni
Umfjöllun DV um Kleifarvatn í síöustu viku vakti mikla athygli. Um helgina
mátti sjá stríöan straum fólks fara aö vatninu til aö skoöa ummerki yfirborðs-
lækkunar og hveri sem þar hafa komiö í Ijós. Þessi fallega mynd sýnir spegil-
lygnan vatnsflötinn en í forgrunni syndir bleikjutorfa. Líklega er silungurinn
þarna að leita gamalla hrygningarstööva sem nú eru komnar á þurrt.
NU ÞYNGIST
SENSÍNFÓTURINN!
Hollensk stúlka í miklum vandræðum í Siglufirði:
Alveg ótrúlegir hrakningar
- segir björgunarsveitarmaður sem leitaði stúlkunnar
„Það er alveg greinilegt að þessi
stúlka er enginn aumingi, en full-
orðnir karlmenn hafa gefist upp á
þeirri leið sem hún fór í myrkrinu,"
segir Sveinn Björnsson hjá Björgun-
arsveitinni Strákum á Siglufirði
sem í fyrrakvöld leitaði hollenskrar
stúlku um tvítugt sem skilaði sér
ekki í sumarhús í Sigluvík á tilsett-
um tíma.
Sveinn segir að menn sem biðu
stúlkunnar í Sigluvik hafi farið til
Siglufjarðar eftir hjálp um kvöld-
matarleytið þegar myrkur var að
skella á. Björunarsveitarmenn hafi
farið í tveimur hópum og leitað
hennar bæði á landi og eins hafi
þeir lýst upp fjallshlíðina af sjó.
Hann segir að stúlkan hafi ætlað að
fara yfir Nesskriður sem séu stór-
hættulegar yfirferðar en hún hafi
ekki komist yfir þær og því haldið
upp fjallið og upp á það.
„Það er ótrúlegt og óskiljanlegt að
hún skyldi siðan komast niður fjall-
ið og i Sigluvík í myrkrinu, en þar
hafði verið skilið eftir ljós i sumar-
húsinu. Þegar við komum þangað
var stúlkan komin í húsið en hún
var hrædd, köld, blaut, rispuð og í
losti. Við fórum með hana á sjúkra-
húsið á Siglufirði til skoðunar en að
henni lokinni fékk hún að fara
heim,“ segir Sveinn. -gk
Útiljós
Rafkaup
Armúla 24 • S. 585 2800
rother merhiuélin
fyrir fagmenn
og fgrirtæiii,
heimili og
shóla, fyrir rdð
og regiu, mig
og þig.
nýbýlauegi 14 • slmi 554 4443 • if.is/rafport!
Rafnort