Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002
Menning
DV
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
DV-MYND HARI
Bókmenntafræöingurinn Ragnhildur Richter
„Mér finnst mjöggaman aö vekja athygli á þessum konum. Þaö var minn hvati. Af því þær eru svo frábær-
ar og hafa svo margt merkilegt aö segja. “
myrkri til ljóss, og á fyrstu blaðsíðu tekur höfund-
ur fram að hún sé ekki aðalpersóna sögunnar held-
ur Guð. Bókmenntirnar eru ríkar af sögum af ævi
karlhetjunnar en konur hafa aldrei mátt vera upp-
teknar af sjálfum sér heldur hafa alla tíð átt að
hugsa um aðra. Þær áttu að standa vörð um heið-
ur fjölskyldunnar, meðal annars með þagmælsku
um eigin hagi. Bækumar þeirra bera vott um
þetta. Þótt þær séu að skrifa ævisögur sínar þá
Qalla þær margar mest um annað fólk. Þó segist
Guðrún Borgfjörð til dæmis hafa lifað margt
merkilegt, sem ýmsir hefðu gott af að lesa um.“
Auðvitað hafa konur innst inni verið uppteknar
af sjálfum sér, bara ekki mátt láta þá hugsun
blómstra.
- Býstu við að karlar lesi þessa bók?
„Konur hafa alltaf lesið bækur, bæði eftir konur
og karla, og lært heilmikið af körlum. Á sama hátt
held ég að karlar geti lært heilmikið af konum.
Hér fá þeir tækifæri til þess. Ég trúi ekki öðru en
þeir nýti sér það. Annars velti ég því ekki mikið
fyrir mér. Sumar kvennanna í þessari bók fóru
ótroðnar slóðir og hösluðu sér völl - svo ég noti nú
karlalegt mál - á nýjum sviðum. Sviðum sem kon-
ur höfðu ekki verið á áður og jafnvel karlar ekki
heldur. Tökum Maríu Markan. Hún er ekki bara
fyrsta íslenska konan sem er ráðin við Metrópólit-
an óperuna, heldur fyrsti og eini íslendingurinn.
Hvar er safndiskur með söng hennar - nema
hvergi? Helga Níelsdóttir byggir sjálf og stofnar
einkarekið fæðingarheimili. Hvar getur maður
flett í uppsláttarbók og lesið um það? Ekki reynd-
ist mér það auðvelt. Kristín Dahlstedt var með
heilmiklar nýjungar í veitingarekstri og rak „Kaffi
Fjallkonuna“. Mér gekk mjög illa að finna heimild-
ir um margar þessara kvenna til að nota í kynn-
Konum hættir til að gleymast
- segir Ragnhildur Richter sem hefur tekið saman úrval úr ævisögum kvenna
Ragnhildur Richter, bókmenntafrœöingur
og kennari viö MH, hefur nýlega tekió saman
stórbók sem heitir íslenskar konur - œvisögur.
Bókin er gefin út afMdli og menningu og þar
er úrval úr áöur útgefnum œvisögum 18
kvenna. Ragnhildur skrifar formála þar sem
hún fjallar um œvisagnaritun og sérstööu
kvenna innan þess geira. Einnig inngang aö
hverjum kafla þar sem hún kynnir höf-
undana. Á sínum tíma skrifaöi hún cand.
mag. ritgerö um sjálfsœvisögur íslenskra
kvenna og gaf hana út. Hún hefur líka veriö
kennari á námskeiöi í háskólanum sem fjall-
ar um sjálfsævisögur bæöi karla og kvenna.
„Markmið forlagsins var að gefa út sýnisbók,"
segir Ragnhildur. „Upphaflega átti hún bara að
vera úr ævisögum sem konur hefðu skrifað sjálfar
en síðan ákváðum við að opna einnig fyrir þeim
sem skráðar eru af öðrum en eru sagðar í 1. per-
sónu. Svona bækur eru í tísku um þessar mundir.
Þar er verið að gefa fólki kost á að komast yfir
mikið efni á stuttum tíma. Bókin endurspeglar
vonandi hvað lif kvenna er fjölbreytt - og raunar
mannlífið í heild - og mér finnst mjög gaman að
vekja athygli á þessum konum. Það var minn
hvati. Af því þær eru svo frábærar og hafa svo
margt merkilegt að segja. Sumar þeirra eru alls
ekkert frægar en hafa ekki síður mikilvægri lifs-
reynslu að miðla til okkar. Vonandi kveikja kafl-
amir sem hér birtast áhuga fólks á að ná í bæk-
umar sem þeir eru úr. Þær eru allar til á Lands-
bókasafninu og margar á almennum söfnum en
fæstar til sölu.“
Fjalla margar um annað fólk
- Er styttri hefð fyrir ævisagnaritun kvenna en
karla?
„Já, fyrsta sjálfsævisaga íslenskrar konu kom
út 1925. Það er saga Ólaflu Jóhannsdóttur, Frá
ingarkaflana. Líka um þær konur sem vom þó
áberandi á sinni tíð. Konum hættir frekar til að
gleymast en körlum og mér finnst það slæmt. Allt
ungt fólk leitar að fyrirmyndum og það er mikil-
vægt að ungar konur hafi sterkar fyrirmyndir í
öðrum konum."
Auövitað ævisögur
- Þurftirðu ekki að sleppa mörgum áhugaverð-
um konum í þessari bók?
„Jú, jú, þetta var erfltt val. Þegar ég var að
safna efninu og sagði fólki frá verkefninu þá höfðu
allir skoðun. „Það verður að taka þessa með og
þessa.“ Því býst ég við að margir sakni margra!"
- Gætir þú hugsað þér að skrifa ævisögu þína?
„Já, ég held það væri ráð að byrja sem fyrst,
ekki síst til að kynnast sjálfri sér. Mér finnst gam-
an að lesa ævisögur annarra, bæði til að kynnast
þeim og spegla sjálfa mig í þeim. Auðvitað væri
það stórkostlegt að við skrifuðum ævisögur okkar
- fyrir virðulega lesendur." -Gun.
Að læra fyrir sjálfan sig
- úrval spennandi námskeiða hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands í haust
Þessa dagana streyma gamlir og
nýir lœrdómsjiklar inn á Netió til að
skrá sig í spennandi námskeiö hjá End-
urmenntunarstofnun Háskóla íslands.
Af skráningum aö dœma þessar fyrstu
uikur er Jón Böövarsson langvinsœlast-
ur meó nœr 300 manns í Brennu-Njáls
sögu. Námskeiö um Rakarann í Sevilla
verður líka vinsœlt og sama gildir um
námskeiö um œvintýraeyna Kúbu (frá
l.okt.), þannig aö fólk vill aö saman
fari skemmtan og frϚsla.
Anna Heiöa
Bókmenntír
Öll erum við alltaf að segja sögur - skrýtlur af
börnunum, slysa- og óhappasögur, kjaftasögur
úr vinnunni. Samt getur vafist fyrir okkur að
segja vel frá frammi fyrir fólki. 8. október hefst
námskeiðið Að segja góða sögu þar sem Anna
Heiða Pálsdóttir bókmenntafræðingur kennir
aðferðir við raddbeitingu og framkomu og gefur
góð ráð til að gera góða sögu ennþá betri.
Námskeið Jóns Böðvarssonar í Brennu-Njáls
sögu stendur í allan vetur frá 30. sept.; 2. októ-
ber hefst námskeið hans um Þingeyingasögur og
1, október hefst námskeið um Sturlungu sem
Magnús Jónsson kennir.
Óvæntum og sivaxandi áhuga landsmanna á
hinum forsmáðu rímum verður sinnt á nám-
skeiði um bragfræði rímna og rímnakveðskap
sem Steindór I. Andersen kvæðamaður og Krist-
ján Eiríksson íslenskufræðingm- kenna. Það
hefst 4. nóvember en vissara mun að skrá sig
tímanlega.
Skáldskapur Guðbergs Bergssonar er tekinn
til vandlegrar greiningar á námskeiði sem
Birna Bjamadóttir bókmenntafræðingur sér
Pálsdóttir.
Jón Böðvarsson.
Steindór I. Andersen.
Guöbergur Bergsson.
Oddný Sen.
um. Hún fær líka til sín gestafyrirlesara og í síð-
asta tímanum er von á Guðbergi sjálfum í heim-
sókn.
Ný námskeiðaröð um lykilverk heimsbók-
menntanna í heimspeki, þekkingarfræði og sið-
fræði hefst 3. október, meðal kennara eru Jón
Ólafsson og Gauti Kristmannsson. Einnig verð-
ur Eiríkur Smári Sigurðarson með námskeiðið
Vagga vestrænnar menningar um Grikkland
hið foma frá 14. október.
Sjónlistir
I samvinnu við Listasafn Islands
verður námskeiðið Safnalestin brunar í
allan vetur frá 19. okt. Þar leiðir Rakel
Pétursdóttir þátttakendur imi söfn og
sýningarhús á höfuðborgarsvæðinu sem
sérfræðingar kynna fyrir þeim.
Harpa Bjömsdóttir myndlistarmaður
hefur umsjón með námskeiðinu Orð
mætir mynd sem hefst 15. október. Þar
koma saman listamenn orðs og myndar
og skoðað er hvemig orðið getur kveikt
hugmynd að myndverki og myndverk
að bókmenntaverki. Meöal listamanna
verða Sjón, Vilborg Dagbjartsdóttir, Ólöf Nordal
og Níels Hafstein.
Ólafur Gíslason listgagnrýnandi fjallar um
sambúð ljósmyndar og málaralistar í námskeið-
inu Ljósmyndin, myndlistin og sjónskynið sem
hefst 16. október. Og í samstarfi við Kvikmynda-
safn Islands verður námskeið um sögu íslenskra
kvikmynda sem Oddný Sen kvikmyndafræðingur
sér um og hefst 9. október.
Námskeiðið Að lesa hús (frá 3. okt.) fjallar um
byggingarlist og upplýsir þátttakendur um
gmnnþætti hennar. Kennari er Guðríður Dögg
Hauksdóttir arkitekt.
Óperan Rakarinn í Sevilla eftir Rossini verður
skoðuð og rædd frá og með 28. október undir
stjóm Gunnsteins Ólafssonar hljómsveitarstjóra.
Þess má geta að stórstimin Kristinn Sigmunds-
son og Gunnar Guðbjömsson syngja báðir í sýn-
ingunni sem þátttakendur fá að sjá.
I bæklingi stofnunarinnar, sem fæst á Dun-
haga 7 eða á Netinu (www.endurmenntun.is), má
lesa um ótal fleiri möguleika til að mennta sig
betur og meira.
Þóröur
og Beethoven
Fyrstu tónleikar Kammermús-
íkklúbbsins á 46. starfsári verða
á sunnudagskvöldið í Bústaða-
kirkju og hefjast kl. 20. Þar kem-
ur saman einvalalið, Sigrún Eð-
valdsdóttir, Zbigniew Dubik,
Helga Þórarinsdóttir og Bryndís
Halla Gylfadóttir, og leikur valin
verk. Þau byrja á Strengjakvar-
tett í d-moll, op. 56, „Voces
intimae" frá 1909, eftir Jean Si-
belius, síðan leika þau „Guðrún-
arkviðu ina fyrstu", strengja-
kvartett í flmm köflum frá 2001
eftir Þórð Magnússon og loks
Strengjakvartett nr. 7 í F-dúr op.
59.1 frá 1806 eftir Ludwig van
Beethoven.
Þórður er tæplega þrítugur en
þegar hafa verið flutt eftir hann
á annan tug tónverka, hér heima
og erlendis. Upphaflega var Guð-
rúnarkviða hans samin fyrir
messósópran og strengjakvartett
eins og hæfir efninu sem er
líkvaka Guðrúnar Gjúkadóttur
yfir Sigurði Fáfnisbana. Þegar
verkið var fmmflutt sem
strengjakvartett á Myrkum mús-
íkdögum sl. vetur sagði gagnrýn-
andi DV meðal annars: „Þórður
Magnússon er með okkar alefni-
legustu tónskáldum og strengja-
kvartett hans sem hann nefnir
„Guðrúnarkviðu ina fyrstu“ ber
ótvírætt vott um einstaklega
frjótt ímyndunarafl. Verkið er
glæsileg tónsmíð, ekki síst í ljósi
þess hversu ungur Þórður er og
mikils má af honum vænta í
framtíöinni."
Nadar: Sarah Bernhardt
(ca 1866).
Leiðsögn um
ljósmyndasýningu
Listasafn Islands stendur fyrir
viðamikilli fræðsludagskrá í
tengslum við hina glæsilegu ljós-
myndasýningu Þrá aug£ms sem
kemur frá Modema Museet í
Stokkhólmi og snýst um sögu
ljósmyndarinnar. Næst verður
Einar Falur Ingólfsson, mynd-
stjóri Morgunblaðsins, með leið-
sögn um sýninguna á sunnudag-
inn kl.15. Kaffistofa og safnbúð
eru opin kl. 11-17 eins og sýning-
arsalirnir.
Eitt hið sérstæðasta við sýn-
inguna er að verkin á henni eru
ekki eftirtökur heldur frumein-
tök sem ljósmyndaramir sjáffir
og aðstoðarfólk þeirra bjuggu til
á sínum tima. Þola þær takmark-
aða lýsingu í sölum og sökum
þess hefur eigandinn ákveðið að
eftir Reykjavíkursýninguna
verði sumar elstu myndanna
ekki sýndar oftar á almennum
sýningum.
Til Sauðárkróks
Farandsýning Handverks og
hönnunar verður opnuð í Ljós-
heimum við Sauðárkrók kl. 20 i
kvöld og verður hún opin kl.
13-17 laug., sun. og mán. Á sýn-
ingunni er fjölbreytt handverk
og listiðnaöur eftir 25 aðila.