Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2002, Qupperneq 32
Mold og hellusandur
Jarðefni - ótal gerðir
js
Viðbótarlífeyrissparnaður
www.aianz.is
Sími: 533 5040
ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 2002
Vinna Norsk Hydro til sölu:
Grjót og grjóthleðsla
Flytjum sumarhús
Vörubílar - Kranabílar - Gröfur www.throttur.is
Stóriðjuáform
þykja mikill
áhættuþáttur
Sérfræðingar í viðskiptaheimin-
um telja líklegra en hitt að næsta
vaxtabreyting Seðlabankans verði
hækkun frekar en lækkun eins og
menn höfðu vænst. Ástæðan er fólg-
in í auknum líkum á að samkomu-
lag muni nást milli íslenskra stjóm-
valda og Alcoa-álrisans um stóriðju
á Austurlandi.
Eiríkur Guðnason seðlabanka-
stjóri segir að Seðlabankinn hafi
fram til þessa ekki gert ráð fyrir
Kárahnjúkavirkjun og álveri í áætl-
unum en hins vegar sé líklegt að
svona miklar framkvæmdir myndu
kalla á vaxtahækkun. Seðlabankinn
hyggst yfirfara vaxtamálin um
næstu mánaðamót.
Almar Guðmundsson, forstöðu-
maður Greiningar íslandsbanka,
segir verkefnið það stórt á íslensk-
an mælikvarða að áhrif þess verði
að teljast stór áhættuþáttur í hag-
stjórn á næstunni. „Seðlabankinn
hefur það hlutverk að halda verð-
bólgunni niðri og hann mun því
fylgjast vel með framvindunni.
Bankinn hefur loksins náð verð-
bólgu niður en nú er að koma inn
verkefni sem getur aukið þrýsting á
verðlag á nýjan leik,“ segir Almar.
Sjá fréttaíjós bls. 6. -BÞ
Milljónatjón
á Seljanesi
Milljónatjón varð er fjárhús sem
notuð vom sem verkstæði á bæn-
um Seljanesi í Reykhólasveit
brunnu í gær.
Fjárhúsin hafa verið notuð sem
verkstæði við að gera upp fombíla
en svo heppilega vildi til að engir
bOar vom í húsinu er eldurinn kom
upp. Höfðu bílar sem þar voru ver-
ið teknir út fyrir nokkrum dögum
vegna niðjamóts. Eigi að síður var
talsvert af verkfærum að verðmæti
nokkrar milljónir króna í húsinu
og eyðilögðust þau i brunanum.
-HKr.
Mikil rigning en
ekki úrkomumet
Eftir að hafa látið íbúa höfuðborg-
arsvæðisins sleikja sólskinið nánast
undantekningarlaust það sem af er
sumri létu veðurguðirnir loksins af
sér vita um helgina með dembandi
rigningu. Seinni part fóstudags og að-
faranótt laugardags rigndi mjög mik-
ið víða á Suður- og Vesturlandi og fór
úrkoma mest upp í 30 mm. Að sögn
veðurstofu er óvenjulegt að svo mik-
il rigning verði á þessum árstíma en
því fer fjarri að úrkomumet hafi ver-
ið slegið, til þess hefði þurft að rigna
tíu sinnum meira. -vig
FLEIRI 3LAÐ-
3ERA A ÞIN<3!
Mjög mikilvægt >
að ná Reyðaráli ^
V
- segir iðnaðarráðherra
Vinna Reyðaráls við gerð um-
hverfismats hleypur á hundruðum
milljóna skv. heimildum DV og er
nú tekist á um verð milli Alcoa og
Norsk Hydro. Valgerður Sverris-
dóttir, viðskipta- og iðnaðarráð-
herra, sagði í samtali við DV í
morgun að mjög væri æskilegt ef
Alcoa tækist að kaupa Reyðarál.
Þar á bæ væru miklar upplýsingar
um mengimarmál og stóra málið
varðaði útblásturinn. Álver Alcoa
yrði að líkindum minna en það sem
Norsk Hydro áformaði og æskilegt
væri að fa samanburð með gögnum
frá Norsk Hydro.
„Það væri mjög mikilvægt að ná
Reyðaráli og vinnan er lögð í það
núna af hálfu þessara aðila,“ sagði
Valgerður. Hins vegar segist hún
ekki geta svarað því með óyggjandi
hætti hvort nýtt umhverfismat
þurfi fyrir nýjan aðila. Skiptar
skoðanir voru á þingi í vetur um
það en Valgerður segir það hlutverk
yfirvalda að skera úr um slíkt.
Gelr A.
Gunnlaugsson.
Valgerður
Sverrisdóttir.
Umhverfismat til sölu
„Ég get bara staðfest að menn eru
að skoða hvort hægt sé að nýta eitt-
hvað þá vinnu sem unnin hefur ver-
ið af Reyðaráli fyrir verkefni
Alcoa,“ sagði Geir Á. Gunnlaugs-
son, stjómarformaður Reyðaráls, í
samtali við DV í morgun. Hannl
vildi að öðru leyti sem minnst tjá’
sig um möguleg kaup Alcoa í Reyð-
aráli en þegar DV spurði hvort t
menn horfðu þá aðallega til þeirrar f
vinnu sem farið hefði í umhverfis-
mat sagði hann að sá þáttur væri
vissulega hluti vinnunnar. Núver-Í
andi umhverfísmat er unnið af'
Reyðaráli en Geir sagðist ekkert
geta sagt um hvort til tíðinda myndi j
draga innan skamms í þessum efn-'
um.
Haft hefur verið eftir Thomasí
Knutzen, upplýsingafulltrúa, Norskf
Hydro að Norsk Hydro hafi ekki selt
hlut sinn í Reyðaráli. Hann hefur.
einnig sagt að stefna Norsk Hydro [
sé ekki að standa á nokkum hátt
vegi fyrir álversframkvæmdum í
Reyðarfirði þótt Norsk Hydro helt-f
ist úr lestinni. -BÞ ’
Hið nýja Suðvesturkjördæmi:
Pláss fyrir þrjá
nýja þingmenn
Þingmaður í blaðburði
„Hvað gera foreldrar ekki fyrir
börnin sín?“ segir Katrin Fjeldsted
alþingismaður, sem síðustu daga
hefur borið út DV í nokkrar götur í
Þingholtunum. Það var regnvott í
Reykjavík í gærmorgun þegar þessi
mynd var tekin og því betra að
skýla sér með regnhlífinni.
Einar Steinn, sonur Katrínar og
Valgarðs Egilssonar, eiginmanns
hennar, fór í fjallaferð norður í land
og á meðan hefur móðir hans séð
um að koma blaðinu til áskrifenda.
„Þetta er góður hálftíma göngutúr
og ágæt tilbreyting frá öðrum störf-
um.
Það er gaman að prófa þetta, en
sjálfsagt væri snúnara að koma því
við að ég hlypi í skarðið ef sonurinn
væri til dæmis að vinna á kassa i
Bónus," segir Katrín, sem í sumar
hefur utan þetta verið í sínu gamla
starfi sem læknir á Heilsugæslunni
í Efstaleiti. -sbs
Ný kjördæmaskipan, sem kosið
verður eftir í fyrsta sinn á næsta
ári, þýðir að pláss er fyrir þrjá nýja
þingmenn í Suðvesturkjördæmi.
Um er að ræða nágrannasveitarfé-
lög Reykjavíkur, eða Reykjaneskjör-
dæmi að undanskildum Suðumesj-
um. Kjördæmið fær ellefu þing-
menn en þeir em átta fyrir.
Miða,ð við úrslit í Reykjaneskjör-
dæmi 1999 hefði Sjálfstæðisflokkur-
inn fengið G þingmenn í nýja kjör-
dæminu (en á þar núna 4), Fram-
sóknarflokkurinn 1 (1), Samfylking-
in 3 (3) og Vinstrihreyfingin - grænt
framboð 1 (0). Úrslit annars staðar á
landinu hafa hér áhrif á úthlutun
jöfnunarþingsæta, en næsti maður
Framsóknar er nær því að komast
inn sem kjördæmakjörinn í Suð-
vesturkjördæmi en jöfnunarþing- (
menn sjálfstæðismanna og vinstri-
grænna.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun |
sem DV hefur gert í kjördæminu
nýtur Framsóknarflokkurinn 14,1%
fylgis (kjörfylgi í Reykjaneskjör-1
dæmi var 16%); Sjáifstæðisflokkur-
inn 50,8% (44,6%); Frjálslyndi flokk-
urinn 2,7% (4,6%); Samfylkingin f
25,4% (28,1%); og Vinstrihreyfmgin *
- grænt framboð 7% (5,9%).
ítarlega er fjallað um Suðvestur- j
kjördæmi í fréttaskýringu á bls. 81
og 9 í blaðinu.
-ÓTG (
Framkvæmdastjóri LÍÚ um hækkandi gengi evru gagnvart dollar:
Verulega neikvæð áhrif
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir hátt
gengi evru gagnvart krónu og dollar
hafa veruleg neikvæð áhrif á is-
lenskan sjávarútveg. Fiskútflutning-
ur til evrulanda sé mjög snar þáttur
í greininni, þó útflutningur til Bret-
lands og Bandaríkjanna sé einnig
verulegur. Þá telur Friðrik að gengi
íslensku krónunnar sé komið frekar
neðarlega hvað hagsmuni sjávarút-
vegsins varðar.
„Þetta hefur þó auðvitað líka
áhrif til lækkunar á kostnaðarlið-
um. Það eru þvi bæði kostir og gall-
ar, en það er alveg ljóst að hátt
gengi evru gagnvart dollar er farið
að hafa veruleg áhrif til hins verra.
Ástandið í fyrra þegar dollarinn
var mjög hátt skráður hafi hins veg-
ar verið mjög óvenjulegt. Það hafi
skilað miklum tekjum inn í sjávar-
útveginn, en einnig aukningu á er-
lendum skulum sem bundnar eru að
hluta í dollara. Það sé því jafnvægi
í þessum hlutum sem skipti veru-
legu máli, en spuming hvar það
gullna jafnvægi liggur.
Miðgengi Bandaríkjadollars og
evru stóö nánast jafnfætis gagnvart
íslenskri krónu við lokun á mark-
aðsskráningu Seðlabanka íslands í
gær. Var dollar þá skráður á mið-
gengi á 85,3 krónur, en evra á 85,1
krónu. Hafði því dregið talsvert
saman með þessu gjaldmiðlum síð-
an á föstudag, en þá var dollar
skráður á 86,3 krónur, en evra á
85,18 íslenskar krónur. í gær var
gengi breska sterlingspundsins
skráð rúmar 133 krónur og hafði þá
lækkaö um rúma 70 aura frá því á
fostudag. -HKr.
Sérfiræðingar
í fluguveiði
Sportvörugerðin hf.,
SkipHolt 5. s. 562 H3«3.
flar 1
HEIMAGÆSLA
ÖRYGGISMlÐSrOÐ ÍSLANDS
BORGARTONi 31 • SlMl 530 2«0
WWW.OI.IS