Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Síða 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR___________________________________120. TBL. - 92. ÁRG. - MIDVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Ríkið stefnir í minnihluta í Landsbankanum - Búnaðarbankinn bjartsýnn á sölu:
Líklegt taliö að markað-
urinn ráði við útboðið
Líklegt er aö markaðurinn ráði
við útboð það, sem ríkisstjómin
ákvað í gær að efna til á 20% af
heildarhlutafé í Landsbanka íslands.
Þetta kemur fram í hálffimm-fréttum
Búnaðarbankans.
Um er aö ræða allt að 5 milljarða
króna að markaðsvirði miðað við
gengi bréfanna undanfarnar vikur.
Það er tíu sinnum meira en meðal-
mánaðarvelta bréfa Landsbankans
undanfama 12 mánuði. Sérfræðing-
ar Búnaðarbankans benda hins veg-
ar á að lítið hafi verið um útgáfu
nýrra hlutabréfa upp á síðkastið; af
því megi draga þá ályktun að mark-
aöurinn ráði við útboð af þessari
stærðargráðu. Hámarkshlutur sem
einstakur fjárfestir má kaupa í út-
boðinu nemur 4% af heildarhlutafé
bankans.
Hlutur ríkisins í bankanum fer úr
68% i 48% seljist bréfm öll og mun
ríkið þá óska eftir hluthafafundi þar
sem kosið verður nýtt bankaráð.
Stefnt er að því að útboðið hefj ist um
miðjan júní og standi í allt að einn
mánuð.
„Þetta slær mig ekki sérstaklega
vel. Ég hélt satt að segja að ríkis-
stjórnin hefði fengið nóg kjaftshögg í
sambandi við óðagot og klúður í
einkavæðingarmálum," sagði Stein-
grimur J. Sigfússon í morgun.
Steingrímur segir óvíst að mark-
aðurinn sé undir útboðið búinn;
þ.a.l. sé hætt við að ekki fáist fullt
verð fyrir þessa eign almennings. Þá
segir hann það fyrir neðan aliar hell-
ur að ekki hafi verið kannað til hlít-
ar hvort hægt sé að tryggja dreifða
eignaraðild að bönkunum.
„Nóg er fákeppnin og samþjöppun-
in í íslenskum viðskipta- og fjár-
málaheimi þótt ekki sé bætt gráu
ofan á svart með því að bjóða heim
hættunni á enn meiri samþjöppun.
Mér fmnst þetta þess vegna ótrúlega
gáleysislega gert,“ segir Steingrím-
ur.
„Samfylkingin hefur verið fylgj-
andi einkavæðingu ríkisfyrirtækja í
samkeppnisrekstri," segir Bryndís
Hlöðversdóttir, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar. „í ljósi reynsl-
unnar af einkavæðingu Landssím-
ans og Búnaðarbankans er þessari
ríkisstjórn hins vegar tæplega
treystandi til að framkvæma hana,“
segir Bryndís. -ÓTG
Kostnaður við Rúmenana orðinn 2,2-2,5 milljónir
Ríkislögreglustjóraembættiö mun þurfa aö greiöa feröakostnaö fyrir tvo af nítján Rúmenum frá Danmörku til Þýskalands eftir aö Norræna kemur þangaö.
Túlkakostnaöur er oröinn 400-500 þúsund krónur, matarkostnaöur og vasapeningar sem Rauöi krossinn greiöir er um hálf milljón, Félagsmálastofnun greiöir
hátt í hálfa milljón vegna feröakostnaöar. Lögreglan í Reykjavík veröur fyrir mörg hundruö þúsund króna kostnaöi. Á innfelldu myndinni sést aö
einn úr hópnum kveöur höfuöborgina meö viöeigandi hætti.
Lögreglufylgd í skip:
Sígaunarnir
gistu í þremur
bílum á
Klaustri í nótt
- fjórði bíllinn leigður
19 Rúmenar gistu á Kirkjubæjar-
klaustri í nótt - þar af 17 í þremur
sendiferðabílum.
Hópurinn kom á Klaustur á ellefta
timanum í gærkvöld. Leiðangurinn er
í fylgd fjögurra lögreglumanna úr
Reykjavík, fulltrúa Útlendingaeftirlits-
ins og túlks en gert er ráð fyrir að 25
manna hópurinn komi síðdegis til
Seyðisfjarðar en þaðan fer Norræna á
morgun.
Það var funm bíla lest sem ók að
þorpinu á Klaustri í gærkvöld. Þar af
var einn stór Econoline-fólksflutninga-
bill sem flutti 11 af Rúmenunum. Þenn-
an bíl þótti nauðsynlegt að leigja þar
sem Benz-sendibílar sígaunanna eru
aðeins skráðir fyrir 8 manns. Það er
lögreglan i Reykjavík sem verður að
greiða fýrir þennan bíl ofan á hundruð
þúsunda kostnað sem þegar er orðinn
hjá embættinu vegna komu fólksins.
Rúmenskir feðgar, búsettir í Þýska-
landi, sem eru í samfloti með löndum
sínum, fengu gistingu á Klaustri í nótt
eins og fylgdarfólkið.
Kostnaður vel á aöra milljón
Til að koma fólkinu úr landi þarf að
greiða fyrir það fararkostnað með
Norrænu til Hanstholm i Danmörku,
þess staðar þar sem lagt var af stað
hingað. Félagsþjónustan í Reykjavík
leggur út um 400 þúsund krónur vegna
þessa - þeir fjármunir fást síðan end-
urgreiddir til þjónustunnar úr ríkis-
sjóði. Rauði krossinn sér síðan um að
láta fólkið fá peninga fyrir mat á leið-
inni. Lögreglan í Reykjavík hefur orð-
ið fyrir miklum fjárútlátum vegna
komu þessa hóps. Þeir fjármunir eru
teknir beint af fjárlögum embættisins.
-Ótt
EYJAMENN LÖGÐU
FRAMARA:
Stórleikur
Birkis í
marki
Eyjamanna
27
MINNINGARTÓNLEIKAR UM
SÖNGVARANN BUCKLEY: j
Lifnar við í
Þjóöleikhúsinu |
21
Reynisvatn
Veiðistaður fjölskyldunnar
Opið alla daga
Nýir rekstraraðilar
Borgarveiði ehf.