Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Síða 15
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002
15
Helgarblað
DV
Borg og nátt-
úruform
Sýningin Náttúra - Borgarlandslag
og náttúruform, verður opnuð í dag
kl. 15, i sýningarsölum Norræna húss-
ins. Nítján norrænir listamenn á ýms-
um aldri fjalla um náttúruna, umheim
okkar. Hér eru skógar, fjöll og vötn og
borgargötur en einnig myndir þar
sem fengist er við form og mynstur.
Röð og regla eða óreiða? Hvar eru
mörkin? Er skipulagt útlit borgarinn-
ar samkvæmt reglu en náttúran
óbundin og óskipulögð?
Á ferð um landið
Ljósmyndaramir Bjarki Reyr Ás-
mundsson og Arsineh Houspian frá
Ástralíu opna sýningu í dag i
Straumi, sunnan álversins, milli kl. 15
og 18. Þar eru svarthvítar myndir sem
þau Bjarki og Arsineh tóku á ferð
sinni um landið á síðasta ári. Dregið
verður í happdrætti í lok sýningar þar
sem vinningshafinn fær mynd að eig-
in vali. Sýningin sendur til 3. mars og
er opin fimmtudaga til sunnudaga, frá
11 til 19.
Umhverfi
Akureyrar
Aðalsteinn Vestmann opnar mynd-
listarsýningu á Café Karólínu á Akur-
eyri í dag kl. 14. Þar eru akrýlverk og
eitt olíumálverk og er myndefnið aðal-
lega sótt í umhverfi listamannsins á
Akureyri. Aðasteinn sýndi fyrst fyrir
hálfri öld, og þá með listmálaranum
Gunnari Dúa í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Hann málaði leiktjöld í nokkur
ár hjá Leikfélagi Akureyrar og fleiri
félögum í nærsveitunum.
Litir, birta,
landslag
Á veggjum Kaffi Mílanó í Faxafeni
hanga myndverk eftir Helgu Erlends-
dóttur listakonu. Þar er um að ræða
olíumálverk máluð í abstraktstíl,
ásamt fígúratífum landslagsmyndum.
Helga býr i Ámanesi í Homafirði og
litir og birta hins stórbrotna landslags
í umhverfi hennar er henni stöðug
uppspretta nýrra verka. Sýningin
verður opin fram i mars.
Rauðhetta frumsýnd í Hafnarfirði
Amman suðræn og syngjandi
Rauðhetta, úlfurinn, amman,
mamman og veiðimaðurinn öölast
nýtt líf á fjölum Hafnarfjarðarleik-
hússins í dag klukkan þrjú þegar
barnaleikritið Rauðhetta verður
frumsýnt. „Þama eru litríkar per-
sónur á ferð,“ segir Guðrún Krist-
jánsdóttir, framkvæmdastjóri leik-
hússins, og lýsir þeim nánar:
„Amman er kjamakona sem býr í
skóginum, dálítið suðræn, syngur
mikið og prjónar töfrahúfur. Veiði-
maðurinn er listamaður í hjarta
sínu og ekki eins mikil hetja og af
hefur verið látið en
Rauðhetta er hins vegar
mjög hugrökk. Mamm-
an kemur lítillega við
sögu, hún er nútímaleg
og dálítið upptekin
kona.“ Guðrún segir
kunnáttufólk hafa farið
höndum um þetta sí-
gilda ævintýri og hlutur
Charlottu Bowing sé þar
stærstur. „Hún hefur
unnið leikritið upp úr
gömlu handriti frá 18.
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Rauðhetta og úlfurinn
Endirinn kemur flestum á óvart.
öld og er auk þess bæði
lagahöfundur og leik-
stjóri. En hún hefur gott
lið með sér, til dæmis
Þórarin Eldjárn sem
þýddi verkið enda er
mikið um rím og orða-
leiki,“ segir Guðrún og
bætir við: „Leikmyndin
er líka haganleg og
þannig uppbyggð að
áhorfendur verða eigin-
lega þátttakendur í
verkinu." -Gun.
„Perlubílar“ bjóðast nú
á lækkuðu verði.
• •
Ollum seldum „Perlubílum
fylgir gjafabréf
með glæsikvöldverði
fyrir tvo í Perlunni.
Hafðu samband við næsta sölumann
og kynntu þér málið.
Ingvar Helgason
notaðir