Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 25
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
DV
41
Tilvera "
Myndgátan
Lárétt: 1 bút,
4 kvendýr, 7 torveld,
8 hóta, 10 nöldur,
12 sár, 13 vatnsdælu,
14 yfirliði, 15 sigti,
16 ryk, 18 nálægð,
21 fljótin, 22 listi,
23 söngl.
Lóðrétt: 1 stía,
2 fjármark, 3 útskrifa,
4 trafala, 5 svelgur,
6 atorku, 9 golu,
11 hrognin, 16 hrúga,
17 gramur,
19 geislabaugur,
20 blett.
Lausn neðst á síðunni.
Skák
Hvítur á leik!
Austur í Moskvu er alltaf eitthvað
spennandi aö gerast í skáklistinni. Þar
heldur flugfélagiö Aeroflot sterkt opið
skákmót þessa dagana og getur þar að
líta margan sterkan meistarann. Ehlv-
est frá Eistlandi er þar á meðal kepp-
enda og verður ugglaust meðal þeirra
efstu en margir eru um hituna. Verð-
launaféð er um 150.000 dollarar og 1.
verölaun eru 25.000 dollarar. Kemur
það mörgum sem flogiö hef'ur með
Aeroflot spánskt fyrir sjónir að það
flugfélag skuli allt í einu eiga helling
af dollurum til að halda skákmót. En
nóg um þaö, þetta er ekki flughræðslu-
þáttur!
Hvítt: Jaan Ehlvest (2589)
Svart: Alexei Zubarev (2480)
Sikileyjarvörn.
Aeroflot-skákmótið
Moskvu (2), 05.02. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 e6 5. Rb5 d6 6. c4 Be7 7.
Rlc3 a6 8. Ra3 Rf6 9. Be2 0-0 10. 0-0
b6 11. Be3 Bb7 12. Db3 Rd7
13. Hfdl Rc5 14. Dc2 Dc7 15. Hacl
Bf6 16. Rabl Hac8 17. a3 Db8 18. f3
Hfe8 19. Bfl Re5 20. b4 Rcd7
21. Db3 Bc6 22. a4 Be7 23. Ra3 Hed8
24. Rc2 a5 25. bxa5 bxa5 26. Da2
Rc5 27. Hbl Da8 28. Rb5 d5
29. cxd5 exd5 30. Bd4 Rg6 31. Re3
dxe4 32. Bc4 Be8 33. Rd5 exf3
(Stöðumyndin) 34. Rbc7 Dc6 35. Bb5
Dd6 36. Bxe8 Hxe8 37. Rxe8 Hxe8
38. Rxe7+ Dxe7 39. Df2 Re4 40. Dxf3
h6 41. Hel De6 42. Hbdl f5 43. Dfl
Kh7 44. Hcl Hd8 45. Be3 Re5
46. Hedl Hxdl 47. Dxdl. 1-0
Bridge
Aðalsveitakeppni Bridgefélags
Reykj^víkur hófst síðastliðinn
þriðjudag í nýjum húsakynnum
Bridgesambands íslands. Spilaform
er Monrad, tveir 16 spila leikir á
kvöidi. Sveitum raðað saman í leiki
eftir skori. Að loknum tveimur um-
ferðum er íslenska auglýsingastof-
an með 50 stig en sveit Málningar
með 49 stig. Spil dagsins er frá
annarri umferð mótsins. Vestur var
gjafari og það fór mikið eftir fyrstu
Umsjón: ísak Öm Sigurösson
sögn hans hver lokaniðurstaðan
varð í spilinu. Á mörgum borðanna
ákvað vestur að opna á hindrunar-
sögninni fjórum tíglum og þá var
norður í miklum vanda. í mörgum
tilfellum ákvað hann að segja 4
spaða sem austur leyfði sér í mörg-
um tilfellum að dobla til refsingar.
Uppskeran þar var 800 i AV. Ef
vestur fór sér rólega í byrjuninni
gátu NS komið nauðsynlegum upp-
lýsingum á milli handanna:
f ÁK875
«* Á53
♦ ÁG9
* 53
♦ -
9*D9
♦ D10876532
4 K87
* 94
** G107642
♦ K
4 G1062
Á nokkrum borðum lét vestur sér
nægja að opna á veikum tveimur tlgl-
um eða tveggja laufa fjöldjöfli. Það
gaf NS færi á að lýsa spilum sínum
og tækifæri til þess að komast í besta
samninginn, flögur hjörtu. Fjölmargir
norðurspilarar völdu
að segja tvö grönd
yfir tveggja
laufa/tígla opnun
vesturs. Fjögurra
hjarta samningi var
hægt að hnekkja með
spaðastungu sem þó
fannst ekki alltaf við
borðið. I einhverjum tilvikum fórnaði
vestur i 5 tígla yfir 4 hjörtum sem
fóru tvo niður.
Lausn á krossgátu
•IJP 08 ‘BJE 61 ‘JBS il ‘SOij 91 ‘UBJOS II
‘njoS 6 ‘2np 9 ‘bqi s ‘JBunjpuiq p ‘Bj>jsjnEjq g ‘uaq z ‘ojij i :najooq
•jnBj ‘Rjqs zz ‘jbujb iz ‘pubu 81 ‘3sm( 91 ‘ms 91
‘jioj 11 ‘jsod £i ‘pun zi ‘3§bu qi ‘eu§o 8 ‘0?JJ9 i ‘pujq 1 ‘qqnsj 1 :jjajpq
Hvað með
vetrar-
ólympíu-
leikana?
Mikið ofboðslega er ég
glaður þessa dagana. Og af
hverju skyldi það nú vera?
Jú, það er loksins búið að
ákveða að sýna HM í knatt-
spyrnu næsta sumar í ís-
lensku sjónvarpi. Þetta mál
gekk nú svo langt að á Al-
þingi íslendinga var þetta
mál tekið fyrir og ræddu
menn um HM í knattspyrnu
sem heimsviðburð. Ég er al-
veg sammála því en hvers
vegna hafa þessir háu herr-
ar ekki rætt neitt um vetrar-
ólympíuleikana sem voru
settir síðasta föstudag?
Það verður ekki sýnt frá
þeim í íslensku sjónvarpi.
Ástæðan: Fjárskortur á
RÚV. En hvar eru þá
Norðurljós? Það eru „ekki
nema sex“ íslenskir þátttak-
endur á leikunum í Salt
Lake City. RÚV hefur, að
mig minnir, nánast alltaf
sýnt frá vetrarleikunum en
svo er ekki nú. Þetta mál
var ekki tekið fyrir á Al-
þingi. „Skíðamennirnir“
Lúðvík Bergvinsson og Guð-
mundur Árni Stefánsson
hafa enn ekki stigið í pontu
til að ræða um málið.
Ég held, strákar, að þið
getið séð leikana á
Eurosport. Rammíslensk
stöð, eða þannig.
Sandkorn
Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn@dv.is
Kynning á nýrri byggðaáætl-
un iðnaðarráðuneytisins hefur
vakið verulega athygli enda búið
að bíða þessarar áætlunar lengi.
Ýmsum þótti þó skjóta skökku við
að Valgerður Sverrisdóttir, ráð-
herra byggðamála, skyldi kynna
áætlunina í ráð-
herrabústaðnum í
Reykjavík en
ekki t.d. á Akur-
eyri. Það hefði
verið meira við
hæfi, því hluti
áætlunarinnar
gengur út á að
* efla Akureyri og
Eyjafjörð sem mótvægi við
Reykjavík. En að velja ráðherra-
bústaðinn af öllum húsum væri
þó til að toppa þetta, því hann
væri tákn um það að ekki einasta
væri allt fólkið utan af landi flutt
suður heldur hefðu húsin flutt
þangað líka - en ráðherrabústað-
urinn stóð sem kunnugt er við ön-
undarfjörð upphaflega áður en
Hannes Hafstein flutti hann suður
Og Úr því farið er að tala um
Hafsteina þá velta margir því nú
fyrir sér hvemig Reykjavíkurlist-
inn muni koma út úr þeirri
rimmu sem fram
undan er í próf-
kjörsmálum Sam-
fylkingarinnar.
Stefán Jón Haf-
stein skoraði á
hólm Helga
Hjörvar sem
kunnugt er og
það sem ærir
marga fótgönguliða flokksins er
að fá ekki að vita hvort Stefán hafi
verið gerður út af sjálfri Ingi-
björgu Sólrúnu til höfuðs Helga,
en sem kunnugt er mun Stefán
Jón vera einn af nánustu ráðgjöf-
um Ingibjargar. Ingibjörg mun
hins vegar engin „hint“ hafa gefiö
um það hvern hún styður eða
hvar hún stendur ...
Eins Og Kristján Þór Júlíus- ^
son, bæjarstjóri á Akureyri, spáði
í DV á laugardag þá hafa draugar
hrepparígsins komist á flug eftir
að byggðaáætlunin kom fram og
3Ú stefna mörkuð
að leggja áherslu
á ákveðna
byggðakjama og
mest á Akureyri.
í þættinum Viku-
lokin á Rás 1 á
laugardag kom
fram gagnrýni,
sem raunar var
ekki alveg í anda hrepparígsins, -
frá Sigurjóni Benediktssyni, fyrr-
um bæjarfulltrúa á Húsavík, þar
sem hann taldi þessa áætlun nán-
ast út í hött og óframkvæmanlega.
Sérstaklega það að einhverjir
menn suður í Reykjavik skuli
ákveða að fólksfjölgun skyldi í
framtíðinni verða á Akureyri.
Taldi Sigurjón að allt eins hefði
mátt ákveða að byggja upp mót-
vægið á Grímsstöðum á Fjöllum
sem væri í miðju hins nýja norö-
austurkjördæmis og ekki spillti
fyrir að þar væri ágætur flugvöll-
ur ..!
Um helgina vakti heimasíða
Björns Bjarnasonar mikla athygli,
ekki þó fyrir það sem stóð þar
heldur það sem ekki stóð þar.
Bjöm hefur sem
kunnugt er verið
iðinn við að gagn-
rýna Reykjavík-
urlistann og ræða
borgarmálin í
pistlum sínum og
eru þessi skrif
m.a. talin hafa
skilað Bimi í
leiðtogasæti Sjálfstæðisflokksins í
borgarmálunum. Nú þegar Björn
er kominn í leiðtogastólinn bregð-
ur svo við að í fyrsta sinn í lang-
an tíma skrifar hann ekkert um
borgarmál eða R-listann ..!
Myndasögur
Þessi rotta, Fannar'
Hversu mikið fyrir h
fjóra hjólkoppa, 6Ígar-
ettukveikjarann og
FARÐU FRA
BÍJ.NUM
MINUM.
HRÆ-
C3AMMURI
úti slefanái yfir bílinn
minnl
80 þúsund fyrir
afturöxulinn!
'eikjulok?,
'Hinn eigandinn að Pesoto ‘5’
á vesturhveli jarðar.
Tvasr Ijoshærð-
ar kótelettur...
brúnhærða^
eggjaköku... ég
meina..
Ætlarðu að
setja þetta
á augað?
hvað þú fékkst
þér að l—'
borða! z