Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Vopnaðir verðir og vopnaleit í innanlandsflugi:
„Hníflaus maður er
líflaus maður"
- sagði Færeyingurinn sem varð að láta vasahnífinn sinn af hendi
Gríðarlegur viðbúnaður er í
Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli
vegna Nato-fundarins sem haldinn
er hér á landi nú í vikunni. Vopnað
lið lögreglumanna og sérsveitar-
manna sér um að leiðtogar Nato-
ríkjanna njóti hér fyllsta öryggis og
svæði umhverfis fundarstaðinn hef-
ur verið girt af. Þar fara engir um
nema geta framvísað sérstökum
skilríkjum.
Undanfama daga hafa radarvélar
og aðrar hervélar Nato á Keflavík-
urflugvelli sveimað í eftirlitsflugi
yfir höfuðborgarsvæðinu. Þá er full
landamæravarsla og vopnaleit við-
höfð á Reykjavíkurflugvelli. Á Hótel
Sögu er, sem og víðar, búið að koma
fyrir vopnaleitartækjum.
Jóna Gunnarsdóttir, vaktstjóri
hjá Flugfélagi íslands á Reykjavík-
urflugvelli, segir að fullt eftirlit og
vopnaleit á farþegum hafi verið tek-
DV-MYNDIR GVA
Vopnalelt á Reykjavíkurflugvelli
Lögreglumennirnir Pétur Sveinsson og Gunnlaugur Valtýsson stóöu vaktina viö vopnarleitartækin á Reykjavík-
urflugvelli ásamt Jónasi Magnússyni.
Vopnaður skammbyssu
Jónas Magnússon var vopnaöur skammbyssu
af nýjustu gerö. Jóna Gunnarsdóttir, vaktstjóri
Flugfélags íslands, var því í þeirri sérstöku aö-
stööu aö njóta vopnaörar verndar og þaö á ís-
lenskum innanlandsflugvelli í Reykjavík.
in upp í innanlandsfluginu í
gærmorgun.
„Það fara allir í gegnum
vopnaleit og farþegar verða
að láta af hendi alla odd-
hvassa hluti eins og í utan-
landsfluginu. Nú má enginn
vera með hnífa eða odd-
hvassa hluti í handfarangri."
- Hefur þurft að taka mik-
iðaffólki?
„Nei, þaö hefur verið frek-
ar lítið.“
- Hvernig hafa farþegamir
tekið þessu?
„Þaö hefur gengið mjög
vel og farþegar hafa sýnt
þessu skilning og verið fljót-
ir hér í gegnum hliðin."
- Gildir einu hvert út á
land farþegar eru að fara?
„Já, og síðan er líka við-
búnaður úti á landi og þar
eru lögreglumenn á vakt. Hér í
Reykjavík em lögreglumenn ásamt
útlendingaeftirliti að störfum - allt
saman vanir menn.“
Jóna sagði að gagnvart farþegum
til og frá Færeyjum og Grænlandi
gilti nú fullt landamæraeftirlit líkt
og á Keflavíkurflugvelli. Beitt væri
vegabréfaskoðun samkvæmt undan-
þáguákvæðum um ytri landamæri
Schengen-svæðisins.
Vopnaðir skammbyssum
Lögreglumennimir Jónas Magn-
ússon, Pétur Sveinsson og Gunn-
laugur Valtýsson stóðu vaktina við
vopnarleitartækin á Reykjavíkur-
flugvelli. Fyrir íslendinga er það
óneitanlega sérkennileg sjón að sjá
okkar íslensku lögreglumenn vopn-
aða skammbyssum við að sinna eft-
irliti með farþegum í innanlands-
flugi. Þeir félagar vora hins vegar
nokkuð sannfærðir um að slíkt ætti
eftir að verða algengari sjón í fram-
tíðinni.
Þeir sögðu farþegana taka þessu
umstangi ótrúlega vel. Þetta væri þó
vissulega nokkuð sérstakt. Þannig
þurfti kona sem var á leið til Gjög-
urs til að sinna sauðburði að fara í
gegnum vopnaleit eins og allir aðr-
ir. Jónas nefndi einnig skemmtilegt
dæmi af Færeyingi, en þeir færu
helst aldrei af bæ nema hafa gamla,
góða vasahnífinn með sér. Hafi því
einum Færeyingi sem svo var ástatt
um verið boðiö að setja hnífinn sinn
í plastpoka og í geymslu á öruggum
stað. Honum fannst þetta greinilega
frekar vont mál er hann sagði:
„Hníflaus maður er líflaus maður.“
Án frekari mótþróa lét hann þó und-
an yfirveguðum og greinilega betur
vopnuðum íslenskum lögreglu-
mönnum. -HKr.
Tröllaskagagöng:
Mat á umhverfis-
áhrifum staðfest
Umhverfisráðherra, Siv Friðleifs-
dóttir, kvað upp úrskurð í gær, mánu-
dag, um mat á umhverfisáhrifum jarð-
ganga og vegagerðar á norðanverðum
Tröllaskaga, milli Siglufjarðar og
Ólafsíjarðar, vegna kæru frá Guðjóni
Jónssyni og Trausta Sveinssyni vegna
úrskurðar Skipulagsstofnunar frá 17.
október 2001. Ráðherra staðfestir úr-
skurð Skipulagsstofnunar þar sem
fallist er á fyrirhugaða jarðgangagerð
og vegagerð á Tröllaskaga, að við-
bættu skilyrði um að framkvæmdaað-
ili endurheimti í samráði við Náttúru-
vemd ríkisins votlendi a.m.k. til jafns
að flatarmáli og það votlendi sem
raskast eða verður fyrir áhrifum við
fyrirhugaða framkvæmd.
Trausti Sveinsson á Bjamargili í
Fljótum hefur verið talsmaður þess að
vegurinn fari upp úr Fljótum til Siglu-
fjarðar í stað þess að fara frá Siglu-
firði um Héðinsfjörð til Ólafsfjarðar
eins og fyrirhugað er.
„Það eru aðeins til samkvæmt íjár-
lögum um 300 milljónir króna upp í
þessa 7 milljarða króna framkvæmd
svo framkvæmdir byrja ekki strax.
Þetta er hrein pólitík, ekki hag-
kvæmni fyrir alla þá sem hag hafa af
þessari framkvæmd. Ég er ekki hætt-
ur þessari baráttu og mun á næstunni
birta opinberlega gögn um þetta mál,“
segir Trausti Sveinsson. -GG
Hundar bannaðir i
félagsbústöðum
- mismunun, segja leigjendur
Nokkurrar óánægju gætir með-
al leigjenda í leiguíbúðum Félags-
bústaða Reykjavíkurborgar þar
sem ekki er leyfilegt aö halda
hund í þeim. Bannið gildir þó öll-
um skilyrðum fyrir undanþágu
frá hundabanni í Reykjavík sé
fullnægt, svo sem að íbúðin sé
með sérinngangi eða að lagt sé
fram samþykki allra íbúa þegar
um fjöleignarhús með sameigin-
legum inngangi er að ræða. Leigj-
endur vilja meina að verið sé að
mismuna fólki þar sem þeir sem
eru á almenna leigumarkaðnum
geti leitað annars leigusala sem
leyfi hundahald en þeir sem leigja
hjá Félagsbústöðum hafi ekki um
annað að velja. Því sé jafnræöis
milli þegna borgarinnar ekki
gætt.
Öm Sigurðsson, skrifstofustjóri
hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu
Reykjavíkur segir að nokkuð sé
um að slík mál berist inn á borð
þeirra. Þá sé hundaeigandanum
sent bréf þar sem skorað er á
hann að losa sig við dýrið.
Það hefur yfirleitt gengið vel.
Sigurður Helgi Guðjónsson,
formaður Húseigendafélags-
ins, segir að það sé réttur
hvers húseiganda að setja
skilyrði og kvaðir á leigjend-
ur. Það eigi einnig við um
Reykjavikurborg. „Leigjendm-
eru í þeirri stöðu að verða
sætta sig við takmarkanir í
rikara mæli en þeir sem búa í
eigin húsnæði. Ég sé þetta
hins vegar ekki sem mismun-
un, lífið er meira og minna
óréttlátt og staða okkar í því
ræðst að einhverju leyti af
efnahag."
Sigurður segist skilja fylli-
lega þessa afstöðu Félagsbú-
staða því húsdýrahaldi fylgi
oft vandræði og árekstrar
sem komið er í veg fyrir með
banninu.
-ÓSB
Ekki velkomnir
Leigusala er fijálst aö ákveöa hvort leigj-
andi megi halda gæludýr og Reykjavíkur-
borg hefur tekiö þá ákvöröun aö banna
hundahald alfariö í leiguíbúöum sínum. íbú-
ar eru missáttir viö þá ákvöröun.
Landsvirkjun:
Leggur nýja
Sultartangalínu
Landsvirkjun hyggst leggja 400
kV háspennulínu, Sultartangalínu
3, frá tengivirki við Sultartangastöð
að aðveitustöð Landsvirkjunar á
Brennimel á Hvalfjarðarströnd. Til-
gangur með byggingu línunnar er
að auka flutningsgetu raforkukerf-
isins að aðveitustöðinni á Brenni-
mel, vegna mögulegrar aukningar
orkunotkunar á þjónustusvæði
hennar, svo sem vegna stækkunar
Norðuráls á Grundartanga. Einnig
er línan mikilvægur áfangi í upp-
byggingu 400 kV flutningskerfis
Landsvirkjunar. Um umhverfis-
matsskylda framkvæmd er að ræða.
Athugasemdir skulu berast fyrir 19.
júní nk.
Línan verður að mestu lögð við
hliðina á Sultartangalínu 1 (220 kV)
frá Sultartangastöð að Uxahryggj-
um, en þó með fráviki til norðurs
við Háafoss og Gullfoss. Frá Uxa-
hryggjum að botni Grafardals liggur
línuleiðin um Botnsheiði (en á þeim
kafla er Sultartangalína 1 í Skorra-
dal). f innanverðum Grafardal liggja
línumar samsíða, en á móts við
Grafardalsbæinn beygir Sultar-
tangalína 3 frá eldri línunni og fer
yfir vestanveröa Botnsheiði að Kú-
hallardal, og síðan út dalinn vestur
á Ferstikluháls.
Úr Þjórsá og Tungnaá fæst 75% af
rafmagninu á fslandi. Með virkjun
þeirra hefur ferðamennska um
svæðið stóraukist.
-GG
Framlög til íþrótta:
Einsetning
skekkir myndina
Gunnlaugur
Júlíusson, yfir-
maður hjá Sam-
bandi sveitarfé-
laga, segir ekki
rétt að framlög
til íþróttamála
hafi fækkað
sem hlutfall af
skatttekjum hjá
sveitarfélögum.
í erindi íþrótta-
fulltrúa Sand-
gerðisbæjar á
Akureyri sl. fóstudag kom fram að
svo væri ef annars vegar væri mið-
að við framlögin árið 1995 og hins
vegar árið 2000, en Gunnlaugur seg-
ir að ákveðna forsendu vanti í út-
reikninginn.
„Þaö sem gerist í millitíðinni er
að sveitarfélögin taka yfir grann-
skólann 1996-1997 þannig að skatt-
tekjur þeirra vaxa verulega, sem og
útgjöld einnig,“ segir Gunnlaugur.
Hann telur að með framreikningi sé
hægt að sýna fram á að framlög hafi
hækkað verulega að raungildi. Yfir-
taka grunnskólanna breyti öllum
viðmiðunum. -BÞ
Sumarhús brann
til kaldra kola
Sumarhús i landi Syðri-Brúar í
Grímsnesi brann til kaldra kola í
nótt. Bóndi í nágrenninu varð var
við torkennilega lykt og fór að gæta
að hvað ylli. Gróður umhverfis bú-
staðinn brann einnig á um 200 fer-
metra svæði en næstu hús sluppu
þrátt fyrir vindbelginginn sem var,
en bústaðurinn stendur í nokkuð
þéttri sumarhúsabyggð. Rannsókn
beinist að rafmagni sem orsök
eldsins. Lögreglunni á Selfossi var
einnig tilkynnt um þjófnað á kerru
á Stokkseyri sem stóð upp við hús,
full af garðúrgangi. Úrgangurinn
fannst utan vegar í nágrenninu, en
hvorki tangur né tetur af kerranni.
-GG