Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Page 2
2
Fréttir
FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 2002
dv
Þverpólitísk samstaða meðal þingmanna um að hafna yfirtöku SPRON:
Sparisjóðirnir munu týna
tölunni úti um allt land
- varðar mjög landsbyggðina að mati þingmanns í efnahagsnefnd
Þverpólitísk samstaða er meðal
þingmanna um að leggjast gegn yfir-
tökuhugmynd Búnaðarbankans á
SPRON. Kristinn H. Gunnarsson,
varaformaður efnahags- og viö-
skiptanefndar, segir að ef hankarnir
eignist sparisjóðina sé viðbúið að
útibúum fækki mjög og því varði
málið landsbyggðina mjög. Hann
telur líkt og þorri þingmanna að
áformuð yfirtaka sé gegn anda lag-
anna.
„Ef viðskiptabankanir eignast
sparisjóðina munu þeir týna töl-
unni því bankamir munu ekki haga
Samdrætti að ljúka:
Jákvæð skilyrði
til hagvaxtar
Síðasta spá Þjóðhagsstofnunar ger-
ir ráð fyrir verulegri aukningu í f]ár-
festingu á árinu 2003, eða sem nemur
um 10% frá árinu 2002. Þessi aukning
kemur í kjölfar nálægt 20% samdrátt-
ar næstu tvö ár á undan og er helsta
skýring á auknum hagvexti á næsta
ári skv. nýútkomnu vefriti fjármála-
ráðuneytisins. Ráðuneytið telur að
hér gæti að einhverju leyti áhrifa
vaxtalækkana að undanfórnu en
einnig megi ætla að nýlegar ákvarð-
anir stjórnvalda um skattalækkanir á
fyrirtækjum ráði nokkru.
Fjármálaráðuneytið telur vísbend-
ingar um að hagvöxtur kunni að
verða meiri en Þjóðhagsstofnun hefur
spáð. „Jafnframt gæti samdrátturinn
á yfirstandandi ári orðið minni og
jafnvel enginn þegar upp er staðið.
Ein aíleiðing slíkrar þróunar er að
viðskiptajöfnuður yrði heldur óhag-
stæðari. Við þessar aðstæður er brýnt
aö fylgja aðhaldssamri stefnu í fjár-
málum ríkis og sveitarfélaga, m.a. í
fjárlagagerð næsta árs,“ segir í vefriti
fjármálaráðuneytisins. -BÞ
Heimur kaupir
Eddu-tímarit
Útgáfufélagið Heimur hefur keypt
tímaritadeild útgáfufélagsins Eddu -
miðlunar, sem gefur út tímaritin
Atlantica, Iceland Review og Ský, og
heldur úti vef í tengslum við þaö.
Þessi tímarit tilheyrðu fyrirtækinu
Icland Review sem við samruna
Vöku-Helfafells og Máls og menn-
ingar varð hluti af Eddu.
Úgáfu allra timaritanna verður
haldið áfram hjá Útgáfufélaginu
Heimi, sem m.a. gefur út tímaritið
Frjálsa verslun og ýmis upplýsinga-
rit fyrir ferðamenn. Starfsfólki
tímaritanna hefur verið boðið starf
hjá Heimi. -GG
Akureyri:
Knattspyrnuhús
rís úr jörðu
Fyrstu stálsperrurnar í nýju fjöl-
nota íþróttahúsi á Akureyri voru
reistar í gær. Húsið stendur á fé-
lagssvæði Þórs og er gríðarstórt en
áætlað er að byggingu þess ljúki í
desember. Búist er við að þessi
draumur norðlenskra knatt-
spyrnumanna kosti allt að 500
milljónir króna. -ÓK
Jón Vilhjálmur
Bjarnason. Egilsson.
sér öruvísi en þeir hafa áður gert.
Þeir hafa dregiö úr útlánum á ein-
stökum landsvæðum og neitað lán-
um til ýmissa byggðarlaga. Það
mun því veikja ýmis landsvæði
verulega ef sparisjóðunum sem
lánastofnunum verður ekki stjómað
af þeim mönnum sem bera hags-
muni atvinnulifsins mjög fyrir
brjósti,“ segirKristinn.
„Sparisjóðimir eru almennings-
eign og ég tel að nú verði aö staldra
við og endurskoða lögin þannig að
tryggt sé aö hlutverk sparisjóðanna
verði ekki harðsvíruðum fjármagns-
eigendum að bráð,“ segir Jón
Bjarnason, þingmaður Vinstri
grænna. Hann segir að lögin sem
Hátt í tvö þúsund umsóknir hafa
borist um framlög frá Hjálparstarfi
kirkjunnar frá því í október. Þetta
er mikil aukning umsókna enda eru
þær nú orðnar fleiri en allt starfsár-
ið þar á undan. Eins og fram kom í
DV í gær er allt það fé nú uppurið
sem ráðstafa átti til bágstaddra
fram í október. Reyndar var ákveö-
iö að loka frá og með 10. júní. 5,4
milljónum króna hefur þegar verið
varið til bágstaddra frá í okbóber,
að sögn Önnu Ólafsdóttur, tals-
manns hjálparstarfsins.
„Þetta er aðallega fólgið í matar-
aðstoð. Fólk kemur til okkar allt að
þrisvar sinnum," sagði Anna.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráögjafi
hjá hjálparstarfinu, segir að það
Pétur Kristinn H.
Blöndal. Gunnarsson.
sett voru um banka og sparisjóði í
maí í fyrra hafi veriö hroðvirknis-
lega unnin og vinstri grænir hafi
varað við því. Hann sé mjög gegn
hlutafélagavæðingu sparisjóðanna
enda sé hlutverk þeirra að þjóna
sínu umhverfi þannig að þeir gegni
víða lykilhlutverki i byggðum
landsins. Því heyri þeir ekki undir
hámarksarðsemiskröfu eigendanna.
„Það á fresta öllum hugmyndum um
breytingar á sparisjóðunum og fara
betur ofan í lögin. Það veröur að
vera tryggt að ekki sé hægt að
ganga að almenningseignum og
hirða þær upp, annaðhvort með
hlutafélagavæöingu eða beinum yf-
irtökum," segir Jón.
hafi komið sér á óvart hvaða hópur
fólks það er sem sækir um aðstoð til
Hjálparstarfs kirkjunnar.
„Mér finnst að hópur utangarðs-
manna og alkóhólista hafi minnkað.
Það er eins og þeir sæki meira í að-
stoð til Samhjálpar og fái þar heitan
mat. Til okkar kemur meira venju-
legt fólk ef svo skal segja - fólk sem
tekst ekki að ná endum saman. Ég
tel að stærsti hópurinn séu einstæð-
ar ómenntaðar mæður sem eru á al-
mennum leigumarkaði - fá kannski
80-90 þúsund krónur útborgað og ná
ekki að framfleyta sér og sínum eft-
ir að hafa greitt leigu. Bara ef ís-
skápur bilar eða einhver þarf að
fara i tannviögerð þá brestur allt.
Fólkið kemur ekki til okkar fyrr en
Pétur einangraöur
Pétur Blöndal virðist nokkuð ein-
angraður meðal þingmanna hvað
varðar yfirtökuhugmyndir Búnað-
arbankans á SPRON. Enginn þing-
maður sem DV ræddi við í gær
sagðist sammála yfirtökuhugmynd-
inni. Fjármálaeftirlitið hefur enn
ekki skilað umsögn um gjöminginn
en viðskiptaráðherra hefur efa-
semdir um lögmætið, líkt og fleiri. í
samtali við DV sagðist Valgerður
Sverrisdóttir telja að það samræmd-
ist ekki lögunum að hægt væri að
yfirtaka sparisjóðina á þennan hátt.
„Þetta hefur hins vegar ekkert með
lagabreytinguna að gera sem átti
sér stað í fyrra. Þar er ekki tekið á
þessu ákvæði. Ef þetta reynist heim-
ilt núna hefur það eins verið hægt
fyrir áratug,“ sagði Valgerður.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, segist ekki sjá hvemig yfir-
takan eigi að geta gengið upp og
Einar K. Guðfinnsson, sem einnig
situr í nefndinni, segir að yfirtakan
nái ekki nokkurri átt.
það er búið að fullreyna allt annað -
ættingja og svo framvegis en er yfir
viðmiöunarmörkum hjá félagsþjón-
ustunni," segir Vilborg.
Hún segir að ljóst sé að umsækj-
endum fari fjölgandi. „Ég sé fyrir
mér að atvinnulausir eigi líka eftir
aö koma í auknum mæli til okkar í
haust miðað við hvernig ástandið er
á vinnumarkaðnum," sagði Vilborg
Oddsdóttir.
Rétt er að taka fram að opnað
verður aftur fyrir mataraðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar eftir versl-
unarmannahelgina. Formaður
stjómar sagöi við DV að nýjar
ákvarðanir þurfi að taka bráðlega
um aukafjárveitingu og öflun fjár til
þess. -Ótt
-BÞ
Fegurð á hverju strál
Þaö var ekki amalegt aö litast um á Austurvelli þegar Ijósmyndara DV bar þar aö garöi í sólríkjunni. Léttklæddar
stúlkurnar litu ekki upp úr beöunum sem þær voru aö snyrta og veröur ekki annaö sagt en fögur kyrrö
og friöur ríki á þessari sumarmynd.
5,4 milljónum varið í hátt í 2 þúsund umsóknir til Hjálparstarfs kirkjunnar:
Kemur á óvart að „venju-
legt“ fólk sækir um aðstoð
- segir félagsráðgjafi - fólk kemur einfaldlega þegar endar ná ekki saman
Mikill þurrkur
Mikil þurrkatíð hefur verið víða
á Vesturlandi undanfarið og segja
bændur það sums staðar farið að
koma niöur á sprettunni. Þurrkur-
inn kemur sér hins vegar vel fyrir
þá sem stunda dúntekju.
Morgunblaðið greindi frá.
Flugmönnum sagt upp
Flugleiðir hafa sagt upp 25 fast-
ráðnum flugmönnum hjá félaginu
auk þess sem níu manns sem ráðn-
ir höfðu verið tímabundið til starfa
fengu ekki framlengdan ráðningar-
samning. Ástæðan fyrir uppsögnun-
um er að fyrirtækið hefur verið að
minnka umsvif sín yfir vetrarmán-
uðina.
Þjóöhagsstofnun hættir
Þjóðhagsstofnun verður lögð nið-
ur 1. júlí, í samræmi við lög Alþing-
is. Verkefni stofnunarinnar verða
flutt til Hagstofu íslands og fjár-
málaráðuneytisins. Flestir starfs-
menn sem unnið hafa að gerð þjóð-
hagsreikninga munu fyrst um sinn
halda því starfi áfram í því húsnæði
sem Þjóðhagsstofnun hefur haft til
umráða.
Á síöasta dropanum
Snemma í gærmorgun lenti á
Vestmannaeyjaflugvelli eins hreyf-
ils flugvél af gerðinni Antonov AN 2
en vélin var við það að verða bens-
ínlaus. Vélin var að koma frá
Skotlandi á leið til Reykjavíkur með
tvo menn innanborðs. Morgunblað-
ið greindi frá.
2000 bílar stöövaðir
Árleg umferðarkönnun umferðar-
ráðs hófst í fyrradag og er henni
lokiö viðast hvar. Lögregluembætt-
in á landinu sjá um að framkvæma
könnunina og samtals stöðva lög-
reglumenn um 2000 bíla og leggja
ýmsar spumingar fyrir ökumenn.
Tveir bridge-sigrar
ítalir hafa tryggt sér Evrópumeist-
aratitilinn í bridge þóttt enn séu fjórar
umferðir eftir af mótinu. Karlalands-
liði íslands gekk vel í gær, vann Fær-
eyjar 20-10, síðan Lichtenstein 21-9 og
tapaði loks fyrir Danmörku 8-22.
Kvennalandsliðið vann Danmörku
20-10, tapaði siðan illa fyrir Þýska-
landi 3-25 og loks 14-16 gegn Finn-
landi. í Opna flokknum er ísland í 12.
sæti. Kvennaliðið er í 21. sæti.
-HK/StG.
I ilfii helgarblað
Fiskur, dúnn og
stjórnleysi
í Helgarblaði DV á
morgun er ítarlegt við-
tal við Hrafh Gunn-
laugsson kvikmynda-
leikstjóra um fram-
kvæmdir hans í Laugar-
nesi, erfið veikindi eftir
bílslys og næstu verk-
efni þessa umdeilda listamanns sem seg-
ist hiklaust vera stjómleysingi. í blað-
inu er einnig viðtal við Brynjólf Bjama-
son nýráðinn forstjóra Landssímans.
Brynjólfur talar um framtíðina, ftjáls-
hyggjuna og menninguna. DV fer í
heimsókn til Jóns Sveinssonar, æðar-
bónda í Miðhúsum í Reykhólasveit, sem
stendur í striði við yfirvöld um rétt sinn
til að veija æðarvarpið fyrir eminum.
Og þá er Eiríkur Jóhannsson, forstjóri
Kaldbaks á Akureyri, sannarlega
ómyrkur í máli í viðtah um KEA-árin.