Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Blaðsíða 13
13 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001_________________________________________________________________________________________ DV Útlönd Tíu manns farast í jarð- gangaslysi Ölpunum Talið er að allt að tíu manns hafi farist þegar eldur braust út í Gott- hardsjarðgöngunum í Sviss eftir árekstur tveggja vöruflutningabifreiða í gærmorgun. Gotthardsgöngin, sem liggja milli Sviss og Ítalíu í svissnesku Ölpunum, eru þau næstlengstu í heim- inum, eða um sautján kílómetra löng og eru ein aðalsamgönguæðin milli landanna og þvi mjög fjölfarin. Slysið varð um það bil tvo kílómetra frá syðri enda ganganna, Ítalíumegin, og er óttast að mun fleiri lík eigi eftir að finnast þegar hægt verður að kanna ástandið nánar, en við áreksturinn kom upp eldur f bifreiðunum og í kjöl- farið varð mikil sprenging. Önnur flutningabifreiðin sem lenti í árekstrinum var fullhlaðin eldfimum hjólbörðum sem gefa frá sér mikinn reyk og eiturgufur við bruna og varð það til þess að hamla öllu björgunar- starfi. Talið er að hitinn í göngunum hafi hækkað í allt að 1000 gráður sem gerði björgunarsveitum ómögulegt að Frá slysstað í Gotthardsgöngunum Mikill reykur og hiti hamlaði björgunaraðgerðum á slysstað í Gotthardgöngunum í svissnesku Ölpunum í gær. komast á slysstaðinn. Einnig mun lof- klæðning á um 300 metra kafla hafa fallið niður á fjölda bifreiða sem fastar voru inni í göngunum og er því talið að tala látina eigi jafnvel eftir að tvö- faldast. BOstjóri annarars flutningabílsins, Bruno Saba að nafni, slapp lítið meidd- ur úr slysinu, en óttast er að hinn hafi látist. Saba sagði í samtali við sviss- neska útvarpið að hann hefði verið kominn langleiðina í gegnum göngin þegar hann mætti hinum bflum sem rásaði á miOi akreina. „Ég reyndi að beygja frá honum, en þá stefndi hann beint á mig og bílarnir rákust saman af miklu afli.'Ég komst strax út úr bflnum og reyndi að vísa öðrum út úr göngunum áður en allt fuðraði upp,“ sagði Saba. Fjöldi manns mun hafa sloppið út úr göngunum á hlaupum og eftir að eldurinn kom upp tókst öðrum að komast út um öryggisútganga áður en göngin fyfltust af svörtum reyk og eiturgufum. A leiö út ísraelski herinn dró lið sitt út úr bænum Beit Rima á Vesturbakkanum í gær. ísraelskt herlið far- ið út úr Beit Rima ísraelski herinn mun í gærkvöldi hafa dregið liðssveitir sínar út úr bænum Beit Rima á Vesturbakkan- um, sem gefur vísbendingu um að þeir séu að láta undan miklum þrýst- ingi Bandaríkjamanna um að hverfa sem fyrst með herlið sitt frá þeim sex bæjum, sem þeir réðust inn í eftir morðið á Rehavan Zeevi, fyrrum ráð- herra í stjórn Ariels Sharons. Að sögn talsmanns ísraelsku rikisstjórnarinn- ar var herinn sendur inn á svæðið til að uppræta hreiður hryðjuverka- manna og munu að minnsta kost 11 þeirra hafa verið handteknir, þar af tveir sem grunaðir eru um aðfld að ráöherramorðinu. Að sögn tálsmanna öryggissveita Palestínumanna munu að minnsta kosti níu Palestínumenn hafa faflið í innrás ísraela í bæinn Beit Rima og enn fleiri særst. Sharon mun hitta helstu ráðherra sína í dag og er búist við að herinn muni í kjölfarið hverfa frá öðrum bæjum á svæðinu. Þingfréttakona komin á spítala Fréttakona í bandaríska þinginu hefur verið lögð inn á sjúkrahús þar sem grunur leikur á að hún hafi andað að sér miltisbrandsbakteríu. Þá hafa mfltisbrandsgró fundist á fimmta staðnum í húsaþyrpingu Bandaríkjaþings. Bandarísk stjórnvöld komust í gær að samkomulagi sem heimilar þeim að birgja sig upp af sýklalyfi sem notað er gegn mfltisbrandssýk- ingu. Þá lýsti yfirmaður bandarísku póstþjónustunnar yfir því aö ekki væri hægt að tryggja að aOur póstur væri laus við leifar af miltisbrandi. Fidel Castro Kúbuleiðtogi sagði í gær að mfltisbrandsbakterían væri ekki jafnalvarleg og veiran sem veldur venjulegri kvefpest. REUTER-MYND Taívanar æfa efnavopnaárás Liðsmenn viðbragðssveitar á Taívan sprauta sótthreinsandi efni á jarðlestarvagn í Taipei á æfingu sem þeir héldu í morgun vegna hugsanlegrar árásar hryöjuverkamanna með efnavopnum. Taívanar hafa eins og svo margir aörir aukið mjög allan viðbúnaö sinn í kjölfar hryðjuverkaárásanna vestanhafs í síðasta mánuði. Talibanar láta engan bilbug á sér finna: Stjórnarandstæðingar ræða framtíðarskipan Afganistans REUTER-MYND Þyrla meö birgöir Flutningaþyrla kemur inn til lending- ar á bandaríska flugmóðurskipinu Carl Vinson i Arabaiufióa. Skipið tek- ur þátt í hernaðaraögerðum Banda- rikjamanna gegn Afganistan. Talibanastjórnin í Afganistan lætur engan bilbug á sér finna, þrátt fyrir harðar loftárásir Bandaríkja- manna. Bandarískar orrustuflugvélar gerðu harðari árásir á hersveitir talibana, sem berjast gegn sveitum Norðurbandalagsins skammt norð- an við höfuöborgina Kabúl, í gær en nokkru sinni fyrr. Talibanar sýna þess hins vegar engin merki að þeir ætli að framselja Osama bin Laden, sem grunaður er um að hafa skipu- lagt hryðjuverkaárásimar á Banda- ríkin í síðasta mánuði. AOt var með kyrrum kjörum í Kabúl i nótt og í morgun. Mikfll fjöldi afganskra stjórnar- andstæðinga, þar á meðal fulltrúar útlægs konungs Afganistans, hittist í morgun í annað sinn í borginni Peshawar í Pakistan tfl ræöa áfram framtíðarskipan stjórnar Afganist- ans fari svo að talibanar veröi hraktir frá völdum. Yfirmenn í herafla Norðurbanda- lagsins sögðu að flugskeyti hefðu faOiö nærri fjórum vígjum talibana nærri Bagram-flugveOi sem norðan- mennimir hafa á valdi sínu. Leiðtogar talibana sögðu að þeir ætluðu að vopnbúa þorpsbúa til að berjast gegn landhernaði Banda- ríkjamanna. Talibanarnir sögðu að barist yrði til síðasta manns. Háttsettur bandarískur embættis- maður sagði í gær að talibánar beittu aldagömlum aðferðum tfl að blekkja óvininn en þeir væru ekki jafnsnjaOir á þeim vettvangi og bæði írakar og Serbar sem hafa barist áður við Bandaríkjamenn. REUTER-MYND Shcröder í París Þýskalandskanslari heimsótti Frakk- landsforseta í gær. Ráðamennirnir eru áhyggjufullir Jacques Chirac Frakklandsforseti og Gerhard Schröder Þýska- landskanslari sögðust í gær hafa þungar áhyggjur af ástandinu með- al almennra borgara í Afganistan. Jafnframt itrekuðu þeir stuðning sinn við loftárásir Bandarikja- manna á landið. Schröder, sem var í reglubund- inni heimsókn tO Parísar, vísaði á bug áskorunum um að loftárásirnar yrðu stöðvaðar til að hægt væri að koma hjálpargögnum til almenn- ings. Hann sagði að hlé á árásunum yrði aðeins til þess að lengja átökin. Hjálparsamtök segja að áfram- haldandi loftárásir valdi því að ekki sé hægt að koma gögnum til þeirra sem á þeim þurfa að halda. Á það hefur verið bent að vetur sé á næsta leiti og þá sé allra veðra von. Búa sig undir fleiri flóttamenn Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna óttast að allt aö þrjú hundruð þúsund manns kunni að flýja loftárásir Bandaríkjamanna á Afganistan og reyna að komast yfir landamærin tO Pakistans. Starfsmenn flóttamannastofnun- arinnar sögðust í gær vera að búa sig undir að taka við svo miklum fjölda, enda þótt pakistönsk stjóm- völd segist ekki geta tekið við fleiri flóttamönnum. Pakistanar hafa lok- að landamærum sínum fyrir öllum Afgönum, nema þeim past- ursminnstu og þeim sem hafa gfld skilríki. Alþjóðanefnd Rauða krossins sagðist i gær hafa vaxandi áhyggjur af striðinu i Afganistan og hvatti alla til að fara að mannúðarreglum. REUTER-MYND Grætur ættingja sína Said Sube frá írak grætur dauða þriggja systkinabarna sinna sem fór- ust með flóttamannaskipi á leið til Ástralíu í síöustu viku. Löggan ber af sér allar sakir Yfirmaður lögreglunnar í Indónesíu vísaði í morgun á bug fréttum íjölmiðla um aö lögreglu- þjónar hefðu miðað byssum sínum að flóttamönnum sem vildu komast úr yfirfuOu skipi á leið til Ástralíu. Skipið sökk áður en það komst á leiðarenda og fórust með því 350 manns. Ástralska dagblaðið Sydney Moming Herald hafði eftir fólki sem komst lífs af að tylft lögreglu- þjóna hefði haldið vemdarhendi yf- ir mannasmyglurum sem skipu- lögðu ferð skipsins. Flóttamennirn- ir um borð voru flestir frá írak. „Ekkert því um líkt gerðist," sagði Bimantro hershöfðingi, yfir- maður lögregluliðs Indónesíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.