Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001
2>V
Fréttir
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Samfylking á niðurleið
- Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir bæta við sig fylgi
Fylgi flokka
- miöaö viö þá sem tóku afstööu ...
50
40
30
20 iMW
ié'
40,7
10
0
U
f
Iwj
I I 1
II III
12,713,0
I ]DV 24/10 '01
a,0sy , dv 07/08'oi
4 // § pv 07/06'01
DV 28/01 01
Wí44, « DV12/01 '01
, ÁX I2J DV 23/10 '00
«,S ^ DV 29/09 '00
DV 21-22/03 '00
DV 28-29/12 '99
j \DV 20/10 '99 |
í íKosn^r'"1' Samfylkingin
Wi.
35,6
1
«3 V
lilfíi Í’.1I II
15,5
11,5
yM
é
SKOÐANAKÖNNUN
fst
VINSTIUHREYFINCIN
•raxt framöoð
»3
244
25,J
1«
153
m
■.
* 11
2«
21,0
Skipan þingsæta
— samkvæmt atkvæðafjölda —
35
30
25
20
15
10
1212
8 8 8
7
3333
26
8 8
26
31 Sp
I
28 28
30
2424
23
I 1DV 24/10 '01
DV 07/08 '01
| 9DV 07/06 '01
\DV 28/01 '01
VV12/01 '01
DV 23/10 '00
DV 29/09'00
DV 21-22/03 '00
DV 28-29/12 '99
DV 20/10 '99
DV13/09 '99
Kosningar
II
SKOÐANAKÖNNUN
V
__••
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð
Samfylkingin
17 17
16
19
É2 2 (22
‘m íi'i‘11 II
1111
10
u
16
1212
1010
6 6
13
Fylgi Samfylkingarinnar snar-
minnkar frá síðustu skoðanakönn-
un DV og er nálægt fylgi Fram-
sóknarflokksins. Er þetta gríðar-
legt fall frá því í septemþer í fyrra
þegar fylgi Samfylkingarinnar fór í
27 prósent og mikil breyting frá 17
prósenta kjörfylgi. Virðist langt í
land að Samfylkingin verði sá 30
prósenta flokkur sem forysta hans
dreymir um. Vinstrihreyfingin -
grænt framboð snýr hins vegar við
blaðinu og bætir aðeins við sig
eftir frítt fall í könnunum á þessu
ári. Sjálfstæðisflokkur bætir við
sig aðra könnunina i röö meðan
Framsókn og Frjálslyndir eru á
svipuðu róli og í síðustu könnun
DV.
Þetta eru helstu niðurstöður
skoðanakönnunar DV sem gerð
var í gærkvöld. Spurt var: Hvaða
lista mundir þú kjósa ef þingkosn-
ingar færu fram núna? Úrtakið var
600 manns, jafnt skipt milli höfuð-
borgarsvæðis og landsbyggðar sem
og kynja.
Þegar litið er til alls úrtaksins
mældist Framsóknarflokkur með
7,8 prósenta fylgi, Sjálfstæðisflokk-
ur með 27,5 prósent, Frjálslyndi
flokkurinn með 2,3 prósent, Sam-
fylkingin með 8,2 prósent og
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
með 14,5 prósenta fylgi. Enginn
sagðist mundu kjósa Húmanista,
Kristilega né Anarkista.
Óákveðnir reyndust 31,5 prósent
og 8,2 prósent neituðu að svara. Alls
tóku 39,7 prósent aðspurðra því
ekki afstöðu. Það er mun hærra
hlutfall en í síðustu könnun þegar
32.7 prósent tóku ekki afstöðu.
4,5 prósentustig niður
Af þeim sem tóku afstöðu sögð-
ust 13 prósent kjósa Framsóknar-
flokk sem er nánast sama tala og í
könnun DV í ágúst. 45,6 prósent
sögðust kjósa Sjálfstæðisflokk sem
er marktæk aukning frá síðustu
könnun. Stjórnarílokkarnir
styrkja sig en samanlagt fylgi
þeirra er 58,6 prósent miðað við
54.8 prósent í síðustu könnun.
Frjálslyndir dala, fá 3,9 prósenta
fylgi í stað 4,8 prósenta fylgis í sið-
ustu könnun.
Einungis 13,5 prósent aðspuröra
sögðust mundu kjósa Samfylking-
una sem er verulegt fylgistap miö-
að við síðustu könnun DV þegar
Samfylkingin mældist með 18 pró-
senta fylgi. Loks sögðust 24 pró-
sent mundu kjósa Vinstri græna
sem er rífleg aukning frá í síöustu
könnun þar sem fylgið mældist
20.9 prósent. Fram að því höfðu
Vinstri grænir verið í fríu falli,
hrapað úr 29,3 prósenta fylgi sem
flokkurinn fagnaði í könnnun DV
í janúar síðastliðnum.
Landsbyggðarkarlaflokkur
Þegar fylgi flokkanna er greint
eftir búsetu kemur i ljós, eins og í
Fylgi stjórnmálaflokkanna
- eftir búsetu
Höfuðborgarsvædið Landsbyggðin
B 8,5% 17,2%
D 47,2% 44,1%
F 5,1% 2,7%
S 14,8% 12,4%
U 24,4% 23,:7%
Samtals 100% 100%
í sókn og vörn
- breyting á fylgi flokka í prósentustigum frá 7. ágúst 2001
fyrri könnunum, að mest af fylgi
Framsóknarflokks er á lands-
byggðinni eða tveir þriðju hlutar.
Væri einungis landsbyggðarfólk
spurt væri fylgi flokksins 17,2 pró-
sent í stað 13 prósenta. Fylgi
Frjálslyndra er meira á höfuðborg-
arsvæðinu en á landsbyggðinni en
annars er ekki mjög mikill munur
á fylgi flokkanna eftir búsetu.
Þegar fylgið er greint eftir kynj-
um kemur í ljós að tveir þriðju
hlutar fylgismanna Framsóknar
eru karlar. Annars er munurinn
ekki mikill. Hins vegar eru mun
fleiri konur óákveðnar en karlar.
Um 40 prósent óákveðna fylgisins
er meðal kvenna.
Skiptlng þingsæta
Þegar þingsætum er útdeilt mið-
að við núverandi kerfi og þá sem
tóku afstöðu í könnun DV reynist
Framsókn fá 8 þingmenn, jafn
marga og í könnun DV í ágúst.
Sjálfstæðisflokkur fengi 30 þing-
menn, bætti við sig tveimur,
Frjálslyndir héldu sínum 2 frá síð-
ustu könnun, Samfylking fengi 8,
tapaði 4, og Vinstri grænir fengju
15, bættu við sig tveimur.
Þegar þingmannafjöldi sam-
kvæmt þessari könnun er borinn
saman við raunverulegan fjölda
þingmanna tapar Framsókn 4
mönnum, Sjálfstæðisflokkur bætir
við sig 4, Frjálslyndir standa í stað,
Samfylking tapar 9 mönnum og
Vinstri grænir bæta við sig 9
mönnum. -hlh
Ekki í framboð
Ingimundur Sigur-
pálsson fyrrverandi
bæjarstjóri og efsti
maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins i
Garðabæ, lýsti því
yfir á fjölmennum
fundi í gærkvöld að
hann myndi ekki
gefa kost á sér til framboðs í bæjar-
stjómarkosningunum næsta vor.
Lýst eftir pilti
Lögi-eglan í Reykjavík lýsir eftir
þrettán ára pilti, Andra Þór Valgeirs-
syni, sem strauk af meðferðarheimil-
inu Torfastöðum í Árnessýslu á
sunnudaginn. Sést hefur til Andra
Þórs í Reykjavík en hann er klæddur
rauöri og svartri úlpu með hvítum
stöfum á bakinu og bláum buxum.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
ferðir Andra Þórs em beðnir að snúa
sér til lögreglunnar í Reykjavík.
Síld til Grindavíkur
Síldarvertíðin er nú um það leyti að
hefjast en Grindvíkingur kom inn í
Grindavíkurhöfn með fyrstu sOdina i
gær. Síldin er fryst hjá Samherja á
Þórkötlustöðum. Um er að ræða 150
tonn sem verða flokkuð í verksmiðj-
unni og síðan flutt til frystingar. - Vík-
urfréttii- greindu frá.
Utanríkisráðherra í Japan
Hahdór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra átti í gær fund
með Junichiro
Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans.
Ráöherramir ræddu
tvíhliða samskipti
rikjanna, gagn-
kvæma opnun sendiráða í Tókýó og
Reykjavík, fiskveiðimál, hvalveiðar og
baráttu gegn hryðjuverkum.
Mbl.greindi frá.
Biskupi sárnar
Kirkjuþingi lauk í
gær. Herra Karl Sig-
urbjömsson, biskup
íslands, sagði við lok
þess að sér hefði þótt
sárt að sitja undir því
á þinginu að vera tor-
tryggður og vændur
um að standa gegn
lýðræði og valddreifingu í kirkjunni
en það væri fjarri sanni. - RÚV greindi
frá.
Auðarverðlaun
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
Herdís Egilsdóttir kennari og Rakel 01-
sen útgerðarmaður hlutu svonefnd
Auðarverðlaun í gær er þau vom þá
veitt í annað sinn. Stjórn verkefnisins
AUÐUR í krafti kvenna segir að allar
hafi þessar konur lagt mikið af mörk-
um til íslensks samfélags. Þær séu
bæði konum og körlum góð fyrirmynd,
hver með sínum hætti. - RÚV greindi
frá. -HKr.
fÓkUS ámorgun
Kynþokkafyllstu
íslendingarnir
f Fókus á morgun eru birtar nið-
urstöður skoðanakönnunar DV um
kynþokkafyllstu fslendingana.
Hverjir vinna og hverjir reka lest-
ina? Rætt er við plötusnúðinn
Hólmar sem er að gera það gott í
New York, kíkt er í heimsókn til
Nemendaleikhússins og enn einn
kynferðisvinkillinn fundinn á
Smáralind. Fólki er kennt að kom-
ast í betra samband við þingmenn-
ina sína og hvernig svara á óþægi-
legum spurningum um hverra
manna það sé. Lífið eftir vinnu er
svo upplýsingapakki um atburði
helgarinnar.