Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Side 1
Aköf leit í morgun
Sjá baksíðu
DV-MYND SLYSAVARNAFÉLAGK) LANDSBJÖRG
Leitað á Skjálfanda
Þess/ mynd var tekin í nótt þegar leitin aö kajakmanninum stóö sem hæst. Undir morgun fannst kajak mannsins á reki skammt noröan Húsavíkur, mannlaus.
Björgunarsveitarmenn og skip hófu leit aö manninum í bítiö í morgun en sú leit haföi ekki boriö árangur þegar blaöiö fór í prentun.
Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks:
Vonlaust að selja út
lambakjöt að óbreyttu
Eiríkur S. Jóhannsson, fráfarandi
kaupfélagsstjóri KEA og fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, telur að út-
flutningur á lambakjöti sé á miklum
villigötum. Hann átelur ráðamenn og
telur að hagræðing innanlands í land-
búnaði sé skilyrði þess að að hægt sé
að flytja út íslenskt kjöt.
„Mín skoðun er að tal ráðamanna
um gríðarleg tækifæri í þeim efnum
sé algjörlega ábyrgðarlaust og beri
vott um að áherslur manna í landbún-
aðarmálum séu rangar. Við verðum
að einbeita okkur að því verki að gera
íslenskan landbúnað hagkvæmari fyr-
ir innanlandsmarkað áður en hug-
myndir um sigra erlendis eru lagðar á
borð okkar. íslenskur landbúnaður
situr á gríðarlegri óinnleystri hagræð-
ingu sem mun skila bæði neytendum
og bændum ávinningi. Ef við klárum
ekki það dæmi eigum við ekkert er-
indi á erlendan markað,“ segir Eirík-
ur.
Hann segir að ef einhver vogi sér
að tala um nauðsyn á hagræðingu í
landbúnaði komi annar fram og segi
að búið sé að finna leynda markaði í
útlöndum. Þetta sé gert til að drepa
mál málanna. „Það má ekki taka upp
umræðu um raunverulega hagræð-
ingu i landbúnaði," segir Eirikur sem
mjög hefur kynnt sér kjötmarkaðinn í
gegnum Norðlenska, dótturfélag KEA.
í fyrra kom frarn gagnrýni m.a. hjá
landbúnaðarráðherra vegna ófull-
nægjandi merkinga útflytjenda en Ei-
ríkur segir umfang Ameríkumarkað-
ar nánast ekkert. „Við seljum meira
af pylsum í tonnum talið á mánuði
heldur en sem nemur öllum útflutn-
ingi til Bandarikjanna."
Annarleg sjónarmið
Baldvin Jónsson hjá Bændasamtök-
unum hefur starfað lengi að sölu- og
markaðsmálum á íslensku kjöti á er-
lendum mörkuðum og er hann algjör-
lega ósammála Eiríki. Hann segir
mikla hagræðingu hafa átt sér stað
innanlands í landbúnaði undanfarið
sbr. minnkandi birgðir af kjöti. Orð
Eiríks séu óábyrg og beri keim af
sleggjudómum, annarlegum sjónar-
miðum og vankunnáttu. Hann sé í
hópi þeirra framleiðenda innanlands
sem ekki hafi kynnt sér þá möguleika
sem t.d. séu fyrir hendi á Ameríku-
markaði.
- Sjá ítarlegt viðtal við Eirík í
helgarblaði DV á morgun.
-BÞ
Enginn fundur hjá
SPRON í dag:
Dómstóla-
leiöin
skoöuö
Engmn fundur verður hjá
stofnfjárfestum SPRON í dag.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður fimmmenninganna sem
hafa haft milligöngu um kauptil-
boð Búnaðarbankans á SPRON,
telur afboðun fundarins ólöglega
og telur óvíst að þeirri niður-
stöðu verði unað. „Aiiðvitaö er
ekki hægt að útiloka dómstóla-
leiðina ef talið er að brotið sé á
rétti manna,“ sagði lögmaðurinn
i samtali við DV í morgun.
Hópurinn freistar þess nú að
ná til 1/3 stofnfjárhluthafa eða
um 350 manns til að krefjast
fundar en Jón Steinar segir
ótímabært að spá fyrir um niður-
stöðu þess. Stofnfjárfestamir séu
nýbúnir að fá bréf um það mál í
hendur en á hinn bóginn hafi
fjöldi þeirra lýst stuðningi við
framtak fimmmenninganna.
Pétur Blöndal og félagar
reyndu að fá fund með banka-
stjóm SPRON í gær en því erindi
var hafnað. Jón Steinar segir um
þá afstöðu stjómar: „Það eru
langar staðhæfmgar hafðar uppi
Hópurinn freistar þess
nú að ná til 1/3 stofn-
fjárhluthafa eða um
350 manns til að krefj-
ast fundar en Jón
Steinar segir ótíma-
bœrt að spá fyrir um
niðurstöðu þess.
um málsatvik og ágreining en á
sama tíma er neitað að hitta
menn að máli. Auövitað getur
hver maður séð að menn sem
hegða sér svona eru ekki með
góðan málstað."
Eyðileggingarherferð
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, hafnar því að
málstaður stjórnar sé vondur.
„Stjóm SPRON og stjórnendur
hafa gert sér far um að kynna
þetta mál eins ítarlega og hægt er
um langt skeið. Nú kalla þessir
menn eftir fundi eftir að þeir
hafa hafið eyðileggingarherferð á
hendur SPRON. Þeir eru að
reyna að eyðileggja þetta gamal-
gróna og virta fyrirtæki og eru
svo hissa á að fá ekki jákvæð og
góð viðbrögð frá stjóm SPRON.
Þetta er undarleg afstaða." -BÞ
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 2 í DAG
KR OG FYLKIR
SKILDU JÖFN:
Best fyrir
deildina
FÓKUS í MIÐJU
BLAÐSINS í DAG:
Svona verða
strákarnir...
6 í Fókus
www.intersport.is
VINTERSFORT
100% SPORT
bIldshöfða smáralind selfossi
s. 510 8020 s. 510 8030 s. 482 1000