Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2001, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2001, Blaðsíða 29
37 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001__________________________ IO'V Tilvera Bíófréttir Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum: Á slóð Kobba kviðristu Vinsælasta kvik- myndin í Bandaríkjun- um um síðustu helgi var From Hell sem leik- stýrt er af bræðrunum Albert og Allen Hughes (Menace II Society, Dead Presidents). myndinni segir frá leit- inni að frægasta raðmorðingja sögunnar, Jack the Ripper. Sögu- sviðið er London árið 1888 þegar Kobbi kviðrista er að hefja sinn blóðuga fer- il. Ýmislegt sem skeður í Whitechapp- el-hverfmu verður til þess að lögreglu- manninn Fred Abberline (Johnny Depp) fer að gruna að eitthvað óvenju- _______________________________legt HELGIN 19.-21. október eigi sér stað. Tvær konur hafa verið myrt- ar á hryllilegan hátt og það er ýmislegt sem þessi morð eiga sam- eiginlegt. Abberline, sem á við ópíumvand- mál að stríða, fær mik- inn og persónulegan áhuga á málinu. í öðru sæti er gamanmynd, Riding in Cars with Boys, sem Penny Marshall leikstýrir og hefur Drew Barrymore í aðalhlut- verki. Sú mynd sem bundnar voru mestar vonir við, The Last Castle, með Robert Redford og James Gand- olfini í aðalhlutverkum, náði sér aldrei á strik og fékk litla aðsókn. -HK From Hell Johnny Depp í hlutverki lög- regluforingja sem er á eftir Jack the Ripper. ALUR UPPHÆÐIR í ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA TTDLL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O From Hell 11.014 11.014 2305 o Riding In Cars With Boys. 10.404 10.404 2770 o 1 Training Day 9.325 57.283 2603 o 2 Bandits 8.304 24.884 3207 o The Last Castle 7.88 7.088 2262 o 4 Serendlpity 5.446 34.426 2610 o 3 Corky Romano 5.307 16.185 2094 o 5 Don’t Say a Word 4.215 47.885 2261 o 6 Iron Monkey 3.190 10.737 1235 © 7 Zoolander 3.135 40.018 2285 © 9 Max Keeble’s Big Move 2.645 14.187 1976 © 8 Joy Ride 2.543 18.814 1854 © 11 Hardball 1.557 35.794 1652 © 10 Hearts In Atlantis 1.285 22.791 1505 © 14 Mulholland Drive 960 1.859 247 © 12 The Others 906 94.543 1146 © 13 Rush Hour 2 622 223.879 659 © 15 Megiddo: The Omega Code 2 429 5.220 227 © 16 Legally Blonde 367 95.001 711 © - Shrek 271 266.636 388 Vinsælustu myndböndin: Stórstjörnur á toppnum Tvær nýjar myndir eru í efstu sætum myndbandalistans þessa vikuna og þarf engum að koma það á óvart að The Mexican skip- ar efsta sætið. f myndinni fer Brad Pitt með hlutverk Jerrys Welbach, smákrimma sem stend- ur frammi fyrir tveimur afarkost- um. Sá fyrri, sem glæpaforingi hans gaf honum, felst í að fara til Mexíkós og ná í ómetanlega byssu, sem gengur undir heitinu Mexíkóinn, eða hafa verra af! Sá seinni, frá kærustu hans sem Jul- ia Roberts leikur, felst í því að hann rjúfi öll tengsl við glæpahópinn eða hún slíti sambandi þeirra. Jerry metur stööuna þannig að það sé betra að vera á lífi og rífast síðar við kærustuna og heldur yfir landa- mærin til Mexíkós. Það reynist auðvelt að finna þessa for- láta byssu en að komast aftur heim er enginn leikur. Jerry kemst að því að byssunni fylgir bölvun sem sannast áþreifanlega þegar kærasta hans er tek- in í gíslingu af leigumorðingja til að tryggja aö Mexík- óinn skili sér nú ör- ugglega til glæpafor- ingjans. -HK The Mexican Brad Pitt leitar aö byssunni dýr- mætu sem gengur undir nafninu Mexíkaninn. FYRRI VIKUR SÆTl VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) Á USTA _ The Mexican isam myndbönd) í _ Exit Wounds <sam myndböndi í i © 1 Miss Congeniality (sam myndbönd) 4 2 The Grinch isam myndbönd) 2 ! 4 Spy Kids (skífan) 2 ; © 3 Men of Honor iskífan) 5 : 5 Enemy at the Gates isam myndbönd) 6 6 Save the Last Dance isam myndböndi 5 : 9 Bait (SAM MYNDBÖND) 3 ! ÍTj) 10 Proof of Life <sam myndböndi 9 S 8 The Gift (háskólabíó) 9 : 7 Chocolat (SKÍFAN) 6 i I |T£) 14 The Boondock Saints (BERGvík) 10 j fTFj _ About Adam iskífáni 1 © 12 Almost Famous (skífan) 7 ■ | © n What Women Want (skífan) 9 i © 16 Tomcats imyndform) 8 | i 13 Hannibal isam myndbóndi 7 © 19 Ginger Snaps (myndfórm) 2 UL 18 Murder of Crows (bergvík) 9 Minningarmót Jóhanns Þóris Jónssonar: Skákbakterían deyr aldrei - segir Guömundur Pálmason sem teflir eftir 35 ára mótahlé Stigalaus maður Guðmundur vill ekki gefa neinar yfirlýsingar um styrk sinn sem skákmanns og ætlar ekki að spá fyrir um gengi sitt á mótinu. „Ég hlakka til í aðra röndina því það er nú einu sinni svo að ef maður hefur verið í skákinni af einhverri alvöru þá gleymir maður henni seint. Bakterían liggur í dvala en hún deyr ekki.“ Þegar Guðmundur er spurður að því hvað hann sé með mörg ELO-stig hlær hann að fáfræði blaðamannsins og segist ekki vera stigamaður. „Það voru engin stig til þegar ég var að tefla á mót- um.“ Bíógagnrýni Stigalaus maöur stórmeistari Guömundur Pálmason jaröeölisfræöingur hefur ekki tekiö þátt í skákmóti í þrjátíu og fimm ár. Hann segir aö skákbakterían hafi blossaö upp aö nýju og hann hlakki til aö taka þátt í mótinu. Smárabió/Laugarásbíó/Regnboginn ■HHI America's Sweethearts: Skilnaður í Hollywood ★ ★ Hilrnar Karlsson skrifar gagnryni um kvikmyndir. Guðmundur Pálmason jarð- eðlisfræðingur þótti með betri skákmönnum á landinu þegar hann hætti að taka þátt í mótum fyrir þrjátíu og fimm árum. Þeg- ar Guðmundur hætti hafði hann teflt á fjórurn ólympíumótum fyrir hönd íslands og það kom því mörgum á óvart að hann skyldi leggja skákina á hilluna, að minnsta kost opinberlega. Átti mörg áhugamál Að sögn Guðmundar átti hann sér mörg áhugamál þegar hann var ungur maöur og hann varð að velja á milli. „Það er rétt, ég hætti að taka þátt í skákmótum í kringum 1966 en þegar mér var boðið að taka þátt í minningarmótinu um Jóhann Þóri heitinn, kunn- ingja minn, vaknaði bakterían aftur. Ég ákvað að slá til og láta slag standa. Jóhann Þórir var þekktur maður á meðal skák- manna og ritstjóri Skákblaðsins í áratugi. Mér fannst þetta vera ágætis tækifæri til að rifja upp gamalt áhugamál." Sáttasemjarinn Kiki (Julia Roberts) huggar mág sinn, Eddie (John Cusack). Það fer að verða hálf- þreytandi að horfa upp á Juliu Roberts vera að leika nánast sama hlutverkið i mynd eftir mynd - að vísu með einni góðri undantekn- ingu (Erin Brockowich). Með smáútúrdúrum, eftir því hvað persónan gerir í það og það skiptið, þá er hún í öskubuskuhlutverk- inu sem gerir það að verk- um að hún verður hin eina sanna draumaprinsessa sem karlmenn dreymir um. í America’s Sweethearts bæt- ir hún einu slíku hlutverk- inu við, leikur bjargvættinn í öskustónni, stúlkuna sem áður fyrr var feit og ljót en hefur breyst úr ljóta andarunganum í fallegan svan. America’s Sweethearts er Hollywoodmynd um Hollywood, skrifuð af heimamanninum Billy Crystal. Satt best að segja fylgir hún hefðbundnum leiðum í gerð slíkra mynda, fyrir utan að það örlar að- eins á frumleika þegar Crystal fer út í neðanbeltishúmorinn sem að sjálfsögðu hefði ekki veriö hægt að bjóða upp á í Hollywoodglansmynd- um fyrri tíma. Myndin er um tvær súperstjörn- ur Gwen (Catherina Zeta-Jones) og Eddie (John Cusack) sem búin eru að leika saman í rándýrri kvik- mynd sem á að fara að frumsýna. Gwen og Eddie eru hjón og er allt upp í loft í hjónabandinu, Gwen komin með spænskan elskhuga og Eddie farinn á taugum og er að koma út af hæli. Þau vilja helst ekki sjá hvort annað en eru að sjálfsögðu hégómgjörn og í Hollywood gengur allt út á markaðssetningu og því gengur það ekki út á við að skilnað- ur sé í vændum. Til að bjarga hlut- um er fenginn blaðafulltrúinn Lee (Billy Crystal) og er honum sagt að ef hann nái ekki að koma þeim sam- an á blaðamannafundi og frumsýn- ingu skuli hann leita sér að nýrri vinnu. Lee fær svo til liðs við sig Kiki (Julia Roberts), sem er sérstak- ur aðstoðarmaður systur sinnar, Gwen, og hefur alltaf verið í skugganum af henni. Myndin gengur síðan út misgóð atriði þar sem reynt er að finna einhvem flöt á samskiptum persóna, smáskammt af forboðinni ást og mistökum á mistök ofan sem stundum er dá- góður húmor í. America’s Sweethearts hlýtur að hafa í upphafi eingöngu átt að vera gam- anmynd, með blöndu af rómantík. Öll uppbygging hennar er slík en sem gam- anmynd er hún mislukkuð; hún er einfaldlega ekki nógu fynd- in. Rómantíkin er léttvæg og að sjálfsögðu kemur það í hlut Juliu aö halda henni við. Á móti kemur að persónur eru margar hverjar upp- skrúfaðar og skemmtilegar og stjörnurnar kunna að gera sér mat úr þeim texta sem þær hafa á milli handanna. Útkoman er kvikmynd sem rétt nær að vera afþreying í meöallagi. Leikstjóri: Joe Roth. Handrlt: Billy Crys- tal og Peter Tolan. Kvikmyndataka: Phedon Papamichael. Tónlist: James Newton Howard. Aðalleikarar: Julia Ro- berts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jo- nes, John Cusack, Hank Azaria, Alan Ark- in og Christopher Walken.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.