Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001
DV
9
Fréttir
Viðræður lögreglumanna og sýslumanna liggja niðri:
Urgur í lögreglumönnum
- sem áttu von á launahækkun um næstu mánaðamót
„Það er gríðarlegur urgur I
mönnum vegna þess að nú er orðið
ljóst að ekkert verður af 14% launa-
hækkun á grundvelli stofnana-
samnings sem átti að koma til fram-
kvæmda um næstu mánaðamót.
Við erum auðvitað ósáttir við fram-
gang mála og það er í skoðun hjá
lögfræðingi hvort forsendur kjara-
samningsins séu einfaldlega ekki
brostnar vegna þessa,“ segir Óskar
Bjartmarz, formaður Lögreglufélags
Reykjavíkur.
Viðræður Landssambands lög-
reglumanna og sýslumannsembætt-
anna hafa nú legið niðri í tæpar
fjórar vikur og segir Óskar menn
ekki hafa séð ástæðu til að funda.
Því sé ljóst að launahækkun sem
átti að koma í launaumslög lög-
reglumanna þann 1. nóvember kem-
ur ekki til framkvæmda.
Samkvæmt kjarasamningi
Landssambands og ríkisins frá þvi í
mím - w'-i fyjESjSESg
f|\#l m
Lögreglumenn bíöa stofnanasamnings
Ekki hefur enn veriö gengiö frá stofnanasamningi Landssambands tögregtu-
manna og sýslumanna sem kveöiö er á um í kjarasamningi. Ekkert veröur
því af launahækkun um næstu mánaöamót eins og ráö var fyrir gert.
sumar er kveðið á um gerð stofn- ættin. Upphaflega var gert ráð fyrir
anasamnings við sýslumannsemb- að stofnanasamningurinn yrði til-
búinn fyrir 1. október en af því varð
ekki. Þau atriði sem einkum
strandar á varða ákvæði um starfs-
heiti lögreglumanna en við síðustu
samninga var þeim kippt út. Lands-
samband lögreglumanna vill starfs-
heitin inn i nýja stofnanasamning-
inn en það vilja sýslumenn ekki.
Rök saminganefndar sýslumanna
eru þau að bíða skuli niðurstöðu
nefndar á vegum dómsmálaráðu-
neytis sem hefur það hlutverk að
yfirfara starfstitla lögreglumanna.
Auk þess stranda viðræðurnar á
hvernig raða eigi einstökum lög-
reglumönnum í launaflokka.
Óánægja mun mikil innan raða
lögreglumanna og hefur heyrst að
þeir ræði hvort grípa skuli til að-
gerða vegna málsins. Óskar Bjart-
marz vildi ekkert staðfesta í þeim
efnum en sagði ekki ólíklegt að
margir lögreglumenn væru orðnir
óþolinmóðir vegna málsins. -aþ
Síbrotamaður:
Braut rúður fyrir 400.000
22 ára gamall Ólafsvíkingur hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra ver-
ið dæmdur í þriggja mánaða skOorðs-
bundið fangelsi, auk sektar og skaða-
bóta.
Maðurinn lét öllum illum látum á
Akureyri laugardagsmorguninn 26.
ágúst í fyrra og braut 7 rúður í sex
verslunum. Það gerði hann með því
að kasta hellusteinum í rúðurnar og
nam heildartjón og bótakröfur vegna
rúðubrotanna tæplega 400.000 krón-
um.
Samkvæmt rannsóknarskjölum
heyrðu lögreglumenn í eftirlitsferð
mikil brothljóð frá miðbæ Akureyrar
þennan morgun um kl. 06.35. Lög-
reglumennirnir brugðust þegar við
og handtóku ákærða þar sem hann
var að reyna að brjóta rúðu í banka-
stofnun. Ákærði, sem var töluvert
ölvaður og æstur, var færður til vist-
unar á lögreglustöð, en viðurkenndi
brot sitt.
Maðurinn hefur níu sinnum hlotið
refsidóma frá árinu 1998, sex sinnum
vegna umferðarlagabrota, tvívegis
vegna nytjastuldar og einu sinni
vegna eignaspjalla. Þannig hlaut
ákærði 30 daga skilorðsbundið fang-
elsi fyrir nytjastuld í júnímánuði
1998, en í júlímánuði 1999 var hann
dæmdur í 45 daga fangelsi skilorðs-
/ i.-■ M jjg - * ’ sR ‘ M "Biifcité t? á.l’ ra-piL'
Mta& lití
llla viö gler Maöur braut 7 rúöur í miöbæ Akureyrar.
bundið fyrir eignaspjöll, sem hann
framdi 12. desember 1998. „Ber því að
dæma ákærða hegningarauka," að
mati Ólafs Ólafssonar héraðsdómara
sem kvað upp dóminn. -BÞ
Kunn fyrirsæta til íslands:
Berst gegn
umskurði
stúlkna
- ævintýralegt lífshlaup
Sómalska baráttukonan og fyrirsæt-
an Waris Dirie kemur tO íslands þann
30. október næstkomandi. TOefnið er
að þann dag kemur ævisaga hennar,
Eyðimerkurblómið, út á íslensku hjá
JPV útgáfu. Lífshlaup Dirie, sem
fæddist í hirðingjafjölskyldu í Sómal-
íu, er ævintýralegt. Aðeins unglingin
að aldri flúði hún frá fjölskyldu sinni
sem ætlaði að gOta hana ókunnum
manni um sextugt. Seinna meir varð
hún heimsfræg fyrirsæta og sérlegur
sendOierra Sameinuðu þjóðanna i bar-
áttu gegn umskurði stúlkna en sjálf
var hún umskorin á hroðalegan hátt
aðeins frnim ára gömul. Hér á landi
mun Dirie flytja fyrirlestur í Háskóla
íslands á vegum UnO'em og þá mun
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri efna tO samsætis henni tO heið-
urs. -MA
FYNDNARI FIMMTUDAGAR
Frábært fjölskyldugrín,
allt á floti í ástarmá unum
og Jay Leno á sínum stað
iUthe midple
KING OF
SKJARE/NN