Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002
28
Sport
DV
Úrtökumót atvinnukylfinga:
Björgvin
á parinu
- er í 25.-28. sæti í heildarkeppninni
Þátttaka íslenskra
félaga í Evrópu-
keppnum 2003
Þegar lokaumferð Símadeildar
karla er fram undan er áhuga-
vert að velta því fyrir sér hvaða
félög koma til með að leika í Evr-
ópukeppnum á næsta ári. Um er
að ræða eitt lið í undankeppni
meistaradeildar Evrópu, tvö í
Evrópukeppni félagsliða og eitt í
Intertoto-keppnina.
Fylkir fslands- og bikarmeistari
Fyikir ...........Meistaradeild
Fram....Evrópukeppni félagsliöa
KR.................Evrópukeppni félagsliða
Grindavík .....Intertoto-keppni
Fylkir íslandsmeistari /
Fram bikarmeistari
Fylkir ...........Meistaradeiid
Fram....Evrópukeppni félagsliða
KR.................Evrópukeppni félagsliða
Grindavík .....Intertoto-keppni
KR fslandsmeistari /
Fylkir bikarmeistari
KR................Meistaradeild
Fylkir .... Evrópukeppni félagsliða
Grindavík . Evrópukeppni félagsliða
KA.............Intertoto-keppni
KR íslandsmeistari /
Fram bikarmeistari
KR................Meistaradeild
Fram....Evrópukeppni félagsliöa
Fylkir .... Evrópukeppni félagsliða
Grindavík .....Intertoto-keppni
-ÓÓJ
KR-sigur á
Hlíðarenda
KR-ingar unnu Valsmenn, 72-84,
á Reykjavíkurmóti karla í körfu-
bolta í gær en þetta var annar sig-
ur KR-inga á mótinu. KR hafði yfir
33-38 í hálfleik en liðið lék án
þeirra Herberts Arnarsonar og
Arnars Kárasonar sem eiga við
meiðsli að stríða.
Darrell Flake skoraði 24 stig, gaf
8 stoðsendingar, tók 7 fráköst og
stal 6 boltum. Magnús Helgason
skoraði 15 stig, Skarphéðinn Inga-
son var með 13 stig og 5 stoðsend-
ingar og Magni Hafsteinsson skor-
aði 13, tók 9 fráköst og varði 4 skot.
Hjá Val skoruðu þeir Ægir
Hrafn Jónsson og Baldvin Johnsen
13 stig hvor.
í seinni leik kvöldsins unnu ÍR-
ingar sameinað lið Ármanns/Þrótt-
ar, 107-68. Eugene Christopher
skoraði 19 stig fyrir ÍR, Benedikt
Pálsson skoraði 18 og Ómar Sæv-
arsson var með 15 stig. Hjá gestun-
um í Ármanni/Þrótti skoraði Jak-
ob Ásgeirsson 21 stig og Einar Hugi
Bjarnason gerði 17. -ÓÓJ
Björgvin Sigurbergsson, kylfing-
ur úr Golfklúbbnum Keili, er í
25.-28. sæti á úrtökumóti atvinnu-
kylfinga sem fram fer á Five Lakes-
vellinum í Englandi.
Björgvin lék þriðja hringinn í
gær á 72 höggum eða pari vallarins
og hefur hann leikið holurnar 54 á
211 höggum eða fimm höggum und-
ir pari. Mestu munar um frábæra
spilamennsku hans á öðrum hring
en þá lék hann holurnar 18 á 67
höggum eða fimm höggum undir
pari. Björgvin á því enn góða mögu-
leika á því að komast áfram en sam-
kvæmt reglum komast 27 fyrstu
kylfingar á úrtökumótinu áfram.
Það er þó hörð barátta fram
undan hjá Björgvini í dag að halda
sætinu því fimm kylfingar hafa
leikið á fjórum höggum undir pari
og átta kylfingar hafa leikið á
þremur höggum undir pari Five
Lakes-vallarins.
Glæsilegur hringur hjá Ólafi
Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur
úr Golfklúbbnum Keili, fór á kost-
um á úrtökumótinu á Five Lakes-
vellinum í gær en hann lék þriðja
hringinn á 66 höggum eða sex högg-
um undir pari. Ólafur hefur því
leikið samanlagt á 216 höggum sem
er par vallarins en óhætt er að segja
að slæmur fyrsti'hringur þar sem
Ólafur lék á fimm höggum yfir pari
hafi gert út um vonir Ólafs um að
komast áfram.
Hann er samt öruggur um að
komast í gegnum niðurskurðinn því
að allir þeir sem leika á þremur
höggum yfir pari eða minna komast
í gegnum hann eins og staðan er í
dag en reglumar segja að allir þeir
sem eru átta höggum eða minna frá
27. sætinu komist í gegnum niður-
skurðinn.
Marks efstur
Englendingurinn Gary Marks er
efstur eftir þrjá hringi. Marks hefur
leikið á 201 höggi eða fimmtán högg-
um undir pari vallarins. Marks náði
sér ekki á strik í gær og lék aðeins
á 71 höggi eða einu höggi undir pari
vallarins sem er mun lakara heldur
en fyrstu tvo dagana.
Portúgalinn Antonio Sobrinho er
annar en hann er einu höggi á eftir
Marks. Sobrinho lék frábærlega í
gær en hann lék á 64 höggum eða
átta höggum undir pari. -ósk
Ætlar að hvíla Owen
Gerard Houllier, knattspymustjóri Liverpool, hefur lýst því yfir að
hann hyggist hvíla framherjann Michael Owen með vissu millibili í vet-
ur til að koma í veg fyrir að hann meiðist alvarlega.
Owen hefur gengið illa að skora í upphafi móts en Houllier hefur eng-
ar áhyggjur af því og segist þess fullviss að hann muni byrja að skora á
nýjan leik fyrr en varir.
„Michael er ekki jafn frískur og hann gæti verið eftir að hafa spilað í
heimsmeistarakeppninni í sumar. Hann er ekki í sínu besta formi núna
en það kemur. Ég mun hvíla hann á næstunni til að minnka pressuna á
honum en hann tekur það mjög nærri sér þegar honum tekst ekki að
skora í leik. Hann hefur mikið sjálfstraust en það hefur áhrif ef mörg
færi fara forgörðum. Ég veit það hins vegar að hann mun byrjað að skora
eins og venjulega þegar hann er kominn í form,“ sagði Houllier. -ósk
Björgvin Sigurbergsson, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, eygir möguleika á
því aö komast áfram á úrtökumóti atvinnukylfinga sem lýkur á Five Lakes-
vellinum í Engiandi í dag. Björgvin er sem stendur í 25.-28. sæti en 27 fyrstu
kylfingarnir komast áfram.
Spenna í Reykjanesmóti
Það er mikil spenna i Reykjanesmótinu í körfubolta en fiórða umferð
fór fram á Ásvöllum í gær. Það er aðeins ein umferð eftir og gætu
innbyrðisleikir ráðið því hvaða lið koma til með að spila til úrslita en
Njarðvík, Keflavík og Grindavík hafa öll tapað einum leik.
Keflavík vann Breiðablik, 61-81, í fyrri leiknum í gær þar sem Kevin
Grandberg skoraði 25 stig fyrir Keflavík, Damon Johnson gerði 24 og
Sverrir Þór Sverrisson var með 12. Hjá Blikum skoraði Pálmi Þór
Sigurgeirsson 21 stig og Þórólfur Þorsteinsson var með 12 stig.
Njarðvík vann Hauka 75-68. Haukar leiddu þar til þrjár mínútur voru
eftir en þá tóku Njarðvikingar sig til og kláruðu leikinn. Stigahæstir hjá
Njarðvík var Pete Philo með 17 stig og Guðmundur Jónsson kom næstur
með 13. Hjá Haukum lék Stevie Johnson sinn fyrsta leik og var
stigahæstur með 28. Næstur kom Ottó Þórsson með 13 stig. -ÓÓJ/Ben
~V
Breiðdalsá:
315 laxar eru
komnir a land
„Það eru komnir tveir 20 punda og
laxafiöldinn núna eru 315 laxar, í
fyrradag veiddust 9 laxar,“ sagði
Þröstur Elliðason, er við spurðum um
stöðuna í Breiðdalsá. „Einn af þessum
9 löxum var 20 punda og síðan
veiddist einn 16 punda, þetta var fin
veiði,“ sagði Þröstur enn fremur.
Nær Leirvogsá Laxá á Ásum?
„Þetta var allt í lagi, við fengum tvo
laxa og það voru laxar víða í ánni.
Það eiga eftir að veiðast fleiri laxar,“
sagði veiðimaður sem var að koma úr
Leirvogsá sem hefur gefið 515 laxa á
þessari stundu.
Leirvogsá vantar ekki nema um 40
laxa til að ná Laxá á Ásum, en báðar
eru þessar veiðiár með tvær stangir.
Laxá á Ásum endaði í 560 og
Leirvogsá á eftir nokkra veiðidaga
enn þá, svo allt getur gerst.
Hofsá í Vopnafirði bætir sig
Veiðinni lýkur í hverri laxveiði-
ánni af annarri þessa dagana og
margar veiðiár bæta sig á milli ára.
Hofsá í Vopnafirði er ein þeirra
veiðiáa sem bætir sig verulega eða
um 1001 lax, hún endaði í 1912 en gaf
911 í fyrra.
„Það var mikið af fiski þegar við
vorum að veiða í Hofsá fýrir skömmu,
hollið veiddi vel og það er nóg af fiski
í henni til hrygna," sagði veiðimaður
sem var í Hofsá fyrir skömmu, en
veiði lauk í henni i fyrradag. Veiðinni
er lokið í Selá í Vopnafirði en hún gaf
1651 lax en í fyrra gaf áin 1108 laxa. í
Laxá í Aðaldal var lokatalan 1174
laxar, hún bætti sig aðeins á milli ára.
G.Bender
Sigurður Staples meö 20 punda lax úr Breiödaisá í fyrradag en þann daginn veiddust 9 laxar. Veiöimaöurinn sem
veiddi fiskinn var Jóhann Steindórsson frá Breiödalsvík og fiskurinn tók toby-spón.