Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
29
I I>V
I
Hinn frábæri þýski markvörður, Oliver Kahn, hefur trú á því aö Þjóöverjar standi uppi sem sigurvegarar á HM en þeir
mæta Brasilíumönnum í úrslitaleik á sunnudaginn. Reuters
Brassar mæta Þjóðverjum í úrslitaleik HM á sunnudaginn:
Trúi á sigur
- Oliver Kahn, fyrirliði Þjóðverja, er bjartsýnn fyrir leikinn
Þýskaland og Brasilía mætast í
Íúrslitaleik heimsmeistarakeppninn-
ar í knattspyrnu á sunnudaginn.
Þetta verður í fyrsta sinn sem þess-
ar stórþjóðir mætast í úrslitaleikn-
um en Brasilíumenn hafa unnið
keppnina oftast allra, alls íjórum
sinnum en Þjóðverjar hafa unnið
hana þrisvar. Bæði lið hafa farið í
gegnum keppnina á glæsilegan hátt.
Brasiliumenn hafa unnið alla sína
sex leiki til þessa og Þjóðverjar hafa
unnið alla nema einn og aðeins
fengiö á sig eitt mark. Sá sem er að
| mestu ábyrgur fyrir því er mark-
| vörðurinn frábæri, Oliver Kahn,
sem hefur sýnt það og sannað í
keppninni að hann er besti mark-
vörður heims nú um stundir.
Stjörnur vinna ekki alltaf
Kahn sagðist vera bjartsýnn fyrir
leikinn og þess fullviss að Þjóðverj-
ar fari með sigur af hólmi í leiknum
á sunnudaginn.
„Ég hef það á tilfinningunni að
við verðum heimsmeistarar. Við er-
um að fara að spila gegn bestu
knattspyrnumönnum í heimi en við
eigum lika marga heimsklassaleik-
menn. Stjömumar vinna heldur
ekki alltaf liðsheildina," sagði
Kahn.
Veröum aö gefa allt
„Menn fara ekki í grafgötur með
það að þeir verða að gefa allt sem
þeir eiga i leikinn á sunnudaginn ef
við eigum að vinna. Það verða allir
að spila sinn besta leik á ferlinum.
Slík er pressan í leik sem þessum og
minnstu mistök geta ráðiö úrslit-
um,“ sagði Kahn.
Hræöist ekki R-in þrjú
Kahn er ekki öfundsverður af
hlutskipti sínu á sunnudaginn því
hann mætir Ronaldo, sem hefur
skorað sex mörk í keppninni til
þessa, Rivaldo, sem hefur skoraö
funm mörk og Ronaldinho sem hef-
ur átt skínandi góða leiki með
brasilíska liðinu í keppninni til
þessa. Hann sagðist þó ekki hræðast
þessa leikmenn frekar en aöra and-
stæðinga sina inni á knattspymu-
vellinum.
„Þeir eru stórkostlegir leikmenn
allir þrír. Ég er hins vegar orðinn
vanur því að spila gegn slíkum leik-
mönnum og það er ekkert sem kem-
ur mér á óvart þegar þeir era ann-
ars vegar. Ég ber mikla virðingu
fyrir þeim sem heimsklassaleik-
mönnum en þeir lifa ekki á fomri
frægð og þurfa að sanna sig á
sunnudaginn,“ sagði Kahn og bætti
við að þessi leikur væri draumaúr-
slitaleikur fyrir leikmenn og stuðn-
ingsmenn liðanna.
„Báðar þessar þjóðir hafa mikla
hefð og sú staðreynd að þær hafa
aldrei mæst í úrslitaleik áður gerir
viðureignina bara skemmtilegri,"
sagði Kahn.
Magnúsarbik-
arinn afhentur
Körfuknattleiksdeild
KR afhenti á dögimum
Magnúsarbikarinn i
fimmta skiptið en hann
er gefinn til minningar
um Magnús Örlyg Lár-
usson sem lést i bíl-
veltu 17. ágúst 1996, að-
eins 16 ára gamall, en
hann var leikmaður
með KR upp í gegnum
alla yngri flokkana allt
þar til hann féll frá á
sviplegan hátt.
Magnús Lárusson
var efiiilegur leikmað-
ur sem var einn af lyk-
ilmönnum sigursæls
liðs KR í yngri flokk-
um. Hann var einnig
Jóel Sæmundsson fékk Magnúsarbikarinn í ór en á innfelldu hluti af unglingalands-
myndinni er Magnús Lórusson sem bikarinn er nefndur eftir. liðum íslands og var
þar í hópi góðra leik-
manna.
Magnúsarbikarinn
er veittur þeim leik-
manni sem er útnefhd-
ur besti leikmaður
drengjaflokks KR og
varöveitir sá leikmaður
bikarinn í eitt ár.
Fyrstur til að hljóta
þennan bikar var Stein-
ar Kaldal vorið 1998,
Ingvaldur Magni Haf-
steinsson varö fyrir
valinu árið 1999. Árið
2000 var þaö Jakob öm
Siguröarson, 2001 varð
Hjalti Kristinsson
þessa heiðurs aönjót-
andi og í ár var Jóel
Inga Sæmundssyni
veittur þessi heiður.
Sport
FH mætir Cementarnica á morgun:
Ætlum aö klára dæmið
- segir Sigurður Jónsson, þjálfari FH
FH-ingar mæta makedónska lið-
inu NK Cementamica í seinni leik
liðanna í fyrstu umferð Inter-
totokeppninnar á Laugardalsvelli á
morgun og hefst leikurinn kl. 16.
FHgerði sérlega góða ferð til
Makedóníu um síðustu helgi þegar
liðið vann fyrir leikinn gegn Cem-
entarncia, 3-1, í Skopje og lagði
grunninn að þægilegri stöðu þegar
flautað verður til leiks í seinni
leiknum.
Sigurður Jónsson, þjálfari FH-
inga, varaði þó við þvi að menn
héldu að formsatriði væri að spila
seinni leikinn.
„Það er eins með þennan leik
eins og aðra Evrópuleiki. Fyrri
hálfleikurinn er búinn og sá seinni
er eftir. Ef við mætum ekki rétt
stemmdir til leiks á morgun þá get-
ur farið svo að góður leikur okkar
út í Makedóníu fari fyrir litið.
Makedónska liðið er með góða leik-
menn innanborðs og það væri það
versta sem við gætum gert ef við
forum að vanmeta þá,“ sagði Sig-
urður Jónsson í samtali viö DV-
Sport í gær.
Okkar besti leikur
„Ég var gífurlega ánægður með
leik minna manna úti í Makedón-
íu. Þetta var besti leikur liðsins í
sumar og ég á ekki von á öðra en
að við mætum til leiks á morgun
með svipað leikskipulag. Makedón-
íumenn þurfa að sækja og skora og
því munum við liggja til baka og
sækja hratt á þá. Það hentar okkur
vel og ekki skemmir fyrir að tveir
af þeirra bestu mönnum eru í
banni eftir að hafa fengið rauð
spjöld í fyrri leiknum," sagði Sig-
urður.
Gífurleg reynsla
„Það skiptir miklu máli fyrir lið
eins og FH að vera með í Evrópu-
keppninni. Fáir leikmenn hjá okk-
ur hafa spilað Evrópuleiki og því
öðlast þeir gífurlega reynslu í leikj-
um sem þessum. Það er alveg Ijóst
að viö ætlum að klára dæmið á
morgun og komast í aðra umferð.
Ef það tekst þá mætum viö
spænska liðinu Villarreal og þar
gætum við hugsanlega haft ein-
hverjar tekjur vegna sjónvarps,"
sagði Sigurður Jónsson, þjálfari
FH.
Baldur og Trakys tæpir
Tveir leikmanna FH, miöjumað-
urinn Baldur Bett og litháiski
sóknarmaðurinn Valdas Trakys,
sem skoraði tvö mörk um sl. helgi,
era báðir tæpir og ekki víst hvort
þeir verða meö á morgun. Sigurður
sagði að þeir hefðu báðir veriö hjá
sjúkraþjálfara eftir leikinn gegn
Keflavík og aö hann væri bjartsýnn
á að þeir yrðu báðir með í leiknum.
-ósk
Kínverski risinn Yao Ming, sem Houston Rockets valdi fyrstan í nýöliðavali
NBA í fyrrinótt, ræöir hér viö Rudy Tomajanovich, þjálfara Houston Rockets,
í síma en Ming var staddur í Peking þegar drátturinn fór fram. Reuters
Nýliöaval NBA fór fram í fyrrinótt:
Ming tii Houston
- stóri Klnverjinn fór fyrstur
Hið árlega nýliðaval NBA-deildar-
innar fór fram í fyrrinótt. Houston
Rockets átti fyrsta valrétt og notaði
hann til að velja kínverska miðherj-
ann Yao Ming.
Ming, sem er 2,30 metra hár þyk-
ir vera gífurlegt efni og binda for-
ráðamenn Houston Rockets miklar
vonir við hann. Þeir vona að hann
hafi jafn mikil áhrif á liðið og síð-
asti leikmaðurinn sem þeir völdu
með fyrsta valrétti. Það var mið-
herjinn Hakeem Olajuwon sem var
valinn árið 1984 og leiddi hann Hou-
ston Rockets tU tveggja meist-
aratitla árið 1994 og 1995.
Ming er fyrsti leikmaðurinn i
sögu NBA sem er valinn fyrstur án
þess að hafa spUað í háskóla í
Bandaríkjunum. Fjórir aðrir leik-
menn sem fæddir voru utan Banda-
ríkjanna hafa verið valdir fyrstir en
allir höfðu þeir spilað í bandaríska
háskólaboltanum.
Getur allt
Þeir sem vit hafa á körfubolta
telja engum vafa undirorpiö að
Ming getur oröiö stórkostlegur leik-
maður.
„Hann er frábær skotmaður og
getur sent boltann frá sér. Hann er
með góða boltatækni miðað við
mann af hans stærð. Hann er ótrú-
lega fljótur og hreyfanlegur og það
eru nánast engin takmörk fyrir því
hversu góður hann getur orðið. Ég
held að hann muni verða einn af
bestu leikmönnum deUdarinnar áð-
ur en langt um líöur,“ sagði Stu
Jackson, varaforseti körfuknatt-
leiksmála NBA-deUdarinnar um
Ming.
Þarf aö lyfta
Don Casey, fyrrum þjálfari Hou-
ston Rockets og New York Knicks,
er einnig gífurlega hrifinn af Ming
eftir að hann fór tU Kína og skoðaði
hann.
„Leikmenn eins og Ming koma
ekki fram mjög oft og því veröur
þaö lið sem velur hann mjög heppið.
Hann hefur mjög marga kosti sem
leUcmaður en það sem ég hef áhyggj-
ur af er hvort hann þoli J)aö álag
sem kemur tU með aö vera á honum
heUt keppnistímabU. Hann þarf að
eyða miklum tíma í lyftingasalnum
en hann er það duglegur og viljugur
að ég hef engar áhyggjur af honum,"
sagði Don Casey. -ósk