Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
Sport
Sterkur í lokin
Kobe Bryant reyndist sínum mönn-
um í Los Angeles Lakers enn og aft-
ur bjargvættur þegar hann vann
nánast upp á eigin spýtur upp 10
stiga forskot San Antonio Spurs á
síöustu sex mínútum leiksins og
tryggöi tveggja stiga sigur, 85-87.
Liöin halda nú til Los Angeles þar
sem heimamenn geta tryggt sér
sæti í úrslitum vesturdeildarinnar
meö sigri.
Úrslitakeppni NBA í fullum gangi:
Lakers og Kings
í góðum málum
Kvennahandbolti:
Hrafnhildur
til Danmerkur
Landsliðs-
konan Hrafn-
hildur Skúla-
dóttir mun að
öllum likind-
um skrifa
undir samn-
ing við
danska úr-
valsdeildarfé-
lagið Tvis
Holsterbro í sumar en Hrafnhild-
ur hyggst þó ekki gera neitt í
málinu fyrr en verkefnum
landsliðsins lýkur í júní.
Danska liðið vann sér sæti i
dönsku úrvalsdeildinni í vetur
en þetta mun vera sama lið og
Haukamaöurinn Sigurður Þórð-
arson lék með í fyrravetur.
Það er ljóst að kvennalið Vals
hefur hér orðið fyrir miklum
missi því Hrafnhildur var annar
markahæsti leikmaður Esso-
deildar kvenna í vetur og skor-
aði þar 109 mörk í leikjunum 16
eða 6,8 mörk í leik. -BB
Það lítur út fyrir að Los Angeles
Lakers mæti Sacramento Kings í úr-
slitum vesturstrandarinnar en það
síðamefnda bar sigurorð af Dallas
Mavericks í nótt, 114-101, og þar
með 4-1 í einvíginu öllu.
Lakers standa vel að vígi þegar
iiðið heldur aftur á heimavöll eftir
tvo leiki í San Antonio með 3-1 for-
ystu. Ástandið var ekki jafn gott eft-
ir fyrstu tvo leikina sem báðir voru
í Los Angeles en þá vann hvort lið
sinn sigurinn. Lakers spýttu hins
vegar í lófana og gerðu sér lítið fyr-
ir og unnu báða leikina á útivelli.
Sem fyrr voru það Shaquille O’Neal
og Kobe Bryant sem voru í aðalhlut-
verki og ljóst að smámeiðsli hamla
þeim ekki.
Tim Duncan fór fyrir sínum
mönnum á sunnudag og gekk vel
framan af, þegar rúmar 6 mínútur
vom eftir leiddu San Antonio með
10 stigum en þá tók Kobe sig til og
skoraði 10 af 13 stigum liðsins síns
gegn aðeins 1 frá heimamönnum og
tryggði tveggja stiga sigur.
Úrslit á sunnudagskvöld:
Charlotte-New Jersey . . 79-89 (1-3)
Davis 20, Lynch 19, Wesley 15 - Kidd 24
(11 frák.), Kittles 20, Van Hom 16 (11
frák.).
Boston-Detroit........ 90-79 (3-1)
Walkers 30, Pierce 25 (17 frák.), Delk 16 -
Robinson 24, Stackhouse 16, Williamson
12.
San Antonio-LA Lakers . 85-87 (1-3)
Duncan 30 (11 frák.), Parker 15, Robinson
12 (11 frák.) - Bryant 28, O'Neal 22 (11
frák.), Horry 13.
Úrslit í nótt:
Sacramento-DaUas ... 114-101 (4-1)
Webber 23, Bibby 23, Turkoglu 20 (13
frák.) - Nowitzki 32 (12 frák.), Finley 26,
Grifiin 14
Ferrari-liðið sætir afar harðri gagnrýni:
Formúlunni til há-
borinnar skammar
Svo gæti farið að Michael
Schumacher gæti tapað stigunum
10 sem hann vann sér inn með
„sigrinum“ í Al-kappakstrinum í
Austurriki á sunnudag.
Eins og kunnugt er leiddi félagi
Schumachers, Brasilíumaðurinn
Rubens Barrichello, kappakstur-
inn af mikilli reisn og hefði auð-
veldlega unnið sigur ef ekki hefði
verið fyrir tilmæli yfirmanna
Ferrari að afhenda Schumacher,
sem var skamman spöl á eftir
Barrichello, sigurinn á síðustu
metrunum.
Þessi ákvörðun hefur dregið
ansi mikinn dilk á eftir sér því úr
öllum heimshornum berast
harkaleg mótmæli vegna atviks-
ins þar sem inntakið er að það sé
íþróttinni til háborinnar skamm-
ar.
Schumacher hefur unnið 5 af 6
keppnum tímabilsins til þessa en
Barrichello aðeins einu sinni á
öllum sinum ferli.
En Ferrari barst stuðningur úr
ólíklegustu átt, frá Skotanum
David Coulthard. „Ég held ekki
að þetta sé íþróttinni til skammar
þar sem hún sé bundin viðskipta-
legum samningum. Hin virkilega
spuming er sú hvort þetta hafi
verið „áhorfendavæn“ ákvörðun.
Viðbrögð þeirra á Al-brautinni
voru bersýnileg.
Við stólum á áhorfendur og án
þeirra liggur leiðin niður á við,
og það hratt," sagði Coulthard.
Téður Skoti skapaði svipaðan
usla þegar hann hleypti þáver-
andi félaga sínum hjá McLaren
fram úr sér í Ástralíu árið 1999.
En eins og áður segir gæti
Schumacher tapað stigunum eftir
allt saman. Ferrari hefur verið
stefnt fyrir Alþjóða aksturs-
íþróttasambandið þann 26. júní
vegna atviksins en þó svo að
Ferrari-liðið hafi tæknilega séð
ekki brotið neinar reglur er talið
að það sé kallað á teppið einfald-
lega vegna „óiþróttamannslegrar"
framkomu. -esá
„Faröu bara fram úr, vinur.“ - Rubens afhenti Michael stigin 10.
•• Sundmót í Esbjerg:
Orn setti tvö
íslandsmet
Örn Amarson, sundmaður úr SH,
setti tvö Islandsmet á opnu sund-
móti í Esbjerg í Danmörku. Fyrra
mettið setti Öm 1 100 metra fjór-
sundi, synti á 55,38 sekúndum, og
það síðara í 50 metra flugsundi en
þá vegalengd synti hann á 24,40 sek-
úndum.
Árangur Amars í 100 metra fjór-
sundi er sérlega góður en gamla
metið hans var 56,05 sekúndur.
Þetta afrek gaf honum að verða
þriðji stigahæsti sundmaður móts-
ins.
Örn keppti í átta sundgreinum,
vann sex og varð í öðm sæti í
tveimur. Hann hélt að mótinu loknu
til Óðinsvéa þar sem hann mun æfa
næstu tvær vikurnar með Anders
Bo Pedersen, einum sterkasta sund-
manni Dana í dag.
Næsta stórmót
Amars verður þátt-
taka í Evrópu-
meistaramótinu
sem haldið verður í
Berlín í lok júli.
-JKS
Landslið karla í handknattleik:
Undirbúningur
hafinn fyrir alvöru
Undirbúningur íslenska A-
landsliðs karla í handknattleik
fyrir leikina gegn Makedóníu í
forkeppni heimsmeistaramótsins
hófst í gær. í hópinn vantar þá
leikmenn sem leika í þýsku úr-
valsdeildinni og í Frakklandi.
Þessir leikmenn koma til móts við
liðið eftir fjögurra landa mótið í
Antwerpen um aðra helgi. Þaðan
heldur fullskipað lið til Grikk-
lands þar sem leikið verður við
heimamenn áður en haldið verður
til Skopje í Makedóníu. Það má
því ljóst vera að undirbúningur
með fullskipað lið verður stuttur
en atvinnumenn era bundnir sín-
um félögum þangað til tímabilinu
lýkur.
Fyrri leikurinn við Makedóníu
verður 2. júní en síðari viðureign-
in verður 9. júní í Laugardalshöll-
inni. Baráttan stendur um það
hvor þjóðin tryggir sér sæti í loka-
keppni heimsmeistaramótsins
sem verður í Portúgal í janúar nk.
Landsliðið æfir daglega þessa
viku fram helgi og kemur síðan
saman aftur á mánudag og æfir
fram að brottfór til Antwerpen.
Auk íslendinga á mótinu þar
keppa Danir, Sviar og Júgóslavar.
Þar fá yngri leikmenn tækifæri til
að sýna hvað I þeim býr en ljóst er
að allar þátttökuþjóðir verða án
sinna manna sem leika í efstu
deildum í Evrópu en deildar-
keppnum lýkur víðast hvar ekki
fyrr en 25. maí.
-JKS
-esá/ek