Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Page 7
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV
7
Fréttir
Fyrsta helgin í júlí kallar á ráðstafanir:
Fjölskylduhátíð verður
haldin í Þórsmörk
Nú líður senn að fyrstu helginni
i júlí sem gjarnan er nefnd „litla
verslunarmannahelgin" og þá má
búast við mikilli aukningu fólks á
tjaldsvæði landsins eins og hefur
verið undanfarin ár. í fyrra var
mesta fjölmennið í Þórsmörk og
voru þar yfir 1500 manns þegar
mest var. Mikil unglingadrykkja
var á svæðinu og margar likams-
árásir voru tilkynntar.
Að sögn aðstandenda tjaldsvæð-
anna verður meira stílað inn á fjöl-
skyldur í ár. Færri skipulagðar ferð-
ir verða á svæðið en undanfarin ár
og reynt verður að koma í veg fyrir
unglingadrykkju með tilheyrandi
skrilslátum og subbuskap. Verður
til að mynda fjölskylduhátíð í Bás-
um og Langadal. Ferð verkfræði-
nema frá Háskóla íslands verður
færð til Skóga og verður ekki í
Langadal eins og undanfarin ár.
Lögreglan er þó við öllu búin og
að sögn Sýslumannsins á Hvolsvelli
verður löggæsla með svipuðum
hætti og undanfarin ár. 2-3 lög-
reglumenn verða á vakt ásamt land-
vörðum og fleiri gæslumönnum.
-vig
Frá Básum í Þórsmörk
Þar verður fjölskylduhátíö fyrstu helgina íjúlí.
Búnaðarbankinn
skuldar skýringar
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að Búnað-
arbankinn skuldi viðskiptavinum sín-
um haldgóðar skýringar á því af hveiju
farið sé að taka sérstakt vanskilagjald af
t.d. skuldabréfum umfram venjulega
vanskilavexti. Jóhannes segir að van-
skilavextir eigi að standa undir kostn-
aði bankans þegar um vanskil sé að
ræða og eins sé það alveg forkastanlegt
að bankinn skuli vera að senda rukkun-
arbréf aðeins 7 dögum eftir gjalddaga.
„Það hlýtur að vera sáluhjálparatriði
fyrir Búnaðarbankann að rukka svona
fljótt og ég á erfltt með að sjá að þetta
auðveldi eitthvað innheimtu bankans.
Þetta er alls ekki þjónusta og þetta bitnar
helst á þeim sem síst skyldi, þ.e. þeim
sem minnst bera úr býtum í þjóðfelaginu
í dag,“ segir Jóhannes Gunnarsson. -GG
Ólafsfjörður:
20 sóttu
um stöðu
bæjarstjóra
Tuttugu umsóknir bárust um stöðu
bæjarstjóra í Ólafsfirði en umsóknar-
frestur rann út 23. júni sl. Eftirtaldir
sóttu um stöðuna:
Atli Már Ingólfsson lögfræðingur,
Hafnarfirði, Ásmundur Helgi Steindórs-
son viðskiptafræðingur, Keflavik, Bjöm
Helgason verkfræðmgur, Kópavogi,
Bjöm Sigurður Lárasson, rekstrar- og
markaðsráðgjafi, Akranesi, Böðvar
Jónsson viðskiptafræðmgur, Kópavogi,
Guðjón Viðar Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri, Reykjavík, Halldór Jóns-
son framkvæmdasfjóri, ísafirði, Halldór
V. Kristjánsson deildarstjóri, Reykjavík,
Jóhann M. Ólafsson viðskiptafræðing-
ur, Kópavogi, Magnús Kristján Hávarð-
arson, tölvu- og kerfisfræðingur, Bol-
ungarvík, Njáll Gunnar Sigurðsson al-
þjóðamarkaðsfræðmgur, Hafnarfirði,
Páll Brynjarsson viðskiptafræðingur,
Reykjavík, Pétur I. Jónsson sjávarút-
vegsfræðingur, Ólafsfirði, Ragnar Mar-
rnósson, Reykjavík, Reynir Þorsteins-
son sveitarstjóri, Raufarhöfn, Sigfús Ei-
ríkur Amþórsson, hljóðræn upplýsinga-
miðlun, London, Sigurður Eiríksson
lögfræðingur, Akureyri, Snorri Ás-
mundsson, Reykjavík, Steinn Kárason
alþjóðahagfræðingur, Danmörku, og
Ævar Einarsson iðnaðartæknifræðing-
ur, Danmörku. -HI
íslensk erfða-
greining semur
við Tal
Islensk erfðagreining hf. hefur skrif-
að undir samning um að færa alla
símaþjónustu sína til Tals hf. Um er að
ræða bæði GSM- og fastlínuþjónustu.
tslensk erfðagreining nær verulegri
hagræðingu i rekstri fjarskiptakerfis
síns með samningnum við Tal. Að
sögn forráðamanna íslenskrar erfða-
greiningar er mikil notkun á farsímum
meðal starfsmanna og mikið hringt á
milli fastlínukerfis fyrirtækisins og
farsíma. Með símaþjónustu hjá Tali er
íslensk erfðagreining ekki einungis að
hagræða hjá sér í rekstri heldur eykur
fyrirtækið einnig upplýsingastreymi
og þjónusta eykst. -hlh
Reglubundin ástands- og öryggisskoðun hjá Toyota er lykillinn að farsæld fram á efri ár.
Bfll þarfnast umönnunar hvort sem hann er í þriggja ára ábyrgð eða ekki. Við mælum með að þú farir með bílinn þinn til þjónustuaðila Toyota
f ástands- og öryggisskoðun eftir hverja ekna 15.000 km eða á 12 mánaða fresti, hvort sem fyrr verður. Það margborgar sig, bæði fyrir þig og
bílinn og f endursölu. Kynntu þér málið á nýrri heimasíðu, www.toyota.is; eða hjá þjónustufulltrúum okkar f sfma 570 5000.
VIÐ þinn<S£>toyota
Sá sem er þriggja
ára er of ungur til
að fara að heiman.
Toyota • Nýbýlavegur 4-8 • 200 Kópavogur • Sfmi 570 5070 • www.toyota.is