Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Blaðsíða 21
21
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
I>V
Tilvera
Mel Brooks 76 ára
Afmælisbarn dagsins,
Mel Brooks, fæddist í
Brooklyn og var skírður
Melvin Kaminsky. í
rúm þrjátíu ár hefur
hann sent frá sér gam-
anmyndir og er hann í dag eitt af
stærstu nöfnunum í grínbransanum.
Brooks er þekktur fyrir brjálæðisleg-
an og farsakenndan húmor þar sem
hann blandar gjaman saman háði og
slapstick. Eitt einkenni mynda hans
er gyðingahúmorinn, en Mel Brooks
er sjálfur gyðingur og veit ekkert
skemmtilegra en að henda gaman að
eigin fólki. Eiginkona hans til margra
ára er leikkonan Anne Bancroft.
Stjörnuspá
Gildir fyrir iaugardaginn 29. júní
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.):-
Einhver misskilningur
kann að koma upp í
dag og þú verður að
leysa úr homun sem
allra fyrst þvl annars gætu fleiri
flækst í málið.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
fEkki hafa áhyggjur þó
^(■að ákveðin persóna sé
^ fjarlæg í augnablikinu.
Þú hefur ekki sýnt
henni mikla athygli undanfarið.
Hrúturinn (21. mars-19. apríh:
. Þú gætir orðið var við
’að einhver sé að fara á
bak við þig og reyni
jafnvel að snúa vinum
þínmn gegn þér. Þú þarft ekki að
vera hræddur um að það takist.
Nautið (20. april-20. mai);
Kvöldið verður rólegt
og þú hittir einhvern
sem segir þér mikil-
__ vægar fréttir. Hugsaðu
þig vel um áður en þú eyðir mikl-
um peningum.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúníi:
Hvemig sem þú reynir
X^^virðist ákveðið mál
— X / ekki ætla að ganga
upp. Þú ættir að lita í
kringum þig og vita hvort þú ert
á réttri leið.
Krabbinn (72. iúní-22. íúiív.
Reyndu að leysa
i ágreining sem staðið
hefur í nokkurn tima
____ og hreinsa andrúms-
loftið. Þér gengur vel í vinnu og
námi.
Liónlð (23. iúlí- 22. ágúst):
■ Þú nýtur stuðnings
fjölskyldunnar í sam-
bandi við nýtt við-
fangsefni. Varaðu þig
á fólki sem hefur gaman af því að
baktala annað fólk.
Mevian (23. áeúst-22. sent.):
A* Þó að úthtið sé svart
fyrri hluta dagsins,
Ö^^gPLsérstaklega varðandi
^ f frama sem þú vonaðist
eftir, skaltu ekki örvænta. Þú átt
eftir að fá annað tækifæri.
Vogin (23. sept.-23. okU:
Þetta verður rólegur
dagur og þú ættir að
nota hann vel, meðal
annars til að skipu-
leggja áríðandi mál. Kvöldið verð-
ur ánægjulegt.
Sporðdrekinn (24. okt.-2l. nóv.):
Ef þú hyggur á ferða-
\ lag á næstunni er best
\\ V^aö ákveða ekki neitt
V *, nema í samráði við
ferðaféíagana, annars er hætta á
að upp komi ósætti.
Bogmaðurinn (22. nóv-21. des.):
|í dag er ástæða fyrir
fþig að vera bjartsýnn
enda átt þú góð sam-
■ skipti við ákveðna
manneskju. Happatölur þínar eru
4, 7 og 23.
Steingeltin (22. des.-19. ian.l:
Dagiuinn er heldur
viðburðasnauður hjá
þér og heldur meira
verður um að vera hjá
vinum þínum. Ekki láta það
angra þig.
Bíógagnrýni
Smárabíó/Regnbogínn •
m. ■ &
Hart’s War
'k'k'k
Kynþáttahatur í skugga styrjaldar s(,£5
um kvikmyndir.
Hart’s War er stríðsmynd í víðum
skilningi. Hún gerist í síðari heim-
styrjöldinni og fer af stað sem hefð-
bundin stríðsmynd þar sem Banda-
menn eru í hlutverki góðu gæjanna og
nasistamir hinir vondu. Hún tekur þó
áhugaverða stefnu þegar komið er að
aðalsögusviðinu, sem er innan fang-
elsismúra nasista þar sem stéttaskipt-
ing er ríkjandi meðal fanganna. Með
tilkomu tveggja svartra hermanna
kemur í ljós að þó samlandar séu þá
geta sumir hinna hvítu ekki sætt sig
við að sofa undir sama þaki og svart-
ir. Þar tekur myndinni enn einn við-
snúningin. Þegar síðar meir eru sett
upp réttarhöld með þátttöku nasist-
anna þá liggur við að fangabúðimar
sjáifar séu orðnar að aúkaatriði og
striðið sé fyrst og fremst réttarhöld
þar sem verið er að rétta yfir svörtum
fanga sem á að hafa drepið hvítan
fanga.
Þessi breytti tónn frá upphafinu
sem smám saman gefur myndinni
annað yflrbragð er nokkuð á skjön við
hið hefðbundna þar sem óvinur er
óvinur og vinur er vinur. Hér er það
fyrst og fremst eðli mannsins sem
leikstjórinn Gregory Hoblit (Primal
Fear) er að leika sér með þó skuggi
styrjaldarinnar hvíli yflr. Af og til
erum við minnt á hamfarirnar sem
eru að gerast utan fangabúðanna.
Sögumaður og önnur aðalpersónan
Foringinn
Bruce Willis í hlutverki Williams McNamara, yfirforingja sem stjórnar banda-
rísku föngunum.
er liðsforinginn Tommy Hart (Colin
Farrell), sem fangaður er, pyntaður til
sagna og settur síöan í fangabúðir.
Þar er hann yfirheyrður af William
McNamara (Bruce Willis) sem er sá
fangi meðal Kanana sem hefur æðstu
tign. McNamara er hörkutól og kemst
fljótt að því að Hart hefur „talað“ og
þar með er hann kominn i ónáð og
settur með óbreyttum föngum. í
fangabúðunum eru einnig Rússar.
Einhverra hluta vegna þá líta nasistar
á þá sem þræla en Kanana sem verð-
uga andstæðinga. Segja má að allt sé
eins og það á að vera þar til tveir
svartir hermenn með yfirmannagráðu
koma í búðirnar. McNamara kemur
þeim fyrir hjá óbreyttum. Með því er
hann í raun að láta þá í gin ljónsins.
Enda fer það svo að með klækjum er
því þannig komið fyrir að nasistar
drepa annan þeirra. Þar með fer af
stað atburðarás sem dýpt er í þegar að
er gáö. Hart þvælist í hana miðja þeg-
ar McNamara kemst að því að Hart
hafði verið í lögfræði þegar hann var
kallaður í herinn.
Hart’s War er vel gerð kvikmynd og
spennandi. Raunsæ og um leið heill-
andi kvikmyndataka í vetrarkulda
gefur myndinni kalt yfirbragð sem
passar vel inn í söguna. Það er aftur á
móti lítið raunsæi í sögunni sem er í
mótsögn við raunsætt útlit myndar-
innar. Við höfum sterka andstæða
póla sem leika sér að orðum, sýna
skapfestu þegar við á, skapfestu sem
stundum er einnig veikleiki. Segja má
að höfuðpólamir séu McNamara, sem
Bruce Willis leikur. Og þó Willis
standi sig yfirleitt betur í gamanhlut-
verkum þá á hann ágætan dag. Hinn
póllinn er nasistaforinginn Werner
Vissar (Marcel Iures), menntaður í
Bandaríkjunum og er ekki laust viö
að hann beri virðingu fyrir McNa-
mara. Þeir takast á í andlegu stríði. Á
milli þeirra er svo Hart sem Colin
Farrell gerir virkilega góð skil.
Leikstjóri: Gregory Hoblit. Handrit: Bllly
Ray og Terry Garage. Kvikmyndataka:
Alar Kivilo. Tónlist: Rachel Portman. Aó-
alleikarar: Bruce Willis, Colin Farrell, Ter-
ence Dason Howard, Linus Roache og
Marcel lures.
Buffy
Sarah Michelle Gellar og
Freddie Prinze Jr. gengu í það
heilaga í lítilli kapellu í Las Vegas
fyrir skömmu. Hjónin nýgerðu
höfðu verið kærustupar um
alllangan tíma, allt frá því að þau
kynntust við tökur myndarinnar I
er gengin út
Know What You Did Last Sum-
mer. Þau léku nýlega saman i
kvikmynd sem byggð er á teikni-
myndinni Scooby Doo en hún er
væntanleg í kvikmyndahús hér á
landi von bráðar.
Gellar hefur fyrst og fremst ver-
ið þekkt fyrir hlutverk sitt í Buf-
fy the Vampire Slayer-sjónvarps-
þáttunum þar sem hún á gríðar-
lega marga aðdáendur sem sjálf-
sagt sjá á eftir dömunni.
Rappari
fékk ekki
morðhótun
Hvítrapparinn Eminem vísa á
burð orðrómi um að hann hafi feng-
ið morðhótanir fyrir að vera með
fíflagang í garð hryöjuverkaforingj-
ans Osama bin Ladens.
í nýju myndbandi dansar
Eminem í helli, klæddur eins og
Osama, og þar er gert stólpagrín að
Vesturlandaskelfinum mikla.
Bresk blöð höfðu birt fréttir um
að rapparinn væri kominn með her-
skara lífvarða í kring um sig eftir
hótanir frá al-Qaeda samtökum bin
Ladens. „Allar getsakir um þetta
eru ósannar, óábyrgar og særandi,”
segir í yfirlýsingu frá rapparanum.
Urslitaleikirnir í HM í beinni á laugardag og sunnudag