Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Blaðsíða 10
10
Viðskipti__________
Umsjón: Viðskíptablaðiö
Þyrping nýtti forkaupsréttarákvæði gagnvart Nanoq:
Gert er ráð fyrir samein-
ingu Nanoqs og Útilífs
Eigendur Þyrpingar nýttu sér
forkaupsréttarákvæði til að ganga
inn í sölu á útilífs- og íþróttavöru-
versluninni Nanoq og á Þyrping
nú allt hlutafé verslunarinnar.
Gert er ráð fyrir að hún verði sam-
einuð versluninni Útilífi sem er í
eigu Baugs. Fyrir skömmu var
70% eignarhlutur í fyrirtækinu ís-
lenskri útivist ehf., sem rekur
Nanoq, seldur til Guðmundar
Ágústs Péturssonar, eiganda GÁ
Péturssonar hf. og Sportmanna
ehf. Salan var gerð með fyrirvara
um forkaupsrétt Þyrpingar sem
ákvað að nýta sér strax forkaups-
réttinn.
Nanoq hefur að mestu verið í
eigu þeirra Sigurðar Gísla og Jóns
Pálmasona og fyrirtækja sem eru
tengd þeim. Þegar Þyrping var
seld fyrir skömmu til fasteignafé-
lagsins Stoða, sem eru i eigu Kaup-
þings, SPRON og Baugs, fylgdi þar
með 30% eignarhlutur og for-
kaupsréttur að hinum hlutnum.
Þar með varð ljóst að Baugur átti
óbeint orðið hlut í Nanoq en sem
kunnugt er rekur hann verslanir
Útilífs. í nýrri stjóm Þyrpingar
sitja tveir fulltrúar Baugs og gera
menn á markaðinum ráð fyrir að
verslanirnar verði sameinaðar.
Rekstur Nanoqs hefur gengið brös-
uglega og í vetur fór að verða
dráttur á því að birgjum væri
greitt fyrir vörur sinar. Undanfar-
ið hefur hlaðist upp skuld við þá
og var það meðal annars tilgangur
Guðmundar Ágústs, með að koma
inn í Nanoq, að taka á þeim mál-
um. Hann sagðist þó síður en svo
vera ósáttur við þessa niðurstöðu:
„Menn eru bjartsýnir á að þessir
sómamenn, sem hafa milljarða á
milli handanna, taki vel á málum
þegar þeir eru komnir þarna inn,“
sagði Guðmundur Ágúst.
Aðrir heildsalar, sem Viðskipta-
blaðið hafði samband við, taka
undir þetta en miklar áhyggjur
ríktu meðal þeirra um niðurstöðu
málsins. Vegna fjárhagslega
sterkra bakhjarla Nanoqs voru
litlar tryggingar að baki viðskipt-
unum og blaðið hefur heimildir
fyrir því að einstaka birgjar eigi
inni vörur hjá Nanoq fyrir á milli
25 og 30 miíljóna króna. Eigið fé
verslunarinnar var um 140 millj-
ónir í upphafi og mun nú vera
uppurið.
Hlutafjár-
hópurinn
frágenginn
Gengið hefur verið frá fjármögn-
un að kaupum Hreggviðs Jónssonar
á innanlandsdeild Pharmaco og
sagðist Hreggviður gera ráð fyrir að
gengið yrði frá
greiöslu um
næstu helgi. „Það
gekk mjög greið-
lega að fá inn
hluthafa," sagöi
Hreggviður í
samtali við Við-
skiptablaðið í
gær en hann
dvaldi þá í fríi á
Spáni. Hreggvið-
ur tekur yfir
rekstur Pharmaco ísland ehf. 1. júlí
nk. og þá er gert ráð fyrir að hlut-
hafalisti liggi fyrir. Aðspurður sagð-
ist Hreggviður ekki geta upplýst
hverjir mynduðu hluthafahópinn en
sagði að tveir aðilar yrðu með stór-
an hlut.
Stjóm Pharmaco hf. samþykkti í
lok maí sl. kauptiiboð Hreggviðs
Jónssonar í 80% eignarhlut í
Pharmaco ísland ehf. Hjá Pharmaco
ísland ehf., sem yfirtekur alla inn-
lenda starfsemi Pharmaco hf„ starfa
um 130 manns í 7 markaðsdeildum
og heildsöludeild. Félagið rekur
heildverslun með lyf, snyrtivörur,
heilsuvörur, rannsóknarvörur og
lækningatæki. Félagið hefur 35%
markaðshlutdeild á lyfjamarkaði.
Við kaupin lágu ekki fyrir aðrar
upplýsingar en að kaupandi væri
Hreggviður Jónsson og að hann
yrði nýr forstjóri félagsins. Hann
greindi þá frá því að hann hygðist
stofna eignarhaldsfélag um fjárfest-
inguna og fá fleiri fjárfesta til liðs
við félagið. Pharmaco hf. mun
áfram eiga 20% eignarhlut í félag-
inu.
Hreggviöur
Jónsson.
Tæplega 100 milljónir
hafa safnast í hlutafé
Nú þegar hafa safnast 88 milljón-
ir króna í nýju hlutafé fyrirtækisins
Globodent BV á Akureyri. Tak-
markið er að safha alls eitt hundrað
miiljónum til að þróa áfram hug-
mynd Egils Jónssonar tannlæknis
um framleiðslu á fjöldaframleiddum
postulínsfyllingum til að gera við
skemmdir í jöxlum. Danska fyrir-
tækið Pinol A/S leggur fram 50
milljónir í formi hönnunarvinnu,
án þess þó að eignast nokkuð í fyr-
irtækinu, en fær í staðinn fram-
leiðslurétt á vörunni til næstu 7 ára.
ítalska fyrirtækið Design Grop Ital-
ia sem hefúr unnið að endurbótum
á hugmyndinni kemur inn sem
hluthafi og nýir innlendir hluthafar
eru Akureyrarbær, Iðntæknistofn-
un, og Sjóvá-Almennar. Fyrir áttu
hlut í félaginu, Innsæi ehf., félag í
eigu Egils Jónssonar og fjölskyldu
hans, og Prokarius ehf„ félag í eigu
hóps tannlækna og starfsmanna
Iðntæknistofnunar.
Enn vantar 12 milljónir króna til að
tryggja nægt fjármagn til að gera hug-
mynd Egils að söluvöru. Hann er þó
fullviss um að það fjármagn eigi eftir
að skila sér - hvaðan sem það komi.
Hann bindur vonir við að hægt verði
að reisa verksmiðju á Akureyri til að
framleiða postulínsfyllingamar en
útilokar ekki að hún verði reist á er-
lendri grundu. Það ræðst af viðtökum
hér heima en Egill hefur kynnt áætl-
anh sínar fyrh Valgerði Sverrisdótt-
ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
enda telur hann þær ríma vel við nýja
byggðaáætlun ríkisstjómarinnar.
Ráðuneytið hefur þegar styrkt verk-
efnið um þrjár milljónh króna.
Gangi hönnunarvinna vel og takist
að tryggja það fjármagn sem upp á
vantar gera áætlanh ráð fyrh því að
framleiðsla fyllinganna og markaðs-
setning geti hafist í lok árs 2003. Egill
er enn sannfærður um ágæti við-
skiptahugmyndarinnar, þó svo að það
hafi reynst erfiðara að ná í fjármagn
en vonh stóðu til - offjárfesting í
tölvu- og tæknigehanum sá til þess.
Egill hefur sett markið hátt og telur
að fyrirtækið geti jafnvel orðið stærra
en Össur sem hefur vaxið af miklum
krafti undanfarin misseri. „Sem betur
fer eru fáh einstaklingar einfætth og
kannski því miður fáh einstaklingar
án tannskemmda," segh Egill en bæt-
ir við að vegna þess sé markaðurinn
nægur og ekki þurfi nema um 5%
markaðshlutdeild til að bæði land og
þjóð geti hagnast umtalsvert.
Sæsilfur í Mjóafirði:
Rúmlega milljón
seiði í kvíar
í gær var
fyrstu laxaseið-
unum komið fyr-
h í nýjum kvíum
Sæsilfurs hf. í
Mjóafirði. Alls
verður um 1,2
milljónum seiða
komið fyrh í kvi-
unum, sem eru
14 talsins, og eru
þær efth þessa
viðbót orðnar 20.
Seiðin eru flutt í
kvíarnar með
sérstökum brunnbáti sem fyrirtæk-
ið leigh í sumar og þarf hann að
fara allmargar ferðh til að fylla þær
en reiknað er með að kvíamar verði
orönar fullar af laxi þegar líða tek-
ur á sumarið.
Nýr og fullkominn fóðurprammi
Sæsilfurs kom til Neskaupstaðar
um helgina, en hann var keyptur í
Noregi og dreginn til landsins af
brunnbátnum. Prammanum veröur
komið fyrh við kvíamar í Mjóafirði
og tengt viö hann tölvustýrt fóður-
kerfi með neðansjávarmyndavélum.
Pramminn tekur 250 tonn af fóðri og
er útbúinn með skrifstofu og íbúð
fyrh tvo starfsmenn. Þeh geta því
látið fara vel um sig úti á firðinum
og gist yfir nótt ef þörf krefur.
Gert er ráð fyrh að slátmn á laxi
úr Mjóafirði hefjist í haust í nýju
laxasláturhúsi Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað en stefnt er að því að
slátra í fyrstu allt að 700 tonnum. Sá
lax sem Sæsilfur hefur alið í firðin-
um til þessa þykh hafa dafnaö vel
en gert er ráð fyrh að fiskurinn sé
að meðaltali um 4 kíló þegar hann
hefur veriö slægður. Sæsilfur hefur
leyfi fyrh að framleiða allt að 4000
tonn af laxi á ári og er stefnt að því
að ná því marki árið 2004 og gert
ráð fyrh að framleiðslan verði kom-
in í allt að 8000 tonn árið 2006. Áætl-
uð velta Sæsilfurs árið 2004 nemur
um einum milljarði króna.
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV
Þetta helst ''JS
iraiŒ=7;Tfflraii!Kn'>l ItT: 4:1-
HEILDARVIÐSKIPTI 4600 m.kr.
Hlutabréf 2000 mkr.
Húsbréf 1000 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
© Delta 720 mkr.
0 íslandsbanki 700 mkr.
Q Landsbanki 125 mkr.
MESTA HÆKKUN
o MP-Bio 12,5%
0 Delta 5,8%
0 Þormóöur rammi - Sæberg 5,0%
MESTA LÆKKUN
o Skýrr 14,4%
0 Hampiðjan 4,9%
0 Rugleiöir 4,6%
ÚRVALSVÍSITALAN 1299 stig
- Breyting O 1,23 %
Rivaldo Vitor Borba Ferreira.
Rivaldo flæk-
ist í íslenskt
dómsmál
Það er líklega ekki á hverjum
degi sem heimsþekkth knattspymu-
menn flækjast í íslensk dómsmál en
fyrh stuttu tók Hæsthéttur fyrh
mál sem brasilíski knattspymumað-
urinn Rivaldo Vitor Borba Ferreha
tengdist þótt hann ætti engan bein-
an hlut að máli. Það er í málarekstri
sem WSC eignarhaldsfélag hf. hóf
gegn íslandsbanka en bankinn tók
að sér sölu hluta í WSC á ákveðnu
gengi og samið var um að kaupend-
ur skyldu greiða álag á hvem seld-
an hlut tækist WSC að uppfylla til-
tekin skilyrði. WSC ætlaði að setja
upp netsíðu með upplýsingum um
knattspymu og átti þar meðal ann-
ars að vera að finna heimasíður
heimsþekktra knattspymumanna.
WSC, sem taldi sig hafa uppfyllt öll
skflyrðin, (sem m.a. fólust í því að
fá mann eins og Rivaldo til að skrifa
undh samning) krafðist síðar bóta
úr hendi íslandsbanka á þeim
grundvelli að ekki hefði verið inn-
heimt umrætt álag úr hendi kaup-
enda en upphæðin, sem um var að
tefla, nam tæpum 30 milljónum
króna. Hæsthéttur taldi að atvikum
málsins virtum þótti sýnt að WSC
hefði ekki á umsömdum tíma lagt
fram gögn því til staðfestu að hann
hefði uppfyllt samning aðila um
fyrrgreind skilyrði. Af 1. mgr. 15. gr.
laga nr. 113/1996 um verðbréfavið-
skipti var talið leiða, að Islands-
banki hefði verið rétt og skylt að
gefa þeim sem fjárfestu í hlutafé
WSC allar upplýsingar um það
hvemig gekk að uppfylla skilyrði
samningsins og ekki var talið eins
og á stóð, að íslandsbanka hefði bor-
ið að reyna innheimtu viðbótar-
greiðslunnar. Var íslandsbanki
samkvæmt þessu sýknaður af kröf-
um WSC.
Útvatnaður saltfískur,
án beina, til að sjóða.
Sérútvatnaður saltfiskur,
án beina, til að stetkja.