Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Qupperneq 18
18 Tilvera MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 DV Þorpskakan bökuð Listakonan og börnin bökuöu kökuskúlptúr sem var eftirlíking af byggöinni á staönum. Hápunktur listaveislunnar var svo át kökunnar. DV-MYNDIR GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Litadýrð Holly Hughes töfrar fram ýmsa liti sem Flateyringar notuöu til aö setja fingraför sín á skólabyggingu staöarins og lýsa um leiö kostum pess aö búa par. Bandaríska listakonan Holly Hughes á Flateyri: Kom siglandi á skútu utan úr heimi - og kennir íbúum að sjá þorpið í nýju ljósi „Börnunum fmnst þetta æðislega gaman og taka þátt í þessu öllu af llfi og sál. Þetta er eitthvað sem þau hafa ekki upplifað áður,“ sagði Vig- dís Garðarsdóttir, skólastjóri á Flat- eyri. Bandaríska íjöllistakonan og heimshomaflakkarinn Holly Hug- hes hefur að undanfomu verið á Flateyri og unnið með grunnskóla- börnum að listsköpun þar sem um- hverfíð á staðnum er meginvið- fangsefnið. Meðal annars voru þorpsbúar hvattir til að mæta að grunnskólanum en hluti skólahúss- ins var málaður með frjálsri aðferð og settu íbúarnir handarfar sitt þar á og skrifuðu við stutta skýringu á því hvað væri best við að búa á Flat- eyri. Það voru bömin sem komu með hugmyndir að verkum og listakon- an færði þau í búning. Meðal ann- ars var gerður stór kökuskúlptúr, eins konar þorpskaka, með lögun þorpsins og skein ánægja úr hverju andliti þar sem börnin hópuðust með Holly við kökugerðina. Á kök- unni voru lítil hús, litlir bátar og fleira sem einkennir lítið íslensk sjávarþorp. Holly Hughes hefur síðustu 12 ár ferðast um heiminn á skútu og að vonum komið víða við. Á síðasta sumri kom hún til Vestfjarða á skútu sinni og þá meðal annars til Flateyrar þar sem hún gekk um fjöll og fimindi og tók mikið af mynd- um. í vetur hafði hún vetursetu á Isafirði og hefur starfað með böm- um og unglingum þar. Veru Holly á Flateyri lauk með því að heima- menn komu saman í félagsheimili staðarins og gæddu sér á þorpskök- unni ásamt þvi að skoða ljósmynda- sýningu listakonunnar. „Það sem Holly gerði var að fá íbúana til að draga fram allt það jákvæða sem Flateyri hefur yfir að búa og það tókst rækilega enda margt sem byggðin héma státar af,“ segir Vig- dís skólastjóri. -GS Bjartar nætur á Austfjörðum - Austfirðingar sýna Cosi van tutte í Borgarleikhúsinu Austfirðingar slá ekki slöku við i flutningi ópera þrátt fyrir slaka aö- stöðu og mikinn tilkostnað. Óperu- stúdíó Austurlands stendur árlega fyrir tónlistarhátíðinni „Bjartar nætur í júní“. Markmið Óperustúd- íós Austurlands er að efla menning- arstarfsemi á Austurlandi og gefa ungu listafólki tækifæri til að spreyta sig á nokkrum þekktustu verkum tónlistarbókmenntanna. Laugardaginn 8. júní nk. verður frumflutt óperan Cosi fan tutte eftir Mozart á Eiðum. Hún verður svo sýnd á sunnudag og þriðjudaginn 11. júní en lokasýning er fimmtu- daginn 13. júní. Mánudaginn 10. júní mun Kammerkór Austurlands svo flytja íslenska og erlenda kór- tónlist í Egilsstaöakirkju, m.a. tón- list eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Samuel Barber og Poulenc. Einnig verða flutt létt íslensk þjóðlög. Þessi efnisskrá er sú sama og kór- inn flytur í Litháen í sumar en þar fer fram kóramót Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og hefur kómum hlotnast sá heiður að vera boðin þátttaka í mótinu sem fulltrúi Is- lands. Miðvikudaginn 12. júni er boðið til Mozart-tónlistarveislu í Eskifjarðarkirkju þar sem fluttir verða forleikir, dúettar og aríur úr Mozart-óperum ásamt fagott- konsert, hornakonsert og fiðlu- konsert. íbúar höfuðborgarsvæðisins fá einnig að njóta óperunnar því Aust- firðingarnir verða í Borgarleikhús- inu i Reykjavík laugardaginn 15. júní og sunnudaginn 16. júní. -GG I rauðu stofunni „Ég á ekki sjálf um sárt aö binda vegna sjálfsvíga en vil styrkja samtökin, “ segir Olga Pálsdóttir myndlistarkona. Styrkir samtök gegn sjálfsvígum: Gefur söluhagnað í fréttum RÚV sl. mánudagskvöld var sagt frá fjárhagslegum eifiðleik- um Samtaka gegn sjálfsvígum. Eftir að hafa heyrt fréttina ákvað ég að gefa allan söluhagnað af grafikverkum mínum á mjmdlistarsýningunni sem ég er með í Rauðu stofunni í Galleríi Fold á Rauðarárstíg," segir myndlist- arkonan Olga Pálsdóttir. Sýningin hefur yfirskriftina Reykjavík og var opnuð í tilfefni borgarstjómarkosn- inganna. Henni lýkur 9. júní. Dagskrá Listahátíðar á morgun Trilógía nefhist danssýning sem sett er upp í tilefni 50 ára afmælis Listdansskólans og verður frum- sýnd í Þjóðleikhúsinu kl. 20. Þrír danshöfundar og þrjú tónskáld hafa samið dansana og tónverkin sem flutt verða. Lúðrasveit Reykjavikur kemur við sögu í einu verkinu og Steindór Andersen kveður rímur. Hinir vænu ræningjar Síðustu tónleikar sígaunasveitar- innar Taraf de Haidouks verða svo á Broadway kl. 21. Nafn sveitarinn- ar er að hluta fengið frá goðsagna- kenndum ræningjum í anda Hróa hattar sem nefndust Haidouks. Þeir eru hetjur margra miðaldasöngva sem era einmitt á efnisskrá hljóm- sveitarinnar. Orðið Taraf merkir einfaldlega hljómsveit svo leggja mætti nafnið út sem Hljómsveit hinna vænu ræningja. Áhuginn skín úr hverju andliti Þóra Þorbergsdóttir og Pálína Páls- dóttir á kafi í ull, meö áhugasaman barnahóp í kringum sig. Allt frá reyfinu á prjónana Krakkarnir í Sandvíkurskóla á Sel- fossi fengu góða innsýn í gömul vinnubrögð hjá þeim Þóru Þorbergs- dóttar og Pálínu Pálsdóttur austan úr Vestur-Skaftafellssýslu í vikunni. Þær sýndu og kenndu börnunum úr- vinnslu ullarinnar, allt frá reyfi upp í prjónaða sokka, vettlinga og húfur. Meðferðis höfðu þær kamba, rokk, snældu og prjóna auk góða skapsins og óþrjótandi þolinmæði við að kenna og sýna. Auk þess læddust með sögur og heilu ljóðabálkamir sem eiga vel við þegar unnið er við þessa iðju.-NH F»«<o>m<o> r«. ___ FIM. 30. MAÍ KK Gistiheim. Öiafsvik Stebbi & Eyfi Sjávarperl. Grindavík ENGLAR Vídalín V. Ingólfstorg fpS¥. 31. MAI KK.................Hótel Framn.Grundarf. PAPAR Sjávarperl. Grindavík BUFF Vldalín v. Ingólfstorg ÍSLANDS EIÍMA V0N Kaffi Reykjavík SÖLDÖGG Players Kópavogi LAUG. 1. KK Fimm fiskum Stykkish. PAPAR..........Hollínni Vestmannaey. BUTTERCUP Sjávarperl. Grindavík BUFF........... Vídalín v. Ingólfstorg [SLANDS EINA V0N Kaffi Reykjavík ÍRAFÁR Players Kópavogi SUK. 2. JÚKl KK.............Dalabúð Bú&rdai SÖLDÖGG Félagsheim. Patreksf. HM. 6. JÓKl MEZZ0F0RTE NASfl v. Austurvöll _________________________________/ www.promo.is FRAMUNDAK FIM. 6. JUKIFRH. KK Kántrybæ Skagastr. VÍTAMÍIM Vídalín V. Ingólfstorg FÖST. 7. JOkI í SVÖRTUM FÖTUM Ýdölum Aðaldal KK Café Riis Hólmavík VÍTAMÍN Vidalín v. Ingólfstorg PAPAR Kaffi Reykjavík HUNANG Players Kópavogi LAUG. 8. JÚKl KK Félagsheim. Drangsn. GULLFOSS & GEYSIR Vídalin v. Ingólfstorg PAPAR Kaffi Reykjavík HUNANG Players Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.