Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Blaðsíða 17
16
17
Kjailari
Kjallari
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV
Skoðun
Kynóður gíraffi drepur túrista
ESB-aðild gegn fullveldi og lýðrœði
sagður hafa gert sér það til afþrey-
ingar á fylliríi að slá tvo menn kalda,
enda er hann ekki kallaður „Garð-
sláttuvélin" fyrir ekki neitt. Þannig
var að kokkurinn, sem eldaði ofan I
danska knattspymulandsliðið á HM,
vildi kveðja mötunauta sina eftir
skemmtilega samveru og hóaði hópn-
um saman í gleðskap á Café Ketsup
(sic!) í Pílustræti þar sem hann
stendur fyrir eldamennskunni.
Nema hvað, eitthvað hefur meltingin
verið í ólagi hjá Töfting og fyrr en
nokkum mann varði var hann rok-
inn burt úr gleðskapnum og hof-
meistarinn og aðstoðarkokkurinn
höfðu verið skallaðir i gólfið og lágu
eftir í roti en oft hefur verið sagt um
Töfting: Margur er knár þótt hann sé
smár. Við yfirheyrslur hjá lögregl-
unni lýsti Töfting yfir sakieysi sínu.
Fyrir mína parta finnst mér yfir-
leitt mun skemmtilegra að lesa blöð-
in um gúrkutimann heldur en þegar
sumarfríum lýkur og fólkið sem ræð-
ur veröldinni kemur aftur til starfa.
Það er yfirleitt ólíkt meira krassandi
að lesa skáldlegar fabúlur um
kynóða gíraffa, ellegar fréttir um
pústra og kjaftshögg sem gætu verið
upp úr íslendingasögunum heldur en
að pæla í gegnum viðtöl eða fréttir af
ráðamönnum heimsins (og jafnvel
þessa litla lands) sem eru svo slóttug-
ir að þeir segja aldrei berum oröum
hvað þeir meina, því að það er eins
og ef þeir viti sjálfir hugsanir sínar
þyki þeim þær svo blöskranlegar að
þeir reyni eftir mætti að dulbúa þær,
helst svo mjög að enginn skilji hvað
þeir eru að fara. Má ég þá biðja um
einn og einn kynóðan gíraffa til til-
breytingar eða handóðan fótbolta-
mann.
Meðan ráðamenn eru í fríi er
gúrkutíð hjá þeim blaöamönnum
sem hafa þá atvinnu að fylgja stór-
menninu eftir með blýant og blað,
hljóðnema og myndavélar og þá er
tækifæri fyrir þá að slá undir nára á
skáldafáknum og láta gamminn
geysa út um allar gnmdir og beina
athyglinni frá þeim fámenna hópi
sem býr til fréttimar að þeim fjöl-
menna hópi sem verður að þola þær
og afleiðingar þeirra.
Hjörleifur
Guttormsson
fyrrverandi
alþingismaður
„Nú er erfitt að segja til
um það hvort íslandi væri
betur borgið innan ESB
eða utan. Hvort EES-samn-
ingurinn dugi betur en að-
ild eða hvort leita beri
nýrra leiða. Þetta getum
við ekki vitað fyrr en aðild-
arsamningur liggurfyrir.
Eina vitlega leiðin er að
skilgreina samningsmark-
miðin, gera okkur grein
fyrir kostum oggöllum og
láta reyna á aðildarum-
sókn ífyllingu tímans.“
og fólkið, sem átti allt sitt undir fisk-
vinnslunni, stóð eftir með svuntumar á
meðan sægreifamir seldu kvótann í
burtu.
Evrópukynningin
Evrópumálin verða rasdd og kynnt af
kappi í Evópukynningu Samfylkingar-
innar á næstu mánuöum. Fundir verða
haldnir um allt land þar sem hugsanleg
samningsmarkmið, kostir og gallar að-
ildar og hvaðeina sem viðkemur tengsl-
um íslands við Evrópu, verður rætt.
Evrópuferli flokksins lýkur í haust á
því aö Qokksmenn greiöa atkvæði um
það hvort Samfyikingin setji aðildar-
umsókn á stefnuskrá sína. Þannig
tryggjum við að flokksmenn fái aö ráða
í kjölfar ítarlegrar umræðu. Fómum
ekki þessu mikilvæga máli á bálkesti
fordómanna. Ræðum það af viti og tök-
um skynsamlega afstööu út fiá þeirri
umræðu að lokum.
Þegar maður les svona fyi
irsögn í blaöi veit maöur
að svonefnd gúrkutíð er
gengin í garö en gúrkutíð
er eins og kunnugt er sá
tími þegar fátt fréttnæmt
gerist og markaösprísar á
agúrkum - eins og þær
eru nú spennandi jurt -
verða að stórum fyrirsögn
um í fjölmiðlum.
„Það er yfirleitt ólikt meira krassandi að lesa skáldleg-
ar fabúlur um kynóða gíraffa, ellegar fréttir um pústra
og kjaftshögg sem gætu verið upp úr íslendingasögun-
um heldur en að pœla í gegnum viðtöl eða fréttir af
ráðamönnum heimsins (og jafnvel þessa litla lands)
sem eru svo slóttugir að þeir segja aldrei berum orðum
hvað þeir meina ..."
En á Ekstrablaðinu í kóngsins
Kaupinhafn eru blaðamenn sem vita
vel að þótt eflaust séu vítamín í hin-
um daufgerðu agúrkum þá duga þær
skammt til að selja dagblöð og setja
fréttahallærið ekki fyrir sig og neita
að grúfa sig yfir agúrkuprísana fyrr
en í fulla hnefana. Ef eitt dagblað á
að seljast þokkalega þarf það að birta
fréttir af stórviðburðum og skandöl-
um - og allrabestar eru fréttir um
kynlífi eða ofbeldi - og helst hvoru-
tveggja í senn.
Kyn- og morðóður giraffi í Keníu
kom því eins og himnasending inn á
ritstjórnina og var þegar í stað leidd-
ur til öndvegis en agúrkumar fengu
að bíða síns vitjunartíma enn um
hríð.
Morðinginn stal engu
„Sexgal giraf dræber turist“,
skrifa þeir á Ekstrablaðinu og skýra
frá því með beinskeyttum, hlutlæg-
um og ábyrgum hætti að amerískur
ferðamaður hafi um helgina fundist
látinn í Keníu og lögreglan gnmi
kynóðan gíraffa um ódæðisverkiö.
I fréttinni stendur: „Lögregluyfir-
völd í Keníu hafa grunsemdir um að
afbrýðisamur karlkyns gíraffi hafi
staðið á bak við hrottalegt morð á
bandarískum ferðamanni núna um
helgina í námunda við óðalsklúbb-
inn Aberdare, 165 kílómetra norðan
við höfuðborgina Næróbí.
Ferðamaðurinn fannst látinn með
hrikalega áverka á höfði og likama
en engu var stolið af fómarlambinu.
Að sögn yfirvaldanna geta gíraffar
verið ákaflega hættulegir um fengi-
tímann og nú er lögreglan að svipast
vun eftir morðgíraffanum.“
Þetta las ég sem sagt núna í vik-
unni í Ekstrablaðinu og sel þaö ekki
dýrara en ég keypti það, fann það
reyndar á Netinu.
Góður skallamaður
En þeim á Ekstrablaðinu er ekki
fisjað saman. Ekki dettur þeim í hug
aö trúa einum kynóðum gíraffa fyrir
því að selja blaðið, jafnvel þótt hann
sé morðóður líka, heldur skal meira
til, og hin aðalfréttin var um fót-
boltamanninn Stig Töfting sem er
Bálköstur fordómanna
Þráinn
Bertelsson
rithöfundur
og kvikmynda-
gerðarmaður
Svonefnd Evrópuumræða
hérlendis er í heldur bág-
bornu ásigkomulagi. For-
menn ríkisstjórnarflokk-
anna kasta á milli sín
hnútum í ræðum á tylli-
dögum eins og gerðist nú
17. júní en forðast eins
og heitan eldinn að setj-
ast saman fyrir framan
alþjóð og ræða djúpstæð-
an ágreining í afstöðu til
Evrópusambandsins. Báð-
ir fullyrða, Davíð og Hall-
dór, að þetta grundvallar-
mál komi ríkisstjórn
flokka þeirra ekki við. Þó
er Ijóst að utanríkisráð-
herra notar stöðu sína í
ríkisstjórn, ráðuneyti sitt
og utanríkisþjónustu til
að plægja akurinn fyrir
umsókn um aðild að Evr-
ópusambandinu, í von um
að færi gefist innan tíðar.
í ákafa sínum bíður hann
þess ekki einu sinni að
málið sé gert upp á vett-
vangi eigin flokks.
Forysta Samíylkingarinnar valdi
þann kost að láta flokksmenn skera úr
um stefhuna í þessu afdrifaríka máli og
formaðurinn lagði um leið sjálfan sig að
„Það eru engin tíðindi að
þorrinn af forystusveit
Samfylkingarinnar vill
koma íslandi inn í Evr-
ópusambandið rétt eins og
Alþýðuflokkurinn sálugi.
Með ESB-aðild myndi
þessi flokkur, sem ekki veit
í hvorn fót hann á að
stíga í neinu því sem máli
skiptir, geta vísað ágrein-
ingi og ábyrgð til valda-
stofnana ESB í Brussel. “
Össur og Halldór eru samstiga í því að
nota EES-samninginn sem helstu við-
miðun í umræðu um nútíð og framtíð
innan eða utan Evrópusambandsins.
Össur studdi þann samning opinberlega
fyrir áratug vegna þess hann væri skref
að ESB-aðild, Haildór var þá í minni-
hluta í Framsókn og sat hjá við lokaaf-
greiðslu á Alþingi. ísiendingar eiga þess
kost að búa við EES-samninginn áfram
eða fá honum breytt í tvihliöa samning.
Engir farvegir eru hins vegar mótaðir til
að losna úr Evrópusambandinu ef þjóð-
slíkur samningur liggur fyrir þá er það
þjóðarinnar að greiða atkvæði um
hann. Slíkir samningar hafa verið felld-
ir, t.d. tvisvar í Noregi, þannig að aöild-
arumsókn þýðir alls ekki aöild, likt og
haldið hefiir verið fram. Þjóðin hefur
síðasta orðið.
Yfirráðin yfir auðlindinni
Stærsta málið í allri umræðu um ís-
land og Evrópu snýr að yfirráðum yfir
fiskveiðilögsögunni. Án fúllra yfirráða
yfir auðlindinni kemur aðild að ESB
ekki til greina. Hins vegar bendir allt
til þess að við samningaviðræður héld-
um við fullum yfirráðum yfir auðlind-
inni. Enda yrði það alltaf samnings-
markmið númer eitt ef til viðræðna
yrði gengið. Til þess þarf að tryggja að
við værum ein þjóða um veiðamar og
stjómuðum heildaraflanum á Islands-
miðum. Samkvæmt niðurstöðu
skýrsluhöfúnda Samfylkingarinnar em
sjávarútvegsmálin ekki fyrirstaða ef til
aðildarumsóknar kæmi. Vegna veiði-
reynslu sætum við ein að veiðum á haf-
svæði okkar.
Gjafakvótinn
Best væri að byija á því að fyma
veiðiheimildimar, uppræta gjafakvót-
ann og tryggja þannig eignarhald þjóð-
arinnar á auðlindinni. Kvótakerfið fel-
ur í sér dæmalaust ranglæti sem er
mjög brýnt að leiðrétta og upplagt í
kjölfar þeirrar skoðunar á íslenskt sam-
felag sem ætti sér stað viö aðiMarum-
sókn.
Enda em afleiöingar gjafakvótans
hrikalegar og leyna sér ekki. Fjöldi
byggðarlaga um allt land hrundi, eign-
ir fólksins urðu verðlausar og atvinnan
fór. Byggðimar hafa verið lagðar í eyði
veði. Það em engin tíðindi að þorrinn af
forystusveit Samfylkingarinnar vill
koma íslandi inn í Evrópusambandið
rétt eins og Alþýðuflokkurinn sálugi.
Með ESB-aðild myndi þessi flokku,r sem
ekki veit í hvom fót hann eigi að stíga f
neinu því sem máli skiptir, geta vísað
ágreiningi og ábyrgð til valdastofnana
ESB í Brussel.
Útþynning á fullveldishugtakinu
í viðleitni sinni við að gylla fyrir al-
menningi inngöngu í Evrópusambandið
reyna formenn Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks að bijóta niður viðtekinn
skilning og skilgreiningu á því hvað
felist í fullveldi þjóða. Þetta kom berlega
ffarn í máli Halldórs Ásgrímssonar á
Rainseyri 17. júní sl. Örlög okkar tengist
með órofa hætti öðrum Norðurlanda-
þjóðum og Evrópuþjóðum. „Við deilum
með þeim ákvörðunum, þeirra fullveldi
og sjálfstæði hefur áhrif á okkar full-
veldi og sjálfstæði," sagði utanríkisráð-
herrann og talaði síðan um samvinnu
við þessar þjóðir sem gmndvöll að þátt-
töku okkar í alþjóðavæðingu. Hér er öllu
hrært í graut og varast að koma að
kjama máls sem felst í því að með aðild
að Evrópusambandinu fóma íslendingar
því sjálfstæði til ákvarðana í eigin mál-
um sem þjóðin ávann sér 1918 og með
lýðveldisstofhun 1944, bæði á sviði lög-
gjafar-, dóms- og framkvæmdavalds.
ríki einu sinni lenda innan múra þess.
ESB er ólýðræðislegt bákn
Ýmsir þeir sem tala opinberlega fyrir
aðild íslands að Evrópusambandinu
virðast ekki hafa haft fyrir því að kynna
sér stafrófið í stofnanauppbyggingu þess
og ákvarðanatöku, eða þegja vísvitandi
um þá hlið mála. Ákvarðanataka ESB í
málum stórum og smáum byggist ekki á
þingræði heldur samblandi af embættis-
mannavaldi og hrossakaupum í ráð-
herraráði ESB. Aðeins ffamkvæmda-
stjómin í Brassel hefur rétt til að gera
tillögur um iög og tilskipanir á grunni
Rómarsáttmálans og svonefnt Evrópu-
þing má aðeins andæfa með breytingar-
tillögum sem meirihluta þarf fyrir.
Styrking þeirrar samkundu, sem sumir
láta sig dreyma um, þýðir sjálfkrafa
veikingu á valdi þjóðþinga aðildarríkja.
Rök fyrir aðild íslands að ESB verða
seint sótt með skírskotun til lýðræðis-
hugsjóna. Þeir sem reyna að hugga sig
með tali um svonefnt grenndarlýðræði
(subsidiarity) gerðu rétt í að kynna sér
hvað á bak við það loðna hugtak býr
áður en því er teflt ffam af alvöru í um-
ræðunni, að ekki sé talað um þá sem
telja heimspekinginn Habermas hafa
lykla að lausn á andlýðræðislegum leik-
reglum þessa miðstýrða skrifræðis-
bákns.
Björgvin G.
Sigurösson
framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar
Án fordóma- og öfgalausr-
ar umræöu um samskipti
íslands viö Evrópu náum
við aldrei vitlegri niður-
stöðu í þessu brýna máli.
Þar með væri mikilsverð-
um hagsmunum þjóðar-
innar kastað á bálköst
fordómanna.
Undanfamar vikur hafa andstæðing-
ar þess að rætt verði vitlega um það
hvort sækja eigi um aðild að ESB ítrek-
að reynt að hrekja umræðuna inn á
afar fýrirsjáanlegar brautir. Klifað er á
alls kyns vitleysu um fómarkostnaðinn
og einhliða upplýsingum haldiö á lofti.
Þjóðin ræður
Nú er erfitt að segja til um það hvort
íslandi væri betur borgið innan ESB
eða utan. Hvort EES-samningurinn
dugi betur en aðild eða hvort leita beri
nýrra leiða. Þetta getum við ekki vitað
fyrr en aðildarsamningur liggur fyrir.
Eina vitlega leiðin er að skilgreina
samningsmarkmiðin, gera okkur grein
fyrir kostum og göllum og láta reyna á
aðildarumsókn í fyllingu tímans. Þegar
Útgáfufélag: ÚtgáfufélagiB DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aftalritstjóri: Óli Bjórn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. .- Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462.5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV efif.
Plótugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Arafat og kosningar
Hárrrétt er hjá palestínsku heimastjóminni að efna til
forsetakosninga i janúar á næsta ári, en ákvörðun þessa
efnis var kynnt í fyrradag. Umbætur í réttar- og stjórn-
kerfi Palestínumanna eru afar brýnar og lýðræðislegar
kosningar eru mikilvægur liður í að færa þessa landlausu
þjóð nær hennar nauðsynlega sjálfstæði. Það er Yasser
Arafat sem hefur frumkvæði að forsetakosningunum og er
ekki annars að vænta en hann ætli sjálfum sér að verða
hlutskarpastur í því kjöri.
Arafat er umdeildur leiðtogi, rétt eins og gengur og ger-
ist á meðal orðhvatra manna sem staðið hafa i eldlínu
stjórnmálanna um langt árabil. Það er ekkert fararsnið á
honum úr stjórnmálum og þótt hann sé kominn á áttræð-
isaldur stendur hann enn þá keikur framan við fallbyssu-
kjafta ísraelshers og steytir þar hvita hnefa sína af litlu
minni krafti en i árdaga heimastjórnar á svæðinu. Hann
hefur staðist hvert áhlaupið innan búðar og utan og kem-
ur einkum tvennt til, vinnusemi og valdafikn.
Auðvitað er Arafat ekki gallalaus maður. Hann er
meira að segja göllum hlaðinn og getur verið óþolandi í
samstarfi og ósveigjanlegur ef sá er gállinn á honum.
Hann er hins vegar löglega kjörinn forseti palestínsku
þjóðarinnar og því er undarlegt að forseti Bandarikjanna
lýsi þvi yfir að réttast sé að Palestinumenn losi sig við for-
seta sinn úr embætti til að höggva á rembihnútinn í
raunalegum málefnum Miðausturlanda. Að þessu leyti
var ræða Bush á dögunum allt að því útópisk.
Arafat hefur að mörgu leyti verið óbilgjam í forsetatíð
sinni. Hann hefur á stundum stjómað eins og einvaldur.
Valdagræðgin hefur staðið honum jafnmikið fyrir þrifum
og hún hefur skilað honum áleiðis til valda. Gerald Butt,
sérfræðingur BBC um málefni Miðausturlanda, hefur sagt
að það sé hreinlega „með sjúklegum hætti" hvað Arafat
sanki að sér völdum og „neiti að dreifa ábyrgð“. Hvað sem
þessu liður stendur hitt eftir óhaggað að hann er löglega
kjörinn forseti, þó af gamla skólanum sé.
Vissulega hefur kveðið við nýjan tón á meðal margra
Palestínumanna á siðustu vikum eftir margra mánaða
hermdarverkastarfsemi beggja deilenda í landinu helga.
Skemmst er að minnast yfirlýsingar fimmtíu áhrifamanna
úr röðum Palestínumanna með Hanan Ashrawi í broddi
fylkingar sem krefjast þess að öfgasamtök snúi nú þegar
af leið sjálfsmorðsárása. Enginn úr þessum hópi er hins
vegar liklegur til að velta Arafat úr sessi. í reynd er eng-
inn augljós arftaki Arafats i sjónmáli.
Kosningarnar i Palestínu í janúar á næsta ári verða
ekki aðeins styrkleikamælir á stöðu Arafats í arabiskum
heimi. Væntanlega verður einnig kosið til þings á heima-
stjórnarsvæðinu og telja fréttaskýrendur talsverðar líkur
á að harðlínumenn á borð við Hamas nái þar hreinum
meirihluta. Tvennt sé augljóst i stöðunni; orð Bush
Bandaríkjaforseta hafi styrkt stöðu Arafats á heimaslóð-
um og þá hafi þau ekki síður verið vatn á myllu and-am-
erískra afla úr röðum Palestínumanna.
Vesturlönd fá ekki ráðið þvi hverjir stjórna palestínskri
þjóð. Palestínsk þjóð gerir það sjálf og metur stöðuna í eig-
in ljósi. Vesturlönd geta ekki í einu orðinu krafist réttar-
og lýðræðisumbóta í landinu en í hinu orðinu farið fram
á að löglega kjömir forystumenn landsins fari frá völdum
ef það kann að henta friðarumleitunum Vesturlanda á
hverjum tíma. Auðvitað geta leiðtogi Bandaríkjanna og
aðrir menn látið sig dreyma um fullkomna forseta, en í
vöku eiga þeir að verja lýðræðið og láta það dafha.
Sigmundur Ernir
Sandkom
Stjómar
(í)myndanir
Talsvert er nú rætt
um þaö á þeim póli-
tisku göngunum að
kærleikar fari heldur
vaxandi á milli liðs-
manna Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks, að
minnsta kosti í aðra
áttina ef ekki báðar.
Kenna menn mikillar
þreytu í samstarfi nú-
verandi stjómarflokka
enda viröist það vera
orðin opinber keppnis-
grein hjá formönnum Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks að hafa betur í kappræðunni um ESB. Áhrifa-
menn í Samfylkingunni eru sagðir hafa rætt þennan
pirring sérstaklega og sjá sér leik á borði; tímabært sé
að Samfylking komist í stjóm og eini ömggi tveggja
flokka kosturinn fyrir hana sé að bera víumar í sjálf-
stæðismenn. Þar á bæ geti menn vart hugsaö sér að
setjast til stjómarborðs með vinstri grænum i samstarfi
þriggja flokka undir forystu framsóknarmanna. í reynd
sé kosturinn því aðeins einn í stöðunni, vilji flokkurinn
komast til valda og þaö sé orðið honum lífsspursmál...
Annir hjá
Eggerti
Þá er HM í knatt-
spymu aö ljúka og þar
með geta landsmenn
byrjað að sinna vinnu
sinni og fjölskyldu af
fullum krafti á nýjan
leik eftir þokkalega
flarvem í bítiö á
morgnana og aftur um
hádegisbil. Meðal
þeirra sem skila sér aft-
ur til starfa er Eggert
Magnússon, formaður
KSÍ, en hann hefur
dvalið úti í Japan og Suður-Kóreu og fylgst þar meö
framkvæmd keppninnar sem tekist hefur með miklum
ágætum. Eggert hefur verið þar á miklum skóla og
kynnst að sögn svakalegri vinnusemi heimamanna sem
þykja slá íslendinga út í áhlaupsverkum. Sagt er að
Eggert verði því fegnastur að koma heim, enda hafi dag-
skrá hans verið með strangasta móti og Japanar og
Kóreumenn svo ákafir að kynna Eggerti og öðrum hátt-
settum gestum mótsins hvað þeir geta í mótshaldi að
það hálfa verði að teljast nóg - og vel það ...
Ummæli
Aldrei
„Ef ísland gengur í Evrópusam-
bandið þá mun hið sjálfstæða ís-
lenska ríki líða undir lok. ísland
verður þá fljótt aðeins amt í hinu
evrópska stórríki. ísland mun lúta
hinni evrópsku stjómarskrá sem
þeir í Brussel munu hafa eftir sínu
höföi. íslenskir borgarar munu
lúta evrópskri lögreglu sem þeir í
Brassel munu stjórna. ísland mun
lúta utanríkisstefnu - og þar með
utanríkisviðskiptastefnu - sem
þeir í Brassel munu ákveða. Hags-
munir Islands munu aldrei ráða
úrslitum í nokkru máli þegar
ákvöröun verður tekin í þvi í
Brassel. Aldrei í nokkra rnáli."
Vefþjóöviljinn
Lítill sómi
„Síðast en ekki síst verður
stjómunarfyrirkomulag [Byggöa-
stofnunar] að vera skýrt, en af
fréttum síðustu vikna aö dæma er
óljóst hvort stjóm stofnunarinnar
eða iðnaðarráðherra raunverulega
tekur mikilvægustu ákvarðanir.
Slík óvissa er enn varasamari
■—IIIH ' '
vegna þess að við flutning stofnun-
arinnar út á land skapast aukin
hætta á togstreitu milli iðnaðar-
ráðuneytis og Byggðastofnunar um
verkefhi og völd. Byggðastofnun
hefur augljóslega mikilvægu og
vaxandi hlutverki að gegna. Það er
á ábyrgð stjómvalda og þá ekki
síst iönaðarráðherra að skapa
stofnuninni þau starfsskflyrði aö
henni sé kleift að gegna hlutverki
sinu meö meiri sóma en verið hef-
iu síðustu mánuði."
Ari Teitsson, formaöur Bændasam-
takanna, í leiöara Bændablaösins