Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 V + i Chilavert rekinn Paragvæski markvörðurinn Jose Luis Chilavert hefur verið rekinn frá franska 1. deildarliðinu Stras- bourg vegna deilna við forráðamenn liðsins um greiðslur sem hann telur sig hafa átt rétt á þegar hann var keyptur frá argentínska félaginu Velez Sarsfield. Chilvert telur að Strasbourg skuldi sér 4,4 milljónir dollara og hefur neitað að spila fyrir liðið frá því að keppnistímabilið hófst í Frakklandi vegna vanefnda á greiðslu sem hann segist hafa uppáskrifaða. Forseti Strasbourg segir hins vegar að þetta sé haugalygi hjá Chilvert, rak hann í gær og kallaði hann auman falsara. -ósk m v Staöan: Fylkir 17 10 4 3 30-20 34 KR 17 9 6 2 27-18 33 Grindavík 17 8 5 4 31-22 29 KA 17 6 7 4 18-16 25 ÍBV 17 5 5 7 22-20 20 ÍA 17 5 5 7 27-26 20 FH 17 4 7 6 27-29 19 Fram 17 4 5 8 26-33 17 Keflavík 17 3 8 6 21-29 17 Þór A. 17 3 4 10 22-38 13 18. og síöasta umferö: ÍA-Fylkir...............lau 14:00 KR-Þór, Ak..............lau 14:00 Grindavík-Keöavik.......lau 14:00 FH-ÍBV..................lau 14:00 KA-Fram.................lau 14:00 Skipting marka - raðað eftir nettói hjá liðimunm Föst leikatriöi Grindavík.................+8 (13-5) 13 skoruö - 5fengin á sig = 8 í plús KR..........................+4 (11-7) Fylkir.......................+2 (8-0) ÍBV..........................+2 (7-5) ÍA .........................+1 (10-9) Fram.........................0 (13-13) KA ...........................0(9-9) Þór Ak.......................-3 (7-10) FH ..........................-5(6-11) Keflavík.....................-9 (4-13) Mörk eftir föst leikatriói eru mörk úr vítum, úr eða eftir homspymur, úr eða eftir aukaspymur eða mörk eftir innköst. Mörk eftir hornspyrnur ÍA.......................... +6 (6-0) 6 skoruð - 0 fengin ásig = 6 í plús Grindavík.......-...........+4 (5-1) Fram.........................+1 (5-4) Fylkir..............................0 (3-3) KA ............................0(3-3) Keflavik.....................-1 (3-4) KR..........................-2(1-3) FH............................-2(1-3) Þór Ak.............................-3 (2-5) ÍBV ........................ -3 (0-3) Skallamörk ÍA.................................+5 (7-2) 7 skoruð - 2 fengin á sig = 5 i plús Grindavík..........................+3 (5-2) KR ..........................+2 (4-2) ÍBV........................ +1 (4-3) KA ............................0(5-5) Fram................................0 (4-4) FH.................................-1 (4-5) Fylkir .......................-1(3-4) Þór Ak..............................4 (1-5) Keflavík...........................-5 (4-9) Mörk skoruð utan teigs Grindavík................+8 (10-2) 10 skoruð - 2 fengin á sig = 8 í plús KR ..........................+3 (5-2) FH ..........................+2 (4-2) ÍBV................................+2 (3-1) Fylkir.............................+1 (5-4) KA .............................0(44) Þór Ak.............................-2 (4-6) Keflavík............................4 (3-7) ÍA ...........................4 (1-5) Fram .........................4 (1-5) Mörk skoruð í markteigi ÍA......................+14 (16-2) 16 skoruó - 2 fengin á sig = 14 i plús KR ..........................+4 (84) Fylkir.............................+1 (6-5) Fram................................0 (9-9) ÍBV ..........................-1(6-7) Grindavík ...................-2 (6-8) KA.................................-2 (3-5) Þór Ak......................-3 (8-11) FH .........................-5(6-11) Keflavík....................-6 (4-10) -ÓÓJ -X-ÉlWp ~1“‘ Meira a morgun DV-Sport verður með tvær síður í laugardagsblaði DV og þar verður fjallað meira um lokaumferð Símadeildar karla sem fer fram á morgun. Auk þess verður fjallað um íslenska kvennalandsliðið sem spilar seinni leikinn gegn Englandi á sunnudaginn. -ÓÓJ Verður aukaleikur? - en það getur einnig farið svo að Fylkir og KR yrðu nákvæmlega jöfn Lokaumferð Símadeildar karla fer fram á morgun og þá ættu að ráðast úrslitin um hvaða lið hampar íslands- meistarabikamum og hvaða lið verð- ur að sætta sig við að falla niður i 1. deild með Þór. En úrslitin gætu þó ekki ráðist eftir allt saman því sú skemmtilega staða gæti komið að spilaður yrði úrslitaleikur um titilinn því Fylkir og KR eiga enn möguleika á að verða hnífjöfn. Möguleikamir eru kannski ekki mjög miklir en þeir era samt raun- hæfir og það heftir vakið upp spum- ingar hvað þarf til að spilaður yrði aukaleikur á mótinu í ár. Þar sem liðin gerðu 1-1 jafntefli í báðum leikjunum í sumar þá er það aðeins markatalan sem getur ráðið úrslitunum verði liðin jöfh að stigum eftir leiki morgundagsins. Til þess að svo verði þarf KR að vinna eitt stig og eitt mark af Fylki og skora að auki tveimur mörkum fleiri. Skagamenn verða því að vinna Fylki með einu marki á sama tíma og KR gerir jafntefli við Þór. Vinni ÍA leikinn 1-0 þurfa KR og Þór að gera 3-3 jafntefli. Þá yrði loka- staðan þannig: Fylkir 18 10 4 4 30-21 34 KR 18 9 7 2 30-21 34 Vinni Skagamenn leikinn 2-1 þurfa KR og Þór að gera 4-4 jafntefli. Þá yrði lokastaðan þannig: Fylkir 18 10 4 4 31-22 34 KR 18 9 7 2 31-22 34 Þannig væri síðan hægt að halda áfram ef réttum hlutfóllum er haldið áfram, það er KR-ingar þurfa að vinna stig og mark af Fylki og skora að auki tveimur mörkum fleira. Spilaö til þrautar Halldór B. Jónsson, formaður mótanefndar KSÍ, tjáði DV-Sport í gær að fari svo að liðin verði alveg hnífjöfn þá fer fram úrslitaleikur á Laugardalsvellinum og þar verður leikið til þrautar. Það þýðir að gangi þetta allt eftir þá gæti íslandsmeist- aratitillinn ráðist á vítakeppni en þangað til er langur vegur mikUla til- viljana. Úrslitaleikir tíðkuðust hér fyrr á árum þegar markatalan var ekki lát- in ráða úrslitum þegar liðin voru jöfn að stigum. Alls hefur fimm sinnum verið spilaðir aukaleikir um titilinn, 1962, 1965, 1966, 1967 og 1971. Það er ljóst að þetta væri óska- möguleiki fyrir gjaldkera félaganna tveggja ef marka má aðsóknina að síðasta úrslitaleiknum um íslands- meistaratitilinn sem var fyrir 31 ári. Mesta aösókn á aukaleik Þá léku Keflavik og ÍBV úrslitaleik á Laugardalsvellinum frammi fyrir 10.800 manns sem er mesta aðsókn á innlendan knattspymuleik í sögunni. Eyjamenn hefðu unnið titilinn ef markatalan hefði gilt en Keflvíkingar unnu úrslitaleikinn 4-0. 8.534 mættu á úrslitaleik KR og ÍA sex áram áður og þegar Keflavík og Valur spiluðu tvo úrslitaleiki sumarið 1966 mættu yfir 6.000 manns á báða leikina. í sumar komu samtals 6.543 manns á tvo deildarleiki Fylkis og KR. -ÓÓJ Spennan hefur verið mikil i efstu deild karla á síðustu sjö árum: Síðustu ár hafa boðið upp á spennu fram á síðustu stundu íslenskir knattspyrnuáhuga- menn hafa getið verið nokkuð viss- ir um að spennan í efstu deild hald- ist fram í síðustu umferð. Á morg- un fer fram 18. og síðasta umferð Símadeildar karla og er þetta í fimmta sinn á síðustu sjö árum sem úrslitin um íslandsbikarinn ráðast ekki fyrr en í síðasta leik. Þetta er 26. tímabilið sem er spil- að eftir núverandi fyrirkomulagi, það er tíu lið sem spila 18 leiki og í 15 skipti af þessum 26 hafa úrslitin ráðist í siðustu umferð. Það era helst Skagamenn sem hafa verið iðnir við það að vinna titilinn fyrir síðustu umferð en það hafa þeir_ gert alls fimm sinum en Valsmenn hafa náð þeim árangri þrisvar. Það er ekki nóg með það að á síð- ustu sjö árum hafa úrslitin ekki ráðist fyrr en i síðasta leik, þá hef- ur þrisvar sinnum farið fram úr- slitaleikur í síðustu umferð, það er milli liða sem eiga bæði möguleika á titlinum fyrir síðustu umferö. 1996 vann ÍA lið KR 4-1, 1998 vann ÍBV lið KR 0-2 og í fyrra gerðu Skagamenn og Eyjamenn Hvenær hafa úrslitin ráðist? 18. umferð . . . 15 (58%) 17. umferð . .. 7 (27%) 16. umferð . . . 2 (8%) 15. umferð . . . 2 (8%) Samtals 26 jafntefli sem nægðu gestunum ofan af Akranesi til að tryggja sér ís- landsmeistaratitilinn á markatölu. Úrslitaleikur íslandsmótsins í ár var fyrirfram áætlaður um síðustu helgi þegar Fylkismenn fengu KR- inga í heimsókn. En sömu úrslit og í fyrri leik liðanna, 1-1 jafntefli, þýða að leikimir á morgun koma til með að ráða því hvert íslands- bikarinn fer í ár. Svo má ekki gleyma fallbarátt- unni sem setur ávallt sinn svip á lokadag mótsins en fimmta árið í röð ræðst það í lokaumferðinni hvaða lið fara niður þótt tvö síð- ustu ár hafi annað liðið verið fallið fyrir 18. umferð eða í sömu stöðu og Þórsarar eru í ár. -ÓÓJ Hvenær tryggðu liðin sér titilinn? 1977 .............ÍA (18. umferð) 1978 ...........Valur (17. umferð) 1979 ............ÍBV (18. umferð) 1980 ...........Valur (17. umferð) 1981 ........Víkingur (18. umferð) 1982 ........Víkingur (18. umferð) 1983 .............ÍA (17. umferð) 1984 .............ÍA (16. umferð) 1985 ...........Valur (18. umferð) 1986 ...........Fram (18. umferð) 1987 ...........Valur (17. umferð) 1988 ...........Fram (15. umferð) 1989 ..............KA (18. umferð) 1990 ...........Fram (18. umferð) 1991 ........Víkingur (18. umferð) 1992 .............ÍA (17. umferð) 1993 .............ÍA (16. umferð) 1994 .............ÍA (18. umferð) 1995 .............ÍA (15. umferð) 1996 .............ÍA (18. umferð) 1997 ............ÍBV (17. umferð) 1998 ............ÍBV (18. umferð) 1999 ..............KR (17. umferð) 2000 ..............KR (18. umferð) 2001 .............ÍA (18. umferð) 2002 . . . Fylkir eða KR (18. umferð)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.