Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2001, Qupperneq 15
15 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 DV Arndís Halla Ásgeirsdóttir syngur ekki fyrir Þjóðverja þessa helgi heldur landa sína: Drottning í heimsókn „Efri hluti tónsviösins er hennar veiðisvœði, áreynslulausir hátónar og silfurskœr hlátur hennar helsta prýði, “ skrifaði tónlistarritstjóri þýska stórblaðsins Tagesspiegel í sérstakri grein um hana og bœtti við: „Efég fengi ein- hverju ráðið í þessari borg myndu óperur á borð við Don Pasquale og Turkó á Ítalíu vera settar á verkefnaskrá í staó þunglyndislegu verkefnanna sem þar eru nú, og húsveggirnir þaktir plaköium þar sem á stœði: Arndís Halla. Og yfir höfói hennar vœri prentað nýtt kjöroró Komische Oper: Meira fjör. Meiri létt- leika. “ Það fá ekki allir óperusöngvarar í Berlín sérstakar greinar um sig í dagblöðum, hvað þá að þar séu áhrifamiklir gagnrýnendur að koma því á framfæri að virt óperuhús eigi að breyta stefnu sinni og setja óperur á svið sér- staklega valdar fyrir viðkomandi söngvara! Núna um helgina fá íslenskir óperugestir að njóta söngtöfra Arndísar Höllu Ásgeirsdóttur því hún er gestasöngvari í hlutverki Nætur- drottningarinnar i næstu tveimur sýningum á Töfraílautu Mozarts hjá íslensku óperunni. Ekki á haus Hlutverkið syngur hún líka um þessar mundir í óperuhúsinu í Neustrelitz skammt frá Berlín, en uppsetningarnar eru afar ólík- ar. „Allan tímann sem ég er að syngja þar er ég á fullu,“ segir hún með miklum áherslum. „Ég fæ ekkert að standa kyrr og breiða úr mér heldur er ég að henda Pamínu frá mér og svo kemur hún aftur á hnjánum og reynir að faðma mig og ég tek við henni i bili en fleygi henni svo frá mér aftur! Hilmir Snær fær tíu punkta fyrir söngvaravæna sýningu sem ég hlakka til að taka þátt í. Hann skilur það sem fáir leikstjórar skilja - jafnvel þótt þeir komi úr óperuheiminum - að söngvari getur ekki staðið á haus meðan hann tjáir tilfinningar sínar i söng!“ Arndísi Höllu er sérstaklega minnisstæð uppsetning á Mozartóperu sem hún sá í sjón- varpi, þar sem ein söngkonan var látin liggja á maganum og horfa niður í gólf með útrétta handleggi meðan hún söng aríuna sína. „Þá slökkti ég,“ segir Arndís Haila og skellir upp úr. „Ópera er fyrst og fremst söngverk þó að hún sé líka leikverk og myndlistarverk, og maður verður að geta sungið! Það gefur auga leið að körfuboltamaður er ekki látinn leika körfubolta með hendur bundnar fyrir aftan bak! En margir virðast alls ekki átta sig á þessu. Það sýnir vantraust á bæði söngvara og verki ef söngvarinn þarf að gera einhverjar kúnstir sem ekkert koma hlutverkinu við um leið og hann syngur." Stingandi tær kóloratúr Hanna Dóra Sturludóttir syngur Pamínu á móti Arndísi Höllu bæði í Neustrelitz og hér heima um helgina, og þær hafa fengið góðar umsagnir i blöðum ytra. „Sýningin þykir ekki sérstaklega góð í heild sinni upp á leikstjórn Arndís Halla Ásgeirsdóttir sópransöngkona Hún syngur Næturdrottninguna í Töfraflautunni um helgina. DV-MYND HILMAR ÞÖR að gera,“ segir hún, „en við Hanna Dóra feng- um góðar umsagnir í blöðum. Um Hönnu Dóru var sagt að hún bæði léki og syngi afar vel. Hún hefur sungið nokkur ár i húsinu og er ákaflega vel látin. Um mig var sagt að ég hefði ekki verið alveg nógu fjúkandi reið en kóloratúrinn hefði verið stingandi tær, og í annarri að kóloratúrinn hefði verið brilljant. Það var ekki yfirleitt skrifað mikið um hvern og einn og sumir voru teknir í neflð, svo við þóttumst heppnar!" Töfraflautan verður á fjölunum í Neustrelitz út þetta leikár og Arndís Halla er líka að syngja minni hlutverk í Komische Oper i Berlín. Hún er annars að leita fyrir sér, langar mikið til að sjá meira af heiminum en Berlín og nærsveitir. „Ég hefði ofsalega gaman af að vinna meira heima,“ segir hún og kallar svo ofan í upp- tökutæki blaðamannsins: „Ef fólk vantar mig þá er síminn ..." Síðan þurrkar hún hláturtár- in úr augunum og bætir við: „Ég hef það fínt á þessu leikári og ágætt á því næsta en ég er ekki búin að ákveða hvað verður svo. Ég ætla bara að sjá - hvað mér býðst og hvað ég vil. Sjá hvað setur." Tonlist_______________________________________________________________________________ Sinfónían á Dalvík Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, efndi til tónleika í Akureyrarkirkju 20. október og síðan í Dalvíkurkirkju 21. október, þar sem leikin var sama efnisskrá og flutt hafði verið í Akureyrar- kirkju. Undirritaður sótti tón- leikana á Dalvík. Ekki er lengra síðan en 23. september að Sinfóniuhljóm- sveit Norðurlands efndi til tónleika í Glerárkirkju, og er gott til þess að vita, að dríf- andi er í starfí hennar. Hún er ómetanlegur hlekkur í menn- ingarlífi norðan heiða. Tilvera hennar gefur tónlistarunnend- um tækifæri til þess að njóta sinfónískrar tónlistar á tón- leikum, en ekki siður veitir hún norðlensku tónlistarfólki tækifæri til þess iðka list sína. Hér er ekki síst höfðað til þess mjög svo hæfa fólks, sem kennir við tónlistarskóla í Norðlendingafjórðungi, en líka koma gjarnan við sögu langt komnir nemendur skólanna. Einn af mikilvægari þáttunum í starfsemi hfjómsveitarinnar er að fara í tónleikaferðir. Slíkar ferðir staða á milli eru dýrar og fyrir- hafnarsamar. Væntanlega hefur það ráðið miklu um efn- isval og fjöfda hfjóðfæraleik- ara á tónleikunum 20. og 21. október þegar hljómsveitin var einungis skipuð fjórtán hljóðfæraleikurum. Það sýndi sig hins vegar, í það minnsta á tónleikunum í Dafvíkur- kirkju, að það er ekki fjöld- inn, sem skiptir sköpum um gæðin eða þá ánægju, sem hafa má af tónleikum. Sinfón- íuhljómsveitin stóð sig með prýði undir stjórn Guðmund- ar Óla. Tæplega nokkra feyru var að finna á leik hennar; ör- fáa sára tóna, einkum í málm- blásurum, og fáeina staði, sem hefðu mátt vera nokkru ákveðnari, einkum í fyrsta verkinu, „Dans ritual del fu- ego“ eftir Manuel De Falla. Önnur verk á tónleikunum voru „Pavane pour une infante definite" eftir Maurice Ra- vel, þar sem náðist ljúf angurværð, „Concertino da Camera“ eftir Jacque Ibert, þar sem Guido Báumer lék einleikshlutverkið á saxófón og gerði mikið vel; tónninn fagur og allur flutningur öruggur. Hljómsveitin skilaði sínum hluta vel og studdi að leik sólóistans. Þá var flutt hið stórsmellna verk Atla Heimis Sveinssonar, „íslenskt rapp V“, þar sem tón- skáldið hefur sleppt sér lausu og skapað veru- lega fjörlega og kátlega tónlistarlega óreiðu, sem lýtur þó öllum þeim lögmálum, sem við eiga. Lokaverk tónleikanna var „Music for the Theatre" eftir Aaron Copland; stórgott verk með djassísku ívafi, sem hljómsveitin náði dá- vel að koma til skila. Þetta verk vekur löngun í fleiri verk bandarískra tónskálda. Vonandi fá tónleikagestir meira að heyra úr þeim mennngarheimi er fram líða stundir. Haukur Ágústsson Sinfóníuhljómsveit Noröurlands í Dalvíkurkirkju 21.10. Einleikari: Guido Báumer, saxófónleikari. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Guðmundur Óll Gunnarsson Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er ómetanlegur hlekkur í menn- ingarlífi norðan heiða. ___________Menning Umsjón: Sitja Aðaisteinsdóttir w J ......... . r Bók og tónleikar Kristján Guðmundsson myndlistarmaður er ekki aðeins með stóra yfirlitssýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum, það var líka að koma út um hann stór og glæsileg bók með myndum af fjölmörgum verka hans og ítarlegri ritgerð um list hans eftir Ólaf Gíslason listfræðing. Kristján er meðal frumkvöðla nútímalistar hér á landi og hafa verk hans iðulega vakið hörð við- brögð, umtal og deilur - og má þar minna á „Vörðubrotið" á Skólavörðuholti sem gert var úr heilhveitibrauðum og fjarlægt af lögreglunni af heilbrigðisástæðum. Á seinni árum nýtur list hans vaxandi virðingar eins og ofannefnd dæmi sanna. Á sunnudaginn kemur kl. 16 verða tónleikar á Kjarvalsstöðum tif heiðurs Kristjáni þar sem Tómas R. Einarsson og Berlínarkvartett hans leika. Verða þetta einu tónleikar kvartettsins áður en hann heldur til Berlínar á hina virtu djasshátíð þar. Bókin um Kristján er gefin út af Máli og menn- ingu. Sýning Kristjáns stendur til 11.11. og er opin afla daga kl. 10-17 og til kl. 19 á miðvikudögum. Síðustu forvöð Nú eru síðustu forvöð að sjá sýningu annars Kristjáns, nefnilega Davíðssonar, í i8gallerí við Klapparstíg, en henni lýkur á laugardaginn. Kristján Davíðsson er „the grand old man“ í íslenskri myndlist. Hann nam við Bames Foundation í Merion og Pennsylvaniuháskólann og fyrsta einkasýning hans var í International Student House i Fíladelf- íu árið 1946. Síðan hefur hann sýnt víða um heim. Málverk hans hafa alla tíð verið óhlutbundin en hafa þó þróast á löngum ferli. t dag era einkenn- andi fyrir verk hans finlegir pensildrættir sem flæða yfir strigann og má segja að verkin séu oft á mörkum málverks og teikningar. i8galleri er opið þriðjudaga til laugardaga frá 13 til 17. Frumspeki Hið íslenska bókmenntafé- lag hefúr gefið út Hugleiðing- ar um framspeki eftir franska 17. aldar heimspek- inginn René Descartes i þýð- ingu Þorsteins Gylfasonar sem einnig ritar inngang og skýringar. Þetta er eitt af höf- uðritum vestrænnar heim- speki og í því færir höfundur sönnur á tilvera Guðs og greinarmun sálar og líkama. Röksemdir hans um þessar tvær af stærstu gátum manns- andans voru á sínum tíma afar nýstárlegar og mættu sterkri andstöðu. í inngangi sínum útlist- ar þýðandinn og gagnrýnir rökfærslur Descartes og setur textann í samhengi við hræringar í and- legu lífi á meginlandi Evrópu og á íslandi á 17. öld. Ritið er gefið út í röð Lærdómsrita Bókmennta- félagsins sem nú eru orðin 48 talsins. Dekurkvöld í kvöld kl. 20 verður dekur- kvöld á Súfistanum, bókakaffi, Laugavegi 18, þar sem dekur- og heilsubækur Máls og menningar, Forlagsins og Al- menna bókafélagsins verða kynntar. Einnig verður leikið af nýjum slökunardiski sem Ómi gefur út með tónlist eftir Einar Ágúst Víðisson og slök- unartexta Guðjóns Bergmanns. Bækumar sem kynntar verða eru Jóga fyrir byrjendur eftir Guðjón Bergmann, Láttu þér líða vel eftir Jane Alexander, Hefðbundnar og nátt- úrulegar lækningar úr bókaflokknum Handhægu heUsubækumar og Karlmannahandbókin eftir Barböra Enander. Hugieíöingar um frumspeki ©

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.