Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Síða 22
34 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 Hundrað og eins árs Islendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 8$ ára Helga Pétursdóttir, Hæðargarði 33, Reykjavík. 75 ára Guðbjörg Einarsdóttir, Heiöargerði 35, Reykjavík. Hálfdán Björnsson, Kvískerjum, Fagurhóismýri. Regína Magnúsdóttir, Bárustíg 2, Sauðárkróki. 70 ára Eiður Jóhannesson, Gullsmára 11, Kópavogi. Jón Pálmi Gíslason, Sámsstöðum, Akureyri. Jón Sigurðsson, Karfavogi 56, Reykjavík. Steinþór Runólfsson, Laufskálum 7, Hellu. Hann er að heiman. 60 ára Sigríður Þorsteinsdóttir, Hjaltabakka 24, Reykjavík. 50 ára Bjarni Rúnar Guðmundsson, Rimasíðu 2, Akureyri. Guðbjörg M. Matthíasdóttir, Birkihlíö 17, Vestmannaeyjum. Guðmundur Hafsteinsson, Hofgörðum 25, Seltjarnarnesi. Hörður Þóröarson, Búhamri 72, Vestmannaeyjum. Jðn Stefánsson, Hálsvegi 2, Þórshöfn. Jónína Jónsdóttir, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík. Karl Georg Ragnarsson, Leifsgötu 11, Reykjavík. Sigríður Dagmar Agnarsdóttir, Marbakkabraut 36, Kópavogi. Sverrir Haraldsson, Hólum 2. Reykjadal, Húsavík. Valgeir Guðmundsson, Barmahlíð 7, Reykjavík. Stefán Sigurðsson fyrrv. skólastjóri í Reykholti í Biskupstungum Stefán Sigurðsson, Hveramörk 4, Hveragerði, er hundrað og eins árs í dag. Starfsferill Stefán fæddist á Reyðará í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Hann tók kennarapróf 1923 og var síðan far- kennari í átthögum sínum í flmm vetur. Stefán stundaði nám í Gymnastikhojskolen í Danmörku 1928-29 og dvaldi við nám í Kiel í Þýskalandi vorið 1929. Stefán var skólastjóri í heimavist- arskóla í Reykholti i Biskupstung- um 1929-46. Hann flutti þá til Reykjavíkur og gerðist kennari við Melaskólann þar sem hann var fast- ur kennari til 1966 og síðan stunda- kennari til 1968. Á sumrin var Stef- án m.a. starfsmaður í Pósthúsinu í Reykjavík. Stefán var formaður Ungmenna- félags Biskupstungna í nokkur ár og hefur verið heiðursfélagi þess frá 1968. Hann sat í stjórn Kennarafé- lags Ámessýslu í nokkur ár, í stjórn Byggingafélags barnakennara um árabil frá 1951 og var formaður Sjúkrasamlags Biskupstungna frá stofnun, 1941-46. Hann sat í stjóm Esperantistafélagsins Auroru í Reykjavík um skeið, hefur tekið þátt i flmmtán alþjóðaþingum Esperantosambandsins og er heið- ursfélagi íslenska esperantosam- bandsins. Stefán hefur fengist töluvert við þýðingar og má þar m.a. nefna sautján bækur eftir norska höfund- inn Anne Cath. Vestly en auk þess hefur hann þýtt nokkuð úr esper- anto á íslensku og úr íslensku á esperanto. Islensk ljóð sem hann þýddi úr esperanto voru gefin út í sambandi við níræðisafmæli hans. Fjölskylda Stefán kvæntist 25.6. 1940 Vil- borgu Ingimarsdóttur, f. 22.11. 1902, d. 22.8. 1974, kennara á Húsavík. Hún var dóttir Ingimars Guðmunds- sonar, bónda á Efri-Reykjum í Bisk- upstungum, og k.h., Ingibjargar Guðmundsdóttur frá Kjamholtum í Biskupstungum. Dætur Stefáns og Vilborgar era Þóra Ingibjörg, f. 12.6. 1941, píanó- kennari og félagsráðgjafi, nú búsett á Öland í Svíþjóð, var gift Ingvari Ingvarssyni; Anna Jórunn, f. 21.12. 1942, tónmenntakennari og talkenn- ari, búsett í Hveragerði, gift Þór- halli Hróðmarssyni kennara, syni Hróðmars, bróður Stefáns. Bræður Stefáns: Geir, f. 1898, d 1974, bóndi á Reyðará, átti Margréti Þorsteinsdóttur húsmóður; Ás- mundur, f. 26.5. 1903, nú látinn kennari og fyrrv. alþm. og starfs- maður við Búnaðarbankann, átti Guðrúnu Árnadóttur hjúkrunar- konu; Hlöðver, f. 1906, d. 1982, skóla stjóri á Sigluflrði, átti Katrínu Páls dóttur hjúkrunarkonu; Þórhallur, f 1907, d. 1933, átti Guðrúnu Jónsdótt ur húsmóður; Hróðmar, f. 1912, d. 1957, kennari, síðast í Hveragerði, átti Ingunni Bjamadóttur tónskáld. Foreldrar Stefáns: Sigurður Jóns- son, f. 6.6. 1868, d. 1.3. 1917, bóndi á Reyðará í Lóni, og k.h., Jórunn Anna Lúðviksdóttir Schou (Anna Hlöðversdóttir), f. 29.9. 1876, d. 14.4. 1953, húsmóðir. Ætt Sigurður var sonur Jóns, söðla- smiðs á Setbergi í Nesjum, Jónsson- ar og Sesselju Sigurðardóttur. Anna var dóttir Lúðvíks J. Christian Schou, faktors á Húsavík, Hermannssonar Schou, verslunar- manns á Sigluflrði. Móðir Önnu var Elín, systir Hjör- leifs, pr. á Undirfelli, föður Einars H. Kvarans rithöfundar, afa Ævars Kvarans, leikara og rithöfundar. Bróðir Elínar var Jón í Saurhaga á Völlum, afi Guðmundar Sveinsson- ar, skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og langafl Einars Jóns- sonar, pr. á Kálfafellsstað. Elín var dóttir Einars, pr. í Vallanesi, Hjör- leifssonar, pr. á Hjaltastöðum, Þor- steinssonar, bróður Guttorms, pró- fasts á Hofi, langafa Þórarins á Tjörn, föður Kristjáns Eldjárn for- seta. Móðir Elínar var Þóra Jóns- dóttir Schjölds, vefara á Kórreks- stöðum og ættföður Vefaraættar, Þorsteinssonar. Stefán Sigurðsson Stefán var skólastjóri í Biskupstungum 1929-46 og kennari vió Melaskólann til 1968. Þessi mynd er tekinn er Stefán las upp á niöjamóti fyrir rúmu ári. 40 ára___________________ Ágúst Ómar Valtýsson, Eyjabakka 20, Reykjavík. Guölaug Arnardóttir, Krókamýri 78, Garðabæ. Hulda Kristmannsdóttir, Háulind 21, Kópavogi. Jón Atli Eðvarðsson, Grenimel 26, Reykjavík. Stefán Örn Einarsson, Þórufelli 12, Reykjavík. Þórir Magnússon, Bæjargili 108, Garðabæ. 550 5000 (/> XXD 3 03 '03 550 5727 Þverholt 11, 105 Reykjavfk Jón Kaldal byggingafræðingur í Reykjavík Jón Kaldal byggingafræðingur, Laugarásvegi 18, Reykjavík, er sex- tugur í dag. Starfsferill Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, auk þess sem hann var í sveit að Akri í Austur-Húnavatns- sýslu i fimm sumur. Jón stundaði nám við Myndlistarskólann í Ás- mundarsal 1958-62, hjá Veturliða Gunnarssyni, Ragnari Kjartanssyni og Hafsteini Austmann. Hann lauk sveinsprófl í húsasmíði 1964 hjá Magnúsi K. Jónssyni og lauk prófl sem byggingafræðingur 1966 frá Köbenhavns Bygningskonstruktur- skole. Jón starfaði á Teiknistofunni Ár- múla 6 1966-71 en hefur unnið sjálf- stætt frá 1971. Jón var fyrsti formaður Bygg- ingafræðingafélags Islands 1967-72. Auk þess hefur hann sinnt félags- málum sem tengjast áhugamálum hans, jasstónlist og skíðaíþróttinni. Fjölskylda Jón kvæntist 31.4. 1967 Steinunni K. Kaldal, f. 9.12. 1945, tækniteikn- ara. Hún er dóttir Kristins R. Sigur- jónssonar bygginga meistara og Rögnu Halldórsdótt- ur húsmóður. Börn Jóns og Steinunnar: Krist- inn Ragnar Sigurbergsson, f. 1.2. 1963, kennari, kvæntur Helgu Guð- rúnu Jónasdóttur, formanni Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, og eru böm þeirra Tinna, Lára, Hulda og Jökull; Anna Kaldal, f. 25.5. 1966, lögfræðingur í Stokkhólmi í Sví- þjóð, en maður hennar er Henrik Mondrian Lúrstadt tónskáld og eru börn þeirra Felix og Vera; Jón Kaldal, f. 24.6. 1968, ritstjóri Iceland Review, Atlanticu og Skýja, kvænt- ur Rögnu Sæmundsdóttur, starfs- manni ABS birtingahúss, og eru böm þeirra Jón og Ama; Guðrún Kaldal, f. 16.7. 1970, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Frostaskjóls,- gift Jóhanni G. Jóhannssyni, leik- ara og rekstrarhagfræðingi, og er sonur þeirra Jóhann; Steinar Kaldal, f. 24.5. 1979, nemi i stjóm- málafræði við'HÍ; Sóley Kaldal, f. 21.1. 1983, verslunarskólanemi. Systur Jóns eru Ingibjörg Kaldal, f. 11.4. 1947, ljósmyndari, og á hún einn son; Dagmar Kaldal, f. 30.1. 1945, gluggaskreytingamaður, gift Ágústi Friðrikssyni hárskerameist- ara og eiga þau þrjá syni. Foreldrar Jóns vora Jón Kaldal, f. 24.8. 1896, d. 30.10. 1981, ljósmyndari í Reykjavík, og Guðrún Kaldal, f. 14.8. 1918, d. 10.1. 1984, húsmóðir. Ætt Jón ljósmyndari var bróðir Leifs Kaldal gullsmiðs. Jón var sonur Jóns, b. í Stóradal, bróður Þorleifs, póstmeistara og alþm., föður Jóns Leifs tónskálds. Annar bróðir Jóns var Pálmi, b. á Ytri-Löngumýri, fað- ir Jóns, alþm. á Akri, föður Pálma, fyrrv. ráðherra á Akri. Systir Jóns var Guðrún í Stóradal, móðir Jóns, alþm. í Stóradal. Pálmi var sonur Jóns, alþm. í Sólheimum og Stóra- dal, bróður Erlends, föðurafa Sig- urðar Guðmundssonar skólameist- ara, föður Örlygs og Steingríms list- málara. Systir Jóns var Ingibjörg, amma Ingvars Pálmasonar alþm., afa Ingvars Gíslasonar, fyrrv. alþm. og ráðherra. Jón var sonur Pálma, b. í Sólheimum, Jónssonar, b. þar, Benediktssonar, af Eiðsstaðaætt. Móðir Pálma í Sólheimum var Ingiríður Jónsdóttir, ættföður Skeggstaðaættar, Jónssonar. Móðir Jóns í Stóradal var Ingibjörg Salóme, systir Ingibjargar, langömmu Jakobs Benediktssonar orðabókarhöfundar. Bróðir Ingi- bjargar Salóme var Þorleifur í Stóradal, langafi Sigríðar í Djúpa- dal, ömmu Sigurgeirs, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi. Ingibjörg Salóme var dóttir Þorleifs „ríka“ í Stóradal Þorkelssonar, bróður Ingigerðar, langömmu Jóhönnu, ömmu Páls Ás- geirs sendiherra, föður Tryggva, framkvæmdastjóra við Islands- banka. Móðir Ingibjargar Salóme var Ingibjörg Guðmundsdóttir ríka í Stóradal, Jónssonar, ættföður Skeggstaðaættar, Jónssonar. Guðrún var dóttir Sigurðar, jámsmiðs i Reykjavik og eins af stofnendum Járnsmíðafélags Reykjavikur, Sigurðssonar járn- smiðs, Jónssonar, b. frá Hliðnesi á Álftanesi, Halldórssonar. Móðir Guðrúnar var Dagmar Finnbjörnsdóttir Elíassonar Eld- járnssonar, ættuð frá Hnífsdal og Aðalvík. Jón og Steinunn eru að heiman á afmælisdaginn. Andlát Valur Arnar Magnússon, Hamraborg 26, Kópavogi, lést laugard. 9.3. Ingvar Guömundsson, Bankavegi 2, Sel- fossi, lést af slysförum föstud. 8.3. Magnþóra Magnúsdóttir, Túngötu 1, Bessastaöahreppi, lést á líknardeild Landspítalans I Kópavogi laugard. 9.3. Guðfinna Sigurðardóttir, Hrafnistu í Reykjavík, áöur Skipholti 49, lést á Hrafnistu í Reykjavlk föstud. 8.3. Þórey Pálsdóttir frá Ósgeröi, Sæviöar- sundi 25, lést á Landspítalanum viö Hringbraut fimmtud. 28.2. Útförin fór fram I kyrrþey mánud. 11.3. Ásta María Jónsdóttir, áöur til heimilis á Hagamel 29, Reykjavlk, lést á hjúkr- unarheimilinu Eir laugard. 9.3. Baldur Kristjónsson íþróttakennari, Kópavogsbraut 69, Kópavogi, lést aö kvöldi laugard. 9.3. sl. Merkir Islendingar gj|l Valberg Hannesson Guðvarður Valberg Hannesson, skólastjóri og bóndi, fæddist aö Melbreið í Stíflu í Skagafirði 14. mars 1922. Hann ólst upp við öll almenn sveitastörf þess tíma, stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti og lauk þaðan prófi 1941, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Siglufirði 1942 og lauk íþróttakennaraprófi 1947. Valberg stundaði sund og íþróttir á sínum yngri árum á vegum ýmissa ungmennafélaga, kenndi sund við Sundhöll ísafjarðar og hélt sundnámskeið á sumrin við Barðslaug í Fljót- um í nokkur ár. Hann var skólastjóri í Holts- skólahéraði í Skagafirði 1959-1972 og síðan lengst af skólastjóri við Sólgarðaskóla í Fljót- um frá 1972. Guðvarður var bóndi á foðurleifð sinni á Melbreið í Stiflu á árunum 1959-1972 og sinnti ýmsum félags- og trúnaðarstörfum fyrir sína sveit. Hann var t.d. hreppsnefndarmaður í Holtshrepp og síðar hreppsnefndarmaður og oddviti Haganeshrepps frá 1974. Þá sat hann í stjórn SFH á árunum 1974-1978 og var sýslu- nefndarmaður í Skagafjarðarsýslu um skeið. Valberg var kvæntur Áshildi Magnúsdóttur frá Gaulverjabæ í Flóa og eignuðust þau sex börn. Valberg lést 17. september 1993. Jónas Sigurðsson, fýrrum skólastjóri Stýrimannaskólans I Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtud. 14.3. kl. 13.30. Útför Svanhildar Sigurðardóttur frá Seyöisfirði, Eyjahrauni 5, Vestmannaeyj- um, fer fram frá Laugarneskirkju föstud. 15.3. kl. 13.30. Elísabeth Lísa G. Berndsen veröur jarö- sungin frá Hafnarfjaröarkirkju föstud. 15.3. kl. 15.00. Sigríður Magnúsdóttir, Æsufelli 2, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstud. 15.3. kl. 13.30. Þórir Jón Jensson, Heiöargeröi 54, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni föstud. 15.3. kl. 13.30. Eiínborg Ágústsdóttir frá Mávahllö á Snæfellsnesi veröur jarösungin frá Ólafsvlkurkirkju föstud. 15.3. kl. 14.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.