Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Page 32
t-3
iJjJLL 'JUUii £J JíJJujJ JJ
* ■ SUZUK
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz(ífí)
;
Loforð er loforð
Kært vegna Eld-
borgarhátíðar
Þar sem 2,5 milljóna króna skuld
frá 7. júní síðastliðnum hefur ekki
verið gerö upp við forsvarsmenn
Eldborgarhátíðar á síðasta ári hafa
stjómarformaður og framkvæmda-
stjóri Miðavefs ehf. veriö kærðir til
ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt kærugögnum seldi
Miðavefur miða á Eldborgarhátíð-
ina fyrir 4,7 milljónir króna. Þókn-
un vefsins var 404 þúsund krónur.
Þann 28. maí var gerð dómssátt um
að Miöavefur greiddi Okey ehf. 2,5
milljónir króna en þá höfðu auglýs-
ingar og annar kostnaður verið
dreginn frá. Upphæðin átti að greið-
ast þann 7. júní. Þar sem hún hefur
ekki verið greidd hefur kæran verið
lögð fram. Lögregluembættið mun á
næstunni taka afstöðu til sakarefn-
anna, hvemig eða hvort rannsókn-
armeöferö fari fram. -Ótt
Hætta samstarfí
við Fréttablaðið
Visir.is hefur sagt upp samningi
við Fréttablaðiö um fréttaskrif. Haft
er eftir Irisi Gunnarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Femin ehf., eiganda
Vísis, á fréttavef Morgunblaðsins aö
fréttamaður innanhúss á Femin
skrifl nú fréttir á vef Vísis. Svo
verður gert þar til gengið verður frá
samningi um fréttaskrif við annan
aðila. -JSS
DV-MYND HARI
Fótboltaveisla í Eyjum
Nú stenduryfir Shell-mótiö í Eyjum.
1200 strákar etja þar kappi en með
fararstjórum og forráöamönnum er
reiknaö meö um 2000 gestum á
mótiö. Keppendurnir eru á aldrinum
10 og 11 ára frá 27 félögum. Mótiö,
sem er þaö 19. í rööinni, var sett í
gærkvöld en því lýkur á sunnudag-
kvöld. Piltarnir léku í sól og þlíöu í
gær en í morgun var skýjaö og hæg-
lætisveður. ítarlega veröur fjallaö um
Shell-mótiö í Helgarblaöi DV á
morgun.
ERGUÐNI
SÁ SÍOASTI?
FOSTUDAGUR 28. JUNI 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
DV-MYND E.ÓL
Hundalíf
Þaö var handagangur í öskjunni þegar DV heimsótti hundafjölskyldu suöur meö sjó í gær. Um er aö ræöa sjö hunda
af tegundinni stóri-dan, foreldra og fimm hvolpa. Þessir hundar eru engin smásmíöi, eins og sjá má, vega allt upp í
77 kíló. Sjá nánar bls. 6
Víðtæk leit að
kajakmanni
- kajakinn fannst á reki skammt norðan Húsavíkur
Víðtæk leit var gerð að 35 ára
karlmanni á Skjálfandaflóa í nótt.
Maðurinn hafði farið á sjókajak
frá Flateyjardal norðarlega á vest-
urströndinni í gær. Kajakinn
fannst mannlaus í morgun 2 kíló-
metra frá Lundey sem er austar-
lega á Skjálfandaflóa, skammt
norðan Húsavíkur. Mikil leit
hófst með morgninum að mannin-
um. Veður er gott, eggsléttur sjór
og hlýtt.
Bíll mannsins hafði fundist í
gærkvöldi í Flateyjardal og þótti
ástæða til að hefja leit sem hófst
upp úr miönætti. Hafði hann ætl-
að að koma heim til sín um kvöld-
ið en þegar það brást var haft
samband við björgunarsveinina
Garðar á Húsavík. Kallaðir voru
út til leitar hraðbjörgunarbátar
frá Húsavík og Árskógssandi
ásamt björgunarskipinu Sigurvon
frá Siglufirði. Þá fóru 2-3 triilur
frá Húsavík til leitar með björg-
unarsveitarmönnum. Flugvél
Flugmálastjórnar bættist við í
leitina í nótt og voru fjórir björg-
unarmenn í henni á útkíki. Von
var á björgunarskipinu Gunn-
vöru frá Raufarhöfn meö morgn-
inum.
Björgunarsveitarmenn hófu í
morgun flnieit meðfram ströndinni
og sagði Vaigeir Elíasson hjá Slysa-
vamafélaginu Landsbjörg að björg-
unarbátar og skip hefðu á áttunda
tímanum raöaö sér upp í leitarlínu
frá þeim staö sem kajakinn fannst.
Ætlunin var að leita rekstefnuna í
átt að Flateyjardal þar sem maður-
inn hóf siglinguna.
Um 20 björgunarsveitarmenn frá
Húsavík, Þingey í Ljósavatnsskarði
og Aöaldal voru byrjaðir leit í fjör-
unum fyrir botni Skjáifanda, við
Tjömes og í Flateyjardal.
Þegar blaðið fór í prentun var
verið að auka við mannskap og skip
leituðu klettótta ströndina þar sem
menn komast ekki að -JBP
Söguskýringar Guðna Ágústssonar:
Njáll fyrsti framsóknarmaðurinn
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráöherra segir Njái á Bergþórshvoli
hafa verið fyrsta
framsóknar-
manninn á ís-
landi. Þetta sagði
landbúnaöarráð-
herra er hann
var með sögu-
skýringu á Njálu
eftir reiðtúr með
mörgu fólki sl.
sunnudag frá
Torfastöðum í
Fljótshlíö, m.a. Bjama Eiriki, Arth-
úr Björgvin og fleira fólki, og flétt-
Guðnl
Ágústsson.
aöi þetta saman viö söguskýringar
sínar á hefnd og fyrirgefningu í
tengslum við Njálsbrennu. „Fram-
sóknarmenn þess tíma voru helst
tilbúnir að fyrirgefa en þeir sem
leituöu hefnda skipuðu sér helst í
raðir sjáifstæöismanna.
Allar gjörðir Njáls benda til þess
aö hann hafi verið fyrsti framsókn-
armaðurinn og vestan viö hann
vora það Valgarður grái og Möröm-
Valgarðsson. Þorgeir Ljósvetninga-
goöi úrskurðaöi fyrir noröan árið
1000 að íslendingar skyldu vera
kristnir en ekki heiðnir og var það
athöfn sem er mjög í anda okkar
framsóknarmanna, enda máttu
menn þrátt fyrir það enn blóta á
laun. Þetta er mjög í anda stefnu
Steingríms Hermannssonar.
Það voru ekki til neinir kratar á
þessum tíma, engir kommar og alls
engir vinstri-grænir. Þaö vom bara
framsóknarmenn eða sjálfstæðis-
menn á íslandi á þessum tíma og
helstu sjálfstæðismennimir voru
Flosi karlinn á Svínafelli og Kári,“
segir Guðni Ágústsson. Góður róm-
ur var gerður að söguskýringu
Guðna sem fór fram inni í gili með
fossnið að baki honum.
-GG
Andstæðingar ESB:
Stofna hreyfingu
sjálfstæðissinna
Ragnar Amalds, rithöfundur og
fyrrverandi alþingismaður og ráö-
herra, staðfesti við DV í morgun aö
verið væri að
stofna hreyfingu
sjálfstæðissinna í
Evrópumálum.
Ragnar vildi sem
minnst tjá sig um
málið og sagði að
fréttatilkynning
yrði send út í há-
deginu.
Orðrómur fór af
Ragnar Arnalds.
stað um það í gær að stofna ætti félag-
ið síðar um daginn, nafn þess yrði
Samtök Evrópusinna og þeir Ragnar
og Eyþór Arnalds yrðu helstu for-
svarsmenn.
Ragnar segir að forysta um stofnun
samtakanna sé ekki bundin við þá Ey-
þór. „Þarna verður fólk úr öllum meg-
instjómmálafylkingum," segir hann
en gefur ekki upp hver verði formað-
ur né hve félagsmenn eru margir.
Nafn félagsins er Heimssýn.
Sjónvarpstæki
olli húsbruna
Hjón með eitt bam sluppu fáklædd
út úr húsi sínu á Vopnafirði í nótt eft-
ir að elds varð vart á efri hæð húss-
ins. Maðurinn reyndi fyrst að slökkva
með vatni áður en slökkviliðið kom
en réð ekki við neitt. Húsið er tveggja
hæða steinhús og er allt ónýtt á efri
hæðinni og húsið allt mikið skemmt.
Eldurinn kom upp í sjónvarpstæki
og vöknuðu íbúar við sprengingu og
hávaða. Mjög gott veður var á Vopna-
firði, þurrt og aðeins gola. -GG
Snjóflóðavarnir:
Reynt var að
kæfa umræðuna
Gerð varnarmannvirkja vegna
snjóílóða upp á marga milljarða
króna er á döfinni næstu árin. Þegar
er búið aö eyða mörgum milljörðum
í slíkar varnir, en oft við mjög nei-
kvæðar undirtektir heimamanna.
Viðbrögð yfirvalda við sögum af
atburðum og viðvörunum um hættu
af snjóflóðum á umliðnum ámm hafa
oft á tíðum verið hreint með ólíkind-
um þó viðhorfin hafi breyst mjög á
allra síðustu ámm. Áður var ítrekað
reynt að þagga niður slíka umræðu
og lítil vísindi sögð felast í gerð
hættumats. Eitt grófasta dæmið er þó
er bæjaryfirvöld og sýslumaöur í isa-
fjarðarbæ reyndu árið 1995 að þagga
niður í gömiu fólki með lögreglu-
rannsókn er það reyndi að koma á
framfæri reynslusögum sínum af
snjóflóði ofan við bæinn. Engin við-
leitni hefur enn verið höfð uppi um
að leiðrétta stöðu þess fólks sem lítil-
lækkað var með rannsókninni.
- Sjá fréttaljós bls. 8-9 -HKr.
Talaðu við okkur um
nGáR
Bl
MITCHELL
40% AFSLÁTTUR
Sportvörugerðin hf.
Skípholti 5, s. 562 8383
i
i
i
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i