Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Síða 27
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
27
«r
Sport
Þrjú töp í síðustu fjórum leikjum
Bjarni Jóhannsson fylgist hér með sínum mönnum í gær en Grindavík mátti
þá sætta sig við sitt þriðja tap í síðustu fjórum leikjum í Símadeild karla, nú
2-4 á heimavelli gegn nýliðum Þórsara. Grindvíkingar eru engu að síður í
}riðja sæti deildarinnar með 11 stig. DV-mynd Teitur
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkui
0-1 Gunnar Konráðsson (9., skot af marklínu eftir aukaspymu Páls Viðars).
0-2 Orri Freyr Óskarsson (36., skot úr markteig eftir sendingu Jóhanns).
0-3 Orri Freyr Óskarss. (50., skot úr teig eftir stungusendingu Ashley Wooliscroft);,
1-3 Óli Stefán Flóventsson (56., skaUi úr teig eftir fyrirgjöf Grétars Hjartarsonar).
1- 4 Jóhann ÞórhaUsson (63., skot rétt innn teigs eftir háa sendingu Wooliscroft).
2- 4 Sinisa Kekic (64., skalli úr teig eftir aukaspymu Grétars Hjartarsonar).
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Atli Már Rúnarsson, ÞórAk.
Grindavík (4-4-2)
Albert Sævarsson .......2
Ray Anthony Jónsson ... 2
Guðmundur A. Bjamason 2
(66., Alfreð Jóhannsson . . 3)
Ólafúr Öm Bjamason ... 3
Gestur Gylfason ........2
ÓU Stefán Flóventsson ... 3
Vignir Helgason ........2
(66., Eysteinn Hauksson . . 3)
Paul McShane............3
Scott Ramsey............3
Grétar Hjartarson......3
Sinisa Kekic ...........3
Dómari: Garðar Öm
Hinriksson (5).
Áhorfendur: 650.
Gul suiðld:
Páll Viðar (48.),
Þór Ak.
Rauð spiðld:
Engin.
Skot (ú mark):
23 (13) - 10 (7)
Horn:
4-3
Aukaspyrnur:
16-14
Rangstööur:
2-6
Varin skot:
' Albert 2 -
Atli Már 8.
Þór Ak. (4-4-2)
Atli Már Rúnarsson.....5
Ashley Wooliscroft .....4
Jónas Baldursson .......3
Óðinn Ámason...........3
Hörður Rúnarsson.......3
Þórður HaUdórsson......3
(55., Örlygur Helgason ... 3)
Kristján Elí Ömólfsson . . 3
PáU Viðar Gislason.....4
Jóhann ÞórhaUsson......4
(82., Hlynur Eiríksson . . . -)
Orri Freyr Óskarsson ... 4
Gunnar Konráðsson .... 3
(66., Andri B. ÞórhaUsson 3)
Gæði leiks:
Grindavík-Þór Ak. 2-4 (0-2)
Mættu eins
Þórsarar gerðu aldeilis góða ferð til
Grindavíkur í gærkvöld en þá báru
þeir sigurorð af heimamönnum, 2-4, í
skemmtilegum og kaflaskiptum leik.
Þetta er annar sigur norðanmanna í
sumar en sá fyrri kom í fyrsta leik
mótsins en þá lögðu þeir Skagamenn
uppi á Skipaskaga.
Gestimir komu miklu betur
stemmdir til leiks og þrátt fyrir að
heimamenn ættu fyrsta færi leiksins
þar sem Þórsarar björguðu á línu,
voru þeir áberandi betri og náðu for-
ystunni á 9. mínútu. Þeir héldu síð-
an áfram að spila vel og virkilega
gaman var að sjá til þeirra því bolt-
inn gekk vel á milli manna og ekkert
óðagot var í gangi og þeir voru síðan
eldsnöggir að opna vöm heimamanna
sem voru nánast rænulausir lungann
úr fyrri hálfleik.
Þórsarar uppskáru síðan annað
mark á 36. minútu og var sú sókn
einkar glæsileg og þeir verðskulduðu
svo sannarlega þessa forystu sem þeir
fóm með inn i síðari hálfleikinn.
Grindvíkingar komu miklu ákveðn-
ari til leiks í síðari hálfleik enda ann-
að vart hægt eftir hörmungina í þeim
fyrri en Þórsarar voru ekkert á þeim
buxunum að gefa neitt eftir og bættu
við þriðja marki sínu á 50. mínútu og
virtust hafa greitt heimamönnum
náðarhöggið.
Þeir neituðu hins vegar að gefast
upp og minnkuðu muninn 6 mínútum
síðar og héldu þar með í smávon.
Þórsarar færðu sig aftar eftir þriðja
markið sitt og smám saman náðu
Grindvikingarnir tökum á leik sinum
en klaufaskapur i vöminni varð þess
valdandi að gestfrnir bættu við fjórða
marki sínu á 63. mínútu og nú virtist
heimamönnum öllum lokið. Þeir
hysjuðu þó upp um sig brækumar og
skoruðu strax á næstu mínútu og eft-
ir það mark fór leikurinn að mestu
fram á vallarhelmingi Þórsara og
hefðu Grindvíkingar getað með smá-
heppni bætt við marki eða mörkum
en Atli Már Rúnarsson, markvörður
Þórsara, lokaði fyrir allt slíkt með
frábærri frammistöðu.
í heildina séð var sigur gestanna
mjög svo sanngjam og þeir sýndu það
i fyrri hálfleik að þeir geta spilað fót-
bolta eins og hann gerist einna best-
ur hér á landi. Mikill hreyfanleiki,
gott skipulag og góðar útfærslur í
bland við hörkubaráttu er það sem
einkennir liðið þegar það nær sér á
strik.
Loksins annar sigur
Atli Már Rúnarsson var enda kátur
í leikslok þegar DV-Sport náði af hon-
um tali: „Við höfum verið að byrja illa
í undanfomum leikjum og ákváðum
að koma til leiks af krafti og það tókst
vel hjá okkur og loksins er annar sig-
ur kominn í hús. Við vorum einnig
ákveðnir í því að spila sóknarbolta og
það gekk svona ljómandi vel í fyrri
hálfleik og framan af þeim seinni og
skilaði okkur þriggja marka forskoti
og ósjálfrátt færðum við okkur aftar
eftir þaö enda annað oft erfitt. Þeir
sóttu svo á okkur en við ætluðum
okkur stigin þrjú og inn á beinu
brautina aftur, og þar ætlum við að
vera,“ sagöi Atli Már Rúnarsson.
Bjami Jóhannsson, þjálfari Grind-
víkinga, var, eins og gefur að skOja,
afar ósáttur með leik sinna manna og
átti erfitt með að leyna vonbrigðum
sínum og gremju en orð hans hér lýsa
ágætlega leik Grindvíkinga sem vilja
eflaust gleyma honum sem fyrst:
„Menn mæta hér alveg eins og aular
til leiks og það náttúrlega kálar leikn-
um fyrir okkur! Við mættum þó
allavega ágætlega stemmdir i síðari
hálfleikinn en fáum síðan þetta þriðja
mark á okkur sem var auðvitað bara
alveg hræðilegt sem og það fjórða, al-
veg ömurleg mörk að fá á sig. Við
reyndum þó hvað við gátum eftir
þessi áfóll og fengum fullt af færum til
að jafna þetta en það er djöfullegt að
þurfa að fá á sig fjögur mörk til að
menn ranki við sér og átti sig á því
um hvað leikurinn snýst,“ sagði
Bjami Jóhannsson, þungur á brún.
-SMS
Blcmd i poka
Vilborg Jóhannsdóttir, fijálsíþrótta-
kona úr UMSS, keppir 1 sjöþraut í 2.
deild Evrópubikarkeppninnar í Mari-
bor í Slóveníu um helgina. Vilborg
verður eini íslenski keppandinn á
mótinu. Besti árangur Vilborgar á
þessu ári er 4834 stig en þeim árangri
náði hún á Meistaramóti íslands fyr-
ir skömmu. Vilborg stefnir að því að
bæta íslandsmet Birgittu Guðjóns-
dóttur frá 1985 sem er 5206 stig en
besti árangur Vilborgar á ferlinum er
4905 stig.
Liö iþróttafélags Grindavíkur og
Íþróttafélags Vestmannaeyja hafa
álkveðið að taka þátt í 2. deild karla í
körfuknattleik næsta vetur, þrátt fyr-
ir að hafa bæði haft rétt til að spila í
1. deUdinni. IG lék í 1. deUdinni á síð-
asta ári en ÍV vann sér rétt til setu í
1. deUd með því að enda í öðru sæti 2.
deUdar. Selfoss sem féU niöur í aðra
deUd og Ungmennafélag Hruna-
manna munu taka þátt í 1. deUdinni
í þeirra stað. -ósk
Flugukastari af guðs náð
„Hywel Morgan, heimsmethafi í
fluguköstum og hönnuður Scierra-
flugustanganna, hélt námskeiö um
helgina við mjög góðar undirtektir
þátttakenda," sagði Ólafúr Vigfússon
í Veiðihominu í samtali við DV-Sport
í gær.
Námskeið hans voru ólík öllum
öðrum kastnámskeiðum sem ég hef
tekið þátt í og séð hér á landi. Enda
vom framfarir þátttakenda gífurleg-
ar.
Hywel hélt einnig sýningu í dag,
sunnudag, í Hljómskálagarðinum þar
sem um 120 manns fylgdust með hon-
um kasta með 8 flugustöngum i einu.
Hywel byijaði með Greenhart
stöng, sem er um 120 ára gömul, því
næst tók hann um 100 ára Split Cane
stöng, Steel Tube, Glass Fibre og
svona hélt hann áfram upp í nýjustu
byltinguna í flugustöngum, Scierra
Titanium-stöng. Hann hélt sem sagt
á 8 flugustöngum og kastaði þeim öll-
um í einu og var gaman að sjá hversu
misjafrilega þær unnu.
Hywel Morgan hélt áfram og tók
gifurlega langt kast með gamalli tví-
hendri keppnisstöng og kórónaði sýn-
inguna með því að kasta flugulínu
um 15 metra án þess að nota flugu-
stöng, sem sagt bara með höndunum.
„Hywel er ekki bara afburða
kastari heldur er hann magnaðasti
silungsveiðimaður sem ég hef séð.
Ég fór með hann í Bugðuna í
Kjósinni þar sem hann á stuttum
tíma landaði 20 urriðum upp í 3 pund
auk þess sem hann missti fjölda
fiska.
Hywel notaði Scierra Titanium
fyrir línu #4 við veiðarnar og á þeim
stöðum þar sem honum fannst hann
vera með of mikið verkfæri í
höndunum fjarlægði hann neðsta
hluta stangarinnar með hjólinu, lá á
hnjánum og notaði bara hluta
stangarinnar,“ sagði Ólafur enn
fremur.
Héðan fer hann beint til
Frakklands þar sem hann er bókaður
með sýningar auk þess sem hann
tekur þar þátt í heimsmeistaramóti i
silungsveiði með landsliði sínu. Eftir
það er hann bókaður með sýningar í
Þýskalandi.
-G. Bender