Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 17
MIÐVKUDAGUR 29. MAÍ 2002
17
Sóknarsigur Samfylkingarinnar
Ossur
Skarphéöinsson
formaöur
Samfylkingarinnar
Út úr kosningunum á
laugardaginn stígur Sam-
fylkingin fram á sviðið
sem þroskað og trúverð-
ugt stjórnmálaafl. Flokk-
urinn vann mjög góðan
sóknarsigur. Samfylkingin
hlaut yfir 31% atkvæða
þar sem hún bauð fram
undir eigin nafni. Á mörg-
um öðrum stöðum lagði
hún til burðarásana þar
sem sameiginleg framboð
unnu góða sigra og sums
staðar hreina meirihluta.
Gleggsta dæmið er auð-
vitað í Reykjavík. Per-
sónulegur styrkur borgar-
stjóra úr röðum Samfylk-
ingarinnar tryggði yfir-
burðasigur á Sjálfstæðis-
flokknum.
Samfylkingin hefur síðustu
mánuði verið í öruggri sókn. Hún
hefur öðlast trúverðugleika og
traust kjósenda. Þetta hefur birst í
skoðanakönnunum siðustu mán-
uði. Þar hefur Samfylkingin verið
með næstmest fylgi íslenskra
stjómmálaflokka. Þær hafa sýnt
flokkinn með 26-28% i Reykjavík,
um 25% á Reykjanesi og kringum
20% annars staðar. Úrslitin á laug-
ardaginn eru i prýðilegu samræmi
við þetta. Samfylkingin er nú
næststærsti stjórnmálaflokkur
landsins.
Samfylking eða Vinstri grænir
Samfylkingin hefur langt í frá
slitið bamsskónum. Hún er rétt
orðin tveggja ára. Aflir vita að það
tekur tíma fyrir nýjan flokk að
festa sig í sessi. Fyrstu sporin voru
Samfylkingunni erfið. Hún ögraði
þeim flokkum sem fyrir voru, sér-
staklega Sjálfstæðisflokknum. Fyr-
ir vikið sætti hún linnulausum
árásum þeirra. Ófáir fjölmiðlungar
tóku þátt í þeim leik einsog menn
muna. En í þraut skal flokk
þekkja.
Mótlætið herti Samfylkinguna,
jók baráttuandann og styrkti
þannig innviðina. Ég get með stolti
sagt að enginn stjómmálaflokkur
hefur sýnt meiri seiglu en Sam-
fylkingin. Sú seigla birtist í úrslit-
unum á laugardaginn. Þá uppskár-
um við afdráttarlausa traustsyfir-
lýsingu kjósenda fyrir þrotlausa
vinnu siðustu missera við að
styrkja innviði hreyfingarinnar og
meitla jákvæð og fersk stefnumál.
Ég sagði í grein rétt fyrir kosn-
ingar að þær yrðu prófsteinn fyrir
nýju flokkana tvo sem hafa orðið til
á vinstri vængnum. í kosningunum
myndi bakland þeirra birtast. Þar
með kæmi í Ijós hvort kjósendur
vildu heldur styrkja Samfylking-
una eða Vinstri græna til mótvægis
við Sjálfstæðisflokkinn.
í dag blasir við öllum hvaða
flokki stjómarandstöðunnar kjós-
endur treysta best til að verða
öfgalaust og málefnalegt mótvægi
við ofurveldi Sjálfstæðisflokksins.
Kjósendur völdu Samfylkinguna.
Hún er flokkurinn sem kjósendur
treysta best í dag til að verða hinn
sterki póll vinstra megin á miðj-
unni.
Þríflokkurinn birtist
Stofnun Samfylkingarinnar var
einbeitt tilraun til að sameina jafn-
aöarmenn i einn flokk. Nokkrir for-
ystumenn á vinstri vængnum klufú
sig frá og mynduðu Vinstri græna.
Þeir hafa á köflum farið með himin-
skautum í skoðanakönnunum. Um
hríð hallaði drjúgt á Samfylking-
una. Ég og fleiri sem höfum ýmsa
fjöruna sopið í stjómmálum vörað-
um jafnan við því að oftúlka niður-
stöður skoðcmakannana.
Kjaftastéttimar, einsog sumir
kalla þá sem vinna fyrir sér með
munninum í fjölmiðlum, vora hins
vegar drjúgar við að túlka kannan-
ir á þann veg aö sameining jafnað-
armanna hefði mistekist. Vafalítið
hjálpaði sú síbylja, sem á köflum
dundi markvisst yfir neytendur
hins talaða orðs, við að koma
þeirri skoðun að í vitund margra
að Samfylkingin hefði ekki haft er-
indi sem erflði. Éjórflokkurinn
lifði áfram, með breytingum á
nöfnum og númerum.
Niðurstaða kosninganna er hins
„Niðurstaða kosninganna er hins vegar með allt
öðrum hœtti. Kjósendur tóku völdin í sínar hendur
og höfnuðu gamla fjórflokkakerfinu.“ - Sigurvegar-
ar í Reykjavík fagna niðurstöðunni.
vegar með allt öðrum hætti. Kjós-
endur tóku völdin í sínar hendur
og höfnuðu gamla fjórflokkakerf-
inu. Afhroð Vinstri grænna þýðir
að á sveitarstjómarstiginu er nú
þriggja flokka kerfi við lýði. Úrslit-
in á laugardag fela þannig í sér af-
dráttarlausan stuðning við sam-
einingu jafhaðarmanna.
Meðal vinstrisinnaðra kjósenda
fékk Samfylkingin yfirburðafylgi.
Þá niðurstöðu er tæpast hægt að
túlka öðruvísi en sem afdráttar-
lausa traustsyfirlýsingu við þá
sem börðust fyrir sameiningu jafn-
aðarmanna. í því felst ekki minnst
sigur flokksins á laugardaginn.
Tilraunin er að takast.
31% og 45 bæjarfulltrúar
Alls bauð Samfylkingin fram á
um fimmtán stöðum. Þeir eru
Akranes, Akureyri, Árborg, Dala
byggð, Garðabær, Grindavík
Hafnarfjörður, Húnaþing vestra
Hveragerði, ísafjörður, Kópavogur
N-Héraö, Reykjanesbær, Siglu-
fjörður, Stöðvarfjörður. í þessum
hópi eru öll stærstu og fjölmenn-
ustu sveitarfélög landsins, aö
Reykjavík undanskilinni. Á
nokkrum öðrum stöðum voru
sterk framboð borin uppi af félög-
um í Samfylkingunni þó þau væra
ekki beinlínis undir flaggi flokks-
ins. Grindavík og Sandgerði eru
dæmi um það.
I þessum sveitarfélögum vora
greidd rúmlega 59 þúsund at-
kvæði. Af þeim fengu listar Sam-
fylkingarinnar 18.539 atkvæði.
Samfylkingin hlaut því 31,4% fylgi
í þeim. Það sýnir ótvíræðan styrk
flokksins og sannar hversu vel
uppbygging og ræktun flokks-
starfsins hefúr gengið.
Til samanburðar má nefna að
meöalfylgi Framsóknarflokksins
var tæp 24%. Vinstri grænir náðu
6,6% fylgi í þeim sveitarfélögum
sem þeir buðu fram í. í þessu ljósi
dylst engum hversu sterk Samfylk-
ingin kemur út úr kosningunum.
Styrkur Samfylkingarinnar birt-
ist með jafn afdráttarlausum hætti
þegar fjöldi bæjarfulltrúa er skoð-
aður. Þar sem Samfylkingin bauð
fram ein og sér, eða þar sem nafn
hennar kom fyrir í heiti framboða,
telst mér til að flokkurinn eigi
ekki færri en 45 bæjarfulltrúa. Þá
eru ótaldir bæjarfulltrúar sem eru
félagar í Samfylkingunni en til-
heyra sameiginlegum framboðum.
Þetta era því mörgum sinnum
fleiri fulltrúar en Vinstri grænir
eiga að kosningum loknum.
í dag er óþarfi að rifja upp
hrakspár fjölmiðla. Fylgi upp á
31,6% og 45 bæjarfulltrúar í
stærstu sveitarfélögum landsins
sýna ótvírætt að Samfylkingin nýt-
vu nú mikils trausts meðal kjós-
enda.
Sögulegur sigur í Hafnarfirði
Sætasti sigur Samfylkingarinn-
ar vannst i Hafnarfirði. Undir for-
ystu tvíeykisins Lúöviks Geirsson-
ar og GunnEurs Svavarssonar felldi
Samfylkingin meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar. Sex
bæjarfulltrúar hennar náðu kjöri
og unnu hreinan meirihluta. Sigur
af þessari stærðargráðu hefur
aldrei unnist í Hafnarfirði síðan á
fjórða áratugnum, þegar Alþýðu-
flokkurinn náði svipaðri stærð.
Sigur Samfylkingarinnar er því
sætari þegar haft er í huga að
Hafnarfjörður er þriðja stærsta
sveitarfélag landsins. Flokknum er
ákaflega mikilvægt að ná þeirri
breidd í mannvali og pólitískri
stefnu að íbúar í bæjarfélagi af
þeirri stærðargráðu velji hann til
afgerandi forystu. Pólitískt mikil-
vægi sigurs Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði er þó meira en það
sem snýr aö Samfylkingunni
einni. Afrek okkar manna í Hafn-
arfirði eru nefnilega líkleg til að
verða afdrifaríkari fyrir þróun
samfélags okkar en skilst í fljótu
bragöi.
í Hafnarfirði háðu menn stórorr-
ustu um grundvallaratriöi. Þar
hafði Sjálfstæðisflokkurinn gert
bæinn að pólitísku tilraunaeldhúsi
þar sem uppskriftir að einkavæð-
ingu á félagslegri þjónustu vora til
reynslu. Umdeildar aðferðir einka-
ffamkvæmdar vora notaðar til að
reisa skóla og drápsklyfjar skulda
þannig lagðar á Hafnftrðinga inn í
framtíðina. Öllu verri tilraun var
svo gerð með hreina einkavæðingu
á kennslu grunnskólabama.
Gegn þessu barðist Samfylking-
in hatrammlega. Hafnfirðingar
guldu sjálfstæðismönnum rauöan
belg fyrir gráan. Þeir höfnuðu
einkavæöingunni með eftirminni-
legum hætti. Þessi niðurstaða þýð-
ir að öflum líkindum að sjálfstæð-
ismenn munu ekki leggja í frekari
einkavæðingu á grunnskólanum,
eða annarri félagslegri þjónustu, i
þeim sveitarfélögum þar sem þeir
náöu hreinum meirihluta.
Sveiflan í Árborg
í Árborg vann Samfylkingin
ekki síðri sigur með frábærlega út-
færðri kosningabaráttu. S-listinn
bætti við sig heilum 14% frá fylgi
sameinaðs framboðs vinstri
manna fyrir fjórum árum. Sam-
fylkingin fékk alls ríflega 40% at-
kvæða og er nú langstærsti flokk-
urinn í Árborg.
Sama sveifla feykti burt meiri-
hluta sjálfstæðismanna í Hvera-
gerði. Þar þrefaldaði Samfylkingin
næstum fylgi sitt, hlaut 26,4% og
velti meirihluta sjálfstæðismanna.
í Vestmannaeyjum var meirihluti
sjálfstæðismanna líka felldur af
framboði sem leitt var af þing-
manni Samfylkingarinnar. í Þor-
lákshöfn er Samfylkingin i viðræð-
um um myndun meirihluta.
Pólitísk staða á Suðurlandi er
því gerbreytt. Þar skiptir ekki
minnstu máli fyrir Samfylkinguna
að ótrúlegt mannval á vegum
flokksins er þar komið í fremstu
víglínu. Fyrstu sporin þar eru
sannarlega sigursæl.
Buröarásar úr Samfylkingu
Staöa Samfylkingarinnar er
einnig mjög góð á suðvesturhluta
landsins. I Hafnarfirði fengum við
50,2%, í Reykjanesbæ 33,1%, fram-
boð á hennar vegum fékk tæp 43%
í Grindavík, listi sem flokkurinn
studdi í Vogum fékk 57,5% og í
Sandgerði 42,5%, i Kópavogi, þar
sem Samfylkingin bauð nú fram í
fyrsta skipti, fékk hún 28,3% og á
Akranesi 32,4%.
Á Norðurlandi er Samfylkingin
greinilega í sókn. Á Siglufirði
vannst hreinn meirihluti af lista
sem var borinn uppi af Samfylk-
ingunni. Nýr, hreinn meirihluti
vannst í Ólafsfirði af lista þar sem
Samfylkingin lagði til burðarás-
ana. Sama gildir um Húsavík, þar
sem sameinaður vinstri listi hélt
meirihluta. Það er sögulegur
áfangi.
Á Akureyri var flokknum spáð
mikilli hrakför af fjölmiðlum sem
töldu Vinstri græna myndu reyta
af honum aflt fylgi. Niðurstaðan
varð á annan veg. Glæsileg kosn-
ingabarátta jók fylgið úr 4% í upp-
hafi í 14%. Til samanburðar má
nefna að VG hlaut 8,7%. Niöur-
staðan á Akureyri var góður varn-
arsigur. Mestu skiptir að Samfylk-
ingin á Akureyri hefur treyst inn-
viði sína og er í góðum færam til
að bera uppi kosningabaráttu
flokksins í kjördæminu að ári.
Á Vestfjörðum kom illa innrætt-
ur túkall í veg fyrir í hlutkesti að
sameinað framboð vinstri aflanna,
sem Samfylkingin studdi, felldi
lífseigan meirihluta sjálfstæðis-
manna í Bolungarvík. Fjórðungs-
fylgi okkar á ísafirði, þar sem sex
listar buðu fram, er jafnframt góð-
ur grunnur til að byggja á öflugra
starf flokksins vestra.
Sögulegt afhroð
í Reykjavík leiddu ótviræðir yf-
irbm-ðir Ingibjargar Sólrúnar til
þess að sigur okkar manna var
aldrei í hættu. Úrslitin í Reykjavík
eru ósigur forystu Sjálfstæðis-
flokksins. Hún tjaldaði öllu sem til
var - handvaldi stýrimanninn og
ruddi skipið svo Björn Bjamason
kæmist án baráttu í forystusætið.
Hún jós ótrúlegu fjármagni í bar-
átúma og lagði allt í hana sem
hægt var. Niðurstaðan var sögu-
legt afhroð.
Úrslitin á laugardaginn styrktu
Samfylkinguna verulega. Flokkur-
inn kemur úr þeim sem þroskað
stjórnmálaafl sem heyr baráttu
sína á rólegum og málefnalegum
grunni. Hún nýtur nú trúnaðar
kjósenda sem langöflugasti val-
kosturinn gegn ofurvaldi Sjálf-
stæðisflokksins.
SEunfylkingin stóðst sitt fyrsta
próf með glæsibrag.
Össur Skarphéðinsson