Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Side 13
13
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 __________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Vladimír kom, sá og sigraði á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Kanada:
Afríkulönd fengu lítið
annað en fagurgalann
Ríkustu þjóðir heims undirrituðu
í gær samkomulag við leiðtoga Afr-
íkuþjóða um stuðning við þróunar-
starf. í áformum leiðtoganna er
mikið um fógur orð og og ráðlegg-
ingar af ýmsu tagi en lítið talað um
beinharða fjárhagsaðstoð sem þó er
mikii þörf á.
Leiðtogar G8-ríkjanna svoköll-
uðu, auðugustu iðnríkja heimsins,
sögöu að helmingurinn eða meira af
nýrri þróunaraðstoð sem þeir lof-
uðu í mars síðastliðnum gæti farið
til Afríkuianda sem uppræta spill-
ingu í sínum röðum.
Þá lofuðu iðnríkin við lok tveggja
daga fundar síns, undir öflugri lög-
reglu- og hervernd í kanadískum
klettafjaliabæ, að borga sinn hluta
af allt að einum milljarði dollara
sem nota á í að afskrifa hluta skulda
fátækra landa.
Afríkurikjunum var einnig lofað-
ur aukinn aðgangur að mörkuðum
REUTERSMYND
Stóru strákarnir
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er nú kominn inn í hinn fína G8-klúbb
auðugustu ríkja heims þar sem helstu forystumennirnir eru Tony Btair,
forsætisráðherra Bretlands, og George IV. Bush Bandaríkjaforseti.
fyrir vörur sínar, aukinn stuðning-
ur viö að leysa vopnuð átök og hjálp
við að berjast við alnæmisfarEddur-
inn sem hefur gengið nærri mörg-
um löndum álfunnar.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði að leiðtogafundurinn á næsta
ári myndi einnig beina sjónum sín-
um að Afríkuríkjum.
Þótt Afríkuleiðtogar hafl kannski
ekki riðið feitum hesti frá fundinum
í Kanada verður hið sama ekki sagt
um Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seta. Hann kom, sá og sigraði.
Ekki einasta tryggði Rússlands-
forseti landi sínu fastan sess í þess-
um klúbbi hinna útvöldu, heldur
fékk hann loforð um tuttugu millj-
arða doflara fjárveitingu sem á að
nota til að eyða útrýmingarvopnum
í vopnabúri Rússa. Þar með á að
koma í veg fyrir að hryðjuverka-
menn komist yflr efni sem þeir
gætu notað til vopnasmíði.
Eduardo Duhalde
Þúsundir manna kröfðust þess í
gær að Argentínuforseti segði af sér
vegna bágs ástands í landinu.
Þúsundir mót-
mæla dauðsföll-
um í Argentínu
Þúsundir atvinnulausra Argent-
ínubúa söfnuðust saman við forseta-
höllina í Buenos Aires í gær til að
mótmæla dauða tveggja manna í
óeirðum daginn áður, hinum verstu
frá þvi stjóm landsins var hrakin
frá völdum í desember. Mótmælin í
gær fóru friðsamlega fram.
Allt að tíu þúsund manns söfnuð-
ust saman og hrópuðu vígorð þar
sem þess var krafíst að Eduardo
Duhalde forseti segði af sér.
Mótmælendur sökuðu einnig lög-
regluna um að hafa verið of harð-
henta í óeirðunum í útjaðri höfuð-
borgarinnar á miðvikudag. Ólætin
brutust út í kjölfar mótmælaað-
gerða gegn vaxandi fátækt og at-
vinnuleysi í Argentinu frá því
Duhalde tók við stjóm landsins.
Fíkniefnaneysla
skólabarna eykst
Ný rannsókn í Danmörku sýnir að
fleiri skólaböm reykja hass og hafa
prófað sterkari fíkniefni en þegar
síðasta könnun var gerð fyrir þrem-
ur árum. Færri drekka aftur á móti
áfengi.
Könnunin leiddi í ljós að fjórði
hver nemandi í níunda bekk hefur
prófað hass. Þar af hafði helmingur-
inn reykt hass í mánuðinum áður en
könnunin var gerð.
Einn af hverjmn tíu hafði prófað
önnur fíkniefni en hass. Fjórum af
hverjum tíu hafði verið boðið hass
eða önnur sterkari efni tfl kaups síð-
asta árið.
Könnunin, sem kennd er við Ring-
sted, náöi til þrjú þúsund ungmenna
á aldrinum 11 til 24 ára og var spurt
um lífsstíl og vímugjafaneyslu.
REUTERSMYND
Sjaldséðir eru hvítir...
Þriggja mánaða gömul hvít Bengal-tígrisdýr leika hér við Peggy Sheung sem hefur annast þau í dýragarðinum í Kuala
Lumpur í Malasíu frá fæðingu. Talið er að aðeins eitt af hverjum 10 þúsund tígrisdýrum fæöist hvítt á feld en foreldr-
arnir voru í heimsókn frá Nandakan-dýragarðinum á Indlandi þegar þeir áttu ungana tvo sem enn eru nafnlausir.
Þingmenn í Bandaríkjunum eru ævareiðir:
Ráðist á stoltið
Hoflustueiðurinn (Pledge of Allegi-
ance) var dæmdur brotlegur á stjórn-
arskrá Bandaríkjanna í alríkisrétti
þarlendis fyrr i vikunni. Hefur þetta
vakið gifurlega reiði bæði öldunga-
deildarþingmanna sem og á fufltrúa-
þinginu.
Þar sem ríki og kirkja eru aðskilin
í Bandaríkjunum komst dómurinn að
þeirri niðurstöðu að orðin „one
nation under God“ (ein þjóð sem lýtur
Guði) brjóti á því skipulagi. AUir
grunnskólakrakkar í 9 fylkjum lands-
ins fara með eiðinn á morgni hverjum
og var það faðir í Sacramento sem
fékk nóg og kærði eiðinn. Hann og
fjölskylda hans eru trúleysingjar og
vildu ekki láta bam sitt þurfa að
hlusta á slíkt guðstal á hverjum
morgni sinnar grunnskólagöngu.
Ari Fleischer, talsmaður Bush
Bandaríkjaforseta, sagði að forsetan-
REUTERSMYND
Mlchael Newdow
Maöurinn sem gerði allt vitlaust og
fékk alla upp á móti sér.
um þætti dómurinn „fáránlegur" og
voru þingmenn honum hjartanlega
sammála.
Einn þeirra var James Sensen-
brenner. „Hvað er næst? Úrskurður
dóms sem segir að það verði að taka
„In God We Trust“ (Á Guð setjum við
traust okkar) af peningaseðlunum
okkar? Hvað um að banna frasann
„God Bless America" (Guð blessi Am-
eríku) þjóðhátiðardaginn 4. júlí?“
sagði Sensen Brenner.
Hann bætti því við af ef eiður þessi
væri brot á stjómarskránni ætti
stjómarskráin að vera brot á stjómar-
skránni þar sem vikið er að Guði í
henni í ein fjögur skipti.
Dómarinn sem kvað upp dóminn
hefur nú dregið hann til baka vegna
gífurlegra mótmæla um allt land.
Dómsmálaráðherra landsins hefur
kallað á ný réttarhöld.
REUTERSMYND
Donald Rumsfeld
Bandaríski iandvarnaráðherrann
greinir frá vopnafundi í blaðaviðtali.
Rumsfeld segir
al-Qaeda fá vopn
Vígamenn al-Qaeda hryðjuverka-
samtakEmna og talibana í Afganist-
an hafa fengið nýjar sendingar af
vopnum og skotfærum til að berjast
við Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra í Afganistan.
Þetta kemur fram í viðtali við
Donald Rumsfeld, landvamaráð-
herra Bandaríkjanna, í viðtali sem
bandEuíska dagblaðið Washington
Times birtir í dag.
Rumsfeld segir að bandarískir
hermenn í Afganistan hafi nýlega
fundið nýja sendingu Eif vígtólum
sem ætluð voru sveitum al-Qaeda og
talibana. Ráðherrann neitar þó að
greina nánar frá því hvers konar
vopn hafi fundist.
Hernaðaraögerðir Bandaríkja-
manna hafa því ekki náð aö draga
aflan mátt úr vígamönnunum.
Kínverjar óttast
alnæmisfaraldur
í nýrri skýrslu sem Sameinuðu
þjóðimar hafa gefið út kemur fram
að alnæmi gæti á næstu árum
breiðst verulega út í Kina þar sem
um milljarður manns býr.
Samkvæmt upplýsingum Siri
Tellier, yfirmanns nefndar á vegum
SÞ um alnæmi og HTV-smit í Kína,
eru líkur á að um 10 milljónir Kín-
verja verði HlV-smitaðar eftir 8 ár
en samkvæmt úttekt nefndarinnar
voru í fyrra allt frá 850 þúsund tfl
1,5 milljónir manns smitaðar.
Tellier segir helsta vandamáliö
vera vanþekkingu á smitleiðum og
þurfi til að mynda að gera fræðslu-
átak um smokka í landinu.
REUTERSMYND
Nærri Show Low, Arizona
Björgunarmenn telja að þeir hafi
náð að bjarga bænum Show Low.
Eldarnir ógna
verndarsvæðum
Um leið og björgunaraðgerðir
virðast hafa bjargað smábænum
Show Low í Arizona í Bandaríkjun-
um frá þvi að verða skógareldum að
bráð eru verndarsvæði Apache-
indiána að fara í rúst.
Apache-indíánar hafa búið á há-
lendi í austurhluta Arizona-fylkis-
ins í hundruð ára en þeir segja að
nú þegar hafa eldarnir gereyðflagt
efnahagskerfið þetta með því að
brenna timbur sem þeir venjulega
höggva niður sjálfir sem og að eyði-
leggja staðinn fyrir ferðamönnum.
„Ég veit ekki hvemig við eigum að
hafa efni á að borga fyrir mat eða
klára bíla- og trukkaafborganir okk-
ar,“ sagði Andrew Kinney, talsmað-
ur þeirra, í gær.