Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Síða 12
12
Útlönd
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV
Bush hefur áhyggjur af bókhaldssukki stórfyrirtækja:
Þrír stjórnendur
kallaðir á teppið
REUTERSMYND
Nefndarformaður ræðir fjármálasukk
Michael Oxley, formaður fjármálaþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings, ræðir við fulltrúa fjölmiðla eftir að nefnd hans stefndi æðstu stjórn-
endum fjarskiptafýrirtækisins WorldCom tii að koma fyrir nefndina. Þar eiga
þeir að svara spurningum um milljarða dollara þókhaldssvindl.
REUTERSMYND
John Entwistle
Af mörgum talinn einn áhrifamesti
tónlistarmaður samtímans.
Bassaleikari
The Who látinn
John Entwistle, bassaleikari
hinnar goðsagnakenndu hljómsveit-
ar The Who, lést í gær á hóteli í Las
Vegas, 57 ára að aldri. I dag var
áætlað að hefja tónleikaferð hljóm-
sveitarinnar um Bandaríkin.
Fyrstu fregnir bentu til þess að
um hjartaáfall hafi verið að ræða en
ekkert verður gefið út fyrr en krufn-
ing hefur átt sér stað á líkinu.
Eins og gefur að skilja eru aðdá-
endur og hljómsveitin sjálf harmi
slegin og sendi umboðsmaður
þeirra, Bill Curbishley, samúðar-
kveðjur sínar til fjölskyldu „Ox“ -
eins og hann var ávallt kallaður -
og „þeirra milljóna aðdáenda sem
eru víðs vegar um heiminn."
Af upprunalegri skipan hljóm-
sveitarinnar eru því aðeins tveir
eftirlifandi, þeir Roger Daltrey og
Pete Townsend. Trommuleikarinn
Keith Moon dó árið 1978 vegna of
stórs eiturlyfjaskammts.
Þrír æðstu stjómendur banda-
ríska fjarskiptafyrirtækisins
WorldCom hafa verið kallaðir á
teppið hjá nefnd bandaríska þings-
ins til að svara spumingum um
bókhaldssvindl fyrirtækisins sem
talið er nema milljörðum dollara.
Þá hefur önnur þingnefnd sem
rannsakar svikamylluna sem leiddi
til gjaldþrots orkufyrirtækisins En-
ron einnig farið fram á gögn frá fjar-
skiptarisanum.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur farið fram á að ítarleg
rannsókn verði gerð á svindlinu í
WorldCom og hann hefur viður-
kennt að hafa þungar áhyggjur af
áhrifum nýlegra fjármálahneyksla á
efnahagslíflð.
„Ég hef áhyggjur af efnahagsleg-
um áhrifum þess að nokkrir for-
ystumenn fyrirtækja hafa ekki stað-
iö undir ábyrgðinni sem þeir bera,“
sagði Bush við fréttamenn í
Kanada, áður en hann fór á tveggja
manna tal við Vladimír Pútin Rúss-
landsforseta innan ramma leiðtoga-
fundar G8-ríkjanna svokölluðu.
Gjaldþrot blasir nú við
WorldCom eftir að fyrirtækið var
sakað um að hafa í bókhaldi sinu
ekki sagt rétt frá 3,85 milljarða doll-
ara útgjöldum. Það varð til þess að
fyrirtækið sýndi 1,38 milljarða doll-
ara hagnað á árinu 2001 þegar í
raun varð tap á rekstrinum. Þetta
mun hafa verið gert tO að láta líta
svo út sem fyrirtækið hefði staðið
undir væntingum fjármálasérfræð-
inga á Wall Street.
Michael Oxley, forseti fjármála-
þjónustunefndar fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, sagði að svo virt-
ist sem þetta mál væri til marks um
að alvarlega siðferðisbresti ein-
stakra manna innan fyrirtækisins.
Orku- og viðskiptanefnd þingsins
hefur farið fram á að fá margvísleg
gögn, þar á meðal nýlega innan-
hússendurskoðun sem fletti ofan af
bókhaldsmistökunum og minnis-
punkta endurskoðunarnefndar allt
aftur til ársins 1997.
Paul O’Neill, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, hefur tekið undir
hneykslan Bush forseta og fleiri.
Hann sagði að fjármálaeftirlitið ætti
að fá heimildir til að frysta eignir
stjórnenda i hneyklismálum eins og
því sem nú skekur WorldCom.
UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum veröur háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Hraunbraut 4, 0201, þingl. eig. Ingi- björg Sólveig Sveinsdóttir, gerðarbeið- endur Búnaðarbanki íslands, Byko hf., íbúðalánasjóður og Kópavogsbær, þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl. 13.30. Lækjasmári 94, 0101, þingl. eig. Guð- mundur O. Halldórsson og Svava Kristinsdóttir, gerðarbeiðendur íbúða- lánasjóður, Sparisjóður Mýrasýslu og Sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðjudag- inn 2. júlí 2002 kl. 15.30.
Fjallalind 46, þingl. eig. Byggingarfé- lagið Heiði ehf., gerðarbeiðandi Toll- stjóraskrifstofa, þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl. 16.30.
Grænatún 22, þingl. eig. Margrét Ingvadóttir og Kristinn Guðmundsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, þriðju- daginn 2. júlí 2002 kl. 13.00. Hlíðarvegur 24, 0101, þingl. kaup- samningshafi Salóme Bergsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl. 15.00.
Núpalind 6, 0801, þingl. eig. Mótel ehf., gerðarbeiðendur Aðalblikk ehf. og Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðju- daginn 2. júlí 2002 kl. 16.00. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, þriöjudaginn 2. júlí 2002, kl. 11.00, á eftirfarandi eignum: Jaðar I og n, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Jens Gíslason, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins. Laufskálar 10, Hellu, þingl. eig. Ólafur Hróbjartsson, gerðarbeiðandi Ársæll Karl Gunnarsson.
Miðkot, Rangárþingi ytra., þingl. eig. Sigríður Ingunn Ágústsdóttir, gerðar- beiðandi íbúðalánsjóður. Reynifell, lóð 9 b, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Birgir Tómasson, gerðar- beiðandi sýslumaðurinn í Kópavogi. Stóra-Rimakot, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Kró ehf., gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins. Suðurlandsvegur 2, 56,42%, Hellu. þingl. eig. Árni Kristjánsson, gerðar- beiðendur Bifreiðar & landbúnaðar- vélar og Fjármögnun ehf. Tjaldhólar, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Guðjón Steinarsson og Særún St. Bragadóttir, gerðarbeiðandi sýslumað- urinn á Hvolsvelli.
Berjanes/Berjaneskot, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Vigfús Andrésson, gerðarbeiðendur Ingvar Grétar Ingv- arsson, Lífeyrissjóður bænda, Lána- sjóður landbúnaðarins og sýslumaður- inn á Hvolsvelli.
Frysti- og sláturhús, Þykkvabæ, þingl. eig. Sláturhús Hellu hf., gerðarbeið- andi Djúpárhreppur.
Gerðar, 23 ha, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Karl G.S. Benediktsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingar- bankinn hf.
Gularás, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Ólafur Árni Óskarsson, gerðar- beiðandi Landssími íslands hf. Heiðvangur 11, Hellu, þingl. eig. Óli Már Aronsson, gerðarbeiðandi íbúða- lánasjóður.
SÝSLUMADURINN Á HVOLSVELLI
REUTERSMYND
Einn á kinnina
Vilhjálmur Bretaprins teygir sig hér til að smella einum vænum kossi á kinn
ofurfyrirsætunnar Claudiu Schiffer en hún afhenti honum verðlaun fyrir að
hafa verið í sigurliðinu í pólóieik sem var haldinn til fjáröflunar.
Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels:
Vel hægt að vinna
með Yasser Arafat
Aðeins nokkrum dögum eftir að
Bush Bandaríkjaforseti hvatti
Palestínumenn til þess að losa sig
við Yasser Arafat, núverandi leið-
toga, og fá sér einhvem sem „lætur
hryðjuverknað ekki hafa áhrif á
sig“ komast til valda, kom Shimon
Peres, utanríkisráðherra ísraels,
öllum á óvart og sagði að hann gæti
vel hugsa sér að vinna að friðarferl-
inu með Yasser Arafat. Það myndi
þó vera þeim skilyrðum háð að
hann yrði opinn fyrir miklum
skipulagsbreytingum. Þetta kemur
fram í viðtali BBC við Sharon sem
birtist í dag.
ísraelsher hélt í nótt áfram fram-
göngu sinni á Vesturbakkanum og
skiptist á skotum við harðlínumenn
sem halda kyrru fyrir í höfuðstöðv-
um Palestínumanna i Hebron. Talið
er að 15 Palestínumenn haldi sig
þar inni en nokkrir þeirra eru eftir-
lýstir í ísrael. Þá hefur Israelsmað-
ur verið kærður fyrir njósnir í eig-
in heimalandi en hann er talinn
hafa unnið fyrir líbanska íslamska
harðlínumenn.
i
Danir hlynntir aöstoð
Stjóm Anders
Foghs Rasmussens í
Danmörku gaf til
kynna i gær að hún
væri hlynnt land-
búnaðarstjTkjum til
ríkjanna sem hafa
sótt um aðild að Evr-
ópusambandinu. Þá
vöruðu Danir aðrar þjóðir ESB við að
reyna að koma í veg fyrir slíka styrki.
Danir taka við formennsku í ESB 1.
júlí.
Skosku börnin heim
Skosku ungmennin og kennarar
þeirra sem lentu í rútuslysi í Frakk-
landi í gærmorgun flugu heim í gær.
Enn eru þó nokkrir á sjúkrahúsi í
Frakklandi. Fimmtán ára stúlka lést í
slysinu.
Starfsfólk SÞ kyrrt
Sameinuðu þjóðirnar sögðu í gær
að ekki væri ætlunin að kalla burt
starfsfólk stofnunarinnar í Mazar-i-
Shari í Afganistan þar sem ribbaldar
og lögleysa veður uppi.
Aukin gæsla í lofti
Bandaríska landvarnaráðuneytið
ætlar að efla mjög eftirlit herflugvéla
yfir tólf bandarískum borgum í
kringum þjóðhátíðardaginn 4. júlí.
Flóttamenn stinga af
Hópur 35 hælisleitenda lagði í
morgun á flótta úr sérstökum búðum
á afskekktu svæði í Ástralíu og naut
aðstoðar velvildarmanna. Fólkið átti
yfir höfði sér að vera sent aftur til
síns heima.
Kanar hafa í hótunum
nema friðargæsluliðar heyrðu ekki
undir nýjan fastan striðsglæpadóm-
stól.
Miðar gegn dópinu
Æðsti embættismaður baráttunnar
gegn fikniefnabölinu í Bandaríkjun-
um sagði í gær að Mexíkóum miðaði
vel í baráttunni gegn fíkniefnasmygl-
urum.
Haider heimsækir England
Austurríski
hægriöfgamaðurinn
Jörg Haider gerði
stuttan stans í
London i gær og við
það tækifæri efndu
samtök nasistaand-
stæðinga til mót-
mæla gegn honum.
Haider hefur verið stimplaður nýnas-
isti og er mikill andstæðingur útlend-
inga í landi sínu.
Lestarræningi giftir sig
Breski lestarræninginn Ronnie
Biggs ætlar að giftast brasilískri fyrr-
um unnustu sinni í bresku fangelsi
þar sem hann situr, hálflamaður og
ófær um að tala eftir heilablóðfall.
Ætti að huga að efnahag
Sífellt fleiri Bandaríkjamenn telja
að George W. Bush forseti eigi að
snúa sér af alefli að því að bæta efha-
hags landsins. Samkvæmt nýrri könn-
un telur aðeins þriðjungur að hann
hafi gert allt sem hann getur.