Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Qupperneq 10
10 UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- _______um sem hér segir:______ Auðbrekka 32, 0301, þingl. eig. HO Fjárfestingar ehf., gerðarbeiðendur Lífeyrissjóðurinn Lífiðn og Tollstjóra- skrifstofa, þriðjudaginn 24. septem- ber 2002 kl. 13.00. __________ Gnípuheiði 19, 0201, kaups.hafar Arn- dís Inga Helland og Eggert Óskar Þor- móðsson, gerðarbeiðendur íbúðalána- sjóður, Landsbanki íslands hf., aðal- stöðv., Sparisjóður vélstjóra og Sýslu- maðurinn í Kópavogi, þriðjudaginn 24. september 2002 kl. 14.00. Hlíðarhjalli 59, 0101, þingl. eig. Hall- dór Margeir Halldórsson, gerðarbeið- andi Ingvar Helgason hf., þriðjudag- inn 24. september 2002 kl. 15.00. Nýbýlavegur 58,1. hæð t.v., þingl. eig. Gunnar Ágúst Ingvarsson, gerðarbeið- endur Búnaðarbanki íslands og Landsbanki íslands hf., aðalstöðv., þriðjudaginn 24. september 2002 kl. 16.00. Vesturvör 30A, þingl. eig. Trefill ehf., gerðarbeiðendur Kópavogsbær og Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudag- inn 24. september 2002 kl. 16.30. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- _______um sem hér segir:_________ Arnarbakki 2, 010102, skyndibitastað- ur næstvestast í húsinu 010102, ásamt öllu fylgifé sem í fasteigninni er, auk þeirra rekstrartækja sem hverju sinni eru geymd í fasteigninni og tilheyra rekstrinum sem starfræktur er þar, sbr. 24. gr. 1. nr.75/1997, þingl. eig. Skagi ehf., gerðarbeiðendur Spari- sjóður Vestmannaeyja og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 24. septem- ber 2002, kl. 11.00. Aústurströnd 3, 0102, 175,50 fm, merkt sem matshluti 010102 skv. teikningu, Seltjarnarnesi, þingl. eig. I. Brynjólfsson og Co ehf., gerðarbeið- endur Eftirlaunasjóður starfsmanna Búnaðarbankans, Jón Ólafsson og Landsbanki íslands hf., aðalstöðvar, þriðjudaginn 24. september 2002, kl. 11.30.___________________________ Barónsstígur 49, 0101,1. hæð, Reykja- vík, þingl. eig. db. Guðbjargar Selmu Stefánsdóttur, gerðarbeiðandi db. Guðbjargar Selmu Stefánsdóttur, þriðjudaginn 24. september 2002, kl. 10.00.__________________________ Dugguvogur 3, 0201,269,6 fm iðnaðar- og atvinnuhúsnæði m.m. ásamt 83,1 fm geyslurisi undir þaki, Reykjavík, þingl. eig. Ó. Straumfjörð ehf., gerðar- beiðendur íslandsbanki hf. og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 24. sept- ember 2002, kl. 13.30. Hraunbær 78, 0302, 5 herb. íbúð á 3. hæð t.h. ásamt herb. í kjallara, Reykjavík, þingl. eig. Stefanía Gyða Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 24. septem- ber 2002, kl. 14.30.____________ írabakki 22, 0102, 3ja herb. íbúð á 1. hæð f.m., geymsla og niðurhólfað sér- rými í kjallara m.m., Reykjavík, þingl. eig. Lárus Stefánsson og Sigríður Guð- björg Hrafnsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, Tal hf., og Tollstjóraembættið, þriðjudag- inn 24. september 2002, kl. 15.00. Klukkurimi 37, 0203, 50% ehl. í 3ja herb. íbúð nr. 3 frá vinstri á 2. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Siguroddur Pét- ursson, gerðarbeiðendur Alþjóðlegar bifrtrygg. á ísl. sf., Dýralæknaþjónusta Suðurlands ehf. og Dýralækningar ehf., þriðjudaginn 24. september 2002, kl, 15.30.________________ Kötlufell 1, 0301, 3ja herb. íbúð á 3. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Berglind Ósk Sigurjónsdóttir, gerðar- beiðandi Fellaskóli, þriðjudaginn 24. september 2002, kl. 16.00. Laufrimi 18, 0103, 4ra herb. íbúð á 1. hæð, 98,8 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Margrét Hjartardóttir, gerðar- beiðendur Landssími íslands hf., inn- heimta, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, og Tollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 24. september 2002, kl. 16.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Útlönd Hefndir á hefndir ofan: Arafat umkringdur eftir sjálfsvígsárás ísraelskir skriðdrekar um- kringdu í gær höfuðstöðvar Yassers Arafats, forseta Palestínumanna, eftir að landi hans sprengdi sig upp í ísraelskum strætisvagni á götum Tel Aviv. Hamas-samtökin hafa eignað sér ábyrgðina á árásinni sem kostaði fimm manns lífið. Árásin var gerð í hefndarskyni vegna dráps ísraelsmanna á háttsettum Ham- asliða í lok júlí en 14 óbreyttir palestínskir borgarar féllu einnig í þeirri árás. Segja samtökin árásina í gær vera þá fyrstu í röð sambæri- legra árása. í morgun höfðu ísraelskar her- sveitir þegar rústað tíu byggingar og reykur stóð upp úr höfuðstöðv- um Árafats i Ramallah. Tveir líf- verðir Palestínuforsetans höfðu særst en sjálfur var hann ómeiddur. Höfuðstöðvamar eru líkar virki, enda hafa þær ósjaldan orðið fyrir barðinu á ísraelska hernum í kjöl- far sjálfsmorðsárása palestínskra Sprengja í strætó ísraelska stjórnin snýr spjótum sín- um aö Yasser Arafat eftir sjálfs- morösárás ÍTel Aviv sem Arafat hefur fordæmt. bókstafstrúarmanna. Heimastjórn Palestínumanna fordæmdi í gær sprengjuárásina í Tel Aviv og krafð- ist þess að alþjóðasamfélagið beitti sér til þess að stöðva ágang ísraels- manna. Ástæða þess að ísraelska stjórnin sendir herinn á Arafat er sú að hún telur forsetann ekki gera nóg til þess að koma í veg fyrir þær. Hann hefur jafnvel verið sakaður um að veita árásunum beinan stuðning. ísraelskir stjórnmálaskýrendur efast margir hverjir um þörfrna á þyí að ráðast á höfuðstöðvar Arafats i Ramallah. Hann hefur verið lokað- ur inni í borginni í ár og er talinn að mestu orðinn valdalaus forseti sem hefur táknrænt gildi. Árásin á strætisvagninn í gær var hrottafengin. Vitni sáu líkams- hluta þeytast frá vagninum þegar Palestínumaðurinn sprengdi sig og aðra um hádegisleytið en 50 manns særðust í árásinni. Stríösmaöur í Kongó Stríösmaöur úr kongóska ættbálknum Mai Mai sýnir Uzi vélbyssu sína í bænum Kindu í Kongó í gær eftir aö skæru- liöar frá Rúanda yfirgáfu bæinn, samkvæmt brothættu friöarsamkomulagi milli landanna tveggja. Stríðsmaðurinn ber fjölda verndargripa sem hann segir beina byssukúlunum fram hjá sér. Þjóðverjar ganga að kjörborðinu á sunnudag: Schröder og Stoiber gera úr- slitaatlöguna að kjósendum Kosningabaráttan i Þýskalandi nær hátindi sínum í dag þegar þeir Gerhard Schröder kanslari og Ed- mund Stoiber, kanslaraefni íhalds- manna, gera úrslitaatlöguna að kjósendum til að reyna að lokka þá til fylgis við sig. Flestar skoðanakannanir benda til að Schröder njóti ívið meira fylg- is en Bæjarinn Stoiber. Munurinn á fylgi stóru fylkinganna er þó svo lít- ill að hann er ekki marktækur. Schröder kanslari fór á heima- slóðir í Hannover í gær þar sem honum var fagnað sem hetju. Tíu þúsund stuðningsmenn hans fylltu hokkíleikvang borgarinnar og hrópuðu nafn hans í kór. Schröder vandaði íhaldsmönnum, fylgis- mönnum Stoibers, ekki kveðjumar. „Þeir skildu eftir sig fjallháar REUTERSA1VND Á heimaslóöum Gerhard Schröder Þýskalandskansl- ari var á heimaslóöum í gær. skuldir og þeir vilja íþyngja landinu með meiri skuldum komist þeir til valda á ný,“ sagði Schröder á þess- um fjölmennasta fundi kosningabar- áttunnar. Og áfram hélt hann: „Þetta eru menn gærdagsins. Sá eini sem vant- ar í liðið er Helmut Kohl sem æsku- lýðsmálaráðherra þeirra." Fundarmenn voru svo hrifnir af ræðu kanslarans að þeir stöðvuðu hann meira en þrjátíu sinnum með lófataki og fagnaðarlátum. Edmund Stoiber, kanslaraefni íhaldsins, hótaði i gær að meina Bandaríkjamönnum að nota her- stöðvar í Þýskalandi til árása á írak. Andstaða Schröders við stíð gegn írak hefur fallið í góðan jarð- veg meðal kjósenda og vildi Stoiber ekki vera eftirbátur hans. FÖSTUDAGUR 20, SEPTEMBER 2002 DV Samsæri gegn Musharraf Sið upp um samsæri gær en pakistanskir kollegar hans hafa aftur á móti bor- ið slíkt til baka og sagt að ekkert væri samsærið. Forseti hraðar sér heim Forseti Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að hraða sér heim frá Ítalíu vegna valdaránstilraunar í gær þar sem fyrrum herstjóri lands- ins var drepinn. Ráðist á Kanann Ráðist var á bandaríska sérsveit- armenn í austanverðu Afganistan í morgun en enginn þeirra meiddist. Árásarmenn beittu þungum vél- byssum, meðal annars. Stefnir í lokauppgjör Mohammad Khatami íransforseti ætlar að leggja fram tvö lagafrum- vörp við upphaf íranska þingsins á sunnudag þar sem hann mun reyna að klekkja á harðlínumönnum sem berjast gegn honum. ísidór á leið til Kúbu Fellibylurinn ísidór hefur verið að sækja í sig veðrið í Karíbahafinu og stefnir nú á vestanverða Kúbu. Mestur vindhraði var kominn í 140 kílómetra á klukkustund. Fækkar í öxulveldum yfe# • á| morgun að George ð .. —iM seti hefði tjáð sér að Bl hann myndi íhuga að feiia Norður-Kóreu úr flokki öxulvelda hins illa þar sem einnig eru írak og íran. Leitað að flugmanni Leyniþjónustur Bandaríkjanna leita nú að súdönskum herflug- manni sem sagt er að sé að skipu- leggja rán á flugvél sem hann ætlar síðan að fljúga á Hvíta húsið. Dag- blaðið Washington Times greindi frá þessu í morgun. Vilja Papon aftur inn QFrönsk stjómvöld tilkynntu í gær að þau myndu reyna að koma því til leiðar að nas- istasamverkamannin- um Maurice Paopon yrði aftur stungið í fangelsi. Papon var leystur úr haldi í fyrradag vegna bágborins heilsufars. Hann er á tí- ræðisaldri. Rússar ógna friði Stjórnvöld í Georgíu sökuðu í gær Rússa um að stofna friði í Kákasus- fjöllum í voða með herskárri stefnu sinni í garð uppreisnarmanna sem halda til í fjallagljúfri í Georgíu. Carla býst við frestun Carla del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadómstólsins í Haag, sagðist í gær eiga von á að réttar- höldunum yfir tveimur helstu bandamönnum Radovans Karadz- ics, fyrrum leiðtoga Bosníu-Serba, yrði frestað fram á næsta ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.