Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002
DV
Fréttir
Takmarkaður aðgangur Húseigendafélagsins að lögregluskýrslum:
Kæra frá íbúum
er nauðsynleg
- til að unnt sé að styðjast við úrræði laga um fjöleignarhús
tilkynningar frá hinum brotlega.
Þar með hefur Húseigendafélagið
ekki aðgang að skýrslunum, sam-
kvæmt gildandi reglugerð um með-
ferð persónuupplýsinga hjá lög-
reglu.
„Þeir sem skráðir eru og þeir
sem lögreglan hefur afskipti af hafa
rétt líka, á sama hátt og hinir sem
vilja búa við frið,“ sagði Ingimund-
ur við DV. „Heimildir lögreglunnar
til þess að láta gögn af hendi sem
heyra undir lög mn persónuvemd
eru skýrar. Það er afskaplega tak-
markaður aðgangur sem er heimil-
aður að lögregluskýrslum."
Ingimundur sagði að lögmenn
fólks sem yrði fyrir síendurteknu
ónæði af völdum nágranna hefðu
Oft bent því á að leggja inn form-
lega kæru hjá lögreglu. Það fólk
gæti fengið afrit af sínum kærum
og stuðst við þau í baráttu sinni
fyrir húsfriði. -JSS
Ibúar í fjöleignarhúsum, sem
verða fyrir síendurteknu ónæði af
völdum annarra íbúa hússins,
þurfa að kalla til lögreglu eða kæra
formlega til hennar, hyggist þeir
leita úrræða á forsendum fjöleign-
arhússlaganna, aö sögn Ingimund-
ar Einarssonar, varalögreglustjóra
i Reykjavík.
DV greindi frá því í gær að íbú-
ar í fjöleignarhúsi í Reykjavík
standa ráðþrota vegna óreglufólks
sem býr í stigaganginum. Þeir
verða fyrir miklu ónæði af völdum
fólksins. íkveikjur hafa verið tíðar,
lyf og lyfjaglös eru algeng sjón á
göngum sameignar og svo mætti
áfram telja. íbúamir hafa leitað að-
stoðar Húseigendafélagsins, sem
unnið hefur að málinu á grundvelli
laga um fjöleignarhús, þar sem
kveðið er á um að unnt sé að banna
hinum brotlegu búsetu í húsinu.
Aðgerðir sínar af þessum toga hef-
ur Húseigendafélagið í gegnum tíð-
Reykjavík
Húseigendafélagiö hefur ekki aðgang að lögregluskýrslum samkvæmt
gildandi reglugerð um meðferð persónuupplýsinga hjá lögreglu.
ina byggt á lögregluskýrslum.
í umræddu máli liggur ekki fyrir
nein beiðni né formleg kæra til lög-
reglu frá íbúunum heldur einungis
Rausnarleg gjöf
Barnaspítalasjóður Hringsins af-
henti i gær 150 milljóna króna gjafa-
bréf til nýbyggingar bamaspitalans á
Landspítalalóðinni. Yfirskrift bréfsins
er „Til barna á íslandi". Afhendingin
fór fram við athöfn í anddyri nýbygg-
ingarinnar en þríburamir Sara, Guð-
jón og Sif Ólafsböm tóku við gjafabréf-
inu fyrir hönd bama á íslandi. Þau
fæddust 24. desember 1989 mikið fyrir
tímann og voru nokkrar vikur á vöku-
deild Barnaspítala Hringsins.
í maí 1994 undirrituðu heUbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið, Ríkis-
spítalar og Kvenfélagið Hringurinn
rammasamning um byggingu nýs
barnaspítala. Skuldbatt Hringurinn
sig tU að leggja fram 100 miUjónir
króna úr Bamaspítalasjóðnum.
Hringskonur eru nú að efna þennan
samning og vel það. Þær hafa staðið
fyrir fjáröflunum en auk þess safnað-
ist í sjóðinn með gjöfum, áheitum og
góðri ávöxtun söfnunarfjárins. Fyrr á
árinu afhenti Hringurinn 50 mUljónir
króna tU kaupa á rúmum og búnaði i
spítalann. -hlh
Til barna á íslandi
Þríburarnir Sara, Guðjón og Sif Ólafsbörn taka við 150 milljóna króna gjafabréfi til byggingar barnaspítalans. Elísabet
Hermannsdóttir, fyrrverandi formaður Hringsins, t.v., er með þeim ásamt Ásgeiri Haraldssyni yfirlækni.
Segir efni úr blómakirtli baldursbrár lækna blóðkrabba:
Landlæknir og grasalæknir í rimmu
- embættið hótar málsókn á hendur grasalækninum
„Það veður aUt uppi af ýmsu í
þessa veruna," sagði aðstoð-
arlandlæknir, Haukur Valdimars-
son, i gær þegar borin var undir
hann auglýsing þar sem maður
nokkur segist geta „hjálpað öllum
sem þjást af blóðkrabbameini og
veikindum vegna veiru“.
Auglýsandinn, Eggert Amórsson,
fullyrðir að vísindalegar rann-
sóknir sanni lækningamátt
blómakirtla úr baldursbrám. Efnin
séu notuð í lyijaiðnaði og svo hafi
verið gert í tvær aldir. Landlæknir
hefur hótað málsókn á hendur
Eggerti.
Haukur Valdimarsson segir að
einkum séu það fjögur atriði sem
landlæknisembættið kanni í þess-
um málaflokki. í fyrsta lagi menn
sem villa á sér heimildir, segja fólki
til dæmis að þeir séu læknar þrátt
fyrir að þeir séu það ekki. Núna í
vikunni hafx birst blaðaviðtal við
hómópata sem sagðist vera
heimilislæknir og væri að opna
læknastofu. í öðru lagi er kannað
hvort verið sé að féfletta saklaust
fólk, sem grípur ef til vill síðasta
hálmstráið til að fá lækningu,
stundum sé þar ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur. í þriðja lagi
nefndi Haukur lækningatilburði
sem augljóslega hafa skaðað heilsu
fólks og í fjórða lagi eru það
vísbendingar um að sjúklingum sé
haldið burtu frá viðurkenndum
lækningaaðferðum.
„Heilbrigðisstarfsfólki finnst
stundum að við mættum stöðva
meira af kuklinu, sem er allt frá því
að vera skaðlaust upp i það að vera
hættulegt,“ sagði Haukur. „Þeir sem
stunda óhefðbundnar lækningar
þurfa að sanna sig á vísindalegan
hátt, en það hefur ekki verið gert,
meðan nútíma læknisfræði byggist
á viðurkenndum vísindum."
Lækningamáttur
Auglýsandinn, Eggert Arnórs-
son, er á öðru máli. Hann segir að
Óheföbundin lækning eöa kukl
Eggert Arnórsson er einn þeirra sem
stundar óheföbundnar lækningar.
Starfsemin er kukl aö mati
Landlæknisembættisins og á Eggert
yfir höfði sér kæru.
sænsk rannsókn á vegum
opinberra aðila hafi sýnt fram á
lækningamátt efnisins. Hann telur
að landlækni sé skylt að skoða
þessa rannsókn og taka mark á
henni í stað þess að kalla þetta
skottulækningu.
„Þetta er blómakirtlaefni sem
ég nota, það verður til í vissum
kirtli blómsins á vissum tíma, að-
eins einu sinni. Það er fullt af
fólki sem þaif á þessu efni að
halda og það hefur sannað sig.
Niðurstaða rannsókna sanna
lækningamáttinn," sagði Eggert.
Hann segir það sérkennilegt að
ekki skuli tekið mark á virtum
sænskum stofnunum en aðeins
því sem er að gerast hjá Háskóla
íslands. Sjálfur kveðst hann hafa
numið fræðin í þýskum skóla.
Lækningaraðferðina hafi hann
kynnt bæði ráðuneyti og
landlækni í fyrra. Síðan hafi
gengið á með bréfaskriftum. -JBP
Arnaldur á ensku
Sakamálasögur Amalds Indriða-
sonar eru ekki aðeins eftirsótt
lesefni á íslandi. Þegar hefur
útgáfuréttur verið seldur á bókxim
hans til Þýskalands, Hollands, Dan-
merkur, Svíþjóðar og Finnlands. Nú
hefur England bæst í hópinn og
hefur Edda, útgefandi bóka Arnalds,
samið við Random House um útgáfu
á Mýrinni og Grafarþögn, sem eru
nýjustu skáldsögur Amalds. Þetta
er stór áfangi þar sem Random
House er stærsti bókaútgefandi í
heimi um þessar mundir. Einnig er
það merkur áfangi að fá gefið út á
Bretlandseyjum þar sem minna er
um þýddar skáldsögur en annars
staðar. Ekki er ákveðið hvenær
bækurnar koma út á ensku. Að sögn
forráðamanna hjá Eddu hefur það
gengið hratt fyrir sig að selja bækur
Amalds til útlanda og má þar að
hluta til þakka að Amaldur fékk
Glerlykilinn, norrænu glæpasagna-
verðlaunin, á þessu ári fyrir
Mýrina. -HK
Jafnréttisstofa á hringferð
Jafnréttisstofa
mun í næsta mán-
uði fara hringferð
um landið með
námskeiðin Jafnt
er meira - nám-
skeið um jafnréttis-
starf fyrirtækja og
stofnana og Jafnt
er betra - nám-
skeiðumjafnréttis-
starf sveitarfélaga.
Samkvæmt lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla ber sveitar-
félögum að skipa jafnréttisnefndir og
setja sér jafnréttisáætlanir. Sömuleiðis
ber fyrirtækjum og stofnunum þar sem
starfa fleirí en 25 starfsmenn að setja
sér jafnréttisáætlanir, virma markvisst
að því að jafha stöðu kynjanna og
stuðla að því að störf flokkist ekki í
kvenna- og karlastörf.
Til þess að aðstoða sveitarfélög, fyrir-
tæki og stofnanir við þessi verkefni
býður Jafnréttisstofa upp á námskeið
víða um land dagana 7.-23. október nk.
Helstu efnisþættir era hugmynda- og
aðferðafræði samþættingar kynja- og
jafnréttissjónarmiða, staðreyndir og töl-
ur um kynjamun og gerð jafhréttisáætl-
ana að sögn Valgerðar Bjamadóttur,
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
Námskeiöahrinan hefst á Húsavík 7.
október nk. og verður í kjölfarið boðið
upp á námskeið á Egilsstöðum, Höfh,
Hvolsvelli, Sauðárkróki, Borgamesi,
Reykjanesbæ, Reykjavik, ísafirði og Ak-
ureyri. -BÞ
Fallegt handbragö
Benedikt Gunnarsson, listmálari frá
Súgandafirði, hannaði listaverkin í
gluggum Suðureyrarkirkju og hefur
tekist vel til eins og vænta mátti.
Steindir gluggar vígðir
Næstkomandi sunnudag klukkan
14 verður hátíðleg stund í Suðureyr-
arkirkju. Vígðir verða 8 steindir
gluggar í kór og framkirkju, sem
Benedikt Gunnarsson, listmálari og
Súgfirðingur, hefur unnið. Eru nú
allir gluggar í kirkjunni prýddir ste-
indu gleri með myndum eftir
Benedikt. Sr. Kristinn Ágúst
Friðfmnsson, prestur i Hraungerði,
sem þjónaði Staðarprestakaili, mun
heimsækja Súgfirðinga og prédika
við athöfnina. Sóknamefnd býður
til kirkjukaffis að gömlum sið í
Verkalýðshúsinu Bjarnaborg. -JBP