Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Qupperneq 19
19
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV Tilvera
lífift
|Bl-1 ■ v-;ggWM
írafár spilar á
Gauknum
Hljómsveitin írafár spilar á
Gauki á Stöng í kvöld. írafár virðist
ætla að verða heitasta bandið í
sumar og vinsældir lagsins Ég sjálf
skemma þar ekki fyrir. Gott
tækifæri fyrir borgarbúa og
nærsveitamenn að kíkja á alvöru
ball.
•Krár
■ Karaoke á Kaffisetrinu
Það verður hörku karaoke-stemning á Kafflsetr-
inu, Laugavegi 103, í kvöld. Húsið er opið til 3 og
má búast við góðu kvöldi.
■ Sælusveitin á Gullöldinni
Sælusveitin leikur fyrir dansi á Gullöldinni Grafar-
vogi. Sælusveitina skipa þeir Hermann Arason og
Niels Ragnarsson. Þaö er ekki spurning að stuðið
verður á Gullöldinni um helgina.
■ Sín á Kringlukránni
Það er alltaf mikið um að vera á Kringlukránni og
í kvöld er það hljómsveitin Sín sem sér um að
halda uppi fjörinu.
■ Ufandi tónlist á Catalínu
Acoustic mætir á Catalínu í Hamraborginni með
trúbadortónlist.
■ Iris Jóns á Kaffi Strætó
íris Jóns syngur rokk og blús á Kaffl Strætó í
kvöld.
M Vítamín á Amsterdam
Hljómsveitin Vítamín tryllir lýöinn á Amsterdam í
kvöld og nótt. Heyrst hefur að ábreiða hljómsveit-
arinnar af Radiohead-slagaranum Creep - eða
Viðrini - sé geysiáheyrileg.
M Sigvaldi Búi á Champions-café
Sigvaldi Búi þeytir skífum á Champions-café í
kvöld.
■ Spútnik á Kaffi Revkiavík
Hljómsveibn Spútnik leikur á Kaffl Reykjavík í
kvöld.
•Tónleikar
■ Kippl Kanlnus í 12 tónum
Tónlistarmaðurínn Kippi Kaninus fagnar útgáfu á
plötunni sinni, Huggun, með útgáfugleði 112 tón-
um við Skóiavörðustíg í dag. Kippi leikur nokkur
lög af þessu tilefni og léttar veitingar verða í boði.
Gleðin hefst klukkan 17 og veröur geislaplatan á
tilboði af tæssu tilefni.
•Sveitin
■ Jass á Palvík
Jazzin Dukes frá Stokkhólmi munu flytja tónlist
ásamt Kór Dalvíkurkirkju í Dalvíkurkirkju kl.
20.30. Stjórnandi kórsins er Hlfn Torfadóttir.
Sveifla í öllum lífsins þáttum.
■ Pead Sea Apple á Húsavík
Hljómsveitin Dead Sea Apple spilar á 4 stööum á
Norðurlandi um helginalTilefnið er að kynna vænt-
anlega plötu sveitarinnar ásamt því að vera með
hin alræmdu og sívinsælu rokkböll! Hún verður á
Gamla Bauk á Húsavík í kvöld.
■ Rúnar Þór á Oddvitanum j Akurbyri
Rúnar Þór og hljómsveit hans mæta á Oddvitann,
Akureyri.
1 Jasshátíft á Olafsfirðl
Jassklúbbur Ólafsfjarðar heldur Blue North Music
Fesbval í þriðja sinn á Ólafsfirði dagana 27.-29.
júní. Hátíöin er að þessu sinni helguö blues- og
bluegrasstónlist sem í dag á auknum vinsældum
aö fagna meðal íslendinga. Fjölmargar hljómsveit-
ir koma fram á hátíöinni og má þar nefna Deadline
með Páli Rósinkranz, Chicago Beau með Blús-
mönnum Guðmundar Péturssonar, Kentár, Gras,
South River Band, Hrafnasþark, GSM og Roðlaust
og beiniaust. Sérstakt hátíðarútvarp verður starf-
rækt á meðan á hátíðinni stendur, Blue North
Music Radio fm.95,2. sem notið hefur gífuríegra
vinsælda á síöustu hátíöum. Nánari upplýsingar
um hátiðina má finna ion á: www.1000th.is
■ Land og svnir á Isafirfti
Land og synir heimsækja ísafjörð eftir langt hlé og
leika á 16 ára balli í Sjallanum í kvöid.
•Feröir
■Næturganga á Fimmvörðuháls
Á föstudagskvöldi er gengið frá Skógum að skála
Útivistar á Rmmvörðuhálsi. Á laugardeginum er
gengið niður í Bása og þar gist í eina nótt. Heim-
ferð á sunnudeginum er klukkan 13.30 frá Bás-
um. Brottför frá BSÍ kl. 17.00. Verð: 8.700 /
10.200 (í skála í Básum), 8.200 / 9.700 (í tjaldi
í Básum). Fararstjóri: Oddur Friöriksson.
Krossgáta
Lárétt: 1 lof, 4 hirslu, 7
glætu, 8 dreitil, 10 kvísl,
12 blekking, 13 prýöileg,
14 ró, 15 hita, 16 brak, 18
hreint, 21 innrætið, 22
tól, 23 glufa.
Lóörétt: 1 hæö, 2 beiðni,
3 skammir, 4 tonn, 5
kaldi, 6 stúlka, 9 ráfa, 11
hryssur, 16 form, 17
þroskastig, 19 þjóta, 20
seinkun.
Lausn neöst á síðunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
pakkaö saman á næsta auöveldan
hátt. Ehlvest má muna fífil sinn
fegri, var hér áður fyrr meðal 10
bestu skákmanna heims og hefur
verið að ná sér á strik. Koma dagar
og koma ráð!?
Hvítt: Zoltan Izoria (2556)
Svart: Jaan Ehlvest (2588)
Óregluleg byrjun. 3. Evrópumót
FIDE Batumi, Georgíu (11), 23.6.
2002
1. d4 c5 2. d5 f5 3. Rc3 Rf6 4. f3
g6 5. e4 d6 6. Bb5+ Bd7 7. exf5
gxf5 8. Rh3 Ra6 9. Bxa6 bxa6 10.
0-0 Bg7 11. Re2 0-0 12. Ref4 h6 13.
c4 Re8 14. Khl Bd4 15. De2 Kh7
16. Be3 Bh8 17. Hael Hf7 18. Dd2
Hb8 19. b3 a5 20. Re6 Bxe6 21.
dxe6 Hf6 22. Bxh6 Rc7 23. Rg5+
Kg8 24. Rf7 De8 25. Dg5+ Kh7 26.
Dh4 Rxe6 Stöðumyndin! 27. Hxe6
Hxf7 28. Hfel Hb7 29. Bf8+ Kg8
30. Hg6+ Bg7 31. Bxg7 Hxg7 32.
Hh6 1-0.
Lausn á krossgátu______
'JO} 0Z ‘egæ 61
il houi 9i ‘JEjauf n ‘eaSia 6 ‘eid 9 ‘[m( g ‘njsaieuis \ ‘igjAnens e ‘Jjso z ‘igq l ijjajgoq
'jnej ez ‘!W ZZ ‘gi[ga IZ ‘jjasj 81
‘jjeui 91 ‘S[A 91 ‘gjia ji ‘jæSe £i ‘jej Zl ‘buijb oi ‘e>[0[ 8 ‘nuiiijs i ‘de>[s j. ‘sgjg i :jjajeq
Hvítur á leik!
Evrópumótinu er aö ljúka í Grús-
íu og aðeins 3 keppendur áttu mögu-
leika á sigri er ein umferð er eftir,
þeir Bartlomiej Macieja (2584) með 9
v. og þeir Mikhail Gurevich (2641)
og Sergey Volkov (2609) með 8,5 v.
Mönnum hefur gengið misjafnlega
eins og gengur en þó er sláandi
hvað Jaan Ehlvest frá Eistlandi er
heillum horfinn. Hér er honum
DV+1YND: ÞÖK
Fyrstu sundtökin
Ungbarnasund er vinsælt. Þar læra börnin sundtökin áöur en þau fara aö ganga. Hinn fjögurra mánaöa Leonard
Breiöfjörö var hress og kátur i iauginni enda var mamma ekki langt frá og passaöi aö hann færi ekki á rás.
«<*
*
Islenskt,
já takk
Hin svarta skýrsla um rýran
hlut íslensks, leikins efnis í
sjónvarpinu og umræður sem
af henni hafa spunnist eykur
vonir um úrbætur á því sviði.
Sem aðdáandi íslensks efnis
fagna ég því. Það er alveg rétt
sem listamenn benda á að
þetta var með öðrum og þekki-
legri brag í árdaga sjónvarps á
íslandi. Þá voru vandaðir þætt-
ir með íslenskum leikurum og
hljómlistarmönnum mun al-
gengari á skjánum en nú.
Ógleymanleg er stundin
stóra þegar sjónvarpsgeislinn
náði inn á mitt æskuheimili á
landsbyggðinni. Fyrsta sumar-
hýra ofanritaðrar hafði farið í
að kaupa sjónvarpstæki. Það
hafði legið í kassanum nokkur
ár því að dreiflkerflð var van-
búið og bærinn á skjön við það
lengi vel - en nú var loks von.
Tæknisinnaður sveitungi var
kominn upp snarbratt þakið
með loftnet, inni var tökkum
snúið af áfergju. Heimilisfólkið
myndaði kallkeðju út á hlað
sem bar skilaboð upp á þak. í
upphafi virtist tækið stein-
dautt og á skjánum örlaði
hvorki á punkti né línu. Síðan
fór eitthvað að gerast. Fyrst
kom hljóð. Og hvað heyrðist?
Yndislegur íslenskur söngur og
hljóðfærasláttur. Við það
magnaðist móður þeirra sem
að tilrauninni stóöu og eftir
nokkra stund fóru að sjást lín-
ur á skjánum sem smám saman
þéttust svo greina mátti þrjár
gullfallegar manneskjur inn á
milli snjókornanna. Þarna var
tríóið Lítið eitt að leika og
syngja fyrir landsmenn. Það er
að segja þá sem náðu geislan-
um. Þetta lofaöi sannarlega
góðu.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
blaöamaöur
Myndasój'ur