Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Síða 10
Viðskipti
Umsjón: Vidskiptablaðið
Kreditkortavelta Islendinga
erlendis dregst saman
anna tveggja sést að velta þessi
hefur dregist saman um ríflega
fjórðung að raungildi. Færslufjöld-
inn dróst hins vegar nokkuð
minna saman, eða um 21,1%, en
færslurnar voru 542 þúsund á
þriðja ársfjórðungi í ár en voru 687
þúsund á sama tímabili í fyrra.
Leiða má líkur að þvi að hér sé
bæði á ferðinni vísbending um
samdráttinn í eftirspurninni og
viðbrögð neytenda við þeirri miklu
gengislækkun sem orðin er sem ef-
laust hefur að einhverju marki
flutt eftirspurnina af erlendum
mörkuðum til þess innlenda,“
sagði í, riti Greiningardeildar ís-
landsbanka.
Velta í viöskiptum íslendinga er-
lendis, þar sem kreditkort voru
notuð, dróst saman um nær einn
fjórða á milli þriðja ársfjórðungs
2000 og 2001, að því er kom fram
hjá GreiningardeÖd íslandsbanka í
gær. Samkvæmt hagtölum Seðla-
bankans, sem birtar voru í upphafi
vikunnar, námu þessi viðskipti 5,3
milljörðum króna á þriöja ársfjórö-
imgi þessa árs, samanborið við
tæplega 5,7 milljarða króna við-
skipti á sama tíma i fyrra.
„Að teknu tilliti til þess að krón-
an var að meðaltali tæplega 18%
lægri að verðgildi á þriðja ársfjórð-
ungi í ár en á sama tíma í fyrra og
verðbólgan í helstu viðskiptalönd-
unum ríflega 2% milli ársfjórðung-
Tal sækir inn
á fyrirtækja-
markað
Tal hf. hefur haflð sókn inn á fyr-
irtækjamarkað með því að bjóða
fyrirtækjum með flmm GSM áskrift-
ir eða fleiri í viðskiptum hjá Tali að
starfsmenn hringi ókeypis sín á
milli hvenær sem er og hvar sem er
innanlands. Þessi ókeypis símtöl
milli Tal GSM sima i fyrirtækjaá- :
skrift verða ótímabundin og taka
gildi frá og með 1. nóvember.
Samkvæmt frétt frá Tali verður
ekkert hámark á flölda þeirra GSM
númera innan fyrirtækis sem hægt :
er að skrá í þjónustuna HópTAL,
hjá fyrirtækjaþjónustu Tals. Ekkert
hámark verður heldur á ókeypis
notkun hvers númers.
Þessi breyting sem gerð er á þjón-
ustu Tals byggist að sögn á ítarlegri I
könnun á þörfum og væntingum
fyrirtækja, en jafnframt á því að Tal
standi á tímamótum. Tal sé nú full- |
komlega í stakk búið til að fara í
harða samkeppni um þjónustu við
íslensk fyrirtæki og stofnanir um
allt land. Tal býður íslenskum fyrir-
tækjum þjónustu og gæði sem stenst
allar viðmiðanir, jafnt innanlands
sem utan.
Enginn samdráttur
sjáanlegur í verslun
I forsíðufrétt Viðskiptablaðsins,
sem kom út í gær, kemur fram að
þrátt fyrir áhyggjur kaupmanna
vegna opnunar Smáralindar þann
10. þessa mánaðar um að draga
myndi úr verslun á höfuðborgar-
svæðinu, hefði verið stríður straum-
ur viöskiptavina í verslanir á svæð-
inu að undanfömu og því ekki að
sjá að opnun nýrrar verslanamið-
stöðvar heföi sett stórt strik í reikn-
ing kaupmanna enn sem komið er.
Smáralind hefur nú verið opin í
tvær vikur og stöðugur straumur
fólks legið þangað. Fram kemur í
Viðskiptablaðinu að um 20 þúsund
manns að jafnaði leggi leið sína í
Smáralind frá mánudegi til fimmtu-
dags, en heldur bæti í um helgar og
hafi um 84 þúsund manns farið
þangað um síðustu helgi. Sam-
kvæmt Þorvaldi Þorlákssyni, mark-
aðsstjóra Smáralindar, hafi verslun-
in farið vel af stað og séu kaupmenn
ánægðir með viðtökur almennings.
„En það var ekki bara stríður
straumur í Smáralind um helgina.
Kringlumenn efndu til Kringlukasts
um helgina og þar var aðsókn góð
enda flölmargar vörur á tilboðs-
verði. Rúmlega 50 þúsund manns
lögðu leið sína í Kringluna um helg-
ina og að sögn ívars Sigurjónssonar
markaðsstjóra var verslun í flestum
tilfellum meiri en á Kringlukasti á
sama tíma í fyrra. Hann segir að
menn séu mjög ánægðir með að-
sóknina að undanfórnu og svo virð-
ist sem það sé aðeins að bæta í
verslunina.
Margir settu spurningarmerki
við framtíð miðborgar Reykjavíkur
með tilkomu Smáralindar en þar er
sömu sögu að segja og úr stóru
verslunarmiðstöðvunum. Einar Örn
Stefánsson, framkvæmdastjóri Þró-
unarfélags miðborgarinnar, segir
verslun í miðborginni hafa verið
mjög góða á laugardaginn en flöl-
menni var á Laugaveginum. Þar var
opið fram eftir degi og flöldi tilboða
í gangi en verið var að opna Kvos-
ina á nýjan leik. Hann segir að ekki
sé hægt að sjá að Smáralind hafi
haft áhrif á verslun á Laugavegin-
um enn sem komið er,“ segir í frétt
Viðskiptablaðsins.
Blaðið veltir af þessum sökum
fyrir sér hvort jólaverslunin sé haf-
in af fullum krafti eða hvort íslend-
ingar hafi hreinlega ákveðið að gefa
niðursveiflunni langt nef og drífa
sig í staðinn út að versla. í það
minnsta sé nóg að gera í verslunum
þessa dagana.
Nyr veitingastaður
opnaður í Smáralind
Nýr veitingastaður, Energia Bar,
verður opnaður í Vetrargarðinum í
Smáralind í lok næsta mánaðar.
Hann verður rúmlega 100 fermetrar
og tekur um 70 manns í sæti.
Að sögn Júlíu Margrétar Jónsdótt-
ur og Guðmundar Friðriks Matthías-
sonar, eigenda Energia Bar, verður
boðið upp á létta og ferska rétti
fyrripart dagsins, s.s. súpu og salat-
bar auk spennandi „rétta dagsins".
Áhersla verður lögð á orkumikla rétti
og boðið upp á orkuríka ávaxta- og
mjólkurhristinga.
ítölsk stemning verður svífandi
yfir vötnum á Energia Bar. Fyrripart
dags verður afgreiðsla hröð en þegar
líða tekur á daginn breytist stemning-
in og við tekur rólegri bar og kaffl-
húsastemning og boðið verður upp á
ítalska rétti, s.s. pasta, brauðrétti,
osta og léttvín.
Á Energia Bar verður boðið upp á
„take away“ þjónustu fyrir þá sem
eru á hraðferð.
Hagræðing í
Rekstur MGH, dótturfyrirtækja
Eimskips í Riga og Tallinn, mun
sameinast nýju flutningafyrirtæki,
MGH Combifragt, þann 1. nóvember
nk. MGH Combifragt er í eigu
danska fyrirtækisins Combifragt
Eastern Europe AS og lettneska
flutningafyrirtækisins Ritrans.
í fréttatilkynningu sem Eimskip
sendi frá sér vegna málsins kemur
fram að MGH Combifragt verði um-
boðsaðili Eimskips á svæðinu og
muni vinna með Eimskip og dóttur-
félögum þess. Þjónusta við við-
skiptavini Eimskips i Riga og Tall-
inn verði því með sama hætti og
fyrir breytinguna. Á skrifstofunum
starfa 35 manris og munu þær eftir
sameininguna verða á sama stað og
áður og í aöalatriðum með sama
starfsfólki. Dótturfyrirtæki Eim-
rekstri Eimskips í Lettlandi
mm
skips, MGH í Riga, mun áfram
starfa sem eignarhaldsfélag og
leigja út fasteignir sem eru í þess
eigu í Riga.
Upphaf rekstrar Eimskips í Riga
og Tallinn má rekja til ársins 1991
þegar MGH i Bretlandi setti upp
skrifstofu 1 Riga. Síðan fylgdu skrif-
og Eistlandi
stofur i Tallinn 1994 og í Rússlandi
1995, en skrifstofunum í Rússlandi
var lokað í kjölfar efnahagskrepp-
unnar þar árið 1998. Reksturinn hef-
ur gengið erfiðlega síðan 1998 og
hefur hann verið að dragast saman
síðan þá.
Breytingin mun hafa óveruleg
áhrif á rekstur Eimskips á þessu ári
en búast má við jákvæðum áhrifum
á árinu 2002.
Forstöðumaður MGH hefur verið
Jóhann V. Ólafsson og mun hann
taka við sem forstöðumaður Eim-
skips í Kanada um næstu áramót en
Óskar S. Friðriksson, sem nú er for-
stöðumaður Eimskips i Kanada,
mun þá koma til starfa fyrir Eim-
skip í Reykjavík.
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001
I>V
VERÐBREFAÞINGK) 1 GÆR MSyjffi
HEILDARVIÐSKIPTI 4.535 m.kr.
- Hlutabréf 322 m.kr.
- Spariskírteini 1.480 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
Baugur 92 m.kr.
j © Síldarvinnslan 52 m.kr.
| O Hl.br.sj. Búnaðarbanka 51 m.kr.
j MESTA HÆKKUN
; O íslenskir aðalverktakar 8,3%
i O Kaupþing 2,7%
i O Landsbankinn 1,3%
MESTA LÆKKUN
! O Sjóvá-Almennar 6,1%
! O sh 4,7%
j © Opin kerfi 4,6%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.105 stig
: - Breyting O -0,16%
Bayer lækkar
verð á miltis-
brandslyfi
Þýski lyflarisinn Bayer hefur
ákveðið að lækka verulega verð á
lyflnu Cipro sem yfirvöld ýmissa
landa hafa verið að kaupa i umtals-
verðu magni að undanförnu, en lyf-
ið er notað gegn þeirri tegund milt-
isbrands er smitast í gegnum önd-
unarveg.
Lækkunin nemur rúmum 45%,
en Bayer hyggst nú selja lyflð á um
1 Bandaríkjadal á töflu eftir að hafa
upphaflega áætlað að selja töfluna á
1,83 dali. Jafnframt hefur fyrirtækið
þrefaldað framleiðslu lyfsins til að
mæta eftirspum næstu þriggja mán-
aða.
Þess má geta að islenska lyflafyr-
irtækið Delta hefur um skeið fram-
leitt sýklalyfið Ciprofloxacin, sem
er samheitalyf Cipro, og er einnig
notað gegn miltisbrandi, en það lyf
hefur verið selt í töluverðu magni
inn á Þýskalandsmarkað.
Kjölfestufjárfest-
ar fá lengri frest
Samkvæmt upplýsingum frá
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu hefur, að tillögu Pricewater-
houseCoopers og að beiðni bjóð-
enda, verið ákveðið að framlengja
frest til að skila inn óbindandi verð-
tilboði til 26. október nk., í því ferli
sem nú stendur yflr vegna sölu á
25% hlutafiár í Landssíma íslands
hf. til kjölfestufiárfestis. Þessar
breytingar munu ekki hafa áhrif á
aðrar forsendur eða tímasetningar í
þvi ferli sem kynnt var í útboðs- og
skráningarlýsingu Landssíma ís-
lands hf. sem gefin var út í septem-
ber sl.
25.10.2001 M.9.1S
KAUP SALA
UlgDollar 104,490 105,020
fejr^Pund 148,930 149,690
1*1 Kan. dollar 66,330 66,740
KSÍDönsk kr. 12,5160 12,5850
Norsk kr 11,7130 11,7780 j
CSÍSænsk kr. 9,8510 9,9050
;HBr. mark 15,6471 15,7412 :
| 'i Fra. franki 14,1829 14,2681
(TjBelg. franki 2,3062 2,3201 j
; EI Sviss. franki 62,8400 63,1900 ;
EsShoII. gyllini 42,2169 42,4705
” Þýskt mark 47,5674 47,8532
riít líra 0,04805 0,04834
iHt Aust. sch. 6,7610 6,8017
jPort. escudo 0,4641 0,4668
[ j.l'i Spá. peseti 0,5591 0,5625 j
;f<í Jap. yen 0,84730 0,85240
: _ írskt pund 118,128 118,838
SDR 132,3400 133,1300
j ^ECU 93,0337 93,5928