Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2002, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002
DV
Utlönd
13
„Kvartettinn“ fundar um Palestínumálin í dag:
Powell boðar nýja
þriggja ára áætlun
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, rær nú öllum árum
að því að flnna varanlega lausn á
deilumálunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs. Sagðist hann í gær vera meira
en tilbúinn til að skoða mögulega upp-
stokkun á palestínsku stjómkerfi,
með það í huga að flnna annan vett-
vang og virðingarsess fyrir Yasser
Arafat, kjörinn leiðtoga þjóðarinnar.
Þar átti Powell við þá hugmynd að
Arafat yrði kjörinn forseti landsins og
að þingkjörin ríkisstjóm stjórnaði
landinu undir forystu forsætisráð-
herra. „Ég lít þó svo á að Palestínu-
menn eigi að ákveða hver staða Ara-
fats verði til frambúðar," sagði Powell
og bætti við að bandarísk stjómvöld
sæju Arafat ekki fyrir sér í væntan-
legum friðarviðræðum. „Það er ljóst
að þjóðin verður að kjósa sér nýja for-
ystu sem nýtur trúnaðar og trausts
allra sem koma að málinu. Öðmvísi
næst enginn árangur," sagði Powell.
Colin Powell.
Hann hittir fuiltrúa Rússa, Evrópu-
sambandsins og Sameinuðu þjóðanna
á fundi í New York í dag, þar sem svo-
kaUaður „kvartett" mun reyna að
flnna hugsanlegar lausnir sem bundið
gætu enda á ofbeldið fyrir botni Mið-
jarðarhafs, þannig að hægt verði að
hefjast handa.við undirbúning kosn-
inga sem Arafat hefur boðað í byrjun
næsta árs.
Einnig er ætlunin að utanríkisráð-
herrar Egyptalands og Jórdaníu hitti
Powell og „kvartettinn“ á fundum
næstu daga en bandarísk stjómvöld
leggja mikla áherslu á góða samvinnu
við arabaríkin við lausn málsins.
Ýmsir forystumenn þeirra hafa varað
við því að setja Arafat út í kuldann og
þar á meðal Hosni Mubarak sem í gær
varaði við því að útiloka hann frá
væntanlegum friðarviðræðum. Þá er
prins Saud al-Faisal utanríksráðherra
væntanlegur til Bandaríkjanna seinna
í vikunni og mun hann væntanlega
hitta Bush Bandaríkjaforseta á fundi.
Powell mun á fundinum í dag reyna
að vinna stuðning „kvartettsins" við
fyrirhugaða þriggja ára áætlun tO
hjálpar palestínsku þjóðinni, en hún
gerir ráð fyrir að fjárstuðningur renni
beint til hjálparverkefna á heima-
stjómarsvæðunum, fram hjá heima-
stjóminni sem sökuð hefur verið um
spillingu.
Dramatík á markaönum
Miklar sviptingar voru á hlutabréfavísitölum í Bandaríkjunum í gær. Svo virtist
sem Dow Jones stefndi í metfall en þegar líöa fór á daginn keyptu margir
bréf í Ijósi þess hve veröiö var oröiö lágt. Dow Jones endaöi í 8640 stigum.
„Enginn Rambó“:
Bandaríski talíbaninn
fær ekki lífstíðardóm
Bandaríski talíbaninn John Wal-
ker Lindh hefur náð samkomulagi
við bandaríska réttarkerflð sem
mun forða honum frá lífstíðarfang-
elsi.
Lindh, sem fannst fúlskeggjaður á
meðal talíbanskra trúbræðra sinna
meðan innrás Bandaríkjamanna
stóð yfir, hefur játað sig sekan um
að hjálpa talíbanahreyfingunni og
að bera sprengiefni. Áður hafði hon-
um borist ákæra í 10 liðum sem
hann játaði sig ekki sekan að. Talið
er að hann muni fá 20 ára fangelsis-
dóm en dómari ákveður það í októ-
ber.
Lindh var hermaður talíbana frá
ágúst til loka nóvember á síðasta
ári. Aðalverjandi hans segir hann
hafa verið hermann talíbana af trú-
arlegum ástæðum en ekki hafa
verið neinn Rambó. Aldrei hafi
hann skotið úr byssu sinni né meitt
neinn á þessu tímabili.
John W. Undh
Er talinn veröa dæmdur í 20 ára
fangelsi fyrir aö aöstoöa talíbana.
Bæöi verjendur hans og saksóknar-
ar telja sigur hafa unnist i máiinu.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera
skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15.
júlí 2002, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2002 og önnur
gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15.
júlí 2002 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli,
áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu
árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu
söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af
skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum,
búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum
og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og
verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna,
eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald,
þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmda-
sjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst
til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að
starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er
skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. júlí 2002.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestf jarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum