Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 11 hún, „í miðborginni er hvert hús listaverk og engu líkt að ganga yflr Karlsbrúna, hlusta á farandsöngvarana og horfa á málarana." Eiginkona mín var horfin úr Kópavogi þótt hún sæti enn w við eigið eldhúsborð. í huganum ferðaðist hún land úr landi, borg úr borg, frá sæluhúsum tii sólar- stranda. Börnin voru með og á ýmsum aldri. Eiginmaðurinn kom í humátt á eftir. Það var ekki spurning nú hvort við færum heldur hvert. Af langri reynslu vissi ég að mótmæli yrðu léttvæg fundin. „Ættum við að fara til ítaliu?“ sagði konan þegar hún kom til sjálfrar sín. „Við eigum eftir að skoða Flórens." Ég tók ekki illa i það enda líkar mér land og þjóð. „Eða kannski til Krítar og sigla til Aþenu?“ Það fannst mér líka góður kostur. Við sigldum um gríska Eyja- hafið í fyrra og stigum á land í undurfögrum eyj- um. „Ég vil fara til Fær- sagði yngri dóttir Hún er jarð- Dunanari en móðirin og líkári foður sinum að leyti. Við heimsótt- Færeyjar fyrir tveim- ur árum og líkaði öllum vel en einkum stelpunni. Henni þótti þetta nágrannaland okkar taka suð- rænum sólar- ströndum fram. Marxísk „En að fara til Kína og éta hund?“ sagði ég og vildi með því ganga fram af konu og dóttur. Mér datt þetta í hug þegar ég fletti bæklingum og sá Kínaferð aug- lýsta með framandi stórborgum, Beijing og Shanghæ, að ógleymd- um Kínamúrnum. „Oj, hvað þú getur verið ógeðslegur, pabbi,“ sagði stúlkan unga, enda er hún mikill hundavinur. Vopnið snerist hins vegar í höndum mér þegar konan tók tillögunni vel. „Mig hef- ur alltaf langað til Kína,“ sagði hún og lét sem hún heyrði ekki til- löguna um að éta Snata. „Ættum við að fljúga til Hong Kong og fara þaðan inn til Kína? Það væri æð- islegt. 0, það var svo gaman að fara til Moskvu í fyrravor. Það er stórkostlegt að skoða eitthvað nýtt.“ Furðu marxískur svipur var á konunni miðað við hvað hún er í raun borgaralega sinnuð. Sá smurði Lenín sat í minninu. Nú vildi hún á slóðir Maós for- manns. Kvarnirnar snerust í hausnum á mér. Þótt fróðlegt væri að skokka eftir Kínamúrnum tók ég eftir því að á nefndri auglýsingu sagði að Kínaferðin kostaði 350 þúsund á mann og því meira en milljón. fyrir okkur þrjú, fyrir utan annan tilfallandi kostnað. Ég sá þann lúxus ekki alveg fyrir mér miðað við þá raun að hafa nýlega skrapað saman fyrir jólunum. „Hringvegurinn er nú alltaf að batna,“ sagði ég til þess að ná stöðu á ný. Mæðgurnar þögnuðu og störðu á mig. „Þú getur farið hringveginn einn,“ sagði konan. „Mér leiðist í bíl,“ sagði stelpan. Örþrifaráð mitt lukkaðist. Þær sameinuðust gegn hringveginum og gleymdu Kína. Þær voru aftur í Evrópu. „Ítalía," sagði ég og tók undir upphaflegt boð konunnar. I flestum pólitískum hneykslismálum verður eins dauði annars brauð. Annar vœngurinn brosir þegar hinn lendir í áföll- um en ekki nú. Hér hafa allir tapað. tapast 2 milljarðar króna og fjár- lagagerð er þar með komin í upp- nám strax í byrjun árs. Ofbauð veikleikinn Hvers vegna kaus Hreinn Lofts- son að opna sig með þeim hætti sem raunin varð um innri mál Símans? Um það eru skiptar skoðanir og hafa sumir litið svo á að hann hafi verið að kenna öðrum um það sem afvega fór í hans eigin einkavæðing- arstarfi. „Berin eru súr,“ sagði Öss- ur Skarphéðinsson en aðrir tóku enn dýpra í árinni og spurðu hvort Hreinn hefði ekki haft þjóðina að f fífli með því að gerast sölumaður gallaðrar vöru. Því neitar Hreinn. Hann hafði þetta um ástæðu „upp- hlaups" síns að segja, eins og stjórn- arformaður Símans kaus að kalla það: „Mér ofbauð hreinlega sá veik- leiki sem kom fram í starfsloka- samningnum við Þórarin. Það kem- ur upp trúnaðarbrestur í haust sem verður til þess að hann fer út og á þeim tíma varð maður var við hvers eðlis samningurinn var, þ.e.a.s að hann skyldi gilda til fimm ára. Það var fráleitt að ganga til starfsloka á þeim grundvelli núna. Þama krist- allast þeir veikleikar sem koma fram við ríkisreksturinn. (DV, 15.2.) Mótsagnakennd niðurstaða Þar komum við aftur að blý- antsnagdýrunum í Seðlabankanum. Ekki einn einasti stjórnarmaður fyrir utan formanninn virðist hafa kíkt náið á efni ráðningarsamnings- ins við Þórarin og taka má undir með Hreini um að litlar líkur eru á að það hefði gerst hjá stjórn fyrir- tækis í einkaeigu. Stjómarmenn fá sjöhundruðþúsundkall á ári í laun fyrir fundi sína hjá Simanum og það hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu tO þeirra að þeir leggi eitt- hvað á sig á móti. Þannig leiðir Landssímasagan til þeirrar mótsagnakenndu niður- stöðu að á sama tíma og Landssím- inn væri mun betur komið sem fyr- irtæki ef engum hefði dottið í hug að einkavæða hann, eiga ítök opin- berra starfsmana í fyrirtækinu stór- an þátt í að svo iUa fór. Enginn get- ur glaðst yfir þessu máli. Pólitískt séö hafa þeir beðið skipbrot sem harðast vilja einkavæða heiminn allan í dag en afturhaldsmenn og ríkissinnar hafa einnig orðið fyrir stórtjóni. Rikisstarfsmennimir þeirra stóðu sig ekki í málinu. Þeir nöguðu blýanta. I flestum pólitískum hneykslis- málmn verður eins dauði annars brauð. Annar vængurinn brosir þegar hinn lendir í áfollum en ekki nú. Hér hafa allir tapað. En aðstandendur Landssímans þó sýnu mestu. -BÞ Skoðun Veik stjórn og reiði Óli Björn Kárason aðalritstjóri Hreinn talar út Viðtal Viðskiptablaðsins við Hrein Loftsson, fyrrum formann einkavæðingamefndar, síðastliðinn miðvikudag hefur með sanni sett allt upp í loft. Þó sagði Hreinn litið annað en búast hefði mátt við af manni í hans stöðu. Mesta athygli hafa ummæli hans um stjómun fyr- irtækisins vakið, þó hann hafi sagt ýmislegt annað. „Mikið vantaði upp á stjómunina hjá fyrirtækinu og mikið vantaði upp á að menn væru að ná því út úr fyrirtækinu sem ætl- ast mátti til... Ef til vill var fyrir- tækið sjáift ekki nægilega vel undir- búið fyrir einkavæðinguna..." Eins og vænta mátti vöktu þess ummæli athygli en fáir virðast hafa tekið eftir jákvæðum ummælum Hreins í garð Landssímans: „Ég held að þegar fram í sækir muni menn sjá að þeir fá ekki tækifæri til að kaupa eins öflugt fyrirtæki og Landssímann á svo góðu verði. Þetta fyrirtæki býður upp á ótrú- lega möguleika fyrir þá sem vilja fjárfesta í því.“ Veik stjóm Hreinn Loftsson gagnrýnir einnig i áðumefndu viðtali stjóm fyrirtæk- isins þar sem hann taldi hana veika og með rangar áherslur. Ég fæ ekki betur séð en að þessi gagnrýni Hreins sé reist á nokkrum rökum. Reynist það rétt sem kom fram í kvöldfréttum sjónvarps síðastliðið fimmtudagskvöld að enginn stjóm- armanna í Landssímanum annar en formaður hafi séð eða kynnt sér helstu efnisatriði í ráðningarsamn- ingi Þórarins Viðars Þórarinssonar, fyrrum forstjóra, er það makalaust dæmi um veika stjóm - stjórn sem ekki hugar að hagsmunum fyrir- tækisins. Gagnrýni á stjóm Lands- símans og ábendingar um veikleika hennar hafa í sjálfu sér ekkert með þá einstaklinga að gera sem þar sitja held- ur Þegar gagnrýnt er að ráðningarsamningurinn skuli hafa verið til fimm ára er því jyrst og fremst verið að halda þvífram að „réttur“ maður hafi hugsan- lega ekki verið valinn til starfans. Fyrir þá sem ekki þekkja til mál- efna Landssímans hafa þær deilur sem sprottið hafa upp á síðustu dög- um um fyrirtækið, stjórn þess, sam- gönguráðherra, einkavæðingar- nefnd og fyrrum forstjóra, að líkind- um litla merkingu aðra en þá að nokkrir einstaklingar eru að rífast (og það stundum með fjörlegum hætti) i fjölmiðlum. Stjórnarand- stæðingar, sem gengur fremur illa í aðhaldinu að ríkisstjórninni, hafa gripið tækifærið feginshendi í þeirri von að loksins sé komið upp mál sem hægt er að nota í pólitísk- um tilgangi. Mér segir svo hugur um að sú von sé reist á sandi. Hamagangurinn í kringum Landssimann er ekki nýr af nálinni og nær allt aftur til þess tíma þegar Pósti og síma var breytt í hlutafélög og skipt upp. En síðustu dagar hafa verið með fjörugra móti þar sem Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, hefur gengið svo langt að krefjast afsagnar sam- gönguráðherra. hvernig staðið er að skipan stjórn- arinnar. Hvert stjómarmenn hluta- félaga sækja umboð sitt ræður miklu ef ekki mestu um það hvern- ig þeir rækja starf sitt og hvaða hagsmunum þeir reyna fyrst og fremst að þjóna. Svo lengi sem stjóm fyrirtækis er skipuð eftir pólitiskum skiptareglum er hún í eðli sínu veikburða. Þetta er í raun ein meginröksemdin fyrir því að einkavæða fyrirtæki, ekki síst ef þau eru í samkeppnisumhverfi. Gagnrýni fyrrverandi formanns einkavæðingarnefndar hefði þvi ekki átt að koma neinum á óvart. Starfslokasamningur Hreinn Loftsson hefur sagt opin- berlega að honum blöskri starfs- lokasamningurinn sem gerður var við Þórarin Viðar. Hann hefur um leið tekið undir þá gagnrýni að óeðlilegt hafi verið að gera fimm ára ráðningarsamning við forstjór- ann fyrrverandi fáum misserum áður en einkavæðing fyrirtækisins skyldi fara fram. Davíð Oddsson for- sætisráðherra og Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra eru einnig meðal þeirra fjölmörgu sem telja að ráðningarsamningurinn hafi verið mistök. Þegar litið er um öxl er oft þægi- legt að koma auga á mistök sem kunna að hafa verið gerð og ef til vill á það við i þessu tilviki ekki síst þegar litið er á hversu stutt var í að fyrirtækið kæmist í eigu annarra. Þangað til annað kemur í Ijós fæ ég hins vegar ekki séð að nokkuð óeðli- legt hafi verið við það að gera allt að fimm ára ráðningarsamning við æðsta stjómanda fyrirtækisins. Slíkt skapar að öllu jöfnu meiri festu og framtíðarsýn innan fyrir- tækisins. Slík festa getur skipt miklu þegar verið er að leita eftir nýjum fjárfestum. Þá má ætla að launakjör forstjóra taki tilliti til aukins starfsöryggis (lægri laun) auk þess sem fastur ráðningar- samningur skapar möguleika til þess að sækja hæfa stjómendur úr góðum stöðum hjá öðrum fyrirtækj- um. Þegar gagnrýnt er að ráðningar- samningurinn skuli hafa verið til fimm ára er því fyrst og fremst ver- ið að halda því fram að „réttur" maður hafi hugsanlega ekki verið valinn til starfans. Ég fæ því ekki betur séð en að gagnrýni á starfslokasamninginn við Þórarin Viðar sé efnislega röng og ekki byggð á sanngirni. Fyrst á annað borð komist var að því að hann væri ekki „rétti“ maðurinn (að hluta vegna trúnaðarbrests en ekki hefur opinberlega verið skýrt út í hverju hann var fólginn) þá var ekki undan því komist að uppfylla gerða samninga. Réttlát reiði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra er greinilega sárreiður Halldóri Ásgrímssyni vegna ummæla um sölu- ferli Landssimans. Og Sturla hefur fullan rétt á að senda samráðherra sinum tóninn sem hann segir að tali gegn betri vitund. Halldór Ásgrímsson hefur opinber- lega, meðal annars í Morgunblaðinu, sagst hafa viljað flýta sölu á Lands- símanum. Orð Halldórs koma fleirum en Sturlu Böðvarssyni á óvart því ekki man ég betur en að sala á Lands- símanum hafi dregist á langinn vegna andstöðu Framsóknarflokksins. Það var ekki fyrr en í desember 2000 sem stjómarflokkamir náðu saman um einkavæðingu Landssimans og frum- varp þess efnis var síðan samþykkt á Alþingi á vorþingi á liðnu ári. Hvern- ig hægt hefði verið að hefjast handa miklu fyrr en gert var er mér óskilj- anlegt enda báru stjórnarflokkamir ekki gæfu til þess að ákveða söluna þegar í upphafi kjörtímabilsins. Hitt er svo annað að í mörgu voru mönnum mislagðar hendur við einka- væðingu Landssímans. Fyrst og fremst var tímasetningin kolröng og í annan stað var verðlagning hlutabréf- anna of há. Reynslan staðfestir þessar fullyrðingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.