Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Side 28
3
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
28
Sport
; [ -. * \ ^ \ L. - i 4 •
KOREA >PA \
ítalski dómarinn Pierluigi Collina
mun dæma úrslítaleikinn á HM á
milli Brasilíu og Þýskalands á sunnu-
daginn. Þetta val Alþjóöa knatt-
spymusambandsins kemur fáum á
óvart því Collina er af flestum talinn
vera besti dómari heims. Aöstoðar-
dómarar Collina í leiknum verða
Englendingurinn Philip Sharp og
Sviinn Leif Lindberg en Skotinn
Hugh Dallas verður fjórði dómari.
Saad Mane frá Kúveit mun dæma
ieik Suður-Kóreu og Tyrklands um
þriðja sætiö. Aðstoðardómarar hans
verða Ali Al Traifi frá Sádi-Arabíu
og Kanadamaðurinn Hector Verg-
ara. Mexíkóinn Felipe Ramos Rizo
verður fjóröi dómari.
Jean Michel Ferret, læknir franska
landsliðsins í knattspyrnu, segir að
leikmenn franska liösins hafi verið of
þreyttir til að geta varið heimsmeist-
aratitilinn. Ferret segir að álagið á
bestu leikmönnum Evrópu sé aUt of
mikið og hefur hann skrifað bréf tU
Alþjóða knattspymusambandsins
þess efnis að menn þar á bæ fækki
íeiKjum.
„Þegar leikmennirnir komu saman
og ég fór aö rannsaka þá kom ýmis-
legt i ljós. Þeir voru likamlega og
andlega búnir og engan veginn í
stakk búnir til að taka þátt í jafh erf-
iðri keppni og heimsmeistarakeppnin
er. Það verður aö fara að finna ein-
hverja skynsamlega lausn á leikja-
fjöldanum á hverju keppnistímabUi
því annars lendum viö i sömu vitleys-
unni að fjórum árum liðnum," sagði
Ferret.
Forráöamenn Inter Milan em hun-
inlifandi yfir frammistöðu brasUíska
framherjans Ronaldos á HM. Ron-
aldo, sem hefur átt við meiösli að
striða undanfarin ár og ekki náð sér
á strik með Inter, hefur átt frábæra
keppni og Massimo Moratti, eigandi
félagsins, og Hector Cuper, þjálfari
liðsins, hafa keppst við að Maða pdt-
inn lofi undanfama daga.
„Hann skoraöi glœsilegt mark gegn
Tyrkjum sem tryggði þeim sæti í úr-
slitaleiknum og kórónaði frábæra
frammistöðu í keppninni. Ég er glað-
ur fyrir hans hönd og hlakka tU aö
fylgjast meö honum með Inter I vet-
ur,“ sagði hinn argentinski þjálfari
Inter, Hector Cuper.
Innanríkisráöherra Suöur-Kóreu
hefur ákveðiö að sæma HoUending-
inn Guus Hiddink og leikmenn hans
í suður-kóreska landsliðinu Bláa
drekanum sem er æðsta íþróttaheið-
ursmerki Suður-Kóreu. Hiddink hef-
ur stýrt Suður-Kóreu í undanúrslit
keppninnar sem er betri árangur en
nokkum mann helði óraö fyrir áður
en keppnin hófst. Hiddink veröur
fyrsti útlendingurinn sem hlotnast
þessi heiður.
Bandariska þingiö iýsti í gær yfir
velþóknun sinni með árangur banda-
ríska landsliðsins í knattspyrnu á
HM en liðiö komst í 8-liða úrslit þar
sem það tapaði ósanngjamt fyrir
Þjóðverjum. Þingið gaf út yfirlýsingu
þar sem segir að þaö voni að knatt-
spymuáhugi aukist í Bandaríkjunum
í kjölfar þessa frábæra árangurs og
að enn einu sinni hafi Bandaríkja-
menn farið fram úr væntingum og
gefið knattspymuspekingum og fjöl-
miðlum langt nef með frammistöðu
sinni.
Akranes og ÍBV léku i gærkvöld á
Skipaskaga en þessi sömu lið léku
síðasta sumar hreinan úrslitaleik
um íslandsmeistaratitilinn þar sem
Skagamenn höfðu betur.
Staða liðanna var nokkuð öðru
vísi fyrir þennan leik þar sem bæði
lið voru í tveimur af þremur neðstu
sætunum í deOdinni. Heimamenn
voru ekki í vandræðum með slaka
gestina og sigruðu örugglega, 4-1.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA,
var ánægður meö leik liðsins og
stigin þrjú.
„Ég er ánægður meö þennan leik,
sérstaklega að við hættum ekki í
hálfleik og hleyptum þeim ekki inn
í leikinn. Ég er virkUega ánægður
með þessi þijú stig. Það var ánægju-
legt að við skyldum skora í upphafi
því það er áUtaf gott að skora sem
fyrst. Við höfum núna unnið tvo
góða heimasigra í röð en á mUli
kom slakur leikur á móti Fram. Það
vantar kannski aðeins meiri stööug-
leika í þetta hjá okkur eins og er.
Bjarki kemur með nýja vídd í sókn-
arleikinn þar sem hann heldur bolt-
anum vel og er mjög skapandi. Það
var frábært að fá Bjarka inn í liðiö,“
sagði Gunnlaugur að leik loknum.
Það er ljóst að Bjarki Gunnlaugs-
son hefur góð áhrif á Skagaliðið og
sóknarleikur þess er áUur annar eft-
ir að hann fór að spUa. Þá hefur
hann verið iðinn við kolann fyrir
framan mark andstæðinganna og í
gærkvöld skoraði hann fyrsta mark
leiksins eftir aðeins rúma mínútu.
EUert Jón Bjömsson fann Bjarka
inni á teig og þrátt fyrir að Bjarki
hitti boltann Ula náði hann að stýra
honum í netið. Skagamenn léku
undan vindi í fyrri háUleik og sóttu
stíft. Um miðjan fyrri hálfleik kom
annaö mark og átti Bjarki stóran
þátt í þvi. Hann sendi glæsUegan
bolta inn fyrir vöm ÍBV og Hjörtur
stakk sér inn fyrir með vel tíma-
settu hlaupi og náði Hjörtur að
skora faUegt mark úr þröngu færi.
Heimamenn fengu fleiri færi fyr-
ir hlé en gestirnir vom ótrúlega
daprir og höfðu ekkert í þá gul-
klæddu að gera. Skagamenn byrj-
uðu seinni hálfleikinn eins og þann
fyrri. Eftir aðeins rúma mínútu
skoraði Hjörtur þriðja mark liðsins
og sitt annað í leiknum. Hár bolti
kom inn á teig ÍBV og náði Kári
Steinn Reynisson að skáUa knöttinn
fyrir framan Hjört sem þakkaði fyr-
ir sig og skoraði með góðu skoti úr
vítateig. Þar með vom úrslitin nán-
ast ráðin og ekkert sem benti tU að
gestimir myndu snúa blaðinu við.
Gunnar Þorvaldsson fékk besta færi
ÍBV á 63. mínútu þegar hann slapp í
gegn en Ólafur Gunnarsson, mark-
vörður ÍA, varði einstaklega vel.
Skagamenn voru ekki hættir og
bætti varamaðurinn Hermann Geir
Þórisson við fjórða markinu aöeins
fjórum minútum eftir að hann kom
inn á.
Gareth Graham náði að laga stöð-
una fyrir ÍBV í blálokin með finu
skoti rétt fyrir utan vítateig. Skaga-
menn höfðu góð tök á leiknum og
voru mikiö sterkari aðUinn. AUan
neista vantaði hjá ÍBV og var sókn-
arleikurinn dapur. Tómas Ingi Tóm-
asson, leikmaður ÍBV, var að von-
um svekktur með frammistöðu liös-
ins.
„Þetta var hreint og beint ömur-
legt hjá okkur. Þeir skora strax í
byrjun og þá fá þeir sjálfstraustið
sem við ætluðum að halda þeim frá.
Eftir það komumst við aldrei inn í
leikinn og þeir voru bara miklu
betri en við í dag. Við náðum að
stemma okkur vel upp bæði fyrir
leik og í hálfleik en síðan fáum við
Oleary
rekinn
frá Leeds
David O’Leary var í gær
óvænt rekinn sem knattspyrnu-
stjóri enska úrvalsdeUdarfélags-
ins Leeds eftir fjögurra ára setu í
knattspymustjórastóli liðsins.
Brottreksturinn kemur nokk-
uð á óvart en O’Leary var vel
þokkaður bæði meðal forráða-
manna og stuðningsmanna Leeds
en ástæðan er talin vera sú að
hann var algjörlega á móti því að
selja vamarmanninn sterka Rio
Ferdinand tU Manchester
United. Leeds á hins vegar í ijár-
hagskröggum eftir mikU leik-
mannakaup undanfarin ár og sér
söluna á Ferdinand sem góða ieið
út úr þeim vandræðum. Að auki
voru forráðamenn liðsins ekki
sáttir við frammistöðu þess á
liðnum vetri þar sem liðinu tókst
ekki að tryggja sér sæti í meist-
aradeUdinni þrátt fyrir stórfeUd
leikmannakaup.
O’Leary vUdi ekkert tjá sig um
brottreksturinn í gær en sagði að
honum hefði liðið frábærlega
þau ár sem hann hafði verið með
liðið og óskaði því aUs hins
besta.
Leikmenn Leeds urðu undr-
andi þegar þeir heyrðu fréttimar
og áður nefndur Rio Ferdinand
sagði að þetta væri mikið áfaU.
„Hann keypti mig fyrir háa
fjárhæö og gaf mér ótrúlega mik-
ið sjálfstraust. Hans verður sárt
saknað meðal leikmanna og ég
veit að þeir eru ekki ánægðir,”
sagði Rio Ferdinand, fyrirliði
Leeds. -ósk
á okkur mörk í upphafi beggja hálf-
leikjanna og það er eins og við séum
ekki tUbúnir þegar flautað er tU
leiks. Okkur fannst vera góð stíg-
andi í liðinu en það er aldeUis búið
að sparka því niður núna,“ sagði
Tómas Ingi Tómasson. -Ben
-IBV 4-1 (2-0)
1- 0 Bjarki Gunnlaugsson (2., skot úr markteig eflir sendingu Ellerts Jóns Bjömss.).
2- 0 Hjörtur Hjartarson (27., skot úr teig eftir sendingu Bjarka Gunnlaugssonar).
3- 0 Hjörtur Hjartarson (47., skot úr teig eftir sendingu Kára Steins Reynissonar).
4- 0 Hermann G. Þórisson (81., skot úr teig eftir sendingu Andra Karvelssonar).
4-1 Gareth Graham (90., skot utan teigs eftir fyrirgjöf Hjalta Jóhannessonar).
ÍA (4-3-3)
Ólafur Þór Gunnarsson ... 3
Andri Karvelsson .......3
Reynir Leósson .........4
Gunnlaugur Jónsson......3
Hjálmur Dór Hjálmsson ... 2
Pálmi Haraldsson .......3
Grétar Rafn Steinsson .... 4
Bjarki Gunnlaugsson.....5
(54., Guðjón Sveinsson .... 3)
Kári Steinn Reynisson .... 3
(83., Sturla Guölaugsson ... -)
Hjörtur Hjartarson .....4
(77., Hermann G. Þórisson . -)
Ellert Jón Bjömsson .....4
Dómari: Jóhannes Valgeirs-
son (4).
Áhorfendur: 1033.
Gul sniöld:
Hjörtur (75.), ÍA
- Graham (72.),
Páll (75.), ÍBV.
Rauð spiöld:
Engin.
Skot (á mark):
10 (6) - 5 (2)
Honv
9-9
Aukaspyrnur:
8-12
Rangstðóur:
3-1
Varin skot:
Ólafur 2 -
Birkir 2.
IBV (4-4-2)
Birkir Kristinsson......2
Hjalti Jóhannesson .....2
Páll Hjarðar ............3
Hlynur Stefánsson.......2
Bjami Geir Viðarsson ... 2
Atli Jóhannsson ........2
Ingi Sigurösson..........2
(69., Gareth Graham.....3)
Bjamólfur Lárusson .... 3
Unnur Hólm Ólafsson ... 1
(46., Olgeir Sigurgeirsson . 2)
Tómas Ingi Tómasson ... 2
(73., Hjalti Jónsson....-)
Gunnar H. Þorvaldsson . . 3
SsðJJeiks;
Maður leiksins hjá D-Sporti:
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA
SMAAU5LVSIN&AR
Á NETINU!