Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Page 4
4
Fréttir
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002
______________DV
Þórarinn Viðar Þórarinsson fékk afsal fyrir jeppanum:
Skrifað hjá Símanum
eftir sátt um starfslok
- Síminn greiddi allan kostnað við jeppann. Kortið klippt í síðustu viku
Þórarinn Viðar Þórarinsson, frá-
farandi forstjóri Landssímans, ók á
fríu bensíni allt þar til viku eftir að
sátt var gerð um starfslokasamning
hans og Landssímans. Sáttin kvað á
um að forstjórinn fráfarandi fengi
sem nemur 37 milljónum króna í
bætur vegna þess að hann var rek-
inn áður en fimm ára ráðningar-
tíma hans sem forstjóra lauk. Ráðn-
ingarsamningurinn var gerður árið
1999 en árið 2001 var honum rift.
Þórarinn Viðar er nú búinn að fá af-
sal fyrir jeppanum sem Landssím-
inn lagði honum til sem forstjóra.
Föstudaginn 1. febrúar gerðu
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
Landssímans, og Þórarinn Viðar
sátt um starfslokasamning eftir að
deilur höfðu staðið um það hversu
mikið forstjórinn fráfarandi ætti að
fá í bætur vegna brottrekstursins. í
samningnum var kveðið á um að
Þórarinn Viðar héldi dýrri jeppabif-
reiö af gerðinni Toyota Landcruiser
en greiddi fyrir matsverð.
Þórarinn og Síminn
Þrlöji hlutl
Allar götur síðan Þórarinn Viðar
kvaddi Landssímannn í október árið
2001 hefur hann haft bifreiðina og að
auki viðskiptakort á vegum Lands-
símans sem hann hefur notað til að
greiða með ailan kostnað af jeppan-
um. Þetta kort notaöi hann í tæpa
viku eftir að hafa undirritað starfs-
lokasamninginn þann 1. febrúar og
fyllti bOinn af bensíni á kostnað Sím-
ans um það leyti sem hann gekk frá
kaupum á bilnum. Bensínafgreiðslu-
mann í Kópavogi rak í rogastans þeg-
ar Þórarinn rétti fram kort Landssím-
ans til að greiða fyrir áfyllingu á bíl-
inn nokkrum dögum eftir að sagt var
frá sátt um starfslok í íjölmiölum.
Undir lok síðustu viku ók Þórarinn
Viðar jeppa sínum til móts við Lands-
símamenn þar sem settur var verð-
miði á bílinn og kaup forstjórans fyrr-
verandi á bílnum staðfest og færð til
frádráttar á 37 milljóna króna starfs-
lokasamninginn.
Sumarhús Þórarins
Jeppinn umdeildi sem Þórarinn Viöar fékk frá Landssímanum. Þar til í síöustu viku féll allur kostnaöur
vegna bílsins á Landssímann.
Starfsmenn Landssímans uröu
fúslega viö beiöni DV um aö
afhenda reikninga vegna
gróöursetningar í landi Þórarins.
Jafnframt afhenti hann viðskipta-
kort sitt. Starfsmaður Símans klippti
kortið umsvifalaust.
„Hluti af þessum díl“
Þórarinn Viðar Þórarinsson sagði
í samtali við DV að hann hefði sam-
kvæmt samningi átt að fá greiddan
rekstrarkostnað fyrir bílinn. Að-
spurður hvort það gæti talist eðlilegt
af honum að nota kort Landssímans í
tæpa viku eftir að sátt var gerð um
starfslok þar sem í hans hlut féllu 37
milljónir króna bætur sagði hann svo
vera.
„Það var hluti af þessum dO, karl-
inn minn. Ég er búinn að skOa öUum
mínum kortum sem ég hafði á vegum
Símans og öUum mínum fjárhagslegu
samskiptum við fyrirtækið er lokið í
fullri sátt,“ segir Þórarinn Viöar.
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
Símans, gerði sáttina við Þórarin.
Hann kannaðist ekki við að Þórarni
hafi verið heimUt að nota viðskipta-
kort Símans eftir að sáttin var gerð
þann 1. febrúar.
Ríkisendurskoðun kannar nú
hvort Landssíminn hafi greitt skrúð-
garðyrkjumeistaranum Gunnari Þór
Hannessyni fyrir skipulagningu,
gróðursetningu og aðhlynningu trjáa
við sumarhús Þórarins Viöars á
Mjóanesi við ÞingvaUavatn. Fyrir
liggur að Landssíminn greiddi vöru-
bOstjóra Þróttar fyrir að flytja trén
að bústað Þórarins frá Gufunesi. Þór-
arinn Viðar ber því við að enginn
hafi rukkað sig og að hann komi af
fjöUum um það hvers vegna reikn-
ingurinn hcifi verið greiddur af
Landssímanum. Þórarinn segist sjálf-
ur hafa greitt Gunnari garðyrkju-
meistara fyrir veitta þjónustu en í
bókhaldi Símans er reikningur frá
Gunnari að upphæð 434. 898 krónur
þar sem vísað er til fylgiskjala sem
ekki finnast. Ríkisendurskoðun er nú
að fara yfir það mál og mun væntan-
lega bera saman bókhald Þórarins,
Landssímans og garðyrkjumeistar-
ans. -rt
Vitnisburður barnalæknis vegna drengsins sem lést í daggæslu:
Telur að barnið hefði misst
meðvitund fljótlega
- eftir að það hlaut alvarlega áverka sem síðan drógu það til dauða
Barnlö lést á Landspítalanum í Fossvogi
Kristleifur Kristjánsson telur nær allar líkur á aö barniö hafi dáiö af völdum
„Shaken baby-syndrome“.
„Það er útilokað," sagði Kristleif-
ur Kristjánsson, sérfræðingur í
barnalækningum, fyrir Héraðsdómi
Reykjaness, þegar hann var spurður
aö því hvort áverkar sem leiddu síð-
ar tO dauða 9 mánaða gamals drengs
síðastliðið vor gætu hafa orðið áöur
en drengnum var komiö í dagvistun.
Aöalmeðferö fór fram í gær í máli 37
ára gamals Kópavogsbúa sem er
gefið að sök að hafa hrist drenginn
svo harkalega í maí í fyrra að hann
lést á Landspítalanum í Fossvogi
tveimur dögum síðar. Maðurinn er
einnig, ásamt konu sinni, ákærður
fyrir að hafa veriö með mun fleiri
böm en þau höfðu leyfi fyrir í
vistun á dagheimOi sínu, þar sem
manninum er gefið að sök að hafa
hrist drenginn með fyrrgreindum
afleiðingum.
Þau hafa bæði neitað öOum sakar-
giftum og jafnframt mótmælt 10
mOljóna króna skaöabótakröfu for-
eldra drengsins.
Kristleifur Kristjánsson sagði að
95-99% líkur væru á því að barnið
hefði dáið af völdum áðurnefnds
„Shaken Baby-Syndrome“ og nefndi
þrjár meginorsakir því tO stuðnings.
Þær eru að greinOeg áverkamerki
voru á heOa drengsins, engir ytri
áverkar voru sjáanlegir og engin
önnur eðlOeg skýring væri á áverk-
um bamsins. Hann sagði að engin
leið væri að drengurinn hefði sýnt
eðlOega hegöun eftir að hafa hlotið
svo mikla áverka sem raun bar vitni
dómsalnum
Ágúst Bogason
blaöamaöur
og sagöi það fuUvíst að hann hefði
misst meðvitund mjög fljótlega eftir
að hafa fengið áverkana. Hann sagð-
ist einnig hafa haft samband viö lög-
reglu strax sama kvöld tO að greina
henni frá grunsemdum sínum.
Sannað þykir að hjónin hafi haft
yfir 20 böm í gæslu. Þau sögðu hins
vegar að það mætti reKja tO þess að
sum barnanna væra ekki nema háif-
an eða suma daga í vistun en þau
höfðu þó ekki leyfi fyrir nema 5 böm-
um hvort, auk þess sem manninum
hafði verið gefið munnlegt leyfi til að
taka að sér það sjötta. Einnig sögðust
þau hafa verið undir miklum þrýst-
ingi frá félagsmálayfirvöldum í Kópa-
vogsbæ að taka að sér fleiri börn.
Meðferð málsins verður haldið
áfram í Héraðsdómi Reykjaness eftir
helgi.
Vilja siðareglur
um samskipti á
markaði
Yfirvöld samkeppnismála eiga að
hafa frumkvæði að því að sem fyrst
verði settar siðareglur um sam-
skipti smásala og birgja. Þetta á
einkum við um dagvörumarkaðinn
og byggingavöruverslun þar sem
fáar verslunarkeðjur hafa náð yfir-
burðastöðu á markaði. Niðurstöður
rannsóknar Samkeppnisstofnunar á
hugsanlegri misnotkun smásölu-
verslana á markaðsráöandi stöðu
þeirra verði gerðar opinberar hið
aOra fyrsta og stjómvöld þurfa að
treysta Samkeppnisstofnun enn
frekar í sessi þannig að hún eigi
auðveldara með að tryggja virka
samkeppni á öOum sviðum íslensks
viðskiptalífs. Þetta segir í ályktun
fundar Samtaka verslunarinnar
sem haldinn var í gær.
I ályktun fundarins segir að verð-
hækkanir að undanfömu verði ekki
raktar tO heOdsala og birgja heldur
stafi þær af hækkun smásöluálagn-
ingar. Það sem félagsmenn Samtaka
verslunarinnar óttuðust að yrði af-
leiðing samþjöppunar á smásölu-
markaði er því staðfest í skýrslu
Samkeppnisstofnunar um matvöru-
markaðinn sem kynnt var á síðasta
ári. -sbs
Mlkið tjón sem veröur ekki bætt
Hér er einn bíllinn sem eyðitagöur
vará Hvolsvelli af brunavargi. Mikiö
tjón sem verður varla bætt.
íkveikjur í bílum
almennt ekki
bótaskyldar
„Þeir einir fá bætur út úr bruna-
tjóni á bifreiðum sem orsakast af
íkveikju sem eru með kaskótrygg-
ingu eða sérstaka brunatryggingu
bifreiða," sagði Gunnar Atlason hjá
VÍS i samtali við DV í gær. Gunnar
sagði aö hefðbundnar bifreiðatrygg-
ingar bættu tjón sem bOlinn ylli
öðrum og jafnframt verðu þær eig-
anda bifreiðar fyrir skaða sem bíO
þeirra yOi öðrum í umferðinni.
„Bótaupphæð í tilfeOum sem
þessum á Hvolsvelli ræðst af sjálfs-
ábyrgð þeirra sem hafa kaskótrygg-
ingu eða brunatryggingu. Hún er
misjöfn, tryggingarupphæðin ræðst
einnig af andvirði bOsins sem er
með þessar sérstöku tryggingar,"
sagði Gunnar Atlason hjá VlS.
Kristján Guðmundsson hjá lög-
reglunni á HvolsveOi sagði í gær-
kvöld að bOaíkveikjurnar væra enn
í rannsókn lögreglunnar. Enn væri
ekkert komið fram sem varpaði ljósi
á málið. -NH.
Vinnumarkaöur:
Eftirspurn
minnkar
í könnun sem Þjóðhagsstofnun
gerði á atvinnuástandi í janúar kem-
ur fram að atvinnurekendur vOdu
fækka um 0,4% af áætluðu vinnuafli.
Er þetta mun minni eftirspurn en á
sama tíma i fyrra þegar atvinnurek-
endur vOdu fjölga starfsfólki. Hefur
eftirspumin ekki verið minni síðan
árið 1996. Á höfuðborgarsvæðinu er
eftirspurnin áberandi minnst í iðn-
aði, öðram en fiskiðnaði. Hins vegar
hefur á sama tíma náöst meira jafn-
vægi í eftirspum eftir vinnuafli á
landsbyggöinni. -HKr.